Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Page 15
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994 15 Kemur neyð Reykvík- inga okkur ekki við? Það er ekki ofmælt að hundruð fjölskyldna í Reykjavík eigi við erf- iðleika að stríða sökum atvinnu- leysis. Atvinnuleysisbætur og aðstoð Félagsmálastofnunar Reykjavík- urborgar hrökkva skammt fyrir þá sem þurfa að standa skil á afborg- unum og eru að missa eignir sínar. Flýta má verkefnum Hjól atvinnulífsins verða að fara að snúast aftur og það er alveg ljóst aö opinberir aðilar verða að koma þar tdl sögunnar, eins og jafnan þegar samdráttur verður. Hér í Reykjavík bíða íjölmörg verkefni sem nauðsynlegt er að vinna að og óhætt er að flýta með tiliiti til atvinnuástandsins. Fyrir utan skólabyggingar sem þarfnast viðhalds má nefna enn frekara við- haid á Þjóðleikhúsi, Þjóðminjasafni og öðrum opinberum byggingum sem hvorki halda vatni né vindum. Sömuleiðis hlýtur það að koma til skoðunar að ráðast í fram- kvæmd stórra umferðarmann- virkja, t.d. á gatnamótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar og Höfðabakka og Vesturlandsveg- ar. Þar er sannanlega um arðbærar framkvæmdir að ræða. Þá hlýtur að koma til álita að flýta svo- nefndri Kleppsvíkurbrú, sem er talin mjög arðsamt verkefni. r Neyðaraðstoð Um þessi verkefni - og mörg önn- ur - verða Reykjavíkurborg og rík- isvaldið að sameinast enda sameig- inlegt hagsmunamál og draga úr atvinnuleysi og þar með útgjöldum vegna atvinnuleysisbóta og félags- málaaðstoðar. Jafnframt eiga þess- ir aðilar að lýsa þvi yfir að dregið Kjallaiinn Alfreð Þorsteinsson varaborgarfulltrúi Framsóknar- flokksins í Reykjavtk verði úr framkvæmdum þegar bet- ur árar. Hins vegar er ljóst að neyðin í Reykjavík - og raunar víðar - er orðin svo mikil hjá sumum fjöl- skyldum að ekki er hægt að standa hjá aðgerðalaus og láta sem neyð samborgaranna sé okkur óviðkom- andi. Fyrsta skrefið í þeim málum er að koma upp neyðaraðstoð undir forystu Reykjavíkurborgar - þar sem ekki er aðeins veitt hjálp vegna skorts á nauðsynjum heldur jafn- framt gengist í að leita samvinnu við lánastofnanir um frest á afborg- unum lána og vaxta uns úr rætist. Neyð Reykvíkinga kemur okkur við. Heiður borgarstjómar er í húfi. Alfreð Þorsteinsson „Hjól atvinnulífsins veröa aö fara aö snúast aftur og það er alveg ljóst að opinberir aðilar verða að koma þar til sögunnar, eins og jafnan þegar sam- dráttur verður.“ Greinarhöf. segir hljóta að koma til skoöunar að ráðast í framkvæmdir stórra umferðarmannvirkja, t.d á mótum Höfðabakka og Vesturlandsvegar. Sviss er ekki í kuldanum í einu virtasta dagblaöi heims „Financial Times" birtist þann 19. janúar 1994 mjög athyglisverð grein um Sviss og hvemig því hefur vegnað að vera utan EES-samning- anna. Ekki stóð á hrakspám þegar Sviss ákvað í þjóðaratkvæða- greiðslu að standa utan umræddra samninga og var taliö víst af há- lærðum hagfræðingum að Sviss- lendingar myndu fljótlega koma kijúpandi til samninga og þá fengju þeir kaldar móttökur. Við hér á íslandi fórum ekki var- hluta af hrakspám lærðra og leikra og jafnvel sumir þeirra töldu þetta sýna að ekki mætti fara fram þjóð- aratkvæðagreiðsla um slík mál. í ljós hefur nú komiö að hagnaður Sviss við að vera fyrir utan EES er meiri en ávinningur af samn- ingnum. Flest iðnfyrirtæki þar í landi gera í dag ráð fyrir fram- leiðsluaukningu í fyrsta skipti um lengri tíma. Allt bendir til þess að efnahagur þeirra sé á uppleið eftir nokkurra ára stöðnun. Þeir hafa náð með tvíhliða samningum um 90% af ávinningi EES-samningsins miðað við fulla þátttöku. Með nýlegum GATT-samningum hafi þeir þegar náð því sem þar á vantaði. Vakin skal athygh á því að Sviss hefur með því að standa utan EES-samningsins tryggt sér áfram sína sérstöðu í alþjóða bankaviðskiptum. Er EES vítamínsprauta? Þann 21. janúar 1994 er Alþýðu- blaðið helgað ágæti EES-samnings- ins og flármálavitringar og öflugir athafnamenn úr ýmsum áttum og flokkum höfðu ekki nóg sterk lýs- KjaUaiinn Sigurður Helgason viðskipta- og lögfræðingur ingarorð að lýsa miklum ávinn- ingi. Fyrirsagnir greina voru m.a. aflvaki framfara, fjörbrot einokun- arkerfisins, jákvætt fyrir iðnaðinn og ný sóknartækifæri. Þá hvöttu sumir þeirra til þess að full EB- aðild yrði könnuð sem fyrst. Það er skoðun mín að þessi sterku lýs- ingarorð um ágæti EES-samnings- ins væru betur sögð eftir lengri gildistíma. Engir þeirra geta þess að við áttum alla tíð mikla mögu- leika á hagstæðum tvíhhða samn- ingum. Rétt er að vekja athygli á því að iðnaður hér á landi virðist eiga í dag mjög erfitt uppdráttar. Thboð frá erlendum aðilum virðast skáka okkar tilboðum á fjölmörgum svið- um og þannig glatast dýrmæt vinna úr landi. Upphrópanir um undir- boð frá samtökum iðnaðarins viröst hrökkva skammt því að oft- ast er ekkert mark tekið á því enda mjög erfitt að færa sönnur á slík brot. Skipasmíðaiðnaður hér á landi hefur næstum lagst niður og stööugt heyrast fréttir um ný gjald- þrot á íjölmörgum sviðum iðnaðar og í öðrum atvinnugreinum. Atvinnuleysi hefur stóraukist og ástandið stefnir í svipað horf og hjá öðrum Evrópuþjóðum. Það sem þó er alvarlegast er að ekkert bendir til þess að í hönd sé að fara aukin þjóðarframleiðsla og þar með vax- andi velmegun hér á landi. Það vekur og undrun manna að helstu vaxtamöguleikar í útflutningi eru til landa utan EES. Lagafrumvarpi lætt í gegn Forsætisráðherra segir fv. við- skiptaráðherra, Jón Sigurðusson, hafa lætt lagafrumvarpi um inn- flutning gegnum þingið öhum þing- mönnum að óvörum. Þann 10. sept. 1992 leggur viðskiptaráðherra fram tvö frumvörp fyrir Alþingi, um gjaldeyrismál, þskj. 5. og um imt flutning þskj. 6. og eiga þau bæði að koma í stað.laga nr. 63/1979 um skipan gjaldeyris- og viðskipta- mála. Eru þau sett til samræmis við það sem gerist í samkeppnis- löndum og með hliðsjón af skuld- bindingum okkar í EES um frjáls viöskipti. Umræður voru miklar um lögin um gjaldeyri en bæði fylgdust að í — umræðunni. Ráðherra sá ástæðu til þess að þakka efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis fyrir vönduð vinnubrögð. Hvað fór úrkeiðis? Dæmi þetta sýnir alvarlega van- þekkingu á ýmsum ákvæðum EES-samningsins. En t.d. sam- kvæmt 102 gr. hans skal breyta löggjöf í samræmi við löggjöf bandalagsins og í bókun 35 segir að komi fram misræmi milli EES- reglna og annarra ákvæða í lögum þá skulu EES-reglur ghda eftir því sem þörf krefur. Væntanlegir úr- skurðir eftirhtsstofnunarinnar munu fljótlega minna þjóðina óþyrmhega á þýðingu þessara ákvæða. Sigurður Helgason „í ljós hefur komið að hagnaður Sviss við að vera fyrir utan EES er meiri en ávinningur af samningnum. Flest iðn- fyrirtæki þar í landi gera í dag ráð fyr- ir framleiðniaukningu í fyrsta skipti um lengri tíma.“ Meðog Frjáls afgreiðslutími vínveitingastaða Betra fyrir alla „Ég held að það væri þess viröi aö gera tilraun til sex mánaöa að hafa af- greiðslutím- ann frjálsan. Þetta myndi í fyrsta lagi formaöur Sam- verða th þess bands veito«a- °« að bæta úr s|s,ihlisa- þeim vanda þegar allir koma út af skemmtistöðum á sama tíma á nóttunni. Þá ríkir öngþveiti á Ieigubhamarkaönum. I annan stað gæti þetta stórlega dregið úr teitum í heimahúsum sem eru öhum th ama og leiöinda sem í kring búa. Auk þessa gæti þetta minnkaö eitthvað flækinginn á götum borgarinnar að næturlagi. Það er líka dagljóst að staðirair verða ekki opnir lengur en mark- aður er fyrir þá. Ég hef ekki trú á að dansstaðimir veröi opnir lengur en th klukkan fimm aö morgni því það kostar mikið aö hafa þá opna svona lengi. Það þarf mikinn mannafla og fleira þannig að þeir verða ekki opnir lengur en markaðurinn leyfir. Það gætu hugsanlega orðið örfáir staöir th aö hafa opið Ieng- ur en þetta og það yrði þá bara tíl að koma th móts við þá sem kjósa aö sitja lengur en gengur og gerist. Fyrir lögreglu hlýtur að vera hepphegra að fólk sitji á veitingahúsum þar sem segja má að þar fari drykkja fram undir eftirhti. Þaö má líka geta þess að meö þessu er hugsanlega hægt aö vita hvar þeir eru sem eru th vand- ræða í stað þess aö leita þeirra um ahan bæ.“ Verðum að athlægi „Neysla áfengis, hvort sem þaö er á vínveitinga- húsum eða annars stað- ar, hlýtur eðh málsins sam- kvæmt að „ stóraukast ef S^BjornJonsson, afgreiðslu- 8 °rteTf'!l St°r' tími þeirra ah*u Islands. verður gefinn frjáls. Hjá því getur ekki farið. Þar með lújóta fleiri og fleiri aö ánetjast áfengi og veröa það sem kallað er áfengis- sjúklingar. Við Islendingar erum nú þegar að verða að athlægi vegna of langs afgreiðslutíma vínveitinga- húsa. Þaö er engin þjóð á okkar menningarsvæði sem hefur eins langan afgreiðslutíma og við. Ekki einu sinni Bretar og írar. Þar er þó gróin „kráarmenning". Sama gildir um afgreiöslutimann hjá Norömönnum, Svíum og Finnum. Allar þjóðir á sama menningarsvæði og við hafa tak- markaðan afgreiðslutíma. Við gætum hugsanlega fundiö aðrar þjóðir en þær þjóðir hafa for- merkiö van-þróaöar. Veitingamenn vhja þetta því þeir hafa vonir um meiri tekjur og meiri gróða. Ef veitingamenn væru hins vegar á móti þessu væri athugandi hvort ætti að gera þetta en það verður að kanna mjög grannt fýrst hver afstaöa þeirra er og ég efa ekki aö þeir eru allir með því. Hvað sem skoö- unum annarra líður, eins og lög- reglu, sem mér heyrist aö sé opin fyrir þessu, lýsi ég mig algjörlega andvlganþessu." -pp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.