Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Side 4
4 MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994 Fréttir Próíkjör alþýöuflokksmanna vegna borgarstjómarkosninganna: Pétur og Gunnar kjörn- ir í 4. og 9. sætin - þátttakaheldurmeirienreiknaöhaföiveriðmeð Pétur Jónsson og Gunnar Gissur- arson urðu hlutskarpastir í prófkjöri alþýðuflokksmana og hlutu kosn- ingu í 4. og 9. sætið á sameiginlegum hsta sem mun bjóða fram í borgar- stjómarkosningunum í vor. 565 fé- lagar kusu og var það heldur meiri þátttaka en búist hafði verið við. Tíu buðu fram en Pétur fékk flest at- kvæði bæði ef mið var tekið af því hverjir buðu fram í 4. sætið og 4. og 9. sætið. Gunnar fékk næstflest at- kvæði í báðum tilfellum. Af þeim sem buðu fram í 4. sætið fékk Pétur 147 atkvæði, Gunnar fékk 135, Þorlákur Helgason fékk 111 og Gunnar Ingi Gunnarsson fékk 103 atkvæði. Af þeim sem buðu sig fram í 4. og 9. sætið hlaut Pétur einnig flest at- kvæði, 230, en Gunnar hlaut 182. Gunnar Ingi fékk 169, Þorlákur 167 og Gylfi Þ. Gíslason hlaut 130 at- kvæði. Þegar Ami Stefánsson, for- maður kjörstjómar, tilkynnti úrslit- in sagði hann að aðrir frambjóðend- ur hefðu fengið færri atkvæði. Aðrir frambjóðendur voru Bolh Runólfur Valgarðsson, Bryndís Kristjánsdóttir, Hlín Daníelsdóttir, Rúnar Geirmundsson og Skjöldur Þorgrímsson. -Ótt Gunnar Gissurarson hlaut kosningu 19. sæti: Vil að borgin kaupi íslenska framleiðslu Pétur Jónsson, 55 ára, og Gunnar Gissurarson, 44 ára, voru kjörnir í 4. og 9. sæti lista sameiginlegs framboðs í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í vor í prófkjöri alþýðuflokksmanna um helgina. Þeir hyggjast báðir beita sér sérstaklega í atvinnumálum nái þeir kjöri i kosningunum í vor. Pétur og Gunnar starfa báðir sem framkvæmda- stjórar. Á myndinni fagna þeir stuttu eftir aö úrslit voru gerð kunn í gærkvöldi. DV-mynd ÞÖK Pétur Jónsson varð hlutskarpastur í prófkjöri alþýðuflokksmanna: Hef unnið í kyrrþey hingað til - mun beita mér fyrir atvinnumálum og málefnum unglinga og aldraðra „Ég er mjög glaður og ánægður og tel þetta mjög viðunandi og góða nið- urstöðu fyrir flokkinn. Eg álít aö tveir bestu mennirnir hafi komist í efstu sætin og það sé besta niðurstað- an. Það var alveg ljóst að það yrði mjög hörð barátta á milli okkar Pét- urs enda munaði ekki miklu á okk- ur. Ég óska honum til hamingju með árangurinn. Við munum eiga mjög gott samstarf í framhaldinu enda góðir vinir og kunningjar. Útkoman sýnir að fólkið styður okkur báða og það er erfltt að velja á milli. Ég held að allir geti verið sáttir við þessi úr- slit. Þátttakan var mjög góð, um 50 prósent, og það sýnir að það er áhugi fyrir þessu framboði. Fólk sýnir þessu áhuga og það er mjög já- kvætt," sagði Gunnar Gissurarson fraitikvæmdastjóri. Hann varð annar í prófkjöri alþýðuflokksmanna og er því kjörinn í 9. sætið á sameiginleg- um lista í Reykjavík sem býður fram til borgarstjómarkosninganna í vor. „Ég mun beita mér af alefli fyrir því að byggja upp atvinnustarfsemi í borginni og bseta úr því ástandi sem ríkir í þeim málum með öllum ráð- um. Ef við kæmumst að og næðum meirihluta yrði það eitt af mínum fyrstu áherslumálum að Reykjavík- urborg myndi snúa sér alfarið að því að kaupa ísleitska framleiðslu þar sem hún er fyrir hendi. Þannig er hægt að búa tíl mörg hundruð störf á mjög skömmum tíma. Borgin er mjög stórt fyrirtæki sem hefur yfir mjög miklu flármagni að ráða og veltir upp undir helmingi af flárlög- um íslenska ríkisins. Þannig yrði hægt að skapa og flölga atvinnutæki- færunum gífurlega. Við megum ekki láta fólkið sifla auðum höndum og skapa verkamönnum og iðnaðar- mönnum og öðrum vinnu úti í lönd- um,“ sagði Gunnar. -Ótt Eg er mjög stoltur yflr að hafa stuðning minna félaga. Þetta er búið að vera stutt en snögg barátta og raunverulega kosning innanfélags í Alþýðuflokksfélaginu í Reykjavík. Að vissu leytí kemur mér þetta á óvart en ég og Gunnar Gissurarson erum þó búnir að vinna mjög lengi innan alþýðuflokksfélaganna og í kyrrþey hingað til. Kannski er verið að launa mér einhver störf sem ég hef verið að vinna þar,“ sagði Pétur Jónsson, viðskiptafræðingmr og framkvæmdasflóri skrifsofu Ríkis- spítalanna, í samtali við DV þegar það lá ljóst fyrir að hann varð hlut- skarpastur í prófkjöri alþýðuflokks- manna í Reykjavík. Hann hlaut kosningu sem flórði maður á lista sameiginlegs framhoðs í borgar- sflómarkosningunum sem fram fara í vor. Alþýðuflokkurinn fær 4. og 9. sætíð í framboði listans í vor. „R-listinn er að búa sér til formlega málefnaskrá," sagði Pétur. „Málefn- in eru auðvitað til en það er verið að búa til áherslur. Ég er í þeirri vinnu núna. Þetta verður sameigin- legur listi og sameiginleg málefna- skrá,“ sagði Pétur. - Fyrir hvaða málefnum hyggstu heita þér ef þú verður borgarfulltrúi? „Það sem ég mun beita mér fyrir eru atvinnumál, tómstunda- og at- vinnumál unglinga og áldraðra og félagsmál þeirra. Það má segja að ég hafi unnið að þeim því ég starfa hjá Ríkisspítulunum. Ég er því klár á því m.a. hvernig málum aldraðra er háttað. Ég er viðskiptafræðingur og hef sérstakt nám að baki í sflómun, sérstaklega á sjúkrahúsunum og í heilbrigðiskerfi," sagði Pétur Jóns- son. -Ótt I dag mælir Dagfari____________________ í pólitískri herkví Allt frá því að Heimir Steinsson var skipaður útvarpssflóri hjá Ríkisút- varpinu hefur ríkt styijaldará- stand á stofnuninni. Fyrst þurfti Heimir að reka Hrafn Gunnlaugs- son úr stöðu yfirmanns lista- og skemmtídeildar Sjónvarps sem varð til þess aö menntamálaráð- herra setti Hrafn í stöðu fram- kvæmdasflóra með því að reka Pétur Guðfinnsson í frí. Það var þá sem Heimir útvarps- sflóri lét þau fleygu orð falla: „í mér býr fól“ og réö síðan Arthúr Björgvin Bollason sem aðstoðar- mann sinn til höfuðs Hrafni. Nú hefur komið í ljós að stríðs- ástandið hefur allt færst í aukana eftír þessa fyrstu lotu í hrottrekstr- um og ráðningum. Arthúr Björgvin hefur upplýst að Ríkissjónvarpið hafi verið í pólitískri hverkví Hrafns Gunnlaugssonar. Arthúr segir að líkja megi vinnu- brögðunum viö aðferðir nasista gegn gyöingum í Þriðja ríkinu og rekur niðurlægingu Sjónvarpsins til „dæmalausrar valdníðslu menntamálaráðherra" sem gerði settíun framkvæmdasflóra kleift að misnota miðilinn gróflega með of- sóknum og yfirgangi. Þetta er skoðun meginþorra starfsmanna Sjónvarpsins, segir Arthúr og Heimir útvarpssflóri kannast við við þessar skoðanir en rekur Arthúr fyrir að hafa skrifað þær á vitlaust béfsefni. Þetta gerist eftir að útvarpssflóri gekk á fund Davíðs forsætisráðherra án þess þó að Davíð hafi vitaö af því aö útvarpsstjóri hafi ætlað að reka Arthúr eftír að hafa hitt Davíð. Menntamálaráðherra segist fagna því að Arthúr sé rekinn og segir að farið hafi fé betra. Ljóst er að ef Heimir útvarps- sflóri hefði ekki rekið Arthúr þá hefði menntamálaráðherra rekið Heimi og forsætisráðherra hefði rekið menntamálaráðherra, hefði hann ekki rekið Heimi fyrir að reka ekki Arthúr. í þessu máli virðist vandamálið vera í því fólgiö að starfsmenn stofnunarinnar hafi skoðanir. Hrafn hafði á sínum tíma skoðanir og var rekinn. Nú hefur Arthúr Björgin Bollason skoðanir og er rekinn. Styijaldarástandið á Sjón- varpinu verður allt rakið til þess að yfirmenn hafa skoðanir sem eru í ósamræmi við skoðanir yfir- manna þeirra og sérstaklega ef þeir hafa skoðanir á yfirmönnunum sjálfum. Þó ber að hafa í huga að skoðanir Arthúrs geta vel verið í samræmi við skoðanir Heimis útvarpssflóra en Heimir hefur hins vegar þurft að reka Arthúr fyrir að hafa sömu skoðanir og hann vegna þess að hann máttí ekki hafa þessa skoðun og hvorugur þeirra af því að þær stönguðust á viö skoðanir ráð- herra. Heimir neyðist sem sagt til aö reka mann frá stofnuninni sem er sammála hans eigin skoðunum af því að þær skoðanir fara ekki saman við skoðanir ráðherra. Mis- tök Arthúrs voru þau að hann skrifaði skoðanir sínar niður og sendi þær í bréfi til manna sem eru sammála skoðunum hans án þess að fá samþykki útvarpssflóra. Sjálfsagt af því að hann hefur hald- ið að útvarpsstjóri væri honum sammála, sem útvarpssflóri er, meðan þær skoðanir eru ekki skrif- aðar niður. Útvarpsflóri er nefnilega í póh- tískri herkví, aö sögn Arthúrs, og þessi herkví er Hrafns Gunnlaugs- sonar sem var á sínum tíma rekinn fyrir að hafa skoðun og ráðinn til að mótmæla því að hann væri rek- inn fyrir að hafa skoðun. Nú er spurningin hvort mennta- málaráðherra reki ekki Heimi út- varpssflóra fyrir að hafa þá skoðun aö vera á móti því að menn hafi skoðanir sem stangast á við skoð- anir menntamálaráðherra, jafnvel þótt það séu jsömu skoðanimar og útvarpssflórí hefur? Þetta gengur auðvitað ekki til lengdar. Það verður að koma í veg fyrir að menn hafi skoðanir sem þarf að reka fyrir aö hafa skoðanir. Það dugar heldur ekki að þær skoð- anir séu þær sömu og skoðanir út- varpssflóra því skoöanir útvarps- stjóra mega sín lítils meðan ráð- herrar hafa aðrar skoðanir en út- varpsstjóri og starfsmenn útvarps- sflóra skrifa þessar skoðanir niður og senda þær út um borg og bí. Hver sá sem vogar sér að hafa skoðun, svo ekki sé nú talað um að hafa skoðun á skoðunum ann- arra, er réttrækur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.