Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNl 1994 Utlönd Blairmeðfor- skotákeppi- nautasína Tony Blair, talsmaöur inn- anríkismála Verkamanna- tlokksins, er með í'orskot á keppinauta sína í embætti leiðtoga flokks- ins, samkvæmt nýrri skoðana- könnun sem birt var nýlega. Verkamannaflokkurinn, sem missti leiðtoga sinn, Jobn Smíth, fyrr í mánuðinum, ætlar að kjósa nýjan leiðtoga í næsta mánuði og miðað er við að nýr leiðtogi verði kynntur í júlí. Skoðanakönnunin, sem gerð var á meðal stuðningsmanna Verkamannaflokksins, leiddi í ijós aö 38% aðspurðra styðja Bla- ir. Á eftir Blair kom Gordon Brown, talsmaður flokksins um fjármál, með 15% atkvæöi. Dómarinner fymimnemandi Clintonsforseta Dómarinn sem kemur til með að dæma í máli Bills Clíntons Bandaríkjaforseta, varðandi ásakanir Paulu Jones á hendur honum um kynferöislega áreitni er fyrrum nemandi forsetans og baröist auk þess gegn honum þeg- ar hann bauð sig fram á Banda- ríkjaþing árið 1974. Dómarinn, Susan Webber Wright, var nemandi forsetans þegar hann kenndi lögfræöi við Arkansas háskólann upp úr 1970. Wright kemur til með að taka ákvörðun um það hvort biða eigi meö mál Jones og CUntons þar til CUnton hefur lokið störfum sem forseti. Vissu ekki hver Honeckervar Gamall kunningsskapur getur verið fljótur að gleymast, sérstak- lega í skipulagslausum heimi fyrrum Sovétríkjanna. Þegar haft var samband við innanríkisráðu- neyti Sovétríkjanna eftir lát Erichs Honeckers, fyrrum leið- toga Austur-Þýskalands, og það beðið um yfirlýsingu var fátt um svör því embættismenn ráðu- neytisins vissu ekki hvaða mann var verið að tala um. „Honecker, hver er nú það og frá hvaða landi er hann?“ sagði embættismaður innanríkisráðu- neytisins. Honecker var einn af nánustu bandamönnum Moskvu á Sovéttlmunum og stjórnarfarið í Sovéríkjunum var hans fyrir- mynd. Móðir Diönu bú- inaðtakaupp kaþólskatrú Móðir Díönu prinsessu, Frances Shand-Kydd, tók upp ka- þólska trúfyrir skömmu en at- höfnin fór fram íkirkjuíMorar á Norövestur-Skotlandi. „Þetta var við venjulega messu og hún var tekinn inn í kh-kjuna og kaþólskra manna tölu,“ sagði Faðir James MacNeil sem sá um athöftiina. Frances, sem er 58 ára gömul, skildi við föður Díönu, Earl Spencer, árið 1969. Vinir hennar segja að hún hafi fengið áhuga á kaþólskri trú eftir að hjónaband hennar og seinni eiginmanns hennar, Peter Shand-Kydd, hafi farið út um þúfur árið 1988. Reuter Dóttir Ronalds Reagans hneykslar enn á ný: Birtist nakin í Playboy Ronald Reagan, fyrrum Banda- ríkjaforseti, og eiginkona hans, Nancy, eru yfir sig reið vegna nýj- asta framferðis dóttur þeirra, Patti Davis, sem mun birtast nakin í Pla- yboy tímaritinu í júlí næstkomandi. Forsíðumynd tímaritsins, sem var birt í dagblaði í New York fyrir skömmu, sýnir Davis nakta frá mitti með karlmann bak við sig sem held- ur um brjóst hennar. Davis er síðan sögö opinbera meira á myndum sem veröa á hvorki meira né minna en niu heilsíðum í blaðinu. Þær myndir eru sagðar tryggja það að Reagan hjónunum verði gróflega misboöið. Þá segir Davis m.a. frá því í viðtali í tímaritinu að faðir hennar hafi verið feiminn við að tala um hluti eins og kynlíf. Ronald Reagan reyndi að verja sið- ferðis- og fjölskyldugildi af öllum mætti þau átta ár sem hann gegndi embætti sem forseti og náinn vinur hans sagði að fyrrum forsetahjónin væru mjög særð yfir þeirri ákvörðun Davis að sitja fyrir á svo grófum myndum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dav- is, sem er 42 ára gömul, hneykslar foreldra sína en sambandið á milli þeirra hefur alla tíð verið storma- samt. Davis olh t.d. miklu hneyksli fyrir tveimur árum er hún gaf út sjálfsævisögu sína, Family Secrets eða Fjölskylduleyndarmál, þar sem hún gaf upp allt aðra mynd af því hamingjusama fjölskyldulífi sem Reaganhjónin höfðu ávaht talað um. Davis sagði m.a. frá því í bókinni að þau systkinin hefðu sætt andlegu og líkamlegu otbeldi af hendi for- Patti Davis, dóttir Ronalds Reagans, á forsíðu Playboy tímaritsins sem kem- ur út i júli næstkomandi. Auk forsíðunnar er Davis á niu heilsíðum í blað- inu þar sem hún opinberar ýmislegt fleira. eldra sinna og að móðir sín, sem hún segir aö hafi verið háð alls kyns töfl- um, hefði lamið sig hvem einasta dag. „Við höfum ávallt elskað öll börnin okkar og vonum að sá dagur muni koma að Davis ákveði að koma aftur inn í fjölskylduna," sögðu Reagan- hjónin á sínum tíma eftir að bókin kom Út. Heimild Sunday Express Nýtt lyf gegn kólesteróli kemur á óvart: Hjartaáföllum sjúkling- anna fækkaði til muna Hjartaáfóllum fækkaði tíl mikiha muna meðal kransæðasjúklinga sem tóku lyf sem ætlað var að lækka kól- esterólmagnið í blóði þeirra. Ekki nóg með það, heldur fækkaði öðrum hjartasjúkdómum hka. Þetta kom fram í rannsókn sem vísindamenn við Bowman Gray læknaskólann gerðu og sagt er frá í bandarísku tímariti um hjartasjúk- dóma sem kemur út í dag. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna áhrif lyfsins Pravastatin á myndun æða- kölkunar í hálsslagæðunum. Vísindamennimir komust að því að fimm prósent þeirra sjötíu og fimm sjúkhnga sem tóku lyfið fengu kransæðastíflu, sem ýmist leiddi til dauða eða ekki, á þriggja ára rann- sóknartímabihnu en tíl samanburð- ar fengu þrettán prósent þeirra sjötíu og sex sjúkhnga sem fengu gervilyf sams konar kransæöastíflur. Læknamir eignuðu Pravastatin þennan árangur en þetta er ný teg- und lyfs sem ætlað er aö minnka kólesterólmagn í blóði sjúkhnga. Með því að framreikna niðurstöður rannsóknarinnar miðað við þær tvær mhljónir kransæðasjúkhnga sem eru í Bandaríkjunum má ætla að hægt sé að koma í veg fyrir fjöru- tíu til fimmtíu þúsund tilfehi af kransæðastíflu á ári hverju, að því Nýtt lyf gæti komið í veg fyrir mikinn fjölda kransæðastíflna er Robert Byington, aðstoðarprófess- or í faraldsfræði og einn höfunda greinarinnar, segir. Þegar dauðsfollum af öðrum ástæðum var bætt við kransæða- stíflutilfelhn var munurinn mihi hópsins sem tók Pravastatin annars vegar og þess sem tók gervhyfið hins vegar orðinn tölfræðhega marktæk- ur. Um 6,5 prósent þeirra sem tóku lyfið fengu kransæðastíflu en sautján prósent sjúklinganna sem tóku gervilyfið. Alhr sjúklingarnir, sem tóku þátt í rannsókninni, höfðu þegar fengið hjartaáfall eða þá að minnsta kosti helmingur kransæða þeirra var stifl- aður og þegar þriggja ára rannsóknin hófst var LDL-kólesterólmagnið í blóöi þeirra hóflegt. Þaö kólesteról er þekkt sem slæma kólesteróhð. Reuter Færaðhorfaá teiknimyndirí fangelsinu Frederick West, sem hef- ur verið ákærður fyrir 11 morð, er bú- inn að fá einka- video í fanga- klefann sinn svo hann geti horft á uppáhalds teiknimynd- irnar sínar. Leyfi þetta var veitt efth- að West hafði kvartað við fanga- verði um að honum leiddist í fangelsinu og hann langaði til að horfa á sjónvarpiö. „Það var ákveðið að það væri óráðlegt að leyfa honum að horfa á sjónvarp- ið þar sem hann gæti þá fylgst með umfjöllun um fiöldaraorö- in,“ sagði heinuldarmaður lög- reglunnar. Ráðistáhomma áminningarat- höfníísrael Hópur gyðinga réðst á homma í ísrael sem komu í fyrsta sldpti saman sl. mánudag th að minnast homma sem létu lífið i fangabúð- um nasista í seinni heimsstyrj- öldinni. „Ekki snerta mig, þú ert óhreinn og með eyðni," öskraði mótmælandi á homma sem hafði beðið mótmælendur um að yfir- gefa staðinn og leyfahommunum að minnast fórnarlambanna í friði. „Mér finnst þeir ekkf verð- skulda sérstaka minningarat- höfn. Helförin varðar alla gyð- inga og með þessu er verið að nota hana til að vekja athygli á sérstökum málstað,“ sagði Efra- im Zuroff, formaður Símon Wies- enthal miðstöðvarinnar. Illafariðmeð dýrsemflutteru í sláturhús Bresk dýraverndunai'samtök hafa framleitt kvikmynd sem sýnir ljóta mynd af slæmri meö- ferð á dýram sem flutt eru í slát- urhús. Myndin, sem heitir For a few pennies or more, sýnir m.a. naut- gripi sem eru of veikburða th að standa eftir að hafa veriö fluttir frá Þýskalandi th Rúmeníu án þess að fá vott né þurrt. Myndin sýnir einnig slösuð og veikburða dýr sem eru látin liggja úti í kuld- anum þar th þau eru ílutt í slátur- húsin. Dýraverndunarsamtök vonast th þess að með myndinni verði hægt að stytta flutningstíma á dýrum og að þau verði ekki flutt th fanda sem fara ekki eftir regl- um Evrópusambandsins um meðferö á dýrum. Clintonstanda sigvelístarfi ÁUt almenn- ings í Banda- ríkjunum . á frammistöðu Bills Clintons forseta hefur minnkað sam- kvæmt nýjustu skoðanakönn- un sem greint var frá nýlega. Samkvæmt könnuninni segjast aðeins 42% aðspurðra vera ánægð með frammistöðu forset- ans miöað við 48% í apríl sl. Talið er að Whitewater-málið sé ein ástæðan fyrir minnkandi fylgi forsetans og auk þess ásak- anir á hendur honum um kyn- ferðislegaáreitni. R«uter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.