Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Síða 36
FRÉXXASKO
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 83 2700
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994.
Reykjavlkurskákmót:
Skákmenn
héldu
fyrir eyrun
- vegnahljómsveitar
Talsvert uppistand varö á hinu al-
þjóðlega Reykjavíkurskákmóti sem
hófst um helgina í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur í Faxafeni þegar
hljómsveit byrjaði að þenja tæki sín
og tól í kjaUara hússins á laugardag.
Aðstandendur mótsins áttu ekki
von á að hljómsveitin myndi æfa um
helgina og reyndu hvað þeir gátu til
aö komast í samband við hljómsveit-
armeðlimi þegar hávaðinn hófst svo
undir tók í húsinu. Rammgerð hurð,
sem var læst, gerði það að verkum
að ekki tókst að ná sambandi við tón-
listarmennina og var þá gripið til
þess ráðs að kalla á lögreglu.
Nokkrir lögregluþjónar komu á
staðinn og tókst þeim að opna dym-
ar. Hljómsveitarmenn vissu síðan
ekki fyrr en þeir sáu lögreglumenn
koma aö þeim og var óskaö eftir því
að þeir hættu að æfa vegna skák-
mótsins.
Að sögn eins talsmanna Taflfélags-
ins vom skákmenn famir að halda
fyrir eyrun þegar verst lét og truflaði
þetta mótið um stund. Hljómsveitar-
menn hættu við að spila og mótið
hélt áfram. Margir þekktir skák-
menn eins og Bronstein, Ehlvest og
Sokolov taka þátt í Reykjavíkurskák-
mótinu. -Ótt
Tylft meistara
í sama sætinu
Eftir tvær umferðir í Reykjavíkur-
skákmótinu hafa tólf keppendur
unnið báðar skákir sínar og eru því
jafnir að stigum í efstu sætunum. í
þeim hópi eru íslendingamir Helgi
Ólafsson, Hannes Hlífar Stefánsson
og Jón L. Ámason sem í gær vann
hinn þekkta stórmeistara Ehlvest.
Þriðja umferðin fer fram síðdegis i
dagaðFaxafeni!2. -kaa
Eldur í risi ibiíð-
arhúss
Sigurður Svemsson, DV, Akranesi;
Slökkviliðið á Akranesi var kallað
út á sjötta tímanum í gær eftir að
eldur varð laus í risherbergi íbúðar-
húss við Kirkjubraut. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn en húsiö fylltist
af reyk og tók nokkum tíma að lofta
út. Skemmdir urðu nokkrar. Elds-
upptök eru ókunn en unnið var að
endurbótum á herberginu þar sem
eldsins varð vart.
Lögreglumaður
w w
L _ ^ jji ■ ■
nandteKinn vio
rúðubrot
Lögreglumaður úr Reykjavík var
handtekinn þegar hann var að
reyna að komast inn við aöalinn-
ganginn á verslunarmiðstöðinni
Eiðistorgi á Seltjarnarnesi á sjötta
tímanum aðfaranótt laugardags-
ins.
Klukkan rúmlega fimm um
mórguninn varð starfsmaöur inn-
andyra var viö hávaöa og gerði
öryggisvörðum viðvart. Þegar
starfsmaður Securitas kom á vett-
vang var lögreglumaöurinn að
reyna að komast inn en hurð og
tvær rúður voru þá brotnar. Ör-
yggisvörðurinn kallaði á lögreglu
sem kom á staðinn um tveimur
mínútum síðar. Þegar lögreglu-
menn komu á vettvang hélt hinn
ófriðlegi maður á tréskefti en höfuð
af gúmmíhamri lá innan um gler-
brotin. Götin á rúðunum voru ekki
það stór að maður gæti komist inn
um þau. Maðurinn var áberandi
ölvaður og var með talsverða ólund
þegar hann var handtekinn. Ekið
var með hann á lögreglustöðina við
Hverfisgötu.
Umræddur lögreglumaður var
eins og gefur að skilja á frívakt en
hann gegnir starfi sem kennari viö
Lögregluskóla ríkisins. Eftir að
maðurinn var látinn sofa úr sér í
fangaklefum á laugardag var hon-
um sleppt en Rannsóknarlögregla
ríkisins fékk málið til meðferðar.
Samkvæmt upplýsíngum DV er
ekki talið að um innbrot hafl verið
að ræða í auðgunartilgangi hjá
manninum. Þegar hann var yfir-
heyrður hjá varðstjóra um nóttina
komu ekki fram skýringar hiá
manninum sem gátu talist viðhlít-
andi og var honum því stungið i
fangaklefa þar sem hann var látinn
sofa úr sér. Ekki liggur fyrir hvert
framhald málsins verður.
-ótt
Mikið var lesið í Perlunni i gærdag en þá tróðu upp stjórnmálamenn og tónlistarmenn og lásu úr uppáhaldsbók-
um sínum. Höfundar bókanna voru einnig viðstaddir og ræddu við aðdáendur sína. Meðal þeirra sem iásu úr
bókum voru Davíð Oddsson, Guðrún Helgadóttir, Bubbi Morthens, Jón Baldvin Hannibalsson, Steingrímur Her-
mannsson, Móeiður Júníusdóttir, Páll Óskar og Andrea Gylfadóttir. Dagskránni stýrði Silja Aðalsteinsdóttur fyrir
andspyrnuhreyfingu gegn hvers kyns ólæsi. Á myndinni sést hluti höfunda og upplesara í Perlunni í gær.
DV-mynd ÞÖK
Ingibjörg Sólrún:
Nýr meirihluti
er raunhæf ur
möguleiki
„Þetta kemur svolítið á óvart því
að ég heföi haldið að umfjöllun lun
prófkjör Sjálfstæðisflokksins myndi
skila flokknum einhverju. Mér finnst
þetta staðfesta að það er raunhæfur
möguleiki að nýr meirihluti taki við
völdum í borginni eftir kosningar.
Mér finnst þetta líka sýna að hsti
Sjálfstæðisflokksins er fyrst og
fremst flokkslegur listi sem endur-
speglar valdakjamann í Sjálfstæðis-
flokknum. Það höfðar ekld alltaf til
þeirra sem alltaf hafa kosiö flokkinn
en eru ekki í honum,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, Kvennalista.
„Þessar niðurstöður sýna að sjálf-
stæðismenn verða að leggja allt sitt
í það verkefni að halda meirihluta í
borginni. Það verður erfitt en það er
hægt ef menn standa vel saman.
Umfjöllun í fjölmiðlum hefur sýnt
að listi Sjálfstæðisflokksins er sterk-
ur og þykir hafa mikla breidd,“ segir
Árni Sigfússon, Sjálfstæðisflokki.
-GHS
Fjögur hross
drápust
Jeppabifreið með fjórum mann-
eskjum lenti í hörðum árekstri við
fjögur hross á Dalvíkurvegi seint á
fóstudagskvöldið. Hrossin drápust
öfl en fólk sakaði ekki. Jeppinn var
að koma niður stutta en bratta
brekku í fljúgandi hálku þegar at-
burðurinn gerðist. Hrossin voru á
veginum og ók ökumaðurinn beint
inn í hópinn. Mikil mildi þykir að
jeppinn hafi haldist á veginum og
fólkið sloppið ómeitt. Bíllinn er mjög
mikið skemmdur. -ELA
Ekiðáþrjú börn
Ekiö var á þrjú börn við Fífurima
í Grafarvogi þannig að flytja þurfti
pilt og stúlku á slysadeild. Meiðsl
þeirra reyndust hins vegar ekki al-
varlegs eðlis
Það var á föstudagskvöld sem ekið
var á börnin sem öll eru fædd 1982.
Bílstjóri sem hugðist beygja inn
húsagötu ók utan í börnin en háir
snjóruðningar voru þar sem slysið
varðogmikilhálka. -pp
Eldurírúmdýnu
Slökkviliðið í Reykjavík var kallað
að Vesturgötu í morgun. Eldur
reyndist laus í rúmdýnu og hafði
heimilisfólk slökkt eldinn þegar
slökkviliðið kom á staðinn.
Litlar skemmdir urðu en þó þurfti
aðreykræsta. -pp
LOKI
Var þetta hljómsveitin Hrókur
alls fagnaðar?
Veðriðámorgun:
Hiti 1-5 stig
Á morgun verður austlæg átt,
gola eða kaldi. Austast á landinu
verður dálítil súld eða rigning
með köflum. Slydduél verða á
annesjum noröan til, skúrir með
suðurströndinni en annars skýj-
að með köflum. Hiti verður á bil-
inu 1-5 stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
ICEC331ill
Broqk
(rompton
RAFMÓTORAR
Suöurtandsbraut 10. S. 686499.