Alþýðublaðið - 15.04.1967, Síða 7

Alþýðublaðið - 15.04.1967, Síða 7
 ÁSÞÓR, eign ísbiarnarins, er aflahæsti bátur vertíðarinnar ennþá. Hann er kominn með rúm 540 tonn, sem teljast verður gott miðað við það gæftaleysi sem verið hefur. Asbjörn hefur sigið á að ekki sé talað um Helgu II. sem fiskað hefur mjög vel þann stutta tíma sem hún hefur ver- i'ð að. alls 9. apríl 10. apríl 11. apríl 12. apríl 13. apríl alls Ásberg 33.010 14.360 47.370 Ásbjörn 425.050 14.340 26.650 466.040 Ásgeir 472.640 9.690 482.330 Ásþór 518.900 11.350 13.300 543.550 Hafþór 159.750 9.260 6.770 175.780 Helga 380.100 11.070 400.170 Helga II. 237.820 41.530 26.060 305.410 Húni II. 321.360 7.780 329.140 Óli Bekk. 228.250 228.250 Sig. Bj. 115.060 17.370 132.430 Aðalbj. 68.000 68.000 Ásbjörg 87.850 87.850 Blakkur 241.400 2.550 13.060 257.000 Fróði 126,450 1.380 127.820 Geir 106.400 1.800 108.200 Kári Söl. 174.620 0.860 7.840 183.320 Sjóli 161.800 6.860 168.660 Smári 88.980 1.240 90.220 Sædís 190.720 3.530 6.140 200.390 Valur 104.300 6.590 110.890 Víking. 133.420 4.320 135.740 Þór. Ól. 77.760 9.890 87.650 Nú eru þeir farnir að reita í endasleppt, fyrsti nýsköpunartog- þorskanótina stærri bátarnir og fengu þeir Gísli Árni og Ögri góðan afla á þriðjudag, Gísli 75 tonn og Ögri um 80 tonn. Aðrir voru með minna, t. d. Arnar með um 40 tonn, Þorsteinn um 12 tonn og Árni Magnússon um 25 tonn og Jörundur II. 60 tonn. Grótta reif nótina og fór inn til Vestmannaeyja að láta gera við hana. Margir bátar liafa fengið stór köst, sem þeir hafa ekki ráðið við og liafa orðið fyrir'tölu verðu veiðarfæratjóni af þeim sökum. í dag, fimmtudag, er litið hjá nótabátunum að hafa, því komin er bræla og bátarnir með þetta 5—6 og 7 tonn hver. togararnir: Togararnir eru nú út um öll höf að veiðum. Júpíter er á heim- leið frá Nýfundnal. með 27.3000 tonn, Maí er að ianda 500 tonn- um í Hafnarfirði, — Þormóð- ur goði er við Austur-Grænland og er með um 125 tonn, en hef- ur átt erfitt vegna veðurs. Karls- efni er á leið til Þýzkalands með um 160 tonn af ýsu og ufsa. i'yrir tveimur dögum var Röðull kominn með ca. 90 tonn af ýsu og 90 tonn af ufsa, sem hann fékk í námunda við Surtsey. Þorkeil máni landar föstudag milli 160 —170 tonnum. Ingólfur Arnar- son landaði í Reykjavík á mánu- dag og þriðjudag rúmum 260 tonnum, var með um fimm tonn á dekki. Hann gerir það ekki SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐSTOFAN Vesturgötu 25. Sími 16012. arinn okkar. Hallveig Fróðadóttir hefur nú legið í höfninni í klössun og við gerð á gírnum í bráðum eitt ár. Samkvæmt nokkuð öruggum heimildum mun hún fara á veið- ar er hún er tilbúin. Enda væri dæmið vægast sagt einkennilegt, ef bæjarbúar eiga að borga of fjár í viðgerð á sinum eigin skip- um bara til að selja þau í brota- járri eftir að þau eru búin að liggja í nokkur ár inn á sundúm. Útgerðarfélag Akureyringa virðist hafa meiri kjark til að fylgjast með nýbyggingu togara- flota fyrir okkur íslendinga, ep forráðamenn okkar Reykvík- inga. Ríkisstjórnin ætlar að hafa frumkvæðið að byggingu fjög- urra skuttogara og væri ekki ó- eðlilegt að Reykjavíkurbær sem lengi vel rak stærsta útgerðar- fyrirtæki landsins hefði einhvern áhuga. íhaldið hér í bænum hef- ur enn ekki haft þá ánægju að gorta af því að geta jarðað Bæj- arútgerðina og vonandi gefa kjós- endur því það aðhald í kosning- unum í vor, sem það virðist þurfa á að halda. Nýlega sat Emil Jónsson fund Norðurlandaráðs. Var þar til umræðu lendingarleyfi til handa Loftleiðum. Ráðherrann talaði í því sambandi um hinn óhag- stæða viðskiptajöfnuð okkar við hin Norðurlöndin. Er ekki kom- inn tími til þess að við hættum að borga Norðmönnum og öðr- um Norðurlandaþjóðum bein- harðan gjaldeyri fyrir síldveiði- skip okkar? Er ekki alveg eins Þessa mynd tók Bjarnleifur á dögunum þegar Maí kom til Ilafn- arfjarðar með 500 tonn. óhætt að líta í austur átt, þ. e. til Au.-Þýzkalands og Póllands og borga þeim skipin með vöru- viðskiptum? Allir sem vit hafa á skipum þeim, sem hingað til lands hafa komið er ijóst, að langbeztu skipin eru frá Au.- Þýzkalandi og jafnframt þau ó- dýrustu. Það er þykkara stál í þeim og þau eru betur einangr- uð og margt og margt. Er ,þá ekki hreinn óþarfi að vera að borga skip með hreinum gjald- .eyri sem við getum fengið ann- ars staðar frá í vöruviðskiptum? Pétur Axel Jónsson. SiMASKRÁ ALLS HEIMSINS ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur nýlega fengið senda símaskrá heims- ins, og þetta er ekki sagt í gamni. Þetta er mikil bók að vöxtum, eins og að líkum læt- ur, gefin út vestan hafs, kallast á ensku „International Yellow Pages” og' er titillinn skráður á titilbiaðið á fjórum tungu- málum. Efni bókarinnar er flokkuð starfsskrá fyrir allan heiminn árið 1967, og er þetta fjórða útgáfa. Hver aðili sem nafn sitt hefur í skránni fær þar birt heimilisfang sitt og auðvit- að símanúmer. Við flettum strax upp á íslandi og þar var m. a. „Althydubladid, News- paper, Hverfisgata 8—10, 14900.” Það er auðvitað ekki svo að skilja að til sé enn nein opin- ber símaskrá fyrir gervallan þennan hrjáða linött. En að því kemur áreiðanlega. Nú er orð- ið auðvelt að kalla fólk upp í síma í fjariægum heimsálfum, og maður heyrir vel þótt tal- að sé um hnöttinn þveran. Enn er þó ekki hægt að tala hvert sem vera skal. Sumir partar J heims eru enn utan garðs í ( . þessum efnum. Alþjóðleg J símaviðskipti eru líka bara á l byrjunarstigi hjá því sem J er væntanlegt í náinni fram i tíð. Ekki verður þess langt að J bíða að unnt verði að hringja 1 beint, bara með því að snúa ( skífunni heima hjá sér, í hvaða ' númer sem er á hnettinum. Að ( því kemur að við eigum ekki. erfiðara með að ná tali af vini okkar seiri býr hinum megin á hnettinum lieldur en hinum 't sem býr í næstu sveit. Þaðj númer sem er á hnettinum. Að: framvindunni ef svo yrði ekkii fljótlega. . ,, ([ Þannig er heimurinn orðinn eins og eitt land fyrir nokkrumt árum. Fjarlægðirnar eru aðf þurrkast út. 15. apríl 1967 - . ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.