Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994 15 Nátttröll í ríkimi I kjallaragrein DV 12. janúar sl. birtíst grein eftir Vilhjálm Egilsson sem bendir réttilega á þá óþægilegu stöðu sem ýmis opinber og hálf- opinber fyrirtæki eru komin í með tilkomu EES og nútíma viöskipta- hátta. Fyrr eða síðar dagar þessi nátttröll í ríkinu uppi þegar þau nauðug viljug veröa að beygja sig undir samkeppnislög og reglur. Þeirri alhæflngu Vilhjálms um að „gott samkomulag sé um það í þjóðfélaginu að skattleggja áfengi mjög mikið og varan eigi að vera dýr“ er á hinn bóginn algjörlega hafnað og tel ég mig mæla fyrir munn hins þögla meirihluta sem hefur hingað tii tekið skattlagningu áfengis sem gefnum óbreytanleg- um hlut og brugðist þannig við að breyta lífsstíl sínum og neita sér um lúxusinn eða snúið sér að „landamarkaönum". Dæmigert neysiumynstur Ég tel að fylgni miih verðlags á áfengi og áfengissýki sé ekki það mikil að hún réttlætí þá skattlagn- ingu sem hinn þögh meirihlutí hef- ur látið ganga yfir sig. Dæmigert neyslumynstur hins þögla meirihluta gætí verið eitt- hvað á þessa leiö: rauðvín með laugardagshakkinu, gin og tonik yfir laugardagsmyndinni og pöbba- rölt með vinum og kunningjum. Þessum „lúxus“ lífsstíl stendur Kjallarirm Jenný Stefanía Jensdóttir viðskiptafræðingur hinn þögli meirihlutí ekki undir, m.a. vegna þess að hann stendur í ströngu við að uppfyha frumþarfir sínar: fæði, klæði og húsnæði. Skattlagning áfengis er komin upp fyrir öll velsæmismörk og beinlínis óskynsamleg þar sem færa má rök fyrir því að lægri skattlagning myndi skila ríkinu hærri skatttekjum vegna aukinnar eftírspurnar. Þetta verður rökstutt út frá einfóldu alþekktu Ukani um framboð og eftirspurn. A samkeppnismarkaði haUar eft- irspurnarhnan niður á við en fram- boðslínan upp á við sem skýrist af því að eftíspurn eftir vöru eýkst við lækkandi verð og framboð vöru eykst við hækkandi verð. Markað- urinn leitar stöðugt jafnvægis með hliörun eftírspurnar og/eða fram- boðs. Jafnvægisverð á hverjum tíma myndast við skurðpunkt framboðs og eftírspurnar. Á einok- unarmarkaði er þessu aUt öðruvísi farið. Framboðslínan verður lárétt frá föstum verðpunktí. Krafa hins þögla meirihluta Neytendamarkaði ÁTVR má í ýktu dæmi skipta í tvo hópa, A og B. A er hópur vel efnaðra neytenda sem kæra sig koUótta um verðlagn- ingu ÁTVR. Þeir kaupa sitt magn miðað við sinn lífsstíl. Þessum hópi tilheyrir einnig sá hópur virkra alkóhóhsta sem hefur efni á að drekka „eöalvínanda“. DA sýnir eftirspurn þessa hóps sem fullkomlega óteygna, þ.e. verð skiptír engu máli. B er hópur neytenda (hins þögla meirihluta) sem hafa í auknum mæh, nauöugir viljugir, breytt lifs- stíl sínum. DB sýnir eftírspurn þessa hóps sem teygna, þ.e. hækkandi verð, minnkandi magn. Þeir sem eru enn fyrir ofan skurðpunkt framboðs- línu ÁTVR versla enn við ríkið en smáhliðrun upp á við veldur því að mjög margir faUa út. Þeir sem eru fyrir neðan skurðpunktínn hafa hætt viðskiptum við ÁTVR og leitað annað, s.s. í ólögleg og heUsu- spUlandi landaviðskiptí eða löglegt heimabrugg. Hliðrun niður á við, þ.e. verðlækkun, myndi hafa þau áhrif að viðskiptí myndu stórauk- ast og landahópurinn kæmi aftur í viðskiptí. Tekjur ríkisins myndu þannig stóraukast og verða meiri en nemur verðlækkuninni. Krafa hins þögla meirihluta hlýt- ur því að vera sú að „ríkið“ velti þessu reikningsdæmi fyrir sér og hagi verðlagningu hræsnislaust út frá skynsemissjónarmiðum. Jenný Stefanía Jensdóttir „Skattlagning áfengis er komin upp fyrir öll velsæmismörk og beinlínis óskynsamleg þar sem færa má rök fyr- ir því aö lægri skattlagning myndi skila ríkinu hærri skatttekjum vegna auk- innar eftirspurnar.“ Einmenningslýðræði Sjálfstæðisflokksins Stjórnun borgarinnar og velmeg- un borgarbúa snýst ekki um stór- ar, glæstar hallir eða fahega minn- isvarða, hún snýst upi fólk. Við verðum að byggja borgina okkar þannig upp að fólkinu þyki gott að búa hérna og að því þyki vænt um borgina sína. Fólkið hefur glatað trúnni á aö þetta sé borgin sín og lítur oft þannig á að þetta sé einka- mál fárra útvalinna fulltrúa. Fjármunir okkar allra Manni virðist oft að borgarfull- trúar Sjálfstæðiflokksins og stofn- anir borgarinnar, sem sjálfstæðis- menn ráða yfir í flestum tilfellum, líti á borgarsjóð sem sérstaka eign sjálfstæðismanna en ekki sem eign borgarbúa allra. Þessum hugsun- arhætti verður að breyta og láta fólkið finna að þetta eru fjármunir okkar allra en að það sé ekki eitt- hvert náttúrulögmál að sjálfstæðis- menn eigi að ráðskast með þetta eins og þeim sýnist. Sumar stofn- anir og nefndir eru svo uppteknar í hagsmunagæslu fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að heilbrigð skynsemi og frjór hugsunarháttur um úrbætur og framfarir fá ekki notíð sín því í stjórnunarstrúktur þeirra ríkir mikið fámenningslýðræði og eng- inn þorir að taka sjálfstæða ákvörðun nema skipunin komi að ofan. Eitt af helstu verkefnum borgar- stjórnar er að deila út því fjár- magni sem tíl ráðstöfunar er í borg- arsjóði. Það er því mikilvægt að vandað sé til þeirrar skiptingar og KjaUariim Gunnar Gissurarson stefnir á 4. sæti fyrir Alþýðuflokkinn í sameiginlegu framboði í borgarstjórnar- kosningunum í vor tryggt að það fjármagn sem til ráð- stöfunar er verði borgarbúum tíl hagsældar og því sé deilt réttlátlega og í þau verkefni þar sem þörfin er mest. Það skiptir því máh hverj- ir veljast í þessi störf og hvaöa áherslur borgarfuhtrúar hafa í þeim efnum. Biðhstar á mörgum sviðum, svo sem í öldrunarmálum, heimaþjónustu, dagheimihsmál- um, félagslegum íbúðum o.fl., virð- ast fuhtrúar sjálfstæðismanna líta á sem eitthvert náttúrulögmál, að þetta sé viðvarandi ástand sem ekki er hægt að breyta. Þetta er að sjálfsögðu einungis spurning um forgangsverkefni og í hvað á að leggja peninga borgarsjóðs. Innlendir og erlendir fjárfestar Það verður að skapa atvinnu- rekstrinum í borginni eðlileg rekstrarskilyrði og kosta nokkru tíl þess nú á samdráttartímanum sem kemur svo til með að skha sér í framtíðinni. Borgin á að leggja fram áhættufiármagn í nýsköpun atvinnulífsins og stuðla að al- mennri atvinnuuppbyggingu og styrkja og styðja atvinnuskapandi verkefni. Hvert og eitt einasta nýtt starf skiptir máh. Það verður að hvetja innlenda og erlenda fiárfesta th að leggja fiár- magn í atvinnulífið á höfuðborgar- svæðinu. Þar eru ýmsar áhuga- verðar hugmyndir sem hægt væri aö útfæra og gera að veruleika. Þar má nefna þá möguleika sem skap- ast með thkomu EES-samninganna sem geta opnað okkur möguleika á fríverslunarsvæðum, milhlagerum og fullvinnslu vöru á leið á önnur markaðssvæði. Það á að hlúa mun betur að upp- byggingu ferðamannaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og gera það aðlaðandi fyrir ferðamenn að stansa hér lengur. Það er oft talað um aö ísland sé rómað fyrir nátt- úrufegurð, með sín stórkostlegu fiöh og fossa, en Reykjavík á líka mikla sögu, marga áhugaverða staði sem vert er að huga að. Þaö á að laða að erlend skemmtiferða- skip og leggja ríkari áherslu á Reykjavík sem ráðstefnu- og funda- staö. Málefni ungs fólks, sem er að koma út á vinnumarkaðinn, verður að taka sérstökum tökum. Ungt fólk á ekki að þurfa að vera í stöð- ugum ótta um það að fá ekki vinnu að skólanámi loknu. Atvinnuleysi er orðið viðvarandi. Það verður að finna frambúðarlausn á því vanda- máh. Þessu hefur Sjálfstæðisflokk- urinn ekki sinnt og þessu verður að breyta. Th þess þarf nýtt afl með nýjar hugmyndir. Gunnar Gissurarson „Sumar stofnanir og nefndir eru svo uppteknar í hagsmunagæslu fyrir Sjalfstæðisflokkinn að heilbrigð skyn- semi og frjór hugsunarháttur um úr- bætur og framfarir fá ekki notið sín...“ Meðog ámóti Tilvist fljúgandi furðuhluta afneita FFH „Heimska ; ög blinda vis- indamanna gagnvart til- vist fljúgandi furöuhluta er eitt gleggsta dæmið um hroka og Magnús H. Skarp- Steingelda til- héðinsson, ritari finningu áhugafélags um raunvísind- FFH. anna á flestu því sem til er í nátt- úrunni og ekki hefur verið viöur- kennt af „réttum" yfirvöldum. Þessi hroki birtist í mörgum myndum þó hann sé langfárán- legastur þegar um er að ræða efn- isleg geimför með efnislegum geimverum sem hér eru á ferð- inni víða í andrúmslofti jarðar. Áætlað er að einhver eða ein- hverjir jarðarbúar sjái greinilegt efhislegt geimskip á að meðaltali innan við 15 minútna frestí allan sólarhringinn aht árið. Aö neita þessu er eins og að neita tílvist tunglsins gegn fólki með eölheg skhningarvit Af svipaðri þröng- sýni afneitar mestaht „viður- kennda" visindamannastóðið tíl- vist álfa, huldufólks, mætti bæn- arinnar, aö ógleymdum öllum rannsóknum og niöurstö'ðum dulsálarfræðinnar á líkunum á hfi eftir hkamsdauðann. Þessa skoðanalögreglu, sem sífelltryðst fram um leið og einhver ný og áður óþekkt og ekki viðurkennd hhð á náttúrunni opinberast fiölda vitna um ahan heim, þarf lifsnauðsynlega að fara að ryðja burt og hleypa ferskum og for- dómalausum vindmn inn í hugs- un Vesturlanda." Fásinna að geint- verur flakki Enginn neitar þvi að : fúröuleg fyr- irbæri sjálst stundum á himni. Sú skýring, að þarséuáferö- inni vits- munaverur utan úr him- ingeimnum, er hins vegar svo langsótt að flestir vísindamenn hafna henni alfariö. Þetta stafar ekki af því aö þeir hafi ekki rannsakaö frá- sagnlr sjónarvotta, Sannleikur- inn er sá að þrátt fyrir áratuga rannsóknir hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að fram- andi verur hafi heimsótt jörðina. Óravíddir himingeimsins eru shkar að ferðalög milh sólsfjarna taka langan tíma og útheimta mikla orku, hversu mikh sem tæknin er. Jafnvel meö bjartsýn- ustu áætlunum þyrftí árþúsundir frekar en aldir til shkra ferða- laga. Það er því fásinna aö ætla, aö geimverar geti verið á sífehdu fiakki milli jarðar og heimkynna sinna. -em

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.