Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Síða 30
42
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994
Fólk í fréttum
Arthúr Björgvin Bollason
Arthúr Björgvin Bollason, rithöf-
undur og dagskrárgeröarmaður,
hefur mikið verið í fréttum síðustu
daga eftir að útvarpsstjóri Ríkisút-
varpsins sagði upp ráðningarsamn-
ingi við hann sl. fimmtudag.
Starfsferill
Arthúr Björgvin fæddist 16.09.
1950 í Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1970 og MA-prófi í heimspeki og
þýskum bókmenntum frá háskólan-
um í Hannover í Þýskalandi 1978.
Arthúr Björgvin var kennari við
Flensborgarskólann í Hafnarfirði
1972-73 og viðMH 1979-85, var
fréttaritari RÚV í Þýskalandi
1985-89, þáttagerðarmaður við rík-
issjónvarpið 1985-93 og hefur veriö
skipulags- og dagskrárráögjafi út-
varpsstjóra Ríkisútvarpsins í tæpt
ár. Þá hefur Arthúr verið leiösögu-
maður hjá Ferðaskrifstofu Úlfars
Jacobsens fjölda sumra frá 1974.
Ritstörf Arthúrs: Ijóshæröa villi-
dýrið, arfur íslendinga í hugmynda-
heimi nasismans, 1990; Þýðing á
Lofi heimskunnar eftir Erasmus frá
Rotterdam, ásamt Þresti Ásmunds-
syni, 1990. Hann hefur haldið út-
varpserindi um heimspeki og bók-
menntir og eftir hann hefur birst
flöldi greina og fjöldi þýddra og
frumsaminna ljóða í ýmsum tíma-
ritum.
Fjölskylda
Fyrri kona Arthúrs Björgvins er
Ulrike Schostok, f. 13.6.1948, mynd-
hstarmaður. Þau skildu. Seinni
kona Arthúrs Björgvins er Kathar-
ina Haasis, f. 6.3.1963. Þau skildu.
Sambýhskona Arthúrs Björgvins
er Gunnfríður Svala Amardóttir, f.
16.11.1959, dagskrárþulur og starfs-
maður við Útideild Reykjavíkur-
borgar.
Sonur Arthúrs Björgvins og Lís-
betar Grímsdóttur meinatæknis er
Ýmir Björgvin, f. 19.3.1973, nemi.
Alsystur Arthúrs Björgvins eru
Linda Sigrún, f. 15.7.1954, fóstra;
Erla, f. 19.7.1955, skrifstofumaður;
Helga, f. 3.1.1957, húsmóðir; Lilja,
f. 12.9.1959, húsmóðir.
Hálfbræður Arthúrs Björgvins
eru Einar Gunnar, f. 6.11.1943,
framkvæmdastjóri; Bolh Þór, f. 24.2.
1947, hagfræðingur.
Foreldrar Arthúrs Björgvins eru
Bolli Gunnarsson, f. 1.7.1918, símrit-
ari, og ÞóraErla Ólafsdóttir, f. 17.1.
1931, skrifstofumaöur.
Ætt
Bolh er sonur Gunnars Andrew,
forstjóra í Reykjavík Jóhannesson-
ar, alþingismanns á Þingeyri Ólafs-
sonar, b. í Haukdal, Jónssonar.
Móðir Gunnars var Helga, systir
Jóhanns, langafa Ladda, og söng-
kvennanna Lindu Gísladóttur og
Ágústu Ágústsdóttur. Annar bróðir
Helgu var Benedikt, afi Ragnars
Tómassonar fasteignasala. Helga
var dóttir Samsonar, hreppstjóra á
Brekku, Samsonarsonar, skálds á
Hólahólum og lífvarðar Jörundar
hundadagakonungs, bróður Jakobs,
langafa Sigurðar Eggerz ráðherra
og Ragnhildar, móður Birgis
Thorlaciusar, fyrrv. ráðuneytis-
sfjóra og Kristjáns, fyrrv. formanns
BSRB. Samson var sonur Samsonar,
skálds á Klömbrum, Sigurðssonar
og Ingibjargar Halldórsdóttur, syst-
ur Hildar, móður Jóns, langafa Ól-
afs Friðrikssonar verkalýðsleið-
toga. Móðir Boha var Guðlaug Jós-
efsdóttir Kvaran, prests á Breiða-
bólstað, bróður Einars Kvarans
skálds, afa Ævars leikara, og lang-
afa Guörúnar Kvaran orðabókarrit-
stjóra. Jósef var sonur Hjörleifs,
prests á Undirfelh, Einarssonar,
prests í Vahanesi, Hjörieifssonar.
Móðir Jósefs var Guðlaug Eyjólfs-
dóttir. Móðir Guðlaugar Jósefsdótt-
ur var Liija Ólafsdóttir, kaupmanns
í Hafnarfirði, Jónssonar.
Þóra Erla er dóttir Ólafs Björg-
vins, prentara í Reykjavík, Ölafs-
sonar, járnsmiðs í Reykjavík, Þórð-
arsonar. Móðir Ólafs Björgvins var
Helga Jóhannsdóttir Adolfs Claus-
en, bakara í Kaupmannahöfn. Móö-
ir Þóru Erlu var Sigrún Magnús-
dóttir, b. á Kambshóh í Svínadal,
Þorsteinssonar, b. þar, Jónssonar.
Móðir Sigrúnar Magnúsdóttur var
Sigríður Ragnheiður Guðmunds-
Arthúr Björgvin Bollason.
dóttir, b. á Gilstreymi, bróður Sig-
urðar, langafa bræðranna Magnús-
ar skálds, Leifs prófessors og Sig-
urðar, foður Inga sagnfræðings, en
Sigurður var einnig langafi Péturs
Ottesen alþingismanns og Jóns
Helgasonar rithöfundar.
Afmæli
Grétar Norðfjörð
Grétar Norðfjörð Sigurðsson, lög-
regluvarðstjóri í almennu deildinni
í Reykjavík, varð sextugur á laugar-
daginn.
Starfsferill
Grétar er fæddur í Flatey á Breiða-
firði en ólst upp í Reykjavík.
Hann lærði rafvirkjun í Iðnskólan-
um.
Grétar hóf störf í lögreglunni í
Reykjavík 1959 og hefur unnið þar
síðan. Hann hefur verið varðstjóri
frá 1984 en var áður fuhtrúi lög-
reglustjóra í afbrotavömum frá
1974. Grétar er fyrsti íslenski lög-
reglumaðurinn sem hefur unnið
sérstaklega að forvamar- og
fræðslustörfum. Hann starfaði hjá
gæslusveitum Sameinuöu þjóðanna
l%7-73 og var þá staðsettur í New
York.
Grétar hóf íþróttaiðkun sína með
Víkingi en 1949 tók hann þátt í stofn-
un Knattspymufélagsins Þróttar.
Ári síðar fékk Grétar knattspymu-
dómararéttindi og sinnti dómgæslu
til 1987 en hann var dómari í 1. deild
í aldarfjórðung. Grétar, sem dæmdi
1276 leiki á ferhnum, var ennfremur
alþjóðlegur dómari í meira en ára-
tug og dæmdi víða um heim. Hann
var formaður Knattspyrnudómara-
félags Reykjavíkur 1956 og í nokkur
önnur skipti eftir það. Grétar lagði
gnmninn að stofnun Knattspymu-
dómarasambands íslands 1970 og
átti einnig þátt í uppbyggingu dóm-
aramála á Akranesi, Snæfehsnesi,
ísafirði, Austurlandi, í Vestmanna-
eyjum, á Suðumesjum, í Hafnarfirði
og Kópavogi. Hann hefur verið
formaður í Knattspyrnudómara-
sambandinu, gegnt trúnaðarstörf-
um fyrir Knattspymusamsamband
íslands og veriö knattspyrnudóm-
arakennari frá 1978. Grétar er einn
af frumkvöðlum íþróttafélags lög-
reglumanna í Reykjavík.
Grétar hefur verið í framboði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjómar-
kosingum í Kópavogi og var vara-
bæjarfuhtrúi í tvö kjörtímabil.
Hann hefur verið í stjórn fuhtrúa-
ráös flokksins, setið í fjölda nefnda
og verið í ritstjóm Voga, blaðs sjálf-
stæðismanna í Kópavogi.
Fjölskylda
Grétar kvæntist 7.1.1956 Jóhönnu
Breiðfjörð Runólfsdóttur, f. 28.11.
1936, sýningarstjóra hjá Þjóðleik-
húsinu. Foreldrar hennar: Runólfur
Runólfsson steinsmiður og Magda-
lena Bjamadóttir. Þau era bæði lát-
in.
Dætur Grétars og Jóhönnu: Erla,
f. 15.6.1953, tækniteiknari; Alda
Björg, f. 8.9.1955, kennari og sölu-
maður, ekkja eftir Hörð Morthens,
þau eignuðust eitt barn.
Foreldrar Grétars: Sigurður Sig-
urðsson Norðfiörð, sjómaöur í Nes-
kaupstað, fæddur á Seyðisfirði, og
Guðrún Björg Ólafsdóttir, látin, en
hún rak Vertshúsið í Flatey til 1935.
Fóstm-foreldrar Grétars: Jón Jakob
Grétar Norðfjörð Sigurðsson.
Jónsson, starfsmaður Hitaveitu
Reykjavíkur, og Ingibjörg Ólafsdótt-
ir húsmóðir. Þau eru bæði látin.
Ágústa Þorkelsdóttir
Til hamingju með
afmælið 7. febrúar
Ágústa Þorkelsdóttir, bóndi og
húsmóðir, Refsstöðum, Vopnafirði,
varðfimmtugígær.
Starfsferill
Ágústa er fædd í ReyKjavík og ólst
þar upp. Hún lauk landsprófi 1960
og samvinnuskólaprófi 1962.
Ágústa var skrifstofustúlka í
Reykjavík til 1965 en flutti þá til
Egilsstaða og var þar verslunar-
stjóri til 1969. Hún flutti til Vopna-
fiarðar 1970 og var fyrst viö kennslu
en frá 1971 hefur Ágústa verið bóndi
og húsmóðir á Refsstöðum. Hún var
við kennslu af og til til 1984, hefur
unnið skrifstofustörf og verið frétta-
ritari Ríkisútvarpsins og svæðisút-
varpsAusturlands.
Ágústa hefur skrifað greinar í blöð
og tímarit og unnið dagskrárefni
fyrir útvarp. Hún þýddi, staðfærði
og gaf út „Við þorum, vhjum, get-
um“ sem er bók fyrir áhugakonur
um atvinnusköpun í dreifbýh. Ág-
ústa hefúr starfað mikið að félags-
málum og hefur setið á Búnaöar-
þingi frá 1987. Hún er formaður
Sambands austfiskra kvenna.
Fjölskylda
Ágústa grfdst 6.6.1971 Þórði Páls-
syni, f. 14.1.1943, bónda og kaupfé-
lagsstjóra. Foreldrar hans: Páh
Metúsalemsson, látinn, bóndi á
Refsstað, og kona hans, Sigríður
Þórðardóttir, en hún er nú búsett í
Sundabúð á Vopnafirði.
Synir Ágústu og Þórðar: Páll, f.
6.6.1971, nemi í HÍ; Skúh, f. 21.5.
1972, nemi í rafvirkjun. Sonur Ág-
ústu og Bergs Guönasonar lögfræð-
ings: Þorsteinn, f. 26.6.1964, ráðu-
nautur á Eghsstöðum, kvæntur
Soffiu Ingvarsdóttur, kennara.
Systkini Ágústu: Ásbjörg Þorkels-
dóttir, f. 28.4.1929, d. 14.1.1992, hús-
móðir á Sauðhaga á Völlum, maki
Björn Sigurðsson, bóndi á sama
stað, þau eignuðust þrjár dætur;
Pétur Þorkelsson, f. 7.11.1936, hafn-
arvörður á Flateyri, kvæntur Jón-
ínu Sigríði Ágústsdóttur, þau eiga
fimm böm; Gísh Þorkelsson, f. 25.9.
1941, verksfióri í Reykjavik, maki
Ágústa Þorkelsdóttir.
Jenný Eiríksdóttir, látin, þau eign-
uðusttvosyni.
Foreldrar Ágústu: Þorkeh Gísla-
son, f. 29.5.1902, d. 10.4.1979, verka-
maður, og Jóhanna Freyja Péturs-
dóttur, f. 12.6.1907, d. 1990, húsmóð-
ir, þau bjuggu á Hofsvahagötu 15 í
Reykjavík.
FYRSTU SKREFIN ERU - SMÁAUGLÝSMGAR!
80 ára
Sigurlaug Siggeirsdóttir,
EyjaseliS, Stokkseyri.
Lára Guðnadóttir,
Lönguhhð 3, Reykjavik.
70ára
Valgeir Sigurðsson,
Vesturvegi 4, Seyðisfirði.
Guðrún Jónasdóttir,
Gerði, Hörgárdal.
Húneraðheiman.
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir,
Lyngholti 14, Akureyri.
60 ára
Gunnar Ingvarsson,
Efri-Reykjum, Biskupstungna-
hreppi.
Hanneraðheiman.
Tryggvi Ólafsson,
Espigerði 4, Reykjavík.
Magnús Ingvar Jónusson,
Unnarbraut26, Selfiamamesi.
H ilmar Sævar Guðj ónsson,
Háseylu l.Njarðvík.
Þórunn Melsteð,
Kleppsvegi 68, Reykjavík.
Unnur Stefánsdóttir,
Ægisgötú 16b, Akureyri.
50 ára_______________________
Óskar Ólafsson,
Bóluhjáleigu, Djúpárhreppi.
40 ára
Ssemundur Auðunsson,
Ásvallagötu63, Reykjavík.
Jónbjörg Kjartansdóttir,
Réttarholti 1, Selfossi.
Egill Ómar Grettisson,
Heiðarbraut 29b, Keflaví k.
Einar Þorsteinn Loftsson,
Selvogsgrunni 8, Reykjavík.
Guðbjörg Ósk Gunnarsdóttir,
Grundarhúsum4, Reykjavík.
Jenný Ásmundsdóttir,
Dalsbyggð 15, Garðabæ.
Sæmundur K.B. Gíslason,
Sæbólsbraut 51, Kópavogi.
Sigríður B. Sigurðardóttir,
Leiðhömrum 37, Reykjavík.
Þórarinn Benedikz,
Álfalandi 11, Reykjavík.
Guðjón Sigurðsson,
Borgarsandi 8, Hehu.
Sigurbjörn Ámason,
Þingmúla, Skriðdalshreppi.
Gyða Þórðardóttir,
Hálsaseli 40, Reykjavík.