Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ1994 Svidsljós f hringiðu helgarinnar Systrafélag Víöistaöakirkju er þessa dagana með sína árlegu blómasölu við kirkjuna og mun hún standa til 7. júni. Þama eru í boöi allar gerðir af sumar- blómum svo allir ættu aö finna eitthvað viö sitt hæfi. Á myndinni eru f.v. Una Harðardóttir, Jóna S. Jóhannsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Oddný Þorsteinsdóttir, Sigriður Magnúsdóttir Og Hanna Hálfdánardóttir. Ásbjörn Sigurjónsson, 3 ára, skemmti sér vel í bílaleik í einmn af kassabílum Heklu um helgina. Bílasalan Hekla hélt upp á 60 ára afmæli umboðsins og voru því með opið hús þar sem margt forvitnilegt var að sjá. í tilefni afmæl- isins gaf Hekla 600 þúsund krónur í sjóð Hjartavemdar. Jón Ragnars Birkissonar aðstoðar Ásbjöm við að ýta kassa- bílnum þvi eins og allir vita er engin vél í kassabílum. í tilefhi 50 ára afmælis íslenska lýðveldisins og Norðurlandaferðar söngsveit- ar Fílharmóníunar voru haldnir tónleikar í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði síðastliðinn laugardag. Á efnisskrá tónleikanna vom íslensk sönglög og em þau sömu sem söngsveitin mun syngja fyrir Norðurlandabúa nk. júní, en þá mun söngsveitin fara í sína fyrstu utanlandsferð, í lok 35. starfsársins. Stjómandi söngsveitarinnar er t.h. Úlrik Ólason, einsöngvari Elisabet Erl- ingsdóttir sópran og píanó/orgelleikari er Douglas Brotchie. Meðan birgðir endast seljum viö þetta fallega sófasett Daisy 3-1-1 og 3-2-1 í blá og brúnmunstruöu á aðeins kr. Knattspymuráð Reykjavíkur hélt upp á 75 ára afmæli sitt síðastliðinn sunnudag á Hótel Sögu. Veittur var styrk- ur úr styrktarsjóði Magnúsar Guðbrandssonar og nú var í fyrsta skipti veittur styrkur upp á 50 þúsund krónur til allra knattspymufélaga í Reykjavík. FuUtrúar félag- anna tóku viö styrknum. Þetta var einnig í fyrsta sinn í 75 ára sögu ráðsins sem konur vom heiðraöar. Síðastliðið föstudagskvöld hélt kór Hafnarfjarðarkirkju1 siim árlega vorfagnað á Pizza 67 í Hafnarfirði. Á sjó- mannadaginn, 5. júní, heldur kórinn í tónleikaferö í kringum landið. Á myndinni eru félagar úr kómum ásamt mökum sínum. Stjómandi kórsins, Helgi Braga- son, er annar frá vinstri. __________________Meiming Lærdómsríkt sumar í sumarbyijun hlaut Guðrún H. Eiríksdóttir ís- lensku barnabókaverðlaunin fyrir sögu sína Röndóttir spóar. Guðrún er byrjandi á þessu sviði eins og flestir fyrri verðlaunahafar hafa verið. Sagan segir frá sex krökkum í ónefndu þorpi úti á landi, þrem strákum og þrem stelpum, eitt sumar þegar þau em tólf og þrettán ára. í upphafi sögu er samkeppni og rígur milh kynjanna, báðir hópar em að byggja kofa sem strákunum finnst vera sitt svið og þeir eyðileggja kofa stelpnanna. En þeir biðjast fyrirgefningar og eftir það er lífið miklu skemmtilegra. Þau stofna leynifélag öll saman; þau taka þátt í leit að villihundi sem bítur geitur bónda í nágrenninu og það verkefni verður býsna brýnt vegna þess að húsbóndalaus hundur, sem þau eigna sér, liggur undir gmn. Svo fara þau saman í útilegu en í stað þess að kanna dularfull mál frá því í gamla daga eins og ætlunin er, kemst nærtækt vanda- mál eins úr hópnum upp á yfirborðið: fylliríið á pabba hans Stjána. Stjáni þolir ekki að um það sé rætt og flýr út í myrkrið og við alvarlegu slysi liggur en vinim- ir bjarga honum í tvennum skilningi. í sögulok ógnar utanaðkomandi óvinur Utla heiminum sem þau hafa byggt upp af svo mikilU kostgæfni og tákn hans er brennt til ösku. Þau eru ekki lengur börn. Þetta er um margt skemmtilega sögð saga. Sambandið mUU krakkanna er ágætlega útfært. Þeir standa á tímamót- um í þroska, hóphvötin er ennþá sterk og þeir þykjast vilja hafa mörk hópsins opin, en þegar hann er orðinn passlega stór þá loka þeir honum - af því að hreiður- hvötin er aö vakna. Eftir það fær enginn inngöngu nema húsdýrið. Þetta em hinir fyrstu menn, og þeir era að læra reglur samfélagsins. Meginreglan er eins konar umorðun á boðorðinu „aUt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra“ - sem krakkamir myndu orða svona: „Það sem þú vilt ekki að aðrir geri þér það skalt þú ekki heldur gera þeim!“ Þeir uppgötva líka að ef maður gerir ein- hverjum ljótan grikk þá getur maður aldrei verið í rónni þaðan í frá af ótta við að hann hefni sín. Þess vegna er best að halda frið viö aUa. Hins vegar á mað- ur ekki að þegja yfir ranglæti og kúgun, þá eigum við að taka einarðlega til máls og fylgja því vel eftir. En sagan hefur ýmsa gaUa. Guðrún ræður ekki við aUan þennan fiölda af fólki, aðeins þrír krakkamir fá glögg persónueinkenni og eiginlega verður bara einn þeirra, Sigga, verulega áhugaverður. Bakgrannur þeirra er líka óljós; við fáum ekki að koma heim tU nema þriggja. Leiðiiúegt fannst mér að aðeins ein stelpan skyldi taka tíl máls þegar krakkamir segja frá framtíðaráæUunum sínum. Umhverfið er líka óljóst, bærinn tekur ekki á sig neina mynd. Þó að sagan renni ágæfiega er nokkuð um ofskýringar: „„Eru þær nú famar að herma eftir okk- ur?“ spurði Rúnar. Hann vUdi fá að vita meira um'þetta nýjasta uppátæki stelpnanna." (9) Ennþá algengara er þó að tæpt sé á atriðum sem full ástæða hefði verið til Bókmenntir Silja Aðaisteinsdóttir að vinna betur úr. „Þau fóru yfir helstu reglur félags- ins“ stendur á síöu 33. Hveijar vora þær? „Þau vora búin að fjölga ljósmerkjunum þannig að nú gátu þau sent ýmis skilaboð á miUi.“ (43) Hver? „... samkvæmt bókum Rakelar höfðu margir diúarfullir atburðir gerst á Staf- nesi.“ (78) Hvaöa? VandamáUð með villihundinn gufar eiginlega upp, og höfundur hefði átt að leyfa okkur að vera hjá Stjána þegar hann lendir í lífshættu í stað þess að sitja eftir hjá hinum krökkunum. Þetta er dæmigerð- ara byijendaverk en verðlaunabækur Vöku-Helgafells hafa yfirleitt verið en boðskapurinn er hoUur. Sagan legg- ur áhérslu á gUdi vináttu, fýrirgefningar og hremskilni. Kápumynd Önnu Cynthiu Leplar af krakkafótum er snið- uglega hugsuð og vel gerð. Guðrún H. Eiriksdóttlr: Röndóttir spóar. Vaka-Helgafell 1994. 154 bls. 98.000** stgr. rst' V > WTÓÍtíofumjBáÖíaÚilsgmani Húsgagnahöllin Góð gmiéslukjðr BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMl 91-681199 VtSA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.