Alþýðublaðið - 15.04.1967, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 15.04.1967, Blaðsíða 2
Eyvind Islandi synaur hér 5. maí 5. maí næstkomandi verða í Há- jskólabíói klukkan 9, tónleikar, jsem án efa munu verða forvitni legir fyrir borgarbúa. Þar syiigur ,í fyrsta sinn ungur íslendingur. eonur Stefáns íslandi, en nýstofn- uð deild innan Rauða kross ís- lands, kvennadeild, mun nota á- .jgóðan af tónleikunum til mannúð ar- og líknarstarfsemi sinnar liér í bænum. Eyvind Brems íslandi er eins og kunnugt er sonur Stefáns ís- landi og hinnar frægu dönsku Forsetamerkið afhent í dag Þriðja afhending Forsetamerk is skáta fer fram í Bessastaða- kirkju n.k. laugardag. Hér er um að ræða æðsta próf jnerki skáta og er það veitt ung .lingum á aldrinum 17-19 ára. Forseti íslands og verndari ísl. skáta Ásgeir Ásgeirsson hefur af ihent merkið tvö undanfarin skipti en vegna veikinda hans mun skáta höfðingi, Jónas B. Jónsson af- henda merkið að þessu sinni. Fjölmargir dróttskátar hafa unnið til merkisins að þessu sinni cða 68 dróttskátar alls. Er hér um að ræða dróttskáta frá Hafn arfirði, Kópavogi, Reykjavík og Akureyri, en dróttskátastarf liefur aukizt mjög á þessum stöðum undanfarin tvö ár. Margir skátar og skátaforingj- ar verða viðstaddir afhendinguna í Bessastaðakirkju, þar sem þessi helgi verður einnig haldinn fund ur félagsforingja víðs vegar um landið. Á íslandi eru nú starfandi skáta félög á 30 stöðum, en skátastarf er að byrja á fleiri stöðum. Eyvind Brams Islandi söngkonu, Elsu Brems, ' en hún hefur einu sinni haldið hér tón- leika á vegum Tónlistarfélagsins. Eyvind er 26 ára gamall og er að ljúka löngu söngnámi við tón listarskólann í Aarhus, einum fremsta tónlistarskóla á Norður- löndum, er skrifað hefur út marga fræga söngvara, sem sumir hafa haldið hér tónleika. Eyvind er sagður hafa ákaflega fallega ten 'órrödd, er um margt líkist mjög rödd föður síns, en hann hefur auk þess fengið alhliða tónlistar- uppeldi, sem bezt má verða. Eyvind íslandi kemur hingað á vegum Tónlistarfélagsins, eins og áður hefur verið sagt frá, en þar syngur hann aðeins fyrir félaga þess og voru ekki ráðgerðir hér neinir opinberir tónleikar. En nú hefur hann fallizt á að halda eina opinbera tónleika, og verða þeir á vegum Kvennadeildar Rauða krossin, og mun nota á- góðann til líknar og mannúðar- starfsemi sinnar, eins og áður er Framhald á 14. síðu í Suður-Ameríku ÍUNTA DEL ESTE, 14. apríl -NTB-Reuter). Eeiðtogar Ameríkuríkja undir- rituðu í dag sögulcgt skjal þar sem þeir skuldbundu sig til að koma á laggirnar markaðsbanda- lagi. Skjalið var undirritað I lok þriggja daga ráðstefnu Ameríku- ríkja, og skömmu eftir undirritun inai hélt Johnson Bandaríkjafor- Beti til Washington. t skjalinu segir, að forsetar Rómönsku Ameríku séu fastá- 2 15. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ kveðnir í að vinna að stofnun slíks bandalags og skuli þetta starf hefjast hið allra fyrsta og vcrði því að vera lokið ekki síðar cn að 15 árum liðnum. í skjalinu segir, að ríkin í Rómöhsku Amer íku muni hætta ónauðsynlegum útgjöldum til hermála, auka utan ríkisviðskipti, leggja grundvöll að efnahagslegri sameiningu Róm- önsku Ameríku með samvinnu um ýmsar framkvæmdir, og gera Framhald á 14. síðu Stálskipasmíði á Akranesi Á AKRANESI nánar tiltekið vestur á svokölluðum Grenj- um hafa á undanförnum tveim árum staðið yfir miklar fram- kvæmdir við stækkun Dráttar brautar Akraness í þeim til- gangi, að hægt sé að smíða þar stálskip og að veita hin- um nýju og stóru bátum alla nauðsynlega viðgerðarþjón- ustu. Ilefur í þessum tilgangi verið byggt stórt og myndar- legt hús, ásamt brautum og skipalyftu, sem verður tekin í notkun á næstunni. Um sl. áramót hófst þar smíði fyrsta stálskipsins og hófst þar með nýr þáttur I at- vinnusögu Akraness, þáttur sem vænta má mikils af I fram tíðinni til eflingar og fjöl- breytni í atvinnuháttum stað- arins. Fyrir skömmu hcimsóttum við skipasmíðastöðina, skoðuð- um mannvirki þar undir Ieið- sögn Hallgríms Magnússonar verkstjóra, sem einnig svaraði nokkrum spurningum okkar um starfsemina. í húsi Dráttarbrautarinnar, sem að sögn Hallgríms er 47x 37m. að flatarmáli, stpð stál- bátur og sáum við ekki betur en að smíði hans væri langt komin. — Hvenær liófst smíði báts- ins? — Um sl. áramót. Þetta er 115-120 tonna bátur sem er smíðaður fyrir Jón Þórarins- son í Reykjavík. — Hvernig hefur verkið gengið? — Það hefpr gcngið fyamar öllum vonum og ég vcit ekki betur en að eigandinn sé á- j- nægður með það. Báturinn gæti verið tilbúinn til afhend ^ ingar um miðjan maí, ef ekki stendur á neinu. ig — Er nokkuð ákveðið með 11 næsta verkefni? — Já, í næstu viku hefst ;í| smíði á 450 tonna skipi fyrir | Finnboga Magnússon skip- stjóra á Helgu Guðmundsdótt- 'j ur. — Hvað getið þið smíðað || stærst skip hér? — Það er hægt aö smíða 550 tonna skip. Húsakynni Dráttabrautarinn ar eru mjög björt og vistleg. Um þessar mundir vinna þar 25 manns. en þegar starfsem in er komin í fullan gang mun þeim fjölga verulega. Að sögn Hallgríms er stöðin vel búin að tækjum og má þar nefna 250 tonna plötupressu, 100 tonna bandpressu og í næsta mánuði er væntanlegur 25 Hallgrímur Magnússon tonna krani í loft byggingar- innar, svokallaður hlaupakött- ur, sem getur Iyft vél í heilu lagi í 500 tonna skip. Þá er í smíöum skipalyfta, sem getur tekið 500 tonna skip og er hægt að stækka hana að mun með litlum til- kostnaði. Lyftitæki eru amer- ísk, en allur annar útbúnaður Framhald á bls. 15. {Óvij- C-.; .iiw/ mmmÉ Skipasmíðaliús Dráttarbrautar Akraness, Fyrsta stálskipið í smíðum á Akranesi. (Myndir: Ildin),

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.