Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Qupperneq 40
r Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994. „Það var niikill stormur og snjó- koma og við vorum stopp þarna, samtals þrír bílar, vegna ófærðar og slæms skyggnis. Við fórum aftur í verkfærahúsið á bílnum, sem er Dodge pallbíll, og ætluðum að galla okkur en þá kom snjóílóð. Það var eins og sparkað væri í bílinn og hann fór fram af og valt niður hlíð- ina. Við karlamir köstuðumst úr einhvers staðar á leiðinni en kon- urnar voru í bílnum þegar hann stöðvaðist," segir Sigþór Guö- brandsson, starfsmaöur Raf- magnsveitna ríkisins, sem lenti í snjóflóði í Búlandshöfða milli Ól- afsvíkur og Grundarfjarðar á ell- efta tímanum i gærkvöld. Snjóflóöiö hreif bílinn hér á 11. tímanum í gærkvöld fjöröur Konurnar, sem Sigþór talar um, höfðu hann og félagi hans tekið upp í eftir að þær höföu fest sinn bíl fyrir innan höfðann. „Ég hélt þetta væri mitt síöasta. Maður hugsaði margt á leiðinni niður og fannst þetta aldrei ætla að taka enda. Loks stoppuðum við. Vinkona min og annar karlmann- anna voru fljót upp á veg en ég hélt ég myndi aldrei komast af þvi ég þurfti að halda á hundinum mínum sem var með i fór,“ segir Valdis Brynjólfsdóttir, önnur kvennanna. Sigþór segist ekki lrafa verið sama að þurfa að láta fyrirberast í bilunum þar sem þeir voru. Hann hafi vitað að snjóflóö væru tíð á þessum slóðum og ákjósanleg skil- yrði hefðu verið fyrir snjóflóð í gærkvöld, slydda og hlýnandi veð- ur. Sigþór segir bílinn hafa oltið nið- ur brattá hlíð um 80 metra. Líkieg- ast sé hann ónýtur eða að minnsta kosti mikiö skemmdur. Allar rúður hafi brotnað og hann sé mikið dældaður. „Við lögðum áherslu á að komast upp á veg aftur og létum fyrirber- ast í flutningabíl sem var þarna og það var svo ekki fyrr en klukku- stundu seinna að einhver komst okkur til aðstoðar," segir Sigþór. Enginn hinna fjögurra í bílnum slasaðist alvarlega. -PP LOKI Þarna lögðu Haukar FH-inga líka í pólitíkinni! strjúka. „Júlíus hefur einu sinni far- ið svona í lengri tíma. Þá var hann í slæmum félagsskap en skildi eftir miða. Eftir sólarhring var hann bú- inn aö fá nóg af götulífinu," segir Guðrún. Hún trúir því varla að Júlíus og Óskar hafi verið að leika sér í klett- unum við Vatnsnes. „Við höfum lesið yfir þeim og reynt að gera þeim grein fyrir afli sjávarins og við vorum nú að minna Júlla á að hann hefði misst frænda sinn við svipaðar aðstæöur og eru þar. Sá drengur var á sama aldri og Júlli er núna,“ segir Guðrún. Hún sættir sig við að leit skuli lok- ið. Björgunarsveitirnar hafi gert mikið meira en hægt sé að ætlast til af þeim. Hún vill koma á framfæri þakklætitilþeirra. -pp - sjá einnig bls. 38 Veðrið á morgun: Frostum allt land Á morgun verður breytileg átt en svo norðan- og norðvestan- stinningskaldi og kólnandi veður og verður komið frost um allt land er líður á daginn. É1 verða á víð og dreif um mest allt landið, þó síst á Suöaustur- og Austur- landi. Veðrið í dag er á bls. 44 ísafjörður: Þorsteinn sigraði Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir hlaut langflest atkvæði í fyrsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna á ísafirði um helgina eða 334. Hlaut hann alls 530 atkvæði. Halldór Jóns- son framkvæmdastjóri varö í öðru sæti, fékk 217 atkvæði í það sæti af 361 atkvæði alls, og Kolbrún Hall- dórsdóttir kaupmaöur varð í þriðja. í fjórða sæti varð Pétur H.R. Sigurðs- son og Ragna Hákonardóttir varð í fimmta sæti. Einungis þeir sem lentu í þremur efstu sætunum fengu bindandi kosn- ingu í sæti en til þess þurfti helming greiddra atkvæða. Jens Kristmanns- son, formaður kjörnefndar, sagði kjörsókn mjög góða en 673 af 804 á kjörskrá kusu eða tæp 84 prósent. Um eitt hundrað manns gengu í Sjálf- stæðisflokkinn síðustu daga fyrir prófkjörogáprófkjörsdaginn. -hlh Þrenntáslysadeild Þrennt var flutt á slysadeild eftir að tveir bíiar skullu saman í Svína- hrauni í gærkvöld. Mjög slæmt skyggni og veður var þegar slysið varð. Báðir bílamir eru mikið skemmdir. -pp Foreldrarnir lifa í voninni: í guðs bænum komiði heim - segir móðir Júlíusar Karlssonar ,l>að er búið að þaulkanna svæðið hér, bæði höfnina og annars staðar og ekkert flnnst þannig að maður lif- ir í voninni um að þeir séu einhvers staðar annars staðar og einhver sé að hilma yfir með þeim, sérstaklega út af því að engar frekari vísbending- ar hafa komið fram,“ segir Guðrún Júlíusdóttir, móðir Júlíusar Karls- sonar. Hún vill koma skilaboðum til Júl- íusar ef hann les þetta: „í öllum guðs bænum komið þið heim. Það verður ekki gert neitt stórmál úr þessu úr því sem komið er. Ég er ekki reið og ekki heldur mamma hans Óskars. Komið þið aö minnsta kosti boðum til okkar eða eitthvað því þessi óvissa er það alversta. Þaö vilja allir fá ykk- ur báða heim.“ Hún segir Júlíus ekki hafa gefið neitt í skyn að þeir hafi ætlað að F Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjörn - Auglýsingar - Áskril Björgunarsveitarmaður sigur í klettunum viö Vatnsnes í gærkvöldi. Piltarnir áttu það til að leika sér þar þegar brim var mikið eins og á miðvikudagskvöldið þegar þeir fóru að heiman. DV-mynd Ægir Már Kárason s. 814757 HRINGRÁS ENDURVINNSLA Kaupum góðmálma t.d.ál,kopar,eir, rústfr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.