Alþýðublaðið - 15.04.1967, Page 8

Alþýðublaðið - 15.04.1967, Page 8
„Leiktu aldrei, hvorki í lífinu né á sviði" landamærin, svo að stöðugt var þörf á nýjum, segir Werner — en ég er á móti stríði og ég faagaði mér eins asnalega og ég gat í skól anum, lét mig detta af hestinum og reyndi að Igera öll þau asna- strik sem ég gat, svo að loks var ég rekinn úr skólanum. Næstu þrjú ár var Werner í Vín, þar sem hann skrældi kartöflur og þvoði gólf. Eini Ijósi punkturinn í þessari tilbreytingarlausu tilveru var að hann hafði möguleika_ til að byrja aftur að leika í Burg- theater. Á einni sýningu hitti hann leHtkonu, Elizabeth Kallina að nafni og þau giftust í ársbyrj- un 1944 með leynd, því að liún var að hálfu Gyðingur. í seþtember það ár voru gerð- ar margar loftárásir Bandaríkja- manna á Vín. Margir vinir Wern- ers dóu. Hann slapp heill á húfi, en hafði fenigið taugaáfali svo að hann fékk tveggja mánaða sjúkra- leyfi. Þegar liann. kom aftur var 'honum skipað að fara í varaliðs- sveit, en hann flúði og tók með sér konu sína og litla dóttur. Árið 1950 kom leikstjórinn Ana tole Litvak til Austurríkis til að hefja töku myndarinnar Decision before Dawn. Hann þekkti ekki Werner, en vinur hans hafði stung ið upp á honum í hlutverk Happ- ys. Eitt kvöld var svo haldið sam- kvæmi fyrir Litvak. Hann kom þá auga á Werner þar sem hann stóð úti í horni og hermdi eftir ein- hverjum. Litvak leit á hann og sagði: Þetta er Happy. Og Werner tók hlutverkinu. Áður en hann hafði lokið leik í myndinni liafði hann skrifað undir 7 ára samning við 20th Century Fox um að leika í tveimur myndum á ári. En hlut- verkin sem hann átti að fá, voru Við töku myndarinnar Brenn- punkt Farhrenheit 451, Werner og Jule Christie. ekki að skapi Werners og hann sagði upp samningnum. Skömmu seinna skildu hann og kona hans. Hann hafði kynnzt stjúpdóttur Ty- rone Power, Önnu að nafni, við töku myndarinnar Decisión before Dawn og þau giftust 1954. Þau búa nú í litlu húsi uppi á fjalli í Liechtenstein — og þau segja, aö húsið sé syo lítið, að bara einn góður vinur geti heimsótt þau ^ar. Það var aðeins eitt, sem fyrir Werner þýddi að vera leikari: Að leika Shakespeare. 11 ára gamall las hann upp úr Hamlet í skólan- um og þá ákvað hann „af virðingu fyrir skáldinu að leika aldrei Ham let“. En þessi skoðun breyttist. Klukkan átta á hverjum morgni settist hann við skrifborðið og las hlutverkið. Svo fékk hann boð frá Burg- theater um að leika Hamlet. Og á þrítugasta afmælisdegi sínum skrifaði hann undir samninginn. Gagnrýnendur hrósuðu honum einróma og’ kölluðu hann bezta „Hamlet“, sem sézt hefði í Þýzka- landi, Frh. á 10. síðu. Oslcar Wcrner og Charlie Chaplin hafa sitthvað að spjalla saman um. Oskar Werner og kona hans, Anne, en liún er stjúpdóttir Tyrone Power. Julie Christie leikur baeði konu Werners og ástmey í kvikmyndinni Brennpunkt Fahrenheit 451. í ööru hlutverkinu er hún með stutt hár, en í hinu síða lokka. HANN er ljóshæröur, grannur og ekki mikill íyrir mann að sjá. 43 ára að aldri og vonast eftir að verða bráðum afi. Hann talar ensku með þýzkum hreim og hann hatar að ferðast með flugvélum, ofsaleg hræðsla grípur hann í há- •loftunum og hann þjðist af inni- loftunum og hann þjáist af inni- áfengi vegna þess algleymis sem það veitir honum og vegna þess, að það losi hann við áhyggjumar, því að eðlisfari velti hann hlut- unum allt of mikið fyrir sér. Og hver er svo þessi hann? Hann heitir Oskar Werner og var alls óþekktur kvikmyndahús- gestum fyrir nokkru síðan. Hann hefur aðeins leikið í fjórum am- erískum kvikmyndum. Það sem gerði hann heimsfrægan á svip- stundu var leikur hans í The ship of fools — fyrir hann fékk hann Oskars-verðlaunin og einnig verð- laun blaðagagnrýnenda í New York árið 1965. í marz 1966 fékk hann Golden Globe verðlaunin, sem bezti leikari ársins í auka- hiutverki fyrir leik sinn í Njósn- arinn, sem kom inn úr kuldanum, en þar lék hann á móti Richard Burton. Kvikmyndaframleiðand- inn Stanley Kramer segir að hann sé ef til vill einn af þremur eða fjórum beztu núlifandi leikurum. En Werner er sjálfur ekkert sér staklega hrifinn af að verða svo vinsæll. Honum finnst það frem- ur óþægilegt*.— Ég vil vera leik- ari, segir hann, ekki svokölluð kvikmyndastjarna, — og það er greinilegt að það er hans álit, að þessi tvö hugtök eiga ekki alltaf saman. — Ég er giftur leikhúsinu, seg- ir hann. — Kvikmyndin er aðeins hjá- kona mín. Hann hefur engan fulltrúa fyrir sig og honum er alveg sama um allar auglýsingar. Fyrir nokkru síðan aflýsti hann sjónvarpsþætti til að geta borðað hádegisverð með vini sínum. Oskar Werner fæddist 13. nóv. 1922 í Vín. Þegar hann var 11 ára, ákvað hann að verða leikari. Hann lék svo smáhlutverk í skólaleik- ritum og 18 ára gamall var hann ráðinn við Vínar Burgtheater, sá ymgsti, sem nokkurn tíma hefur verið ráðinn þangað. En skömmu seinna varð hann svo að fara í her- inn og var sendur til Tékkóslóva- kíu. Sex mánuðum seinna var hann sendur á liðsforingjaskóla. — Liðsforingjarnir voru drepn- ir hópum saman við rússnesku 8 15. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ í VEGAÁÆTLUN fyrir 1967 eru veittar 102.75 millj. kr. til vegaviðhalds og árið 1968 108.0 millj. kr. Þessar fjárveitingar voru byggðar á vísitölu viðhalds- kostnaðar í marz 1965, sem var 489 stig miðað við árið 1949. í áætlunum um viðhaldskostnað fyr ir þessi ár var miðað við vetrar- viðhaldskostnað að upphæð 7 millj. kr. Einnig var þar miðað við, að lengd akfærra þjóðvega yrði 8820 km. 1967, en 8840 km 1968. Vísitala viðhaldskostnaðar í á- gúst sl. var 570 stig. Hinn 1. sept sl. hækkaði kaupgjaldsvísitalan úr 185 í 188 stig, og við það hækkar vísitala viðhaldskostnaðar úr 570 í 571 stig, en með hliðsjón af lögum um verðstöðvun er ekki reiknað hér með annarri hækkun. Bein hækkun á fjárveitingu til vegaviðhalds frá vegáætlun í ár vegna hækkunar á viðhaldsvísitölu er 16,75%, þ. e. hækkun úr 489 í 571 stig. Nemur þessi hækkun því 17,2 millj. kr. Kostnaður við vetrarviðhald, þ. e. snjómokstur og klakahögg, hef ur verið afar breytilegur undan farin ár, sem öll hafa þó verið frekar snjólétt að undanskildu sl. ári, eins og sjá má af eftirfarandi yfirliti. Fyrri talan er miðuð við árið 1965 en sú síðari ái’ið 1966: Vetrarviðhald des. apríl í millj, króna. 6.8 — 17.0. Vísitala viðhalds, 1. ág. hvert ár. 531 — 570. Vetrarviffhald, á vísitölu 1. febr. 1967. 7,3 — 17,0. Meðaltal kostnaðar við vetrar- viðhald undanfarin 2 ár hefur því verið um 12.2 milljónir króna á ári miðað við verðlag 1. febrúar í ár. Öll þessi ár hefur snjómokst ur verið framkvæmdur samkvæmt reglum, sem settar voru árið 1958 Samkvæmt þeim' reglum greiðir Vegagerð ríkisins allan kostnað við snjómokstur á 1337 km. eða 15,7% af vegakerfinu og einnig kostnað við opnun vega á vorin og oftast fyrsta mokstur á haustin. Á öðrum vegum er því aðeins mokaður snjór, að helm- ingur kostnaðar fáist greiddur úr héraði. Fyrir það fé, sem varið hefur verið til snjómoksturs undanfarin ár, hefur mun meira fengizt síðari árin vegna betri tækja. Þannig er árið 1962 enginn veghefill til með snjótönn framan á hefli, en nú. eru 25 vegheflar með þessum búnaði. Einnig hafa 7 dráttarbif reiðar verið búnar snjóplógum og einnig nokkur öpnur tæki. Með þessu móti hefur tekizt að lækka kostnað við snjómokstur verulega, þar sem vegheflar og bílar eru mun fljótvirkari tæki en jarðýtur, ef ekki er um mikið fannfergi að ræða. Sökum mjög breyttra aðstæðna á ýmsa lund má segja, að nauð-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.