Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Ár fjölskyldunnar Ár íjölskyldunnar var sett meö pomp og prakt í Há- skólabíói í gær. Þar var vel farið af stað með vandaðri hátíðardagskrá. Að því leyti byrjar árið vel. Vonandi gild- ir það sama fyrir fjölskylduna. Tilgangurinn með þessari og öðrum uppákomum er nefnilega ekki árið sem slíkt heldur staða íjölskyldunnar, fólksins á heimihnu, fólks- ins í landinu til langrar framtíðar. Öllum er ljóst að Qölskyldubönd og tengslin milh kyn- slóðanna hafa riðlast á síðari tímum. Það gera breyttir lifnaðarhættir, annir, fjarvistir, ólík áhugamál, mismun- andi viðhorf þeirra eldri og yngri. Hjónaskilnaðir verða tíðari, unghngar sækja afþreyingu utan heimila, elstu kynslóðinni er komið fyrir á dvalarheimilum. Aht hefur þetta sín áhrif til að losa þau fjölskyldubönd sem áður voru sterk og langvarandi. Rótleysi er einkenni þjóðlífs- ins og lífshlaupsins. Ár fjölskyldunnar er til orðið fyrir forgöngu Samein- uðu þjóðanna og er átak um allan heim. Tilgangurinn er sá að minna á að þegar aht kemur til ahs er fjölskyld- an dýrmætasta eignin og það haldreipi í ólgusjó lífsins sem stuðlar að öryggi einstaklinganna. Af því höfum við íslendingar góða reynslu enda njótum við þess að búa í landi þar sem stutt er á milli ástvina og ættingja, allir þekkja aha og í rauninni hefur þjóðin verið sem ein stór fjölskylda. í slíku umhverfi ríkir samkennd og samstaða og hjálpin er jafnan nærri þegar á bjátar. Það hverfur hér enginn í mannfjöldann, það gleymist hér enginn hth- magni af völdum aiskiptaleysis. Að minnsta kosti þaif ekki svo að vera. Ekki ef hver einstaklingur ræktar heimihð, foreldra, böm, systkini og nánustu ættingja. Ekki ef við temjum okkur að rækta eigin garð og gleymum ekki skyldum okkar í uppeldi, umgengni og umönnun við. fjölskylduna. Heimihð er hið helga vé þar sem kynslóðir geta þroskast saman og lært hver af annarri. Heimihð er athvarf og skjól gagnvart sphltum heimi. En það er ekki nóg að fjölskyldumar sjálfar skhji þetta. Stjómvöld og samfélagið í hehd verður að veita heimhum og fjölskyldum stuðning með lögum, reglum, umhverfl og félagslegri aðstöðu. A tímum atvinnuleysis og örvæntingar er heimihð síðasta vígið og það vígi getur reynst erfitt að verja þegar skuldir, skattar og skeytingar- leysi tilfinningalausra yfirvalda og lánardrottna er ann- ars vegar. Dagvistun bama og skólahald, vinnutími fyrirvinn- unnar, skattlagning heimihstekna, aðstaða th tómstunda- iðju, heimihshjálp, almannatryggingar, virðing fyrir einkarétti, aht þetta þarf að hafa í huga ef menn meina eitthvað með fógrum orðum um hag fjölskyldunnar. Síð- ast en ekki síst þarf kennsla í skólum, hugarfar heimihs- fólks og samskipti yngri sem eldri að miðast við ghdi þess að fjölskyldan og heimihð sé sá miðpunktur sem lífið snýst um. Samstarfsmenn koma og fara, frambjóðendur og ríkis- stjómir. Jafnvel samfélagið sjálft er á hverfanda hveh. En ljölskyldan blífur. Á ári Qölskyldunnar verður eflaust margt gert th að efla þessa vitund, hvort heldur með hátíð eins og þeirri sem fram fór í gær eða með sýningum, málþingum, aug- lýsingum og spaklegum umræðum fræðinga og fyrirles- ara. En öhum orðunum verða að fylgja athafnir, áþreifan- legar aðgerðir og aðlögun að því megininntaki þessa átaks að fjölskyldan hafi raunverulega möguleika á að halda saman sem ein hehd. Ehert B. Schram Greinarhöfundur segir Reykjavík vera annað tveggja kjördæma landsins sem lengst eiga í land með nægi- legt húsnæði fyrir einsetinn skóla. Vanhæfir stjórnendur Fjárhagsstakkur Reykjavíkur- borgar er orðinn æði þröngur. Hann er svo aðskorinn að borgar- stjórnarmeirihlutinn getur ekki einu sinni flaggað nýjum gælu- verkefnum í fjárhagsáætlun kosn- ingaársins. Korpúlfsstaðir eru lagðir í salt þótt opnun þeirra hafi prýtt loforðalista sjálfstæðismanna við síðustu kosningar. Ekki harma ég það en þykir öllu verra að niður- skurðurinn bitnar á verkefnum sem hðið hafa fyrir vanrækslu í mörg ár. Þannig fá framkvæmdir við grunnskóla, leikskóla og stofn- anir aldraðra 450 milljón krónum minna en í fyrra. Niðurskuröurinn nemur 35 af hundraði. Fjötskyldan vanrækt Reykjavík er annað tveggja kjör- dæma í landinu sem lengst eiga í land með nægilegt húsnæöi fyrir einsetinn skóla. Mikil barnafjölgun hefur átt sér stað undanfarin ár og hennar fer nú að gæta í grunnskól- unum. 1600 böm bíða eftir leik- skólavist. Gamalt, veikt fólk fær ekki pláss á hjúkrunarheimili. Uppbygging á þessum sviðum fjöl- skyldunnar hefur verið langt á eft- ir þörf og kahi tímans undanfarin þrjú kjörtímabil. KjaHariiin Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfulltrúi Nýs vettvangs góöæri stingur freklega í stúf við goðsögnina sem sjálfstæðismenn hafa búið til um sjálfa sig og hljóð- ar upp á að þeir séu einstakir fjár- málasnillingar! Skriðið á skulda- boltanum hefur vaxiö jafnt og þétt síðustu tvö árin. Um síðustu ára- mót voru heildarskuldir borgar- sjóðs komnar í 9500 milljón krónur, eða næstum því sömu upphæð og áætlaðar skatttekjur heils árs. Fjárhagsáætlun nýbyrjaðs árs loka þeir svo með enn frekari lántökum. Ábyrgðin í aðrar hendur Fortíðarvandinn birtist okkur nú á þann hátt að athafnageta borgar- sjóðs er stórlega skert. 1000 milljón- ir fara í vexti og aíborganir skulda í ár. Þetta er hærri upphæð en sú sem fer samanlagt í framkvæmdir við skóla, leikskóla, aðstöðu fyrir „Þvílík skuldasöfnun í góðæri stingur freklega í stúf við goðsögnina sem sjálf- stæðismenn hafa búið tU um sjálfa sig og hljóðar upp á að þeir séu einstakir fj ármálasniUingar! “ Dekrað við hégómann Megnið af þeirri tólf ára lotu sem sjálfstæðismenn hafa nú stjómaö borginni hefur ríkt góðæri hjá borgarsjóði. Tekjur uxu á síöasta áratug sem aldrei fyrr, skattgreið- endum íjölgaði og verðbólga hjaðn- aði þannig að hver króna varð verðmeiri. Þarna var lag til þess að byggja upp þjónustu við fólkiö í borginni í takt við breytta lífs- hætti fjölskyldna. Því miður var það látið sitja á hakanum því stjórnendur borgarinnar þurftu að fá útrás fyrir hégómagirnd sína. Áherslurnar voru settar á spjátr- ungsleg stórhýsi sem skemmlllegt var að vígja og auðvelt að benda á og segja „sjáið þið bara hvað ég gerði“. Skuldasöfnun í góðæri Og menn sáust ekki fyrir heldur söfnuðu skuldum í góðærinu. Þeg- ar virkilega fór að þrengja að í at- vinnulífi á árinu 1992 var borgar- sjóður ekki lengur sterkur og stát- inn. í byrjun ársins 1992 voru skuldimar komnar í 5000 milljónir á núverandi verðlagi. Þær höfðu vaxið um hefiar 3000 mfiljónir í höndunum á sjálfstæðismönnum frá því þeir hófu á ný að stjórna árið 1982. ÞvUík skuldasöfnun í aldraða, umhverfi og útivist og heilbrigðisstofnanir á árinu 1994. Baggamir af skuldunum þyngjast enn frekar næstu árin. Ostjóm sjálfstæðismanna og vanræksla þeirra gagnvart reykvískum fjöl- skyldum er fortíðarvandi sem tek- ur tíma að vinna úr. Forsendan fyrir því að það megi takast er að öðrum en sjálfstæðismönnum verði fengin ábyrgðin á fjármálum Reykvíkinga. Núverandi meiri- hluti hefur sýnt, svo ekki verður um vUlst, að hann kann ekki aö sníða stakk sem íbúamir þrífast vel í. Kristín Á. Ólafsdóttir Skoðanir annarra Tölvan í skólastarffi „Margir þeirra einstaklinga sem em í farar- broddi hugbúnaðarþróunar hér á landi hafa haft aögang að tölvum frá unga aldri... Þegar þessir ein- staklingar vom í gmnnskóla voru mjög fáir skólar með frambærilegan tölvubúnað. Nú er öldin önnur. Hver einasti skóli landsins er með býsnin öU af ágæt- lega fullkomnum búnaði. Nemendur niður í neðstu bekki grunnskóla em famir að nota tölvur við ólík- ustu verkefni. Tölvan er orðin eðlUegur þáttur í skólastarfi." Marinó G. Njálsson í Viðskiptablaði Mbl. 27. jan. Þingstyrkur? „Ríkisstjóm hinna fersku og hreinlegu vinnu- bragða í stjómsýslu kunna ekki önnur ráð betri í sjómannaverkfaUinu en aö setja bráðabirgðalög. Það var ömurlegt upp á að horfa, en staöfesti enn einu sinni nauðsyn þess að afnema úr stjómarskránni ákvæðið sem gefur framkvæmdavaldinu heinúld tU að stjórna með lagatUskipunum án þess að kalla þingið saman... Slíkar raddir hafa einnig heyrzt nú og virðist aö minnsta kosti ljóst að nákvæmur þing- styrkur á bak við lögin var ekki kannaður." Úr forystugrein Pressunnar 27. jan. Hin hliðin á atvinnuleysinu „Þótt atvinnuleysið í landinu sé nú þegar oröið eitt mesta útgjaldamál ríkissjóðs, er það ekki nema önnur hliðin á málinu. Hin hliðin er sú, sem er enn- þá geigvænlegri. Það em þau áhrif, félagsleg og efna- hagsleg, sem atvinnuleysi hefur á einstaklinga sem fyrir því verða... Stöðugur svartsýnisáróður stjóm- valda hefur haft skaðleg áhrif. Það er þó ekki nóg að láta af honum. Raunverulegar og varanlegar að- gerðir veröa aö fylgja í atvinnumálum landsmanna, undir þeim formerkjum að atvinna sé mannréttindi." Úr forystugrein Tímans 27. jan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.