Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Síða 14
14
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Mannréttindi eða ofríki?
Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin í Ríkisútvarpinu.
Enn er mönnum í fersku minni uppákoman vegna Hrafns
Gunnlaugssonar þegar hann var bæði rekinn og ráðinn.
Póhtík og flokksleg fingraför í því máii fóru varla á milli
mála.
Nú hefur orðið annað uppþot á Ríkisútvarpinu þegar
Heimir Steinsson útvarpsstjóri víkur Arthúri Björgvini
Boflasyni, aðstoðarmanni sínum, úr starfi. Tilefnið er
bréf sem hann hefur sent Hauki Hafldórssyni, formanni
Stéttarsambands bænda. Þar er haft uppi óviðurkvæmi-
legt orðfæri og miður góðar skoðanir á settum fram-
kvæmdastjóra Sjónvarps, auk þess sem talað er um
dæmalausa valdníðslu menntamálaráðherra.
Arthúr Björgvin var ráðinn af útvarpsstjóra, sem sér-
stakur aðstoðarmaður hans, í kjölfar setningar Hraftis
Gunnlaugssonar í framkvæmdastjórastöðu Sjónvarps.
Fór það ekki leynt að Arthúr var settur til höfuðs Hraöú
og mun Arthúr hafa tekið það starf fóstum tökum og
verið dyggur og trúr útvarpsstjóra í togstreitunni við
Hrafn. Það hefur því ekki verið aufúsuverk hjá Heimi
útvarpsstjóra að reka Arthúr frá stofnuninni og er varla
gert nema fyrir pófltískan þrýsting. Uppsögnin á sér stað
nokkrum klukkutímum eftir fund útvarpsstjóra og for-
sætisráðherra og menntamálaráðherra hefiir látið þau
orð falla, að tímabært hefði verið að „stoppa Arthúr
Björgvin af fyrr“.
Rétt er að taka fram að sumt af því sem Arthúr segir
í bréfi sínu er óviðeigandi eins og það að flkja sjónvarps-
þáttum Baldurs Hermannssonar um bændur við myndir
sem þýskir nasistar létu gera um gyðinga í Þriðja ríkinu.
FuUyrðingar hans um ofríki og svívirðu innan RÚV eru
órökstuddar og ekki við hæfi. Sá málflutningur ber keim
af vanstilflngu.
Hitt er annað að hér er um skoðanir að ræða; skoðan-
ir Arthúrs Björgvins Bollasonar og fyrir skoðanir sínar
er hann rekinn úr starfi. Það sama átti sér stað með
Hrafn Gunnlaugsson. Útvarpsstjóri vék honum úr starfi
vegna skoðana sem hann setti fram í sjónvarpsþætti.
Brottrekstri Hrafns var á sínum tíma harðlega mótmælt
hér í blaðinu og aftur nú er uppsögn Arthúrs Björgvins
fordæmd. Það er algjörlega óverjandi að opinberir starfs-
menn gjaldi skoðana sinna með starfi sínu. Skoðana-
frelsi, tjáningarfrelsi og málfrelsi er fótum troðið þegar
starfsmönnum er sagt upp fyrir þær sakir að láta i ljós
skoðanir sínar.
Útvarpsstjóri hefur borið ábyrgð á uppsögnum Hrafns
Gunnlaugssonar og Arthúrs Bollasonar. Ekki er víst að
honum hafi alveg verið sjálfrátt í síðara tilfelflnu. Ástæða
er til að halda að pólitísk vanþóknun hafi ráðið ferðinni
alveg með sama hætti og það var fyrir pófltíska velþókn-
un að Hrafti var settur framkvæmdastjóri Sjónvarps.
Ef þessar grunsemdir eru réttar er máflð miklu alvar-
legra heldur en það eitt hvort Arthúr Björgvin Bollason
hafi sett fram vafasamar skoðanir og notað til þess bréfs-
efni Ríkisútvarpsins. Máflð snýst um það hvort einstakl-
ingar séu bannfærðir ef þeir eru ekki valdamönnunum
þóknanlegir.
Þessi spuming er því áleitnari að hún kemur í kjölfar-
ið á þeirri uppákomu að rithöfundur var settur út af
sakramentinu fyrir þá sök eina að vera sá sem hann var.
Við skulum bíða með að tala um fasisma en almenning-
ur er hvattur til að vera á varðbergi þegar mannréttindi
lúta í lægra haldi fýrir ofríki.
Ellert B. Schram
... yfirlýst stefna var að rekstur Blönduvirkjunar hefði ekki áhrif á orkuverð til almenningsveitna," segir m.a.
í greininni.
Húshitunarkostnaður:
Ræður Landsvirkj-
un jöfnuninni?
Eitt af markmiðum þeirrar ríkis-
stjómar sem nú situr var jöfhun
húshitunarkostnaðar í landinu.
Þær áætlanir birtust síðan í því að
þ. 1. júní 1991 var aukið við framlag
ríkissjóðs til niðurgreiðslu á rafhit-
un. Um leið var það yfirlýst að jöfn-
un húshitunarkostnaðar skyldi
nást á 2 árum í 3 áföngum. Nú em
þessi tvö ár liðin og ekki finna not-
endur sem búa við hæstan húshit-
unarkostnað fyrir því að orkuverð
hafi lækkað til muna'. Þegar undir-
rituð hefur spurst fyrir um þessi
mál á Alþingi hefur svarið oft verið
aö Landsvirkjun þurfi að koma
meira inn í dæmið með lækkun
orkuverðs í heildsölu. Þær aðgerðir
hafa verið mátthtlar hingað til og
nú hefur Landsvirkjun tilkynnt 3%
hækkun á gjaldskrá frá 1. jan 1994.
Hagnaður í átta ár
Landsvirkjun ber því við að nú
sé svo mikill taprekstur hjá fyrir-
tækinu að nauðsyn sé á þessari
hækkim. í ársreikningi Lands-
virkjunar fyrir árið 1991 kom fram
að hagnaður var kr. 484 milljónir
þrátt fyrir afskriftir upp á 2,5 miiij-
arða króna. Og árið áður eða 1990
var rekstrarhágnaður rúmur millj-
arður króna, en þá vom afskriftir
2,8 milljarðar. Það er því augljóst
að á aðeins þessum tveimur ánun
hefur hagnaður fyrirtækisins verið
um 1,5 milijarðar þrátt fyrir aö af-
skriftir hafi verið samanlagt 5,3
milljarðar króna. Og vel að merkja
var árið 1991 áttunda árið í röð sem
Landsvirkjun skilaði gróða.
Tap vegna Blönduvirkjunar
Nú hefur í tvö ár veriö sýnt fram
á tap þessa sama fyrirtækis og er
þar fyrst og fremst um að kenna
Blönduvirkjun sem tekin var í
notkun á árinu 1991. Sáralítii þörf
Kja]]ariim
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
þingkona Kvennalistans
á Vestfjörðum
hefur reynst fyrir þá orku í land-
inu. Á árinu 1992 voru gjöld vegna
reksturs Blönduvirkjunar rúml. 1
miUjarður án þess að tekjur kæmu
á móti. í framhaldi af því varð
rekstrarhalli Landsvirkjunar 1992
2,1 milljarður, eða m.ö.o. helming-
ur vegna reksturs Blöndu. Þaö var
þó yfirlýst stefna að rekstur
Blönduvirkjunar ætti ekki að hafa
áhrif á orkuverð til almennings-
veitna.
Afskriftir séu
raunhæfar
í því sambandi er rétt að benda á
óeðlilega stuttan afskriftartíma
virkjana Landsvirkjunar sem er 40
ár, þó viðurkennt sé að vatnsafls-
virkjanir endist a.m.k. 80 ár. Ef fet-
að væri í fótspor annarra orku-
veitna í landinu eins og RARIK og
O.V. sem hafa lengt afskriftartíma
sinna virkjana og þannig dregið úr
rekstrarkostnaði til hagsbóta fyrir
notendur orkunnar, þá liti dæmiö
öðruvísi út. Þó að Landsvirkjun sé
nú rekin með tapi í tvö ár, eftir að
hafa skilað umtalsverðum hagnaði
í 8 ár, er í hæsta máta óeðlilegt að
það skuh strax vera látið koma
fram í hækkun gjaldskrár. Þjóð-
hagsstofnun hefur lýst því yfir að
ekki séu raunhæfar forsendur til
þessarar hækkunar. Og þær raddir
verða sífeht háværari sem telja af-
skriftartíma vatnsaflvirkjana
Landsvirkjunar óeðlilega skamm-
an. í krafti einokunaraðstöðu telur
Landsvirkjun sig geta lifaö í eigin
heimi sem ekki þarf að taka mið
af raunveruleika annarra lands-
manna. Og þó nú hafi verið sam-
þykkt hækkun í fjárlögum 1994 til-
niðurgreiðslu á rafhitun nær það
ekki að vega upp á móti hækkun
Landsvirkjunar.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
„Þó að Landsvirkjim sé nú rekin með
tapi 1 tvö ár, eftir að hafa skilað umtals-
verðum hagnaði í 8 ár, er í hæsta máta
óeðlilegt að það skuli strax vera látið
koma fram 1 hækkun gjaldskrár.“
Skodaiúr annarra
Stóra málið er GATT
„Nú standa leikar þannig að milh stjómarflokk-
anna er komin sátt um innflutning á landbúnaðar-
vörum. Dómur Hæstaréttar hefur kveðið upp skýran
úrskurð um hvemig beri að túlka þau lög sem í gildi
era... Stóra máhð er hins vegar GATT. Um þann
samning ríkir sátt, sem nær raunar út fyrir raðir
stjómmálaflokkanna... Eftir ghdistöku þess verður
innflutningur frjáls, nema af heilbrigöisástæðum, en
hins vegar verður fijálst aö beita tolhgildum til að
vemda innlenda framleiðslu.“
Úr forystugrein Alþbl. 4. jan.
Eftirstöðvar með verðbótum
„Skuldir fyrirtækja og einstaklinga halda áfram
að enda með gjaldþrotum. Ríkissjóður einn virðist
hafa efni á því aö fleyta sér áfram frá ári til árs með
stórfehdum fjárlagahalla. Þar kemur líka að skulda-
dögum þegar búið verður að fara þannig með efna-
hagslíf í landinu að ekkert stendur eftir utan háar
upphæðir í klöddum, þar sem skráðar em eftirstöðv-
ar með verðbótum."
Indriði G. Þorsteinsson í Pressunni 3. febr.
Réttarríkið og þegnréttindin
„Réttaróvisssan um innflutning búvöru hefur
verið nefnd sem dæmi um að Alþingi hafi ekki vand-
að vinnu sína næghega. Einnig ákvæði nýrra sam-
keppnislaga um hæflskröfur, sem nú stendur th að
breyta... Reynslan sýnir að nauðsynlegt er að fara
vel ofan í lögfræðheg áhtaefni, ekki síst með hhðsjón
af stjómarskrá, mannréttindum, alþjóðlegum
skuldbingingum og th aö gæta lagasamræmis. Elsta,
mikhvægasta og virðulegasta stofnun þjóðfélagsins
verður að leggja metnaö í öh sín störf- styrkja réttar-
ríkiö og þegnréttindin.“
Úr forystugrein Mbl. 3. febr.