Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994
5
Fréttir
5 mánaða rannsókn á nauðgun um verslunarmannahelgina á lokastigi:
Grunaður eftir sakbendingu
- fréttamyndirnotaðartilaðfhmameintansökudólg
Víðtækri rannsókn nauðgunar-
máls sem átti sér stað um seinustu
verslunarmannahelgi er nú á loka-
stigi og verður málið sent ríkissak-
sóknara á næstu dögum.
Rannsóknin snýst um nauðgun
sem stúlka kærði rúmlega viku eftir
svokallaða Eiðahátíð sem haldin var
á Austfjörðum um verslunarmanna-
helgina. Þá fór stúlkan á neyðarmót-
töku fómarlamba í nauðgunarmál-
um og kærði nauðgunina í kjölfar
skoðunar til Rannsóknarlögreglu.
í framhaldi af því hóf RLR rann-
sókn á máhnu en varð Utið ágengt
vegna skorts á sönnunargögnum og
hversu langt var Uðið frá meintum
atburði. Því var tekin sú ákvörðun
að senda máUð austur til að afla frek-
ari gagna.
Þar fór víðtæk rannsókn fram á
máUnu. Meðal annars voru frétta-
ljósmyndir notaðar við rannsókn
málsins og samkvæmt heimildum
DV gat fórnarlambið bent á meintan
nauðgara á nokkrum myndanna. Að
þessu loknu var máUð sent aftur til
RLR til rannsóknar. Ennfremur er
DV kunnugt um að þrjár aðrar stúlk-
ur, sem þekkja tU mannsins, hafi
borið við að maðurinn og stúlkan
hafi verið saman umrætt kvöld.
Skaðabætur:
Skaut neyðar-
flugeldum að
tilefnislausu
Hæstiréttur hefur dæmt 44 ára
gamlan mann úr Skútustaðahreppi í
Suður-Þingeyjarsýslu til að greiða
sýslumanninum á Húsavík rúmlega
63 þúsund krónur í skaðabætur.
Skaðabæturnar er manninum gert
að greiða vegna útlagðs kostnaðar
við leitarflug eftir að hann skaut
neyðarflugeldum á loft 17. júlí 1991
að tilefnislausu.
Lögreglunni barst tilkynning um
að neyðarflugeldur hefði sést á lofti
og var Björgunarsveitin Stefán í
Mývatnssveit ræst til leitar. Einnig
sendi lögreglan flugvél til leitar með
þriggjamanna áhöfn. Við leitina kom
í Ijós að" maðurinn var að eyða birgð-
um af gömlum neyðarflugeldum úr
bát sínum en hann var sjómaður.
Við yfirheyrslur kvaðst maðurinn
ekki hafa leitt hugann að því að farið
yrði að leita og vísaði til að hann
væri staðsettur í miðri sveit og veður
hefði verið gott. Auk þess taldi hann,
í ljósi þess að hann hefði verið for-
maður björgunarsveitarinnar Stef-
áns tii margra ára, að haft yrði sam-
band við sig áður en leit yrði hafin.
Við málsmeðferð neitaði maðurinn
að ætlun sín hafi verið að gabba lög-
reglu. Þrátt fyrir það staðfesti Hæsti-
réttur dóm Héraðsdóms um að mað-
urinn skyldi greiða skaðabætur.
Refsing ákærða var hins vegar látin
falla niður fyrir Héraðsdómi sökum
þess hve óhæfilegur dráttur hefði
orðið á rekstri málsins og staðfesti
Hæstirétturþað. -pp
Vík og Eskifjörður:
Sýslumennskipaðir
Forseti íslands skipaði 1. febrúar
síðastliðinn, samkvæmt tillögu
dómsmálaráðherra, Sigurð Gunn-
arsson, settan sýslumami, til þess að
vera sýslumaður í Vík í Mýrdal.
Þá skipaði forseti íslands einnig
Inger L. Jónsdóttur, settan sýslu-
mann, til þess að vera sýslumaður á
Eskifirði. Þetta var einnig gert sam-
kvæmt tillögu dómsmálaráðherra.
-PP
Nýverið var svo meintur nauðgari
sem stúlkan benti á kallaður til yfir-
heyrslu hjá RLR. Hann neitar sakar-
giftum en framburður hans er til
nánari skoöunar.
Eiðahátíð gagnrýnd
Margir hafa orðið til að gagnrýna
útihátíðimar um síðastliðna versl-
unarmannahelgi. Meðal þeirra em
Stígamótakonur sem sögðu í út-
varpserindi að drengir hafi hvatt til
ódæðisverka með því að kalla að nei
þýddi já og nauðgun væri kækur.
Blautbolskeppni fór fram á hátíð-
inni, sem haldin var á vegum Ung-
menna- og íþróttafélags Austurlands.
Segja Stígamótakonur að ungar
stúlkur, meira og minna dmkknar,
hafi verið kallaðar fram hver af ann-
arri.
„Sviðið var fullt af ungum mönn-
um sem hrópuðu, kölluðu og skvettu
vatni yfir stúlkumar, bundu bohna
upp að aftan, flettu þeim upp að
framan og káfuðu á stúlkunum, fóm
upp í klofið á þeim og hvöttu áhorf-
endur til að taka undir saurugan
hugsunarhátt sinn og framkomu,“
sagði í útvarpserindi Stígamóta-
kvenna.
-PP
Líkumar á að þú
hljótir vinning, em
hvergi eins miklar
og í Happdrætti
Háskóla Islands!
Flestir spila í happdrætti til að hljóta vinning,
en oft ræður kapp frekar en forsjá því hvar menn
spila. í HHÍ getur annar hver miði hlotið vinning*
bað eru mestu vinningslíkur í happdrætti á íslandi.
Á 60 ára afmælisári býður HHÍ m.a upp á glæsilegan
afmælisvinning samtals að upphæð 54 milljónir.EINGÖNGU
VERÐUR DREGIÐ ÚR SELDUM MIÐUM. Slíkir möguleikar
finnast ekki í öðru happdrætti hérlendis.
Nú hefur engipn efni áað vera ekki með í HHÍ og ains gott að
tiyggja sér númer tímaniega áður m miðar seijast upp.
(E) Miðaverð er 600 kr. á mánuði.
Spilar þú ekki ígóða happdrœttinu?
jðfel
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
* Á árinu 1993 voru greiddir út 52.768 vinningar á samtals 105.470 selda miöa. Vinningur féll því á meira en annan hvern miöa.
ARGUS / SÍA