Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Síða 13
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994 13 DV Fréttir Engir peningar til í samþykktar snjóflóðavamir á Flateyri: Víðast ónógar snjóflóðavarnir - segir Magnús Már Magnússon snjóflóðasérfræðingur ofan Flateyri. „Þaö er búið að vinna upp moldar- virki og það sem vantar upp á eru snjóflóðavarnarnet. Það er ekki búið að afskrifa þau heldur er þetta í bið- stöðu vegna peningamála. Við höfum bara ekki fjárhagslegt bolmagn í augnablikinu til að fara út í þessa fjárfestingu og megum þakka fyrir á meðan atvinnulífið gengur. Ég held nú samt að við séum komin einna lengst af þessum sveitarfélögvun í landinu í snjóflóðavömum," segir Kristján J. Jóhannesson, sveitar- stjóri á Flateyri, við DV. Það var árið 1990 sem hættumat fyrir snjóflóð á Flateyri var sam- þykkt eftir að Almannavamir ríkis- ins og fleiri höfðu tekið svæðið út. Sama ár gerði R. Hannesson hf. tii- boö í vamir gegn snjóflóðum með varnarnetum upp á 33 milljónir og átti Ofanflóðasjóður að greiða 80 pró- sent af þeirri upphæð en sveitarsjóð- ur Flateyrar afganginn. Enn hefur varnarnetunum ekki verið komið fyrir en hins vegar hefur vamar- görðum og snjókeilum verið komið upp til að draga úr mestu hættunni. „Til að vamir verði fullkomnar þarf netin. Við viljum sjá varnimar uppi sem allra fyrst eða í sumar,“ segir Magnús Már Magnússon, snjó- flóðasérfræðingur hjá Veðurstofu ís- lands. Hann segir að gert hafi verið snjóflóðamat fyrir flesta þéttbýhs- staði og ástand snjóflóðavama sé ekki gott eins og er. Hins vegar standi það vonandi til bóta eftir að matið hafi verið gert því nú geti þeir bæir sem hafa verið metnir fengið aðstoð frá Ofanflóðasjóði. Hins vegar ber að geta þess að Of- anflóðasjóður greiðir einungis 80 prósent af þeim fjárfestingum sem sveitarfélög þurfa að leggja út í vegna snjóflóöavarna og ef miðað er við fjárhag smærri og stærri sveitarfé- laga má ekki búast við að gangskör verið gerð að þessum málum. Á sein- asta þingi var lagt fmmvarp fram til breytingar á þessu þar sem lagt var til að Ofanflóðasjóður greiddi allan kostnað við snjóflóðavarnir en það frumvarp var ekki samþykkt. Meðal annars hefur sveitarstjóm Flateyrar farið fram á að ríkiö greiði allan kostnað af snjóflóðavömum líkt og við byggingu sjóvarnargarða. Undir- tektir hafa hins vegar verið dræmar. -PP Sex matarkörfur á mánuðl að verð- w mæti 30 E5X3 sund hver. 63 27 00 ÓDÝRI SKÓMARKAÐURINN Opið mánud.-föstud. 12-18 Frábært verð - Góðir skór SKÓMARKAÐUR RRskór JL EURD SKO Skemmuvegi 32 - s. 75777 Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd ásamt acupunchturmeðferð með lacer Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf- uðverk. ELSA HALL, Langholtsvegi 160, sími 68-77-02. Nokkrir úr áhugahópnum um betra hundahald á Suðurnesjum með hunda sina að Litla-Hólma. DV-mynd Ægir Már Fengu heila jörð fyrir hundana Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum; Áhugahópur á Suðurnesjum um betra hundahald hefur fengið jörðina Látla-Hólma í Leirn til afnota. í hópn- um em 30 manns sem staðið í ströngu dag og nótt síðustu mánuði að koma húsnæðinu í betra horf. Það var mjög illa farið, nánast ónýtt. Hiti er kominn í húsið og aðstaða innanhúss að komast í gott horf. Einnig bílastæði við húsið. Félags- starfið hefur verið mjög gott og hefur fólk komið í Leimna á ýmsum tímum með hunda sína. Námskeið hafa ver- ið fyrir hunda og hundaeigendur. „Þetta svæði er opið öllum hunda- eigendum á Suðumesjum og viljum við hvetja þá til að láta sjá sig því fyrirhugað er að stofna félag á næst- unni. Hér geta hundaeigendur komið með hundana sína allan sólarhring- inn. Enginn klíkuskapur er hér og fólk á að koma hingað ófeimið. Hér fá hundamir að njóta sín en það gera þeir ekki inni í byggð. Við fáum hús- ið og lóðina til afnota endurgjalds- laust í nokkur ár og viljum þakka Guðbergi Ingólfssyni, eiganda úr Garðinum, fyrir það,“ sagði Jón Sæv- ar Sigurðsson hundaeigandi í sam- tah við DV. VPP*VVTTAVélAV 12 manna 7 þvottakerfi Hljóölát 40dB Þvottatími 7-95 mín Sjálfv.hitastillir 55-65°C Stillanlegt vatnsmagn Sparnaöarrofi Hitaþurrkun HxBxD: 85x60x60cm Án topp-plötu: 82x60x58cm VINSAMLEGAST ATHUGIÐ NYTT HEIMILISFANG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.