Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1994 Stuttar fréttir Utlönd Norður-Kóreumenn gera sunnanmönnum enn lífið leitt: Gerðu tilraunir með Silkiormsflugskeyti Norður-Kóreumenn gerðu tilraun- ir með flugskeyti yfir Japanshafi í gær að því er japönsk stjórnvöld sögðu í morgun. Þau staðfestu þar með fregnir bandarískra sjónvarps- stöðva að Noröur-Kóreumenn hefðu skotið Silkiormsflugskeyti sem ætlað er aö granda skotmörkum á hafi úti. Embættismaður japanska utanrík- isráðuneytins, sem hefur fylgst með síharðnandi deilunni um kjarn- orkuáætlanir stjórnvalda 1 Norður- Kóreu, vildi þó ekki gera mikið úr tilrauninni þar sem flugskeytið drægi aðeins áttatíu kílómetra. „Silkiormsflugskeytið er mjög gamalt. Jafnvel þótt þeir hafi skotið einu í tilraunaskyni er ekki ástæða til að gera veður út af því,“ sagði hann. Bandarísk stjórnvöld lýstu yfir miklum áhyggjum sínum vegna deilna Sameinuðu þjóöanna og stjómar Norður-Kóreu um kjarn- orkuáætlanir þeirra síðastnefndu. „Við höfum miklar áhyggjur af ástandinu," sagði Dee Dee Myers, talsmaður Hvíta hússins. ,;Við fylgj- umst grannt með því sem gerist. Við tökum þetta mjög alvarlega.“ Talsmaður bandaríska varnar- málaráðuneytisins sagði að þar á bæ Borís Jeltsín, Rússlandsforseti. Símamynd Reuter væru menn hreint ekki ánægðir með gjörðir norður-kóreskra stjórnvalda undanfarna tvo sólarhringa. Hvorugur tcdsmannanna gaf þó til kynna að Bandaríkjastjórn væri reiðubúin að framfylgja þegar í stað hótunum sínum um að leita eftir hugsanlegu viðskiptabanni Samein- uðu þjóðanna gagnvart N-Kóreu. Kim Young-sam, forseti Suður- Kóreu, fór áleiðis til Moskvu í morg- un til að ræða öryggismál við Borís Jeltsín Rússlandsforseta. Heimsókn- in er liður í viöleitni suður-kóreskra stjórnvalda til að mæta ógninni sem þeimstafaraðnorðan. Reuter Mevaeldsneyti Noröur-Kóreusfjóm sagði aö áfram væri haldið að setja nýtt eldsneyti á kjarnorkuverið í Yongbyon. Stangirgeymdar Sýnishornum af eldsneytis- stöngum kjamorkuversins verð- ur haldið eftir til að SÞ geti skoð- að þær. Bardagaraukast Bardagar milli múslíma og Bosníu-Serba í norður- og vestur- hluta landsins hafa harðnað. Adams setu? skílyrði Gerry Ad- ams, leiötogi stjómmála- arms írska lýð- veldishersins, hefur lagt fram kröfur sem verður að upp- fylia ef takast á að binda enda á blóðbaðið á Norð- ur-írlandi. Króati i forsæti Þing Bosníu kaus Króatann Kresimir Zubak fyrsta forseta sambandsríkis músh'ma og Kró- ata f Bosniu. Herðatökin Hersveitir Norður-Jemens hafa hert tökin umhverfis Aden í suð- urhluta landsins. Hættiríbili SÞ hafa gert hlé á aðgerðum sínum í Rúanda þar til öryggis- málum hefur verið kippt í liðinn. Offjölgunervandinn Bandarískur embættismaður segir að offiölgun sé orsök borg- arastyrjalda og hungursneyða í Afríkuríkjum á borð við Rúanda. Majoráfjölhrada John Major, forsætisráð- herra Bret- lands, hefur lýst yfir stuðn- ingi sínum við þaö sem kallað er „fjölhraða" Evrópu og gagnrýndi tilraunir til meiri miö- stýringar. Ekkimiðað lengur Bandaríkin eru hætt að miöa kjarnorkuflaugum sínum að fyrrum Sovétríkjunum og öðrum skotmörkum. ÁframiAngóla SÞ hafa framlengt dvöl sendi- nefndar sinnar í Angóla til loka þessa mánaðar. Krókurámótibragði Samtök óháðra ríkja sem hafa verið hvött til aö laga sig að breyttum heimi ætla aö fara fram á yfirhalningu SÞ. RættumKrim Þing Úkraínu ræðir hvemig eigi að fást viö aðskilnaðarsinna á Krímskaga. Schindlerbannaður Kvikmynd Stevens Spiel- bergs, Lásti Schindlers, fæst ekki sýnd í Egyptalandi vegna þess að henni er mikið um beldi, pynting- ar og nekt, aö sögn blaðs í Kaíró. •■díKOC Qiopinn Vopnaðir menn drápu rektor helsta háskólans í Algeirsborg. Ansjósustríði lokið Prakkar og Spánveijar hafa útkljáð ansjósustríð sítt með því aðsemjaumkvóta. Reuter Andrésog Fergiefarasam- anísumarfrí Andrés prins og Fergie kona hans fóru sam- an til Skotlands í frí með dætr- um sínum tveimur, að sögn breskra blaöaimorgun. Æsifréttablööin voru þó ekki á einu máli um hvort sættir með hjónakornunum væru í augsýn. Daily Express sagði aö Elísabet drottning ætlaði að koma Andrési og Fergie saman á ný en blaðið Today haföi eftir aðstoöarmanni Fergie að þau mundu ekki taka aftur saman. Sósíalistargegn atvinnuleysinu Sósíalistar í Evrópu eru að hefja lokasprettinn fyrir Evrópuþings- kosningamar eftir tvær vikur og í gær sögðu þeir atvinnuleysinu í Evrópusambandinu stríð á hendur. Þeir ætla að vinna bug á því með samblandi af fjárfestmg- um í einkageiranum og átaki á vegum stjómvalda. Kanadamenn rekasjóræn- ingjaskipíburtu Jean Chréti- en, forsætis- ráðherra Kanada, tfi- kynnti í gær að strandgæslan hefði rekið öll skip sem stunduðu sjó- ræn- ingjaveiðar á brott frá alþjóðlega hafsvæðinu undan austurströnd landsíns þar sem eitt sinn voru auðug fiskimið. Kanadíska þingið hefur sam- þykkt lög sem heimila strand- gæslu landsins að framfylgja fiskveiðibanni utan tvö hundruð mílna lögsögunnar. Lögin gengu i gildi í gær. Sú ráðstöfun hefur sætt gagnrýni annarra þjóöa. „Við höfum kunngert reglu- gerðimar og öll skip sem sigla undir hentifána hafa yfirgefið svæðið,“ sagði Jean Chrétien við þingheim. í síöustu viku voru ekki færri en sjö skip, ýmist ríkisfangslaus eða sem sigldu undir hentífána, á Miklabanka sem er undan strönd Nýfundnalands. Reuter Rostenkowski ákærður fyrir spillingu í starfi Úti í Frakklandi stendur nú yfir undirbúningur tyrir hátíðahöldin til að minnast innrásar bandamanna í Norm- andie þann 6. júní 1944. Á þessari mynd er verið að sleppa dúfum við norska minnismerkið um stríðið. Mikill fjöldi þjóðarleiðtoga tekur þátt í hátíðahöldunum, þar á meðal Haraldur Noregskonungur. Simamynd Reuter Dan Rostenkowski, einn af valda- mestu mönnum Bandaríkjaþings og einn af dyggustu stuðningsmönnum Bills Clintons Bandaríkjaforseta, var lögsóttur í gær vegna ákæra um spillingu í starfi. Ákæran á hendur Rostenkowski, sem er formaður fjáröflunarnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, er í 17 Uðum en hann er sakaður um spillingu í starfi sem nær yfir tuttugu ára tímabil aftur í tímann. Upphæðin sem hann er talinn hafa misnotað nemur sem svarar 45 milljónum. Rostenkowski er 66 ára gamall og hefur stafað sem þingmaður demó- krata í 33 ár. Hann neyðist til að fara frá starfi á meðan rannsókn fer fram. Málið er mjög alvarlegt fyrir demó- krata en Rostenkowski hefur m.a. unnið hörðum höndum að því reyna aö koma umbótum Clintons forseta í heilbrigðiskerfiriu í gegn. Clinton gaf frá sér stutta yfirlýs- ingu vegna málsins þar sem segir að Rostenkowski hefði rétt á að beijast í málinu og koma fyrir rétt. Rostenkowski. Saksóknarar kröfðust þess að Rost- enkowski segði tafarlaust af sér, ját- aði sekt sína, færi í fangelsi og borg- aði stjórninni aftur peningana sem hann hafði tekið. Rostenkowski seg- ist hins vegar vera saklaus og segir að kviðdómur muni hreinsa hann af ákæruatriðunum. Reuter Vill þekktan mannsemfor- setaESB Jacques Del- ors, forseti framkvæmda- stjómar Evr- ópusambands- ins, hefur beðið mn að þekkt persóna, sem sé fær um að stýra betri og áhrifameiri Evr- ópu, verði sett til að gegna emb- ætti sem forseti Evrópusam- bandsins. Delors skýrði frá þessu í viðtali við franska dagblaðið Le Monde í gær. Hann sagði að forsetinn yrði látinn gegna embætti í tvö og hálft ár og hann yrði kosinn af varaforsetum sem yrðu valdir af lista af aðildarríkjum, bæði frá stærri og smærri aðildarríkjum. „Það er mikilvægt að Bandarík- in, Japan, Asía, S-Ameríka og Afríka hafi mann fyrir framan sig sem er vel þekktur, mann sem er fær um að kynna afstöðu Evr- ópusambandsins." Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.