Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994 Sviðsljós DV í hringiðu helgarinnar laugardagskvöld í Þotunni að hafa unnið báða bikarleikina í körfu- knattleiknum um síðustu helgi. Þar var að sjálfsögðu mættur Hannes Ragnarsson, formaður körfuknattleiksráðs Keflavíkur, ásamt eiginkonu sinni, Halldóru Lúðvíksdóttur. Árshátíð Tónabæjar var haldin á fostudagskvöld. Þá borðaði saman starfsfólk og fastagestir staðarins austurlenskan mat og eftir borð- haldið voru skemmtiatriði frá bæði krökkunum og starfsfólkinu. Þær Guðný Guðjónsdóttir og Bríet Konráðsdóttir eru fastagestir í Tónabæ og skemmtu sér „æðislega vel“._________ í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi hefur undanfarið staðið yfir sýningin Karlímyndin. Auk þeirra 12 hstamanna sem þar sýna hafa 29 gestir, ýmist nemendur úr Myndhsta- og handíðaskóla íslands eða nýútskrifaðir myndhstarmenn sett upp hstaverk sem hafa staðið í einn dag líkt og Fjölnir Geir Bragason gerði á laugardag. Til að gefa fólki kost á að sjá þessi 29 hsta- verk í heild sinni verða þau sýnd í 3 daga frá og með næsta sunnudegi. Jón Karl Einarsson, umboðsmaður portúgalska vínframleiðandans José Maria da Fonseca, lyktar hér af dýrindis rauðvíni á vínkynning- arkvöldi sem þeir stóðu nýlega fyr- ir í Blómasal Hótel Loftleiða. 16. Reykjavíkurskákmótið hófst á laugardag og stendur næstu átta daga. Teflt er á hveijum degi og verður baráttan um efstu sætin án efa mikil. Hér eru þeir Guðmundur Arnlaugsson og Jón G. Briem að fylgjast með skák þeirra Davids Bronstein og Ivans Sokolov sem endaði með jafntefli. Jón Friðjónsson, forstöðumaður áhaldahúss Mosfehsbæjar, og Helga Richter, forseti bæjarstjóm- ar, vom á meðal þátttakenda í umhverfisráðstefnunni „í túninu heima“ sem haldin var á laugardag en í máh margra ræðumaima kom einmitt fram að þaö væri sá staður sem allir verði að byija á ef bæta á umhverfi landsins. Starfsmenn ferðaskrifstofunnar Samvinnuferða- Landsýnar og umboðsmenn þeirra um land aUt vora saman komnir í Ömmu Lú á laugardagskvöld á árshá- tíð fyrirtækisins. Á myndinni má sjá markaðsstjóra fyrirtækisins, Helga Pétursson, Kristinu Sigurðardótt- ur í markaðsdeUd og Kjartan Má Másson fararstjóra. Þorbergur Aðalsteinsson, landshðsþjálfari í hand- knattleik, fær hér rembingskoss frá einum stuðnings- manna sinna, en á laugardag héldu þeir hóf í íþrótta- miðstöð ÍSÍ til að fagna árangri hans í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins um síðustu helgi. „Barbi-klubburinn“ er hópur 10 ungra kvenna sem einu sinni á ári heldur „dekurdag" þar sem karlarnir em skildir eftir heima. Á laugardaginn byijuöu þær á því að fá snyrtifræðinga og hárgreiðslumeistara á forseta- svítuna á Hótel Sögu og þegar þær voru búnar að klæða sig upp beið þeirra veislumatur á Grilhnu og þaðan var haldið í Ömmu Lú þar sem tekið var á móti þeim með pompi og prakt. Barbídúkkumar eru í efri röð: Guðrún Jónsdóttir, Kristín H. Friðriksdóttir, Kristín Stefánsdóttir, Helga Jónsdóttir, Lilja Helga Matthíasdótt- ir, Snjólaug Kjartansdóttir og Matthildur Skaftadóttir en fyrir framan sitja þær Anna Guðfinna Stefánsdóttir, Guðrún Skúladóttir og Sigríður Guðsteinsdóttir. Hörður Erlingsson og Einar Örn Stefánsson, sem báðir bera titihnn framkvæmdastjóri, skála hér við félaga sinn, Bolla Héðinsson, hag- fræðing hjá Búnaðarbanka íslands, í fertugsafmæh hans sem haldið var á laugardagskvöld. í Mosfehsbæ var á laugardag hald- in umhverfisráðstefna sem nefnd- ist „í túninu heima". Aðstandendur ráðstefnunnar vom Mosi sem er nýtt félag áhugamanna um um- hverfismál í bænum og bæjarstjóm Mosfehsbæjar. Ástæðan fyrir ráð- stefnunni var m.a. að nú hggur aöalskipulag Mosfehsbæjar frammi og hafa bæjarbúar tíma fram til 16. febrúar til að koma með athugasemdir við það. Á myndinni em þau Valgerður Sigurðardóttir, annar ráðstefnustjóranna, og Ró- bert B. Agnarsson, bæjarstjóri MosfeUsbæjar. Sumargleðin er aftur farin af stað eftir nokkurra ára hlé. Þeir hafa í gegnum tíðina sýnt aðaUega úti á lands- byggöinni en núna ætla þeir að einbeita sér að höfuð- borgarsvæðinu og verða á Hótel Íslandi. Þessi mynd var tekin á laugardagskvöld þegar fmmsýningin var en á henni eru fjórir þeirra félaga, Hermann Gunnars- son, Þorgeir Ástvaldsson, Ragnar Bjarnason og Ómar Ragnarsson. Jón Sveinsson lögfræðingur var ásamt þeim Eddu Guðmundsdóttur og Guðrúnu Magnúsdóttur í fertugs- afmæh BoUa Héðinssonar, hagfræðings hjá Búnaðar- banka íslands, sem haldið var á laugardag. meðal skemmtiatriða á árshátíð Tónabæjar á föstu- dagskvöld var tískusýning sem krakkarnir sáu sjálf um uppsetningu á í samvinnu við Aðalheiði Birgisdótt- ur. Á myndinni er Aðalheiður ásamt hluta hópsins, Bjarna Ben., Bóbó, Rakel, Bjössa, ölmu Rakel, Söru og Kidda. Það vakti mikla athygli gesta Kringlunnar á laugardag þegar Hilmari B. Jónsson matreiðslumeistari útbjó hstaverk úr stórum ísklumpi. Listaverkin gerði hann í tflefni sýningarinnar Vetrarríki sem stóð þar yfir fóstudag og laugardag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.