Alþýðublaðið - 25.06.1967, Qupperneq 5
Sunnudags AlþýSubiaSiS
~ 25. jflní 1966
5
(SÚft'licilUfS
(SDSHtO)
Kitstjóri: Benedikt Gröndal. — Kitstjóri Sunnudagsblaðs: Kristján
Bersi Ólafsson. — Símar: 14900—14903. — Auglýsingasími 14906.
Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Keykjavík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Simi 14905. —’ Askriftargjald: kr. 105,00. —• í lausa-
sölu: kr, 7,00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
7/7 hamingju!
UM ÞESSAR mundir hefur verið
rifjað upp, hvernig millilandaflug ís-
lendinga byrjaði fyrir tveimur áratug-
um. Þá var keypt til landsins ein
Skymastervél og þótti mikið fyrirtæki.
Hún reyndist þó upphaf að mikilli
starfsemi, sem í dag veitir mörg
hundruð manns -atvinnu. Flestar þjóð-
ir setja stolt sitt í að eiga flugfélag,
sem ber nafn þeirra til helztu flug-
staða heims, og greiða oft stórfé fyr-
ir. íslendingar eiga tvö flugfélög, sem
hvorugt hefur þurft á opinberri aðstoð
að halda, en starfa á sjálfstæðum
grundvelli.
í gær kom til landsins fyrsta þotan,
sem íslenzku flugfélögin kaupa, Boe-
ingvél Flugfélags íslands. Hún styttir
enn fjarlægðir milli Islands og ann-
arra landa og flytur mikinn fjölda
fólks. Vafalaust mun koma hennar
reynast álíka atburður í flugsögu okk-
ar og kaup Skymastersins fyrir tveim-
ur áratugum. í þeirri von óskar Al-
þýðublaðið Flugfélagi íslands og þjóð-
inni allri til hamingju.
Bókvit
TÆKNISKÓLI ÍSLANDS er ein
af stofnunum framtíðarinnar í þessu
landi. Hann er enn í mótun, en á fyrir
sér mikla framtíð. Við slit skólans
ilutti Bjarni Kristjánsson skólastjóri
ræðu, þar sem hann sagði m. ia.:
„Öll þekkjum við marga spaklega
málshætti forfeðranna. Einn segir, að
ekki verði bókvitið í askana látið. Nú
er öldin önnur, því að í dag ætti máls-
hátturinn að vera: Engin fjárfesting er
bókvitinu arðbærari. Þessi nýi máls-
og askar
háttur byggist meira að segja á um-
fangsmiklum hágfræðilegum athugun-
um. Til þess samt að milda dóm okkar
yfir gömlum málsháttasmið þurfum
við ekki annað en að hugleiða eðlis-
breytinguna á bóklegum fræðum und-
anfarna áratugi. Það ér þess vegna
fullvíst, að.þekkingaröflun ykkar á eft
ir að koma ykkur sjálfum og þjóðfé-
laginu sem heild að gagni — líka nám
ykkar, sem ekki komið öllum einkunn-
um upp í tilskilið lágmark.”
ina, þeir eru annað og meira
vandarnál. En meðfram þeim
þarf smám saman að koma upp
tjaldstöðum eða áningarstöðum,
þar sem hentugt er fyrir ferða-
fólk að hafa viðkomu. Á þessum
stöðum þarf að vera rúmgott
bílastæði, salerni, vatn og helzt
sími. Þar þiirfa að vera allmörg
valin tjaidstæði og ef náttúran
leyfir, svæði þar sem fólk getur
snætt nesti.
í nágrannalöndum hefur mik-
ið verið gert til að koma upp
áningarstöðum sem hér hafa ver
ið nefndir, og þykja þeir ekki
aðeins nauðsynleg heldur sjálf-
sögð þjónusta.
Þiá þarf aö tryggja, að á fögr-
um stöðum sé opið land, sem
ferðafólk megi fara um og leika
sér á. Þetta á til dæmis við staði,
sem éru fagrir af náttúrunnar
(hendi, skógar og kjarr við ár
og vötn, og Sérstaklega við
svæði, þar sem börnin mundu
una sér vel.
Eins þarf hið opinbera að
Ikaupa upp veiðirétt á nokkrum
stöðum í ám og vötnum og leigja
almenningi fyrir þolanlegt verð.
Sums staðar þarf að vernda
náttúrufyrirbrigði, jafnvel stór
svæði. Verður að gera það hér á
landi með fjölda þjóðgarða og
verndaðra svæða. Sum þeirra
eru þess eðlis, að ekkí er rétt
að beina þangað of mikilli um-
ferð fólks, en gera þeim einum
kleift að komast þangað, sem
eitthvað vilja fyrir því hafa og
kunna að meta það, sem vernd-
að er. Aðrir þjóðgarðar gætu
miðazt við mikla umferð og
gegna þá meðal annars því hlut
verki að „hleypa fólkinu á gras“,
eins og það. er stundum kallað.
Garðurinn á Þingvöllum er í
þessum síðari flokki.
Ti.l viðbótar slíkum þjóðgörð-
um þarf að tryggja syæði, sem
ekki er ástæða til að yernda af
náttúrufræðilegum eða söguleg-
um lástæðum, theldur til þess
eins að leyfa almenningi aðgang
að opinni náttúru. Þessi svæði
þurfa að vera í hæfilegri fjar-
lægð frá byggðakjörnum, ef þau
eiga að koma að fullum notum.
íslendingar hafa til skamms
tíma notið þeirrar tilfinningar
að hafa ótakmarkað ferðafrelsi
um stórt og fagurt land. En
þetta er óðum. að breytast. og
á eftir að breytast mjög ört á
komandi árum. Þó er þeirri þró
un blessunarlega styttra komið
hér en í þéttbýlum iðnaðarlönd-
um, þar sem hreint vatn, grænt
gras og ferskt loft eru að verða
lúxus, sem alþýða manna á erf-
itt.að veita sér.
Reynsla annarra ætti að verða
okkur aðvörun. Þess vegna er
rétt. að hefjast nú þegar handa
. og hugsa til langrar framtíðar.
Það er oft hægt með því einu að
setja land (sem tíðum er eign
ríkisins) til hliðar og tryggja,
að ekkert annað verði við það j
gert. Tilkostnaður við slíkar ráð
stafanir er lítill sem enginn — [
en komandi kynslóðir munu
verða þakklátar — og er raunar
ekki að vita nema landið komi
að verulegu gagn þegar eftir 20
-30 ár.
Benedikt Gröndal ritstjóri
skrifar kjallaragreinina í
dag og fjallar hún um hina
vaxandi þörf fólksins í þétt-
býlinu fyrir aðstöðu til að
njóta náttúrunnar.
VERÐTRYGGÐ TÍMABUNDIN LÍFTRYGGING
Dæmi: Hefði'25 ára maður tekið verðtryggða tímabundna líftrygg-
ingu árið 1965 til 15 ára, að grunnupphæð kr. 500.000 gegn grunn-
iðgjaldi kr. 2.550, hefðu tryggingarupphæð og iðgjald orðið sem hér segir:
Ár Aldur Vísitala Ársiðgjald kr. Tryggingar upphæð kr.
1965 25 163 2.550,00 500.000,00
1966 26 175 2.738,00 537.000,00
1967 27 188 2.941,00 577.000.00
VERÐTRYGGÐ STÓRTRYGGING
Dæmi: Hefði 25 ára maður tckið verðtryggða stórtryggingú árið
1965, gcgn griinniðgjaldi kr. 2.000, hefðu tryggingarupphæð og iðgjald
orðið sem hér segir:
Ár Aldur Vísitala Ársiðgjald kr. Tryggingar uppíiæð kr.
1965 25 163 2.000,00 488.000,00
1966 26 175 2. i 47,00 515.000,00
1967 27 188 2.307,00 542.000,00
G1NGARFÉLAG ÍSLANDS HF
, ÍNGÓLFSSTRÆTI 5 — S. 11 700
Gríma fer í leilc
för um
LEIKFÉLAGH) Gríma er nú
aS leggja upp í leiksýning-arferð
út um land. Er hér um að ræða
nýjan þátt í starfsemi Grímu,
þar sem félagiö hefur aldrei áð-
ur staðið að slíkri leikför.
Félagið mun á ferðalaginu
sýna þætti úr leikritinu ,,Ótti og
eymd þriðja ríkisins“, eftir Þjóð
verjann Bertold Brecht. Þættirn-
ir eru þrír og heita: „Gyðingákon
an, Spæjarinn og Krítarkrossinn".
Fjalla þeir allir á mismunandi
hátt um hina þöglu en hörðu and
spyrnu þýzku þjóðarinnar gegn
uppgangi nazistasveita Hitlers.
Þrátt fyrir raunsæjan alvörutón
landið
leikur kímniblær yfir öllum þátt-
Cnum.
Fyrsta sýningin verður á Kirkju
bæjarklaustri á sunnudag, en
síðan verður sýnt í Vík í Mýr-
dal á mánudag, lá Hvolsvelli
þriðjudag og Hveragerði miðviku
dag. Þaðan verður ferðinni hald-
ið norður um land.
Leikstjóri er Erlingur E. Hall-
dórsson, en hann er öllum leiklist
arunnendum vel kunnur, bæði
sem leikstjóri og einnig sem leik
ritahöfundur. Þorsteinn Þorsteins
son þýddi leikritið, en leiksviðs-
mynd gerði Sigurjón Jóhannesson.
Framhald á 13. síðu.