Alþýðublaðið - 25.05.1967, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 25. maí 1967 - 48. árg. 122. tbl. - VERÐ 7 KR.
ísraelskir hermenn við landamærin.
veg fyrir stríö?
NEW YORK, 24. maí . (NTB-Reu-
ter) — Arthur Goldberg, aðalfull-
trúi Bandaríkjanna hjá SÞ, skýrði
frá því á frnidi Öryggisráðsins í
kvöld, að Bandaríkin væru fús til
samvinnu við Bretland, Frakkland
og Sovétríkin í þeim tilgangi að
leysa deiluna fyrir botni Miðjarð-
arhafs og varðveita friðinn.
Þessi yfirlýsins Goldbergs er
talin svar vi0 þeim ummælum de
Gaulles forseta, að fjórveldin ættu
aS leggjast á eitt u» að leysa deil-
una.
Á fyrri fundi ráðsins í dag mót-
mælt'i Nikolai Fedorenko, aðal-
um flýti. Hann taldi að annarleg
sjónarmið lægju á bak við. Full-
trúar nokkurra Asíu- og Afríku-
ríkja studdu hann og Frakkar að
nokkru leyti.
Seint l kvöld krafðist Fedor-
enko þess að Bandaríkjamenn og
Bretar flyttu flotadeildir sinar frá
Miðjarðarhafi, þar sem dvöl þeirra
þar væri meginorsök spennunnar
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Danir og KanaUamenn áttu
'frumkvæði að því að boðað var til
fundarins. Auk þeirra eiga Argen-
tína, Brasilía, Búlgaría, Eþíópía,
Frakkland,' Indland, Formósu-
fulltrúi Rússa þvi, að ráðið skyldi | stjórn, Nígería, Sovétríkin, Bret-
hafa verið kvatt saman í svo mikl-1 land og Bandaríkin fulltrúa í
Danmerkurferð
fyrir 4700 kr.
Nú eru síðustu forvöð að tilkynna þátttöku í ferð Alþýðu-
flokksfélags Keykjavíkur til Danmerkur dagana 18. júli til
1. ágúst næstkomandi. Öllum er heimil þátttaka. Þeir sem
áhuga hafa á þessu ódýra ferðalagl, vinsamlegast hringi í
skrifstofu Alþýfiuflokksins, símar 1-50-20 og 1-67-24, eigi síðar
en 1. júní næstkomandi.
ráðinu. ísrael og Egyptaland hafa
rétt til að fylgjast með umræðum
í ráðinu, en fulltrúar þeirra hafa
ekki atkvæðisrétt.
Rússneski fulltrúinn sagði, að
viss vestræn ríki hefðu blásið upp
það, sem væri að gerast fyrir
botni Miðjarðarhafs, og það væri
engin tilviljun, a tvö NATO-ríki,
Kanada og Danmörk, sem bæði
væru langt frá botni. Miðjarðar-
hafs, hefðu átt frumkvæðið að
fundinum. Fedorenko sagði, að
enginn deiluaðila hefði farið fram
á að ráðið héldi fund um málið, og
gaf í skyn að það sem byggi ét
bak við væri dulin ósk um afskipti
af málefnum annarra fremur en
einlæg ósk um að varðveita frið
og öryggi fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
□ Skiptar skoðanir
Kanadíski fulltrúinn, George
Ignatieff, vísaði aðdróttunum Fe-
dorenkos á bug og kvaðst telja að
mikílvægasti skerfurinn er ráðið
gæti lagt af mör.kum til varð-
veizlu friðarins fyrir botni Mið-
jarðarhafs væri að styðja friðartil-
raunir U Thants. Ráðið mundi
bregðast skyldu sinni ef það fjall-
aði ekki um hið alvarlega ástand,
sagði Ignatieff, en Fedorenko
Framhald á 14. síðu.
KAIRÖ, 24. maí (NTB-Reuter).
U Thant, framkvæmdastjóri SÞ, hóf í dag viðræður sínar við
Nasser, forseta Arabíska sambandslýðveldisins, samtímis þvi sem
Bandaríkjastjórn tilkynnti egypzku stjórninni samkvæmt áreiðan-
legum heimildiun, að hún liti á lokun Akabaflóa sem styrjaldar-
aögerð og mundi beita öllum tiltækum ráðum, bæði á vettvangi
SÞ og utan þeirra, til þess að berjast gegn lokuninni.
f
WíiWo''"
Frá þessu var skýrt eftir að hið
áreiðanlega blað „A1 Ahram“
Iiafðj skýrt frá, að Eygyptar hefðu
lagt tundurduflum í mynni Akaba
flóa, bannað siglingar olíuskipa
um flóann og komið upp eftirlits-
stöðum til að fylgjast með því að
hergögn eða vörur yrðu ekki flutt
ar til ísraelsku hafnarinnar Ei-
lath við flóann. Heimildirnar
sögðu, að Bandaríkjamenn útilok
uðu ekki valdabeitingu, ef önnur
ráð dygðu ekki.
Samtímis tilkynnti Mekkaút-
varpið, að Feisal konungur hefði
fyrirskipað almennt herútboð í
Saudi-Arabíu, og í Jórdaníu hef-
ur allt varalið hersins verið kall
að út. í kvöld bárust þær fréttir
að Saudi-Arabíuhermenn hefðu
haldið inn í Jórdaníu, en Jórdan
íustjóm hefur heimilað stjórnum
Saudi-Arabíu og íraks að senda
hersveitir inn yfir landamærin. í
Túnisborg var sagt, að Túnisstjórn
styddi Arabalöndin í einu og öllu
ef til styrjaldar kæmi, en stjórnin
telur að hér
sjónarspa að
ekki alvái'a.
sé um etórkostlegt
ræða og Nasser sé
•J§
□ Verður valdi beitt.
í London sagði talsiöaður
brezka varnarmiálaráðuneytisins,
að brezk herskip, sem væm á Mið
jarðarhafi á leið til Bretlánds,
hefðu fengið skipun um að halda
sig á Miðjarðarhafi. Bretar hafa
tvær freigátur, spx tundurdufla-
slæðara, einn kafbát og flugvéla
skipið „Vietorious" á Miðjarðar-
hafi.
Fréttaritari Reuters í Washing-
ton segir að fulltrúar stórveld-
anna, sem hafa ræðzt við í Wash-
ington, aðalstöðvum SÞ í New
York og víðar í dag, hafi fyrst og
fremst áhuga á eftirtöldum atrið-
um:
□ 1. Að senda gæzlusveitir SÞ
aftur að landamærum Egypta-
lands og ísraets.
Framhald á 14. slðu
Þetta kort birtist í spegilmynd í blaðinn í gær, en það sýnir legu fs-\
raelsríkis milli Arabalandanna. Örin bendir á mynni Akabaflóa, sem
Egyptar hafa nú lokað með tundurtuflum.