Alþýðublaðið - 25.06.1967, Qupperneq 3
Sunnudags AlþýSublaðiS
25. júní 1966
3
ÚT í SVEITIRNAR
Frh. af ] síðu.
ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS.
Fyrir svörum varð Snorrj Jóns
son, formaður Málm- og skipa-
smiðasambandsins.
— Land það, sem Ölfusborgir
standa á, er úr svonefndri Reykja
torfu, og er það fengið að leigu
hjá ríkinu. Það er um 20 hekt-
arar að stærð. Þar hafa verið reist
22 hús, sem rúma allt að sex
manns hvert og ei-ga 13 verka-
lýðsfélög innan A.S.Í. húsin, en
þau eru: Alþýðusamb. 1, Starfs-
stúlknafélagið Sókn 1, Trésmiða
félag Reykjavíkur 2, Dagsbrún 3,
Verkakvennafélagið Framsókn 2,
Sveinafélag skipasmiða 1, Verka-
lýðsfélag Akraness 1, Félag af-
greiðslustúlkna í mjólkurbúðum,
A.S.B. 1, Bókbindarafélag íslands
1, Félag islenzkra rafvirkja 3,
Verkamannafélagið Hlíf 1, Félag
járniðnaðarmanna 3, Vörubifreiða
stjórafélagið Þróttur 1, Verzlunar
mannafélag Reykjavíkur 1.
Þess má geta, að húsin eru full
nýtt og langur biðlisti þeirra, sem
vilja fá inni einlivern hluta sum-
ars. Hins vegar vantar talsvert á
að framkvæmdum sé lokið. Næsta
verkefni verður að reisa fleiri or-
lofshús og einnig aðalbyggingu,
sem verður eins konar mi-ðstöð,
sem sér fyrir sameiginlegum þörf
um orlofsgesta, og einnig gisti-
hús. Hugsanlega verða hafnar
fi-amkvæmdir að þeim áfanga í
sumar.
FÉLAG ÍSLENZKRA
SÍMAMANNA.
Símamenn eru engir byrjendur
á þessu svi'ði, enda mun félag
þeirra vera eitt elzta stéttarfélag
opinberra starfsmanna, stofnað
1915. Félagið rekur sumarbústaði
á þremur stöðum á landinu, í
Vaglaskógi, Egilssstaðaskógi og í
Tungudal við ísafjarðarkaupstað.
Voru hús þessi byggð á árunum
1931-34
En nú standa fyrir dyrum stór
framkvæmdir hjá símamönnum
og veitti Guðlaugur Guðjónsson
okkur nánari upplýsingar um þær.
— Vakið var máls á því árið
1963, að tími væri til kominn,,
að símamenn leituðu fyrir sér um
kaup á landi hér sunnanlands
undir sumardvalarstað. Var því
vel tekið, og árangur þeirrar
athugunar leiddi til þess, að 15.
júní 1965 keypti félagið 25 hekt
ara landspildu úr jörðinni Aust-
urey við Apavatn fyrir 325 þús-
und krónur. Framkvæmdir eru
hafnar, búið að girða landið, gróð
ursetning hafin og verið er að
leggja veg. Þá hefur svæðið allt
verið skipulagt og verða reist á
bví fjölskylduhús, smáhús og
stór aðalbygging. Einnig er gert
ráð fyrir bátabryggju, baðstað,
golfvelli, kanttspymuvelli svo og
tennis- og badmintonvöllum, að
ógle.ymdum byggingaleikvelli fyr
ir börn. Gera má ráð fyrir að
byggingaframkvæmdir hefjist inn
an skamms.
LOFTLEIÐIR
Við náðum tali af Ólafi Er-
lendssyni og inntum hann eftir
því, hvort þeir Loftleiðamenn
hefðu eitthvað á prjónunum og
ekki var laust við að svo væri.
— Fyrir nokkrum árum stofn-
uðu starfsmenn Loftleiða á ís-
landi með sér hlutafélag í þeim
tilgangi að koma á fót nokkurs
konar hvildarstað fyrir starfsmenn
félagsins. Var m.a. athugað um
möguleika á suðlægum slóðum
svo sem Kanaríeyjum og Florida.
Niðurstaðan varð þó sú, að félag-
ið festi kaup á 30—40 hektara
landsvæði upp á Kjalarnesi nán-
ar tiltekið úr landi Brautarholts.
Er hugmyndin, að þar geti starfs-
menn notið hressingar og hvíldar
allan ársins hring, þegar annir
starfsins leyfa.
Þarna er ekki ætlunin að fólk
gisti, enda er fyrirmyndin að
væntanlegri starfsemi það sem á
ensku er kallað „country elub“.
Verður reist eitt stórt hús með
setustofum og öðrum nauðsynleg-
um þægindum, en að öðru leyti
lögð höfuðáherzla á gerð útivist-
arsvæða á landareigninni. Þar
verður golfvöllur, knattspyrnu-
völlur, og niður við ströndina er
góð aðstaða til bryggjugerðar í
lítilli vík, sem áður fyrr var not-
uð sem neyðarlending, þegar út-
ræði var frá Kjalamesi. Þannig
geta starfsmenn skroppið uppeft-
ir, hvort sem er á' -sjó eða landi,
þegar tími gefst til.
Nokkur undanfarin ár hafa að-
alfundir Loftleiða gefið fyrr-
greindu hlutafélagi álitlega fjár-
upphæð til þessara starfsemi.
LANDSBANKINN
Eftirfarandi upplýsingar veitti
okkur Þorsteinn Eigilsson:
— Starfsmannafélag Landsbank
ans festi kaup á parti úr Alviðru-
landi við Álftavatn árið 1962, og
mun það vera nálægt' sjö hekt-
arar að flatarmáli. Þá voru keypt
10 innflutt hús frá Finnlandi, og
voru þau sett upp í október sl.
Er nú unnið af kappi við að ganga
þannig frá þeim, að taka megi
þau í notkun.
Að sögn Adolfs Björnssonar í
Útvegsbankanum keyptu starfs-
menn fyrir 15 árum allstórt land-
svæði upp við Lækjarbotna, sem
nú er í lögsagnarumdæmi Kópa-
vogskaupstaðar og er annað af
tveimur eignarlöndum inn kaup-
staðarmarkanna.
Keyptu þeir síðan gamalt hús
í Reykjavík og fluttu það upp eft
ir og hafa bætt talsvert við það,
svo nú geta dvalið þar tvær til
þrjár fjölskyldur samtímis.
SAMBAND ÍSL
SAMVINNUFÉLAGA
Hér gefum við orðið Guðvarði
Kjartanssyni, formanni starfs-
mannafélagi S.Í.S., en þess ber
að geta, að dótturfyrirtækin Olíu-
félagið h.f. og Samvinnutrygging
ar eru utan við það félag.
— Strax við stofnun félagsins
fyrir um það bil þrjátíu árum
var farið að ræða um nauðsyn
þess að koma upp skála fyrir
starfsmenn félagsins, og á þriðja
starfsári var ráðizt í að kaupa
land upp í Skammadal í Mosfells-
sveit. Tilheyrði land þetta áður
jörðinni Reykjum. Þar var síðan
reistur allmyndarlegur skáli, sem
stendur þar enn.
Willy Brandt, utanríkisráðherra Vestur-Þýzkalands, sem hér er í
opirberri heimsókn, ræddi m. a. við ráðherra í grærmorgun. Við
náðum þessari mynd af honum, er hann hitti Gylfa Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, á skrifstofu hans fyrir hádegið.
Þetta er hið myndarlega orlofsheimili, sem prentarar hafa reist í Miðdal, Laugardal.
Ekki hefur verið almenn á-
nægja með skálann og landið, og
því fjallar nú sérstök nefnd um
hugsanleg kaup á öðru landi og
höfum við fengið vilyrði fyrir því,
en á þessu stigi málsins er ekki
rétt að fara frekar út í þá sálma.
OLÍUFÉLAGIÐ H.F.
Laugardalur í Árnessýslu virð-
ist vera eftirsóttur staður undir
sumarbústaði. Aðalsteinn Her-
mannsson tjáði okkur, að þar
hefði Olíufélagið eignazt væna
spildu.
— Starfsmannafélagið keypti
sumarið 1964 bluta af landi Út-
eyjar II. Hér er um að ræða hluta
af Mýrarskógi, og er stærð lands-
ins 22 hektarar. Við höfum flutt
þangað tveggja hæða íbúðarhús
úr Reykjavík, en ætlunin er, að
þarna verði byggð sumarhús og
munu framkvæmdir við þau hefj-
ast næsta sumar.
Olíufélagið hefur styrkt okkur
til kaupánna, svo og til allra fram
kvæmda. Sökum mýrlendis hefur
orðið að grafa mörg hundruð
metra af skurðum, og nú á að
fara að'girða landið, en annars
er verið að skipuleggja svæðið
um þessar mundir.
B. S. R. B.
Að lokum spurðum við Þórð
Hjaltason á skrifstofu Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, hvort
opinberir starfsmenn hefðu fest
sér eitthvert landsvæði undir or-
lofsheimili.
— Hinn fjórtánda febrúar s. 1.
lagði ríkisstjórnin fram gjafabréf
þess efnis, að ríkið gæfi Banda-
laginu hluta af landi Saurbæjar á
Hvalfjarðarströnd. Hugmyndin er
að byggja á landsvæði þessu sum
arbústaði fyrir opinbera starfs-
menn, en framkvæmdir ihafa enn
ekki hafizt.
ALÞÝÐUSAMBAND NORÐUR-
LANDS og IÐJA, Rvík.
Alþýðublaðið hafði ekki sam-
band við forystumenn þessara
samtaka, en getur þó fullyrt, að
þau hafa nú þegar eignast stór,
landsvæði, þar sem ætlunin er
að rísi sumarbústaðir og orlofs-í
heimili fyrir félaga þeirra.
Iðja hefur fest kaup á hinu
forna stórbýli Svignaskarði í Borg
arfirði að tveimur þriðju hlutum,
en talið er, að Múrarafélag Rvík-
ur kaupi einn þriðja hluta jarðar-
innar. Lýkur 'þar með aldalöng-
um búskap á Svignaskarði, sem
eitt sinn látti Snorri Sturluson.
Alþýðusamband Norðurlands
hefur í hyggju að reisa 12 orlofs
heimili þar nyrðra og hefur í
þeim tilgangi keypt jörðina 111-
ugastaði í Fnjóskadal. — Einstök
verkalýðsfélög munu síðan eign-
ast þar bústaði, og er blaðinu
kunnugt um, að Hið ísl. prentara-
félag hefur tryggt sér þar bústað.
Þannig mætti sennilega lengi
halda áfram, en við höfum þenn-
an annál ekki lengri að sinni,
enda ætti hann að nægja til að
sýna þá öru þróun, sem getið var
í upphafi greinarinnar.
ALLT TIL SAUMA