Alþýðublaðið - 15.04.1967, Side 16

Alþýðublaðið - 15.04.1967, Side 16
Loksins er lóan komin um loftin blá og tær, nokkrar syngjandi systur sá ég á túninu í gær. Bráðum byggja þær hreiður og búa vel um sig. Kannski halda þær konsert í kvöld fyrir mig og þig. Nu eru menn farnir að hlakka til kosninganna, þ. e. a. s. þeir sem |>að gera, enda innan við tveir mánuðir þangað til þær eiga að fara fram Og þeir sem hlakka til eru, annars vegar þeir sem treysta því að þeir komist á þing og hins vegar þeir sem treysta því að einhverjir svörnustu andstæð- ingar þeirra komist ekki á þing. Og svörnustu andstæðinga eiga xnenn nú. orðið hvergi nema í sínum eigin flokki, enda öll bar- át.ta milli stjórnmálaflokka horfin og menn í staðinn farnir að berj ast innan flokkanna — sem er miklu skemmtilegra og árangurs- ríkara — um þingsæti og bitlinga og annað sem hugurinn girnist. Og þessa baráttu heyja menn jafnvel vasklegar en áður, bíta í skjarldarrendur og grenja. (Þess vegna notaði ég skakkt orð áðan, ég átti ekki að segja svörnustu andstæðingar, heldur svömustu eamherjar). Svo langt hefur áhugi manna á að fella samherja sína gengið að til mála kemur að miklu fleiri tjjóði fram en hinir gamalreyndu 'Stjórnarflokkar — sem eru raunar orðnir dálítið gamaldags. Framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins er líklegur til að koma með sérstakt framboð á Vest- fjörðum, gegn sínum eigin flokki auðvitað, annars væri ekkert púð ur í því, eina vandamálið að í feiðinni gæti hann kannski skað að eitthvað hina flokkana sem eft — Svo hann hefur þá ekki verið benzínlaus eftir allt sáman. ur yrði hugsanlega vatn á myllu hans flokks. Samtímis þessu vinn ur hann fyrir flokkinn bæði þar og annars staðar sem fram- kvæmdastjóri, og lifir sýnilega eftir háu andlegu prinsippi, að láta ekki hægri hönd sína vita hvað sú vinstri gjörir. Kommar eru nú famir að skila aftur sumu af því sem þeir liafa innbyrt nýlega, og undrast það enginn. Þeir hafa á undanförnum árum verið gírugir mjög og gleypt bæði þjóðvarnarmenn og hannibalista, en nú er þeim farið að verða bumbult, einkum og sér í lagi af hannibölum sunnanlands sem kváðu vera lítils háttar öðru vísi samansetningar en hinnibal- ar á Vestfjörðum. Stendur nú til samkvæmt upplýsingum frá íhalds mönnum að hannibalar hyggi á framboð í Reykjavík, auðvitað til að stuðla að falli samherja sinna. Þá eru uppi háværar raddir meðal óháðra úr ýmsum flokk- um, sem orðið hafa útundan og dottið ofanímilli vegna hinna og 'bessara ástæðna, að hefjast handa um að stofna nýjan flokk og bjóða fram, bara úpp á grín og til þess að gera prakkarastrik. Munu þeir ætla að haga sér eins og hrekkjusvín í gamla daga sem settu göt á koppa, teiknibólur í stóla og pipar í neftóbak spekinga. Hvggjast þeir bjóða fram sem víðast til þess að skápa sem mest an glundroða. Lf litið er yfir allar þessar nýju hreyfingar í heild þá eru þær ekki svo lítill hluti kjós- enda. Þó verður að setja nokkurn mínus í reikninginn því að sum- ir hafa hugsað sér að vera með í öllum þessum sprengiflokkum alveg fram á kjördag. en þá munu þeir hlaupa heim til föðurhús- anna með .buxurnar -á hælunum. Og nú leyfir baksíðan sér að koma með tillögu: Því ekki að klambra saman einum sameiginlegum flokki úr öllum þessum sprengilistum? Þeim er aðeins eitt sameiginlegt, en það er líka alveg nóg, og er það að vera á móti einhverju og einhverjum (alls ekki á móti öllu) Þetta er rakinn grundvöllur fyrir nýjan stjórnmálaflokk því að vand fundinn er sá kjósandi sem ekki er á móti einhverju. Hverju þeir eru á móti skiptir minnstu. Þann ig gæti Þorvaldur Garðar verið á móti Matthíasi, Hannibal á móti Magnúsi og allir hinir ó- háðu á móti hverjum sem vera vill, enda eru þar saman komnir þeir menn, sem ættu að mála á sinn skjöld „Nú em ek reiðr, nú vil ek bérjask“. Næsta stig yrði svo að allir hin ir stjómmálaflokkamir, kratar, kommar, íhald og framsókn — sem orðnir eru samherjar án þess að vita það, sameinuðust í einn flokk þeirra manna sem eru „með“. Mundi þetta ganga vel í öllum tilfellum nema ef vera kynni með Eystein. Hann mundi sennilega vera óklár á með hverj um hann vildi vera. Ástæðan er sú að hann er alltaf í jafn mikl- um vandræðum með hina leiðina sem hann getur ekki skýrt svo að vel sé, enda engin von, þvi að hún er yfirskilvitleg og handan við rúm og tíma, rétt eins og vmsar kenningar trúarbragða og heimspeki sem mannshugurinn hefur ekki enn öðlazt þroska til að skilja. — Þú þarft ekki að vera hræddur er farinn upp .... pabbi heyri til okkar. Hann Ástarlíf með árangri . . . Heiti á kvikmynd Og nú ætla þeir bráðiun að fara að slá tíkalla aftnr eing og krónupeninga. Það er sjálf sagt gert til þess að geta hækkað stöðumælagjöldin . . Ég held það geri ekki tH þótt gamla fólkið tali illa um bítla músikina okkar táninganna. Við heyrum ekki í þeim fyrir öllum hávaðanum . . . Mér finnst að liúsmæðar ættu að mótmæla því að þingmenn imir síkuii kenna rifrildið sitt við eldhúsið ...

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.