Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Side 11
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994 11 DV Fréttir ísafjaröar- djúp Súðavík kaupir Eyrardal Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirðú „Við keyptum landið frá Eyrar- dalsá og inn að Þórðarsteinum milli Langeyrar og Hlíðar. Undanskilin eru verksmiðjuhúsin á Langeyrinni í eigu Frosta hf., kirkjan og kirkju- garðurinn og Ákabúð, hús Slysa- vamafélagsins. Áður hafði hreppn- um verið gefið land undir gnrnn- skóla. í kaupunum var einnig íbúð- arhúsið í Eyrardal og allt þetta kost- aði ekki nema 12 millj. króna,“ sagði Sigríður Hrönn Elíasdóttir, sveitar- stjóri í Súðavík, í samtali við blaðið. Súðavikurhreppur hefur fest kaup á landi Eyrardals í Álftalirði. Kaup- samningur var undirritaður 30. des- ember og samþykktur í hreppsnefnd Súðavíkurhrepps 19. janúar. Seljend- ur eru Kjartan Jónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir. Gert er ráð fyrir að landið verði framtíðarbyggingarsvæði Súðvík- inga. Ekki er vitað nákvæmlega um stærð landsins í hekturum tahð en ljóst er að hér er um gríðarlega mik- ið landsvæði að ræða sem nær frá fjöru til efstu dnda. Smiðirnir hjá Klakki láta kuldann ekki á sig fá við vinnu í hótelbyggingunni í Vík. DV-mynd Páll Hótel að rísa í Vík PáU Pétuisson, DV, Vik í Mýidal Hótelbyggingu í Vík miðar vel þrád fyrir rysjótta tíð að undanfomu. Það er kuldalegt aö vinna úti á þessum árstíma en smiðir Byggingarfélags- ins Klakks í Vík láta það ekki á sig fá. Grunnurinn var steyptur fyrir jól og gólfþlatan skömmu eftir áramót- in. Búið er að reisa grind og sperrur én síðan verður klæðningin sett á. Bjöm Sæmundsson, framkvæmda- stjóri Klakks, telur að húsið verði fokhelt um miðjan febrúar ef allt gengur eðlilega. Klakkur hefur verið með 6-7 starfsmenn í byggingunni en reiknað er með að fjölga þeim þegar farið verður að vinna inni. Feröamálaráð: Einn starf smaður f lytur til Akureyrar Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyii: „Það sem við ætlum fyrst og fremst að sinna á Akureyri er það sem snertir innlenda starfsemi Ferða- málaráðs. Það sem fer af starfsemi Ferðamálaráðs til Akureyrar em samskipti við ferðamálafulltrúa og ferðamálasamtök, það er innlend markaðssetning og upplýsingaþátt- urinn,“ segir Magnús Oddsson ferða- málastjóri um flutning á verkefnum Ferðamálaráðs til Akureyrar. Magnús segir það misskilning að verið sé að flytja starfsemi Ferða- málaráðs til Akureyrar og t.d. flytjist aðeins einn starfsmaður norður, Helga Haraldsdóttir, sem mun veita starfseminni á Akureyri forstöðu. Þar verða ráðnir tveir starfsmenn til viðbótar og hugsanlega einn síðar. „Það er því verið að flytja ákveðin verkefni norður og má segja að það sé verið að gera vægi þeirra verkefna meira en verið hefur og þetta hefur staðið til lengi,“ segjr Magnús. Flugleiöir og Enska feróamálaráðiö í samvinnu 11 -'j viö Breska ferðamálaráðið og Ferðamálaráð Lundúna kynna: LISTAVIKUR í LONDON 1. febrúar - 31. mars F :: II Ijt -r p{ péK ' v Jöéé Cárréras sD&Htosle-íkunr Miðar á alla helstu listviðburði í London 1. feb. - 31. mars sem má panta og greiða hér heima. Þú færð upplýsingar um alla listviðburði fyrirfram. Þú getur pantaö miða hér TjhtSSf ^beima- Þú hefur tök á að sjá hvað gerist að tjaldabaki. Þú færð afsláttarkort að tilteknum viðburðum og veitingahúsum. erabia: ' MIÐSALA Á LISTAVIKUR í LONDON 1. feb. - 31. (London Arts Season) er á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum Flugleiða um allt land og á ferðaskrifstofunum. Þar má einnig fá upplýsingar um Listavikur í London og nákvæma dagskrá. Allar sérstakar og nánari upplýsingar veita Hólmfríður Júlíusdóttir á söluskrifstofu Flugleiða á Hótel Esju og Helga Magnúsdóttir á farskrá í síma 690 300. Flugleiðir bjóða í tengslum við Listavikur í London 3ja, 4ja, 5 eða 8 daga ferðir til borgarinnar, flug og gistingu, á mjög hagstæðum kjörum. Verð frá 26.3oo kr. á mann í tvíbýli; flugvallarskattar ekki innifaldir. FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi ■ ■■ í Hafðu samband við söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofumar eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.) Þetta getur verið BIUD milli lífs og dauða! v 30 metrar Dökkklæddur vegfarandi sóst ekki fyrr en í 20-30 m. fjarlægð frá lágljósum bifreiðar en með endurskinsmerki, borin á réttan hátt sést hann i 120-130 m. fjarlægð. 130 metrar IUMFERÐAR >RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.