Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994
11
Fréttir
Áform um sorpurðun í
Melasveit úr sögunni
Melar í Melasveit. Borgarnes og Akranes ætla sér að nýta jörðina undir
sameiginlega sorpurðun. DV-mynd Sigurður
Sigurðux Svenissan, DV, Akranesi:
Leirár- og Melahreppur hefur
ákveðið að nýta sér forkaupsrétt á
jörðinni Melum í Melasveit sem boð-
in var upp fyrir skömmu. Akranes-
kaupstaður og Borgarnesbær gerðu
sameiginlega hæsta boð í eignina á
uppboðinu - 8 milljónir króna - með
það fyrir augum að nýta jörðina und-
ir sameiginlega sorpurðun.
Sigurður Valgeirsson, oddviti Leir-
ár- og Melahrepps, sagði í samtali við
DV að hreppurinn hefði ákveðið að
nýta sér forkaupsréttinn að jörðinni
þar sem ekki kæmi til greina að
heimila sorpurðun innan hreppsins.
Hann sagði ákvörðun þar að lútandi
hafa verið tekna fyrir ári. Sigurður
sagði jafnframt að sú ákvörðun
kaupstaðanna að bjóða í jörðina
hefði komið sér nokkuð á óvart en
hann hti á tilboðið sem fljótfæmi.
Gísh Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi, sagði í samtah við DV að ástæða
þess að kaupstaðimir hefðu samein-
ast um að bjóða í jörðina byggðist
m.a. á því að fyrir lægi skýrsla sem
benti á umrædda jörð sem besta val-
kost í sorpurðunarmálum í næsta
nágrenni kaupstaðanna.
Ný flæðilína í frystihúsi Tanga hf. á Vopnafirði var tekin i notkun 21. janúar. Hún var smíðuð i skipasmíðastöð
Þorgeirs & Ellerts á Akranesi en öll færibönd voru smíðuð hér heima hjá Bilum og vélum. - Konur við vinnu í
frystihúsinu. DV-mynd Ari Hallgrimsson
Tímarit um trúmál
og mannlegt samfélag
Stofiiað 1983
4 tölublöð á ári/verð aðeins kr. 1620
Áskriftarsímar 91-611000 & 610477
Framhaldsskóli Vestfjarða:
Fjöldi nemenda
hefur hætt námi
Siguijðn J. Sigurðssan, DV, ísafirði:
„Ég verð að viðurkenna að það er
enginn shkur hsti fyrirliggjandi. Við
höfðum gert ráð fyrir því að menn
innrituðu sig sérstaklega ef þeir
væru að breyta til en okkur er Ijóst
að fleiri hafa hætt námi en við reikn-
uðum með og hafa tilkynnt okkur
þar um. Fólk lætur sig hverfa. Þetta
þýðir það að við þurfum tíma til að
finna út hverjir eru raunve'rulega í
skólanum," sagði Björn Teitsson,
skólameistari á ísafirði.
í haust hófu 240 nemendur nám en
aht bendir til að 50 nemendur hafi
hætt námi um áramót. Á vorönn
skráðu 30 nýir nemendur sig og virð-
ist þvi sem afföllin séu 20 nemendur
en það þykir eðlilegt við annarskipti
að sögn Björns. Eru nemendur á
Patreksfirði þá taldir með.
„Það er nánast ókleift að gefa upp
hve margir féllu á prófunum fyrir
jól. Menn faha í einum og einum
áfanga en teljast ekki fahnir út úr
skólanum fyrr en þeir eru fallnir í 3
tíl 4 áfóngum," sagði Bjöm.
Hann sagði að nokkuð væri um að
nemendur hættu námi án þess að
tilkynna um það til skólans. Nokkrir
nemendur, sem skráðu sig í skólann
í haust, mættu ekki þegar skólastarf-
ið hófst. Nokkrir hættu á haustmán-
uðum en meginþorri þeirra sem
hefðu hætt fór pm áramót.
Seyðisfiörður:
AIK í gang í Fiskiðjunni á ný
Pétur Kristjánsson, DV, Seyöisfirði:
Vinna er hafin aftur í Fiskiðjunni
Dvergasteini hf. eftir mánaðar stopp.
Togarinn Guhver landaði þar 90
tonnum af bolfiski á þriðjudag og er
tahð að sá fiskur dugi út vikuna. Von
er á Gihlveri að nýju um helgina.
Eins og gefur að skhja eru þessi
tíðindi gleðheg fyrir bæjarbúa þar
sem 50 manns vinna í húsinu þegar
starfsemi er þar í gangi. Undanfarið
hefur verið unnið að undirbúningi
fyrir loönufrystingu og er búist við
að vinna hefjist um leið og gæftir
lagast og loðnan gefur sig.
Hamboig
Veittur er 5% staðgreiðsluafcláttur*
amamirm
í tvíbjli í
2 nœturog
3 dagaá
Hotel Graf
Moltke.
í Hamborg bjóöum viö gistingu á
eftirtöldum gæðahótelum:
Graf Moltke, Berlin, Mortopol, SAS
Plaza, Metro Mercur og Ibis.
*M.v. að greitt sé með minnst 14 daga fyrirvara. Innifalið er flug,
gisting, morgunverður og flugvallarskattar. Börn, 2ja - 11 ára, fa
10.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri greiða 3000 kr. Enginn
bókunarfyrirvari.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt
land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga
vikunnar frá kl. 8 -18). (D ®
Ein helsta verslunarborg Þýskalands,
vörugæði og hagstætt verð. Nafntogaðir
veitingastaðir, krár, vínstofiir,
skemmtistaðir, fjömgt næturlíf af öllu
tagi. Tónleikar, sígild tónlist, jass og
rokk, leiksýningar, eitt virtasta
óperuhús í Evrópu, frábær söfn, fallegt
umhverfi, gott mannlíf.
Brottfarir á
fimmtu-, föstu- og laugardögum.
Heimflug á
sunnu-, mánu- og þriðjudögum.
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi