Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994
Utlönd
Myndafþeim
Kerriganog
Harding á upp-
boðiChristie’s
Uppboðsfyr-
irtækið
Christie’s er aö
undirbúa upp-
boð á mynd af
skautadrottn-
ingunum
Nancy Kcrrig-
an og Tonya
Harding
sem þær hafa báðar undirritað.
Fyrirtækíð býst við að hægt verði
að fá 800 til 1000 doliara fyrir
myndina en á henni er einnig
ólympíumeistarinn Kristi Ya-
maguchi.
Myndin, sem tekin var 1991,
verður boðin upp 26. mars næst-
komandi.
Sænskirhægri
mennviljalög-
leiðavændi
Ungliðar í sænska hægri
flokknum í Kalmarléni í Svíþjóö
vilja lögleiöa vændishús sem rek-
in verði sem fyrirtæki og í tengsl-
um við heilbrigðisþjónustu fyrir-
tækja.
Ungliöamir segja að gleðikonur
og -menn njóti vemdar gegn
glæpum og kynsjúkdómum séu
vændishúsin undir eftirliti. Þar
með sé viðskiptavinunum tryggö-
ir friskir menn og konur. Þá sé
einnig hægt að aðstoöa þá sem
háðir em eiturlyfjum.
Bent er á að götuvændið minnki
því viðskiptavinir velji ekki kon-
ur af götunni ef tryggt er að þær
sem starfa á lögleiddu vændis-
húsi séu frískar.
Bjótilfalska
myntífangelsis-
verkstæðinu
í fangelsinu í Ystad í Suður-
Svíþjóð dundaði fangi sér viö aö
búa til tíu króna peninga á verk-
stæði fangelsisins. Peningarnir
voru reyndar sléttir og án alls
skrauts.
Upp komst um tómstundastarf
fangans þegar gerð var leit á hon-
um er hann var á leiö í fn. Hafði
fanginn sett verkfæri í kexpakka
og í blaðapakka. í kjölfarið var
gerö leit í klefa fangans og fund-
ust þá peningarnir sem gerðir
voru úr messing.
Lögregluna grunar að þeir
kunni að hafa verið notaðir í
sjálfsala. Það varð ekkert úr fríi
fangans sem nú á von á lengri
vist.
Ráðherrasegir
samningum
Eyrarsunds-
brúnaíhættu
Olof Johans-
son, umhverf-
isráöherra Sví-
þjóðar og leiö-
togi miðflokks-
ins gaf í skyn
um helgina að'
flokkurinn
væri reiöubú-
inn að rifta samkomulaginu við
Danmörku um brú yfir Eyrar-
sund eftir kosningar.
Flokkurinn útilokar ekki held-
ur að sænska stjórnin geti
sprungið vegna málsins.
Ráðherrann segir aö ef mið-
flokkurinn auki mikið fylgi sitt í
kosningunum megi túlka það
sem að mikil andstaða sé gegn
brúnni og þaö verði stjómmála-
menn aö taka tillit til. Þá geti
miöflokkurinn beitt sér fyrir að
riftasamkomulaginu. Reuter, TT
Forseti íslands á sjónvarpshátíð 1 Monte Carlo:
Hef ur mikla þýð-
ingu fyrir ísland
- er formaður dómnefndar fyrir listrænar myndir
Bryndís Hólm, DV, Monte Carlo:
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, og Albert prins af Mónakó
voru viðstödd opnun hinnar frægu
alþjóðlegu sjónvarpshátíðar í Monte
Carlo á laugardagskvöld. Athöfnin
fór fram á Hotel de Paris, glæsileg-
asta hótelinu í Monte Carlo.
Kvöldiö áður var í guili skreyttum
viðhafnarsal hótelsins efnt tii sér-
stakrar hátíðardagskrár til heiðurs
forseta íslands. Þrátt fyrir að ríkis-
arfi Mónakó, Albert prins, búi sig nú
af kappi undir þátttöku sína á ólymp-
íuleikunum í Lillehammer ásamt fé-
lögum sínum í bobsleöaliði Mónakó
gaf hann sér samt tíma til aö vera
viðstaddur hátíðardagskrána og
snæöa síðan kvöldverð með Vigdísi
forseta.
ísland kynnt
Það var alþjóðlega útvarps- og sjón-
varpsakademían sem stóð að dag-
skránni sem ekki hvað síst var ætlað
að kynna ísland. Akademían veitir
sérstök verðlaun á sjónvarpshátíð-
inni fyrir listrænar og menningar-
legar heimildamyndir og valdi hún
Vigdísi Finnbogadóttur sem for-
mann dómnefndar í þeim efnis-
flokki. Með Vigdísi situr einnig í
dómnefndinni Thor Vilhjálmsson
rithöfundur en aðrir eru Reneé Aup-
han, framkvæmdastjóri óperunnar í
Genf, Edwige Feuillére, þekkt frönsk
leikkona, og Lluis Llach, söngvari frá
Spáni.
„í sex ár var ég formaöur dóm-
nefndar í evrópsku sjónvarpshand-
ritakeppninni í Genf og í beinu fram-
haldi af því var mér boðið að vera
formaður dómnefndar í þessari
keppni í Monte Carlo. Þetta hefur
mjög mikla þýðingu fyrir ísland. Hér
fer fram heilmikil kynning á landinu
og þess vegna þigg ég svona tilboð.
Þetta er náttúrlega heilmikil vinna.
Það er mikið álag á dómnefndina en
það er margfalt þess virði í ljósi þess
sem við íslendingar fáum í staðinn,"
sagði Vigdís Finnbogadóttir.
Starfið ekki vanmetið
í fyrsta sinn er nú þjóöhöföingi
formaður dómnefndar en áður hafa
t.d. Perez de Quellar, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
Jehudi Menuhin fiðluleikari og Mik-
is Theodorakis tónskáld gegnt for-
mannshlutverkinu.
„Ég vona aö aðstandendur sjón-
varpshátíöarinnar séu ánægðir með
starf mitt hér enda hafa þeir sýnt það
að þeir vanmeta það ekki,“ sagði Vig-
dís ennfremur.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, heilsar Albert Mónakóprinsi á alþjóð-
legu sjónvarpshátíðinni í Mónakó. Simamynd Bryndís Hólm
Meðal þess sem boðið var upp á í
dagskránni á laugardagskvöld var
upplestur úr verki Thors Vilhjálms-
sonar, Grámosinn glóir, en bækur
hans hafa verið þýddar á frönsku af
íslandsvininum Régis Boyer sem er
prófessor við Sorbonne-háskólann í
París.
Það var hinn þekkti svissneski
sjónvarpsmaöur, Jean-Philippe
Rapp, sem var kynnir kvöldsins og
beindi hann mörgum spumingum til
Vigdísar sem einkum snerust um
land og þjóð og hiutverk /orsetans.
Rok og úrhellisrigning mætti forset-
anum þegar hún kom til Monte Carlo
enda vakti það mikla kátínu gesta
þegar Vigdís sagði að veðurfarið á
Islandi væri nokkuð svipað Miðjarð-
arhafsloftslaginu.
Vaxandi hátíð
Sjónvarpshátíðin í Monte Carlo er
þekkt um allan heim. Hún var sett á
laggimar 1960 aö frumkvæði Rainer
m. Mónakófursta sem vildi hvetja til
nýrrar listsköpunar innan sjón-
varpsmiðilsins. Vegur hátíðarinnar
hefur stöðugt vaxið og hafa margir
þekktír einstaklingar starfað í dóm-
nefndum og komiö fram.
Gull- og silfurstyttur verða svo af-
hentar fyrir bestu myndir hátíöar-
innar sem lýkur þann 11. febrúar en
keppt er m.a. um bestu fréttamynd-
irnar, fræðslumyndirnar, heimilda-
myndimar og leiknu sjónvarps-
myndimar.
Þess má geta að árið 1972 sigraði
ungur og óþekktur bandarískur leik-
stjóri í sjónvarpsmyndakeppninni
með mynd sinni Duel. Sú mynd þyk-
ir nú sígilt sjónvarpsverk og allir
vita hvernig þessum leikstjóra reiddi
síðar af, en þaö var enginn annar en
stórleikstjórinn Steven Spielberg.
Óskarsverðlaunin:
Fyrsta konan sem fær að
vera kynnir á hátíðinni
Leikkona Whoopi Goldberg hefur
verið vahn til að vera kynnir á næstu
óskarsverðlaunahátíð sem fram fer
í Hollywood í Los Angeles þann 21.
þessa mánaðar.
Goldherg, sem hlaut óskarsverð-
laun fyrir leik sinn í myndinni Ghost
árið 1991, er fyrsta konan og jafn-
framt fyrstí svartí leikarinn sem fær
aö vera kynnir á þessari mestu hátíð
í kvikmyndabransanum.
Leikarinn Billy Crystal, sem verið
hefur kynnir á hátíðinni sl. fjögur
ár, tilkynnti íyrir stuttu að hann
heíði ekki áhuga á að taka starfið að
sér aftur.
Goldberg hefur lýst ánægju sinni
með vahð og segir það mikinn heiður
fyrir sig. „Það er ánægjulegt að vera
allt í einu orðin aðalmanneskjan í
stað þess aö vera bara áhorfandi,"
sagði hún við fréttamenn.
Aðrir leikarar, sem einnig voru
taldir koma tíl greina, vom Robin
Wilhams, Tom Hanks, Eddie
Murphy, Chevy Chase og Johnny
Carson.
Hátíöinni verður sjónvarpað um
allan heim og húist er við að milljón-
ir manna fylgist spenntír með hverj-
irfáóskarinníár. Reuter
sýnasigfá-
klæddirí
Playboy
Mariel Hem-
ingway er með-
al frægra leik-
ara og fyrir-
sæta sem
fækka fótum
fyrir:; sérstakt
myndablað
sem tímaritið
Playboy gefur út í mars.
Fræga fólkið mælir með ömggu
kynlífi og notkun smokka. Hagn-
aðurinn af sölu blaösins rennur
til rannsókna á eyðrúsjúkdómn-
um.
Meðal þeirra sem kaupendur
geta barið augum eru, auk Mariel
Hemingway, Sonia Braga, Sandra
Bernhard, Shannen Doherty, He-
lena Christiansen og Carla Bruni
Þýskir njósnarar
varaviðkjarn-
orkuglæp
Þýska leyniþjónustan segir
svartamarkaðsbrask með úran-
íum, plútóníum og annað efni frá
fyrrrum Sovétríkjunum sé orðið
svo umfangsmikið að ástæða sé
til að hafa áhyggjur af.
Það er þýska tímaritið Der Spi-
egel sem segir þetta hafa komlð
fram í skýrslu þýsku leyniþjón-
ustunnar tíl Helmuts Kohl kansl-
ara í síðasta mánuði.
Forvarnirgegn
hrotumáólymp-
íuleikunum
Vegna möguleika á aö hrotur
úr næsta herbergi haldi vöku fyr-
ir keppendum á ólympíuleikun-
um í Lillehammer var gnpiö tíl
þess ráðs aö einangra mjög vel
miili herbergja. Þess var sérstak-
lega gætt að einangra vel kríng-
um dyr til að ekki bærist hávaði
á milli herbergja.
Alls verða um 2.500 keppendur
og þjálfarar í iþróttamannaþorp-
inu í Lillehammer á ólympíuleik-
unum.
Engintengslvið
Palme-morðið
Taiið er að Svíinn, sem á tíma-
bili var grunaður um morðiö á
Olof Palme og fannst myrtur i
Bandaríkjunum 7. janúar síðast-
liðinn, hafi fallið fyrir hendi af-
brýðisams lögreglumanns. Lög-
reglumaðurinn, sem var sagt upp
starfinu um áramótin, veitti
Svíanum eftirför eftir að hann
haföi heimsótt fyrrverandi vin-
konu lögreglumannsins. Móðir
•hennar var einnig myrt í desemb-
er en hún hafði verið á móti sam-
bandi dóttur sinnar og lögreglu-
mannsins.
Demi Mooreog
BruceWillis
eignastdóttur
Kvikmynda-
leikkonan
Demi Moore
fæddi á
fimmtudaginn
dóttur sem
hlotið hefur
nafnið Tallulah
Belle. Mæðg-
ununum heilsast vel, að sögn
talsmanns Moore.
Sú stutta er þriðja dóttir Moore
og kvikmyndaleikarans Bruce
Willis. Fyrír áttu þau dæturnar
Rumer, sem er 5 ára, og Scout
sem er tveggja ára. Reuter, TT