Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1994
49
Afrnæli
Óskar G.H. Gunnarsson
Óskar Georg Halldórsson Gunnars-
son stýrimaður, Novembervej 9,
2730 Herlev, Danmörku, er fimm-
tugurídag.
Fjölskylda
Óskar er fæddur á Siglufirði en
ólst upp í Reykjavík frá 7 ára aldri.
Hann lauk prófi frá Stýrimanna-
skólanum 1966 og var stýrimaður
og skipstjóri hjá Eimskip, Hafskip
og Ríkisskip. Óskar var með eigin
verslunarrekstur í áratug en frá
1992 hefur hann verið búsettur í
Danmörku. Hann er nú stýrimaður
hjá Mercandia skipafélaginu og sigl-
irumKaríbahaf.
Óskar kvæntist 1971 Kristínu Ás-
geirsdóttur, þau skildu.
Börn Óskars ogKristínar: Soffía,
f. 30.5.1970, máki Jón Eyjólfsson,
þau eiga tvö börn; Óskar Ásgeir, f.
18.1.1972, maki Anna Kristín
Björnsdóttir, þau eiga eitt barn;
Guðmundur, f. 1.6.1976. Fyrir
hjónaband eignaðist Óskar son,
Heimi, f. 20.7.1964, rnaki Halldóra
Þorgilsdóttir, þau eiga tvö börn.
Systkini Óskars: Theodóra Guð-
rún, maki Vilhjálmur B. Kristins-
son, hún á fimm börn; Eyrún, maki
Sigurður Kjartansson, þau eiga þrjú
börn; Gunnar Halldór, maki Þórunn
Sigurðardóttir, þau eiga þrjú böm;
Þorsteinn Þór, maki Sigrún Jó-
hannsdóttir, þau eiga tvö börn;
Hekla, maki Sævar Magnússon, þau
eiga þrjú börn; Einar, maki Oddfríð-
ur Jóhannsdóttir, þau eiga tvö böm.
Foreldrar Óskars: Gunnar Hall-
dórsson, f. 1.9.1921, d. 2.6.1973, út-
gerðarmaður, ogGuðný Ottesen
Óskarsdóttir, f. 15.8.1921, d. 5.11.
1993, húsmóðir.
Ætt
Gunnar var sonur Halldórs, í Frón
á Siglufirði, Guðmundssonar, b. í
Böðvarshólum í V-Húnavatnssýslu,
Bjömssonar. Móðir Halldórs var
Þórunn Hansdóttir frá Litla-Ósi.
Móðir Gunnars var Guðrún Sigríð-
ur Hallgrímsdóttir, sjómanns, Guð-
mundssonar. Móðir Guðrúnar Sig-
ríðar var Eyrún Eiríksdóttir frá
Hafnarfirði.
Óskar G.H. Gunnarsson.
Guðný var dóttir Óskars, útgerð-
armanns (íslandsbersi), Halldórs-
sonar, frá Akranesi, Guðbjarnason-
ar. Móðir Óskars var Guðný Jóns-
dóttir Ottesen veitingakona. Móðir
Guðnýjar (yngri) var Guðrún Ólafs:
dóttir, frá Litla-Skarði í Stafholts-
tungum, systir Tryggva í Lýsi og
Þórðar í Kolasölunni.
Óskareraðheiman.
Fréttir
Karl Omar Jónsson, fyrrverandi formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er einn af þeim sem opnuðu Norð-
urá í Borgarfirði klukkan sjö í morgun. Hann hefur oft veitt lax i Norðurá. DV-mynd G.Bender
Laxveiðin hófst í morgun:
„Aðeins“ Norðurá
opnuð fyrst
Laxveiðin er byijuð á þessu
sumri en fyrstu veiðimennimir
renndu fyrir lax í Norðurá í Borg-
arfirði. Þetta byijaði allt klukkan
sjö í morgun þegar veiðimennimir
renndu maðki og köstuðu marglit-
um flugum fyrir þann silfraöa.
Þverá í Borgarfirði verður ekki
opnuö í fyrramálið.
„Við opnun ekki í fyrramálið,
kannski á fimmtudag, fóstudag eða
laugardag. Við vitum það ekki á
þessari stundu, kíkjum á máhð á
morgun“ sagði Jón Ólafsson, einn
af leigutökum Þverár, í gærkveldi.
En veiði hefst ekki fyrr en 5. júní
í Laxá á Ásum en það er ný-
breytni. Laxá á Ásum hefur alltaf
verið opnuð 1. júní. Það verður
veiðimaðurinn Hilmar Ragnarsson
sem opnar Laxá á Ásum þetta sum-
arið.
„Áin hrapar á hverri mínútu og
Véiðivon
Gunnar Bender
þetta verður allt í lagi, við fáum lax
eða jafnvel laxa,“ sagði Friðrik Þ.
Stefánsson, formaður Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, í gærkveldi á
bökkum Norðurár.
„Fyrsti laxinn kemur á land
klukkan átta mínútur yfir sjö í
fyrramálið og hann tekur rauða
franses. Þetta er fyrir löngu ákveð-
ið,“ sagði Jóhannes Stefánsson,
veitingamaður í veiðihúsinu við
Norðurá í gærkveldi.
Það er stjóm Stangaveiðifélags
Reykjavíkur sem opnar Norðurá
eins og venjulega en meðal þeirra
sem renna eru Friðrik formaður,
Guðrún og Guðlaugur Bergmann,
Þórólfur Halldórsson, Halldór
Þórðarsson, Kristján Guðjónsson
og Stefán Á. Magnússon svo ein-
hveijir séu nefndir.
Það eru félagar úr veiðifélaginu
Sporði sem opna Þverá í Borgar-
firði en þeir leigja ána. Eins og fyrr
kom fram er ekki vitað hvenær það
veröur.
Spennan er mikil að opna lax-
veiðiárnar en góð byrjun gæti
hleypt verulegu lífi í veiðileyfasöl-
una. Ef vatnavextir spila ekki inn
í gæti orðið góð byrjun í veiðiánum
og fiskurinn er í flestum tilfellum
tveggja ára lax úr sjó.
• Veiðin hefst ekki í Laxá á Ásum
fyrr en 5. júni. Það þykja töluverð
tíðindi því áin hefur verið opnuð
1. júní eins og Norðurá og Þverá.
Leikhús
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
NIFLUNGAHRINGURINN
eftir Richard Wagner
- valin atriði —
4. sýn. á morgun kl. 18.00, laus sæli, 5.
sýn. laud. 4/6 kl. 18.00, fáein laus sæti.
Athygli vakin á sýningartima kl. 18.00.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Föd 3/6, uppselt, sud. 5/6, örfá sætl laus,
föd. 10/6, laud. 11/6, mvd. 15/6, næstsiö-
asta sýning, fid. 16/6, siðasta sýning, 40.
sýning.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00.
SANNAR SÖGUR AF
SÁLARLÍFISYSTRA
Eftir Guðberg Bergsson i leikgerö Viðars
Eggertssonar.
Forsýnlngar á Listahátíð fid. 2/6, Id. 4/6.
Litla sviðið kl. 20.30
KÆRA JELENA
eftir Ljúdmilu Razúmovskaju
í kvöld, uppselt, fid. 2/6, laud. 4/6, mvd.
8/6, næstsíðasta sýning, 170. sýning sud.
12/6, 6Íðastasýning.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudagafrá 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekið
á mótl símapöntunum virka daga
frákl.10.
Græna linan 99 61 60.
Greiðslukortaþjónusta.
Safnaðarstaif
Árbæjarkirkja: Opið hús fyrir eldri borg-
ara í dag kl. 13.30. Fyrirbænaguðsþjón-
usta í dag kl. 16.
Breiðholtskirkja: Kyrrðarstund kl. 12 á
hádegi í dag. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu eftir stundina.
Fella- og Hólakirkja: Helgistimd í
Gerðubergi kl. 10.30. Umsjón Ragnhildur
Hjaltadóttir.
Kársnessókn: Mömmumorgunn í safn-
aðarheimibnu Borgum í dag kl. 9.30-12.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
GLEÐIGJAFARNIR
eftir Neil Simon
með Árna Tryggva og Bessa Bjarna.
Þýðing og staðfærsla Gísli Rúnar
Jónsson.
Fös. 3/6, næstsíðasta sýning, laugard. 4/6,
siðasta sýning.
Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla
daga nema mánudaga. Tekið á móti
miðapöntunum i sima 680680
kl. 10-12 alla virka daga.
Bréfasimi 680383.
Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar.
Tilvalin tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús.
Leikfélag Akureyrar
8» Par
eftir Jim Cartwright
i Lindarbæ
Mánudag 6. mai kl. 20.30.
Þriðjudag 7. mai kl. 20.30.
Miðvikudag 8. mai kl. 20.30.
Fimmtudag 9. mai kl. 20.30.
Forsala aðgöngumiða er i miðasölu
Listahátiðar í íslensku óperunni dag-
legakl. 15-19, simi 11475,
sýningardaga í Lindarbæ frá kl. 19.
Simi 21971.
Tapað fandið
Svört leðurtaska tapaðist í miðbænum á
laugardagskvöld. I töskunni var m.a.
dökkblá slæða með hvítum doppum, pen-
ingar og snyrtivörur. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 71592.
HARMONIKUUNNENDUR
Hljómsveit Guðjóns Matthías-
sonar leikur gömlu og nýju
dansana föstudaginn 3. júní í
Ásbyrgi, Hótel íslandi, kl. 1Ö
til 3. Hljómsveitarstjóri er Guð-
jón Matthíasson.
Borðapantanir í síma 687111.
efofa íolta
Áemut íatn!