Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1994
17
Fréttir
Undirbúningur þjóðhátíðar á Þingvöllum:
Miklar framkvæmdir í gangi
Þaö styttist í aö Islendingar haldi
upp á 50 ára afmæli lýöveldisins á
Þingvöllum. Framkvæmdir eru
hafnar af fullum krafti þar á staön-
um og mun heildarkostnaðurinn viö
undirbúning hátíöarinnar að sögn
Steins Lárussonar, framkvæmda-
stjóra þjóðhátíðamefndar, vera í
kringum 84 miUjónir. Þjóöhátíöar-
nefnd er í nánu samstarfi viö Þing-
vallanefnd og einnig var rætt viö
þjóðminjavörð og formann fornleifa-
nefndar þegar framkvæmdir voru
skipulagöar.
Þaö stakk í stúf viö annars einstak-
lega fallegt umhverfiö aö sjá margar
og þungar vinnuvélar aö störfum viö
gröft og mokstur er blaðamaður DV
skrapp til aö skoöa aöstæður í fyrra-
dag. Margir hafa áhyggjur af því að
merkar minjar skemmist við þessar
framkvæmdir og eru óhressir meö
þær.
„Þinghelgin sjálf er ákaflega litiö
svæöi og samkvæmt lögum er þetta
helgistaöur þjóðarinnar. Við verðum
að taka mið af því og viö höfum lagt
áherslu á það aö náttúruvemdar-
sjónarmiöin stjórni framkvæmdum.
Eg er ósköp sátt viö þaö sem þjóðhá-
tíðamefnd hefur verið að gera,“ segir
Hanna María Pétursdóttir þjóðgarös-
vöröur í samtali við DV.
við þjóðgarösvörð," segir Steinn Lár-
usson.
„Alhr sem em að vinna á Þingvöll-
um munu náttúrlega láta aö sér
kveða til þess aö gera þjóðgarðinn
sem best úr garði fyrir þjóðhátíö. Aö
sjálfsögöu mun þeirra starfskraftur
verða nýttur til að hreinsa til eftir
þjóöhátíö,“ segir Bjöm Bjamason
þingmaður en hann á sæti í Þing-
vallanefnd.
Langtímastarf
„Mikið af þessu starfi er langtíma-
starf. Það veröa kannski einhveijir
kílómetrar af stígum sem nýtast til
lengri tíma. Allt starf þjóðgarðsins
er langtímastarf. Það er verið að
sinna hér uppbyggingu til hagsbóta
fyrir alla þá.sem eiga leið um þjóð-
garðinn. Við höfum gert mikið í þvi
að vera með fræðslustarfsemi fyrir
íslenska hópa á Þingvöllum og höf-
um reynt að beina fólki út í þessar
ævintýralendur sem eru úti í hrauni
og í gjánum víðar heldur en bara á
þingsvæðinu gamla. Stígafram-
kvæmdir og götubætur eru til lang-
tíma. Okkar starf er að miklu leyti
óháð þjóðhátíðinni. Allt líf og starf
markast náttúrlega af því að þetta
er þjóðhátíðarár. Mikið af fram-
kvæmdum þjóðhátíðamefndar verð-
Vélskófla að störfum á Þingvöllum. Nýreistir þjóðhátíðarpallar í baksýn.
DV-mynd GVA
Framkvæmdir hófust tiltölulega
seint þar sem best var að bíða sem
lengst þar sem frost var lengi í jörðu.
„Núna er verið að vinna gólfin undir
sölutjöldin. Byrjað er á því að brúa
þijár brýr til þess að tengja saman
Lögbergssvæðið og krikann við Pen-
ingagjá til þess að fá hringstreymi á
fólkið. Það koma náttúrlega einhver
sár út af svona framkvæmdum en
það verður reynt að gera eins lítið
jarðrask eins og mögulegt er. Það
sem verður gert verður að græða upp
eftir 18. júní,“ segir Steinn Lárusson,
framkvæmdastjóri þjóðhátíðar-
nefndar.
Að sögn Steins hefur framkvæmd-
um verið frestað eins lengi og hægt
er til þess að jörðin fái tíma til þess
að jafna sig. „Það tætist allt mikið
verr upp þegar mikið frost er í
jörðu,“ segir hann.
YfirlOO ungmenni
Um 130-140 ungmenni fá vinnu í
þjóðgarðinum í sumar. Þau verða við
viöamiklar stígaframkvæmdir og
umhverfisbætur hvers konar, lag-
færingu vega, leiða í hrauninu og
eiga að hreinsa upp gcuniar girðingar
og tína nýtt og gamalt rusl. Unga
fólkið eru ráðið til starfa fyrir milli-
göngu þriggja sveitarfélaga og er sótt
um styrk til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs. Þetta er samvinnuverkefni
þjóðgarðsins og Garðabæjar, Mos-
fellsbæjar og Kópavogsbæjar.
„Það hefur borist í tal í þjóðhátíðar-
nefnd að fá aðstoð unglinganna sem
vinna á Þingvöllum í sambandi við
hreinsun eftir þjóðhátíðina. Þetta er
ekki frágengið en rætt hefur verið
ur rifið aftur 18. júní,“ segir Sigurður
Arni Þórðarson, deildarstjóri þjóð-
garðsins.
Þingvallanefnd sátt
„Þingvallanefnd hefur gefið leyfi
sitt til þess að framkvæmdimar fari
þarna fram. Nefndin er sátt við allar
framkvæmdimar. Þetta er ekkert
meira heldur en hefur verið gert áð-
ur í hvert skipti sem svona hátíðir
hafa verið haldnar. Brýr hafa verið
lagðar áður og byrjað var á stígunum
í fyrrasumar þannig að við undir-
bjuggum okkur undir þjóðhátíðina,“
segir Bjöm Bjamason alþingismað-
ur.
Ekki þungar vélar
Eins og fyrr sagði er mikiö um
þungar vinnuvélar á Þingvöllum
þessa dagana og ekki eru allir sáttir
við að þær keyri um á friðuðum
svæðum.
„Viö létum í ljós að við vildum að
staðnum yrði hlíft og ekki yrðu
keyrðar þungar vinnuvélar yfir við-
kvæm vinnusvæði. Allar þingbúð-
arrústir og aðrar fomleifar og gömul
mannvirki á hinum foma Alþingis-
stað beggja vegna Öxarár era ffiðað-
ar frá 1927. Það svæði sem er allra
viðkvæmast er spölurinn frá Valhöll
á milli Almannagjár og Öxarár. Þar
er Lögberg og þar er mikið af þing-
búðarrústum," segir Sveinbjöm
Rafnsson, formaður fomleifanefnd-
ar.
Sveinbjöm bendir á að þær reglur
gildi um allar fomminjar í landinu,
að ef komið er niður á einhveijar
mannvistarleifar eigi að stöðva ff am-
kvæmdir tafarlaust og tilkynna Þjóð-
minjasafninu.
„Ég hef ekki séð þessar fram-
kvæmdir núna en við töluðum við
forseta Alþingis í vetur um að gengið
yrði vel um þennan viðkvæma stað
og engar vinnuvélar yrðu settar á
Lögberg og búðirnar. Þungar vélar
skemma. Ef einu sinni fer bíll eða
jarðýta yfir þá er ekki hægt að bæta
jarðveginn aftur heldur ber staður-
inn þess merki að eilífu. Við töluðum
um að engar vélar yrðu notaðar til
þess að flytja efnið í þennan pall held-
ur yrði það gert með handafli. Ég
vissi ekki til þess aö það þyrfti að
grafa neitt þarna,“ segir Sveinbjöm.
Gröfur og aðrar vélar voru að störf-
um á svokölluðum Efrivöllum og
veit Sveinbjöm ekki til þess að þar
séu neinar fornminjar. „Við lögðum
sérstcika áherslu á að engar vélar
fæm um svæðið við Valhöll og vestan
ár. Það er hinn eiginlegi þingstaður.
Ég treysti þessu fólki alveg til þess
að fara ekki með þungar vélar á þetta
svæði. Þungar vélar pressa saman
jarðveginn og það sést í gróðrinum á
eftir,“ segir hann. Þess má geta að
blaðamaður varð ekki var við neinar
vélar á því svæði sem Sveinbjörn
lýsti.
© Husqvarna
og
BROTHER
saumavélar
★ Allir nytjasaumar
★ Loksaumur (overlock)
★ Auðveldar
★ Léttar
★ Fallegar
Gefið gjöf sem endist og endist
Verð frá 19.130 stgr.
.h. kennsla og íslenskur leiðarvísir fylgir öllum okkar vélum.
Völusteinn hf.
Faxafeni 14, 108 Reykjavík
Sími 679505
Sérverslun með saumavélar og föndurvörur
(hJ Husqvarna
FINLUX
Hágæða sjónvarpstæki
Sumartilboð
25" kr. 69.950 stgr.
28" kr. 79.950 stgr.
Nicam Hi-Fi stereo, textavarp,
super-VHS inngangur, black
matrix myndlampi.
VÖNDUÐ VERSLUN
Afborgunarskilmálar
i;
VtSA
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688005