Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.1994, Page 23
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 1994
31
Menning
Andrew Lloyd Webber.
Músíkallinn
um sólar-
lagsbúlevarð
Andrew Lloyd Webber er nú án efa mesti músíkalaframleiöandi vorra
tíma. Hingað tíl hafa allir músikaiar hans hlotiö náö fyrir augum aimenn-
ings, jafnvel þeir sem ekki þóttu líklegir til vinsælda - menn spáöu til
dæmis fremur illa fyrir „Stariight Express" - og varla hður sá dagur aö
einhver músíkala hans sé ekki fluttur einhvers staöar á jarðkringlunni.
Webber er því auövitaö orðinn moldríkur og eftirsóttur, var gerður aö
Sör nýveriö ef ég man rétt. Og er vel að velgengninni kominn því bestu
lög hans eru þegar orðin sígildur hiutí nútíma sönglagahefðar. En mikil
velgengni gerir auövitaö auknar kröfur til tónskáldsins; hvert nýtt verk
Islensk
flaututónlist
Fyrir jólin kom út hljómdiskur þar sem Martial
Nardeau, flautuleikari, og Örn Magnússon, píanóleik-
ari, leika verk eftir íslenska höfunda. Á diskinum eru
verk eftír Áma Bjömsson, Mist Þorkelsdóttur, Atla
Ingólfsson, Atla Heimi Sveinsson, Kjartan Ólafsson
og Jónas Tómasson.
Um miöbik þessarar aldar beindu tónskáld Vestur-
landa sjónum sínum mjög að litbrigðum hljóöfæra:
Töldu margir unnt eöa aö minnsta kostí reynandi að
semja verk þar sem tónum væri ýtt í bakgrunn og
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
hljóöið sjálft gert aö efniviöi. Hér voru menn aö fylgja
forspá Amolds Schönbergs en hann hafði lýst trú sinni
á þaö sem hann kailaöi „klangfarbenmelodie“. Þá var
hér einnig aö verki trú tuttugustu aldar manna á tæki
og tækni. Nú munu flestir sammála um að hér kom-
ust menn í öngstræti. Öflugasti efniviður tónlistar er
sá sem best kemur á framfæri sköpunarmætti og hug-
arflugi tónskáldsins og þar nálgast ekkert tóna og takt.
Áhrifamáttur Passíusálmanna felst ekki í leturgerö-
inni. Tónlist Bachs hljómar vel hvaða hljóðfæri sem
hún er leikin á. Eftír á að hyggja var hljóðlistin einn
meginþátturinn í þeirri sýndarmennsku sem ein-
kenndi tónlist Evrópu eftir seinna stríð og geröi mönn-
um erfitt um vik að skilja hafrana frá sauðunum.
Flautan er eitt þeirra hljóðfæra sem hvaö mestra
vinsælda naut þegar semja skyldi htbrigðaverk enda
býr hún yfir mikilh fjölbreytni í hljóðbrigðum. Til er
mikih fjöldi einleiksverka fyrir flautu sem byggja á
þessu efni og flest þeirra eru svipuö eöa eins og heldur
leiðigjöm. Það kemur því á óvart að heyra að íslensku
verkin á diski Martials Nardeaus eru yfirleitt af öörum
toga. Efniviður er þar fjölbreyttur þótt stílbrögð í verk-
unum séu mjög ólik enda er meira en hálfrar aldar
Martial Nardeau. Vandaður og skýr flutningur. .
aldursmunur á elsta og yngsta höfundinum. Litauðgi
flautunnar er vel nýtt í þessum verkum en ahs ekki
látíð við það eitt sitja. Eitt tónskáldið endurvekur anda
íslenskra þjóðlaga, annað semur verk sitt með aðstoð
tölvuforrits, eitt dregur upp mynd af alheiminum í
verki sínu, annað lætur sér nægja þrjár andrár. í heild
má segja að verkefnavahð gefi mjög víða mynd af því
sem samið hefur veið hérlendis fyrir flautu.
Flutningur Nardeaus er mjög skýr og vandaður.
Tónn hans er sérlega bjartur og tær og hvergi verður
fundið að túlkun hans. Öm Magnússon leikur á píanó
í nokkrum verkanna og gerir það mjög vel. Allur frá-
gangur á þessum diski er með ágætum.
Tórúist
Aðalsteinn Ingólfsson
BYRJBWANÁMSKED ERU AB HEFJAST
vekur upp þórðargleði öfundarmanna hans: Fer ekki Webber bráðum að
floppa?
Skaplegt...
Sunset Boulevard, nýjasti músíkah Webbers var frumsýndur í júh í
fyrra. Verkið er unnið beint upp úr frægri kvikmynd Bihy Wilders um
fyrrverandi stórleikkonu sem fýrir tilverknað ungs og kaldrifjaðs aðdá-
anda steypir sér út í „comeback" með hörmulegum afleiðingum. í músík-
al Webbers fara Kevin Anderson og Patti LuPone með hlutverk aðdáand-
ans og leikkonunnar.
LuPone er auðvitað heimihsvinur okkar íslendinga, þar sem hún leikur
móðurina í þáttunum „Gangur lífsins", Anderson var hins vegar óskrifað
blað. Eftir fmmsýninguna var dómur flestra gagnrýnenda sá að enn einu
sinni hefði Webber tekist að setja saman skaplegan músíkal, skaplegan,
en ekki frábæran. Helst fannst mönnum verltíð hða fyrir vöntun á eftír-
minnilegum lögum.
Eftír að hafa haft upptökur að þessum músíkal undir höndum um nok-
kurra vikna skeið verð ég að taka imdir þessar athugasemdir. Sunset
Boulevard er haganlega samsett verk, vel og fagmannlega flutt með blöndu
af samtölum, „parlando“ og kröftugum söng, frammistaða þeirra Ander-
sons og Patti LuPone er út af fýrir sig alveg ágæt en sönglögin eru engan
veginn nógu grípandi. Helst er aö maður rauh titihagið með sjálfum sér
að áheym lokinni, jú, kannski hka tvisöng þeirra Joes, aðdáandans og
Bettýjar, ungu stúlkunnar sem hann tekur fram yfir stórstjömuna: „Too
Much in Love To Care“. Webber er hka nokk sama; Sunset Boulevard
er þegar farinn að mala honum ómælt guh.
Andrew Lloyd Webber - Sunset Boulevard Polydor 519 767-2. Umboð: SKÍFAN.
fLeikskólar
Reykjavíkurborgar
Matráðskona
Óskum að ráða matráðskonu til starfa í leikskólann
Hraunborg v/Hraunberg.
Nánari upplýsingar gefur Sigurborg Sveinbjörnsdótt-
ir leikskólastjóri í síma 79770.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
JUDO
Þjálfari er Michal Vachun fyrrverandi
þjálfari tékkneska landsliðsins.
Innritun og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl.10-22
og 11-16 um helgar
7 í símo 627295
ARMANNS
EINHOLT 6