Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994
17
Fréttir
AUs 4.825 útlendingar búsettir á íslandi 1 árslok 1993:
Á f araldsfæti
milli kjördæma
tæplega 18 þúsund íslendingar búsettir erlendis
Alls voru búsettir á íslandi 4.825
erlendir ríkisborgarar í lok síðasta
árs. Flestir þeirra voru búsettir á
höfuöborgarsvæðinu, eða ríflega
þrjú þúsund. Hlutfallslega eru þó
flestir útlendinganna á Vestíjörðum,
eða um 2,6 prósent mannfjöldans.
Hlutfallslega eru fæstir búsettir á
Norðurlandi vestra, eða um 0,9 pró-
sent manníjöldans. _
Á sama tíma voru 17.567 íslending-
ar búsettir erlendis, þar af 8.230 karl-
ar og 9.337 konur. Samkvæmt því
voru nærri 13 þúsund fleiri íslend-
ingar búsettir erlendis heldur en út-
lendir ríkisborgarar á íslandi. Miðað
við árið 1992 fjölgaði íslenskum ríkis-
borgurum á erlendri grundu um 664.
Sem fyrr eru flestir Islendinganna
búsettir annars staðar á Norðurlönd-
unum, eða alls 11.111. Þar af búa 3.357
í Danmörku og 5.170 í Svíþjóð. í
Bandaríkjunum er búsettur 3.261 ís-
lendingur en í Asíu einungis 93.
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
sstofu íslands var í lok síðasta árs
nánast sami fjöldi erlendra ríkis-
borgara og árið 1992. Bæði árin
reyndust útlendingarnir um 1,8 pró-
sent mannfjöldans. Miðað við árið
1991 hefur þeim hins vegar fækkað
um 568, eða um ríflega 10 prósent.
Nokkur hreyfing var á fjölda er-
lendra ríkisborgara rííilli kjördæma
á síðasta ári. Hlutfallslega fækkaði
þeim um tæplega fimmtung á Vest-
fjörðum. Frá Norðurlandi eystra
fluttist um tíundi hver útlendingur.
Á Norðurlandi vestra fjölgaði hins
vegar erlendum ríkisborgurum um
fimmtung á árinu 1993 og í Reykjavík
fjölgaði þeim um rúmlega 4 prósent.
Af þeim erlendu ríkisborgurum
sem búsettir eru hér á landi eru
Norðurlandabúar fjölmennastir, eða
alls 1.657. Þar af eru Danir 1.081.
Aðrir Evrópubúar eru rúmlega 1.600,
þar af 347 Bretar og 234 Pólveijar.
Tæplega 700 Bandaríkjamenn voru
búsettir hér á landi í lok síðasta árs
og ríflega 100 Afríkumenn. Asíubúar
voru 535, þar af 172 karlar og 363
konur.
-kaa
Skilorðsbundið varðhald fyrir líkamsárás:
Kýldi vin eiginkonunnar
Hæstiréttur hefur dæmt 39 ára
gamlan Akureyring í tveggja mánaða
varðhald skilorðsbundið í tvö ár fyr-
ir að ráðast á 33 ára gamlan mann.
Forsaga málsins er sú að fómar-
lambið var að koma úr vinnunni í
janúar 1993. Þegar maðurinn kom að
bíl sínum framan við vinnustað sinn
reis skyndilega upp árásarmaðuriftn
og sagði: „Ert þú þarna, helvítis fíflið
þitt?“ Kvaðst vitnið hafa svarað: „Nú
ertu kominn aftur.“ Hann segist hafa
séð árásarmanninn halda á skrúf-
lykli í hendinni og síðan hafi hann
slegið sig fast högg í andlitið með
krepptum hnefa. Við höggið mynd-
aðist skurður neðan við vinstra
augnlok og blæddi mikið úr sárinu.
Fómarlambið var með gleraugu sem
brotnuðu við höggið.
Við yfirheyrslur kom fram að fóm-
arlambið var í „vinfengi" við eigin-
konu árásarmannsins en þau voru
skilin að borði og sæng. Hafði árásar-
maðurinn að sögn eiginkonu hans
oft haft í hótunum við hana og meðal
annars hringt í hana eftir árásina og
sagt: „Sérðu ekki nú hvað ég get
gert?“ Hann hafi einnig sagt að hann
myndi ofsækja hana og fórnarlambið
ef þau byrjuöu að búa saman.
Einnig kom fram við yfirheyrslur
að búið var að losa um tappann í
smurolíusíu bíls fómarlambsins.
Þá kom fram við rannsókn málsins
aö ekkert sérstakt hefði verið á árás-
arstað sem benti til þess að fómar-
lambið hefði rekið sig í eða dottið.
í ljósi þessa taldi Hæstréttur hæfi-
lega refsingu tveggja mánaða varð-
hald skilorðsbundið í tvö ár. Einnig
var árásarmanninum gert að greiða
fórnarlambinu tæplega 81 þúsund
krónur og sakarkostnað. -pp
Veita ókeypis lögf ræðiaðstoð
Almenningi gefst nú kostur á að
fá ókeypis lögfræðiaðstoð einu sinni
í viku hjá starfandi héraðsdóms- og
hæstaréttarlögmönnum í Dómhús-
inu í Reykjavík.
Fyrirhugað er að þessi svokallaða
lögmannavakt hefjist næsta þriðju-
dag og standi yfir tvo tíma í senn, frá
kl. 16.30-18.30. Það er Lögmannafélag
íslands sem stendur að þessari þjón-
ustu og verða tveir lögmenn til við-
tals í senn. Panta þarf viðtölin við
þá á skrifstofu félagsins.
-ingo
Mest seldu amerísku dýnurnar
HUSGAGNAVERSLUN
Langholtsvegi 111, sími 680 690.
MAKE UP FOR EVER
PR0FESSI0NAL • PARIS
Okkur er mikil ánægja aá tilkynna, að Farði kf.
er nýr umkoðsaðili fyrir MAKE UP FOR EVER á íslancli.
MAKE UP FOR EVER kýáur mjög gott úrval
af snyrtivörum til föráunar.
MAKE UP FOR EVER em selclar á eftirtöld um stöðum:
LISTFÖRÐUN ÞÓRU & ÖNNU • Skólavöráustíg 2, Reykjavík
HJÁ KLÖRU • Egilskraut 5, Neskaupsstað
SNYRTISTOFA NÖNNU • Strandgötu 23, Akureyri
NÝTT ÚTLIT • Hafnargötu, Keflavík
HANNA KRISTÍN • World Class, Skeifunni 19, Rvk.
ÚTLIT / LISTFÖRÐUN • Kirkjulundi 13, Garáakæ
SNYRTISTOFAN ANITA • Heiðarvegi 9k, Vestmannaeyjum
HÁRGREIÐSLUSTOFA GUNELLU • Garáarskraut 64, Húsavík
FRÁ TOPPI TIL TAAR • Svarfaáarkraut 24, Dalvík
Umkoásaáili á íslancli:
FARÐI HF. • Sími: 612690 - Fax: 617590
MAKE UP FOR EVER
5, rue La Boétie, Paris
Viltu breyta til ?
Hárgreiðslustofan
VALHÖLL
Óðinsgötu 2 - Sími 22138