Alþýðublaðið - 06.07.1967, Qupperneq 1
Fimmtudagur 6. júlí 1987 — 48. árg. 149. tbl. — VERÐ 7 KR.
UPPREISN
í KONGÓ?
New York, 5.7. (NTB-Reuter).
STJÓRN Kongó-lýðveldisins
sneri sér í dag tii Öryggis-
ráðsins með' beið'ni um, að innrás
máialiða í Kongó yrði tckin til
umræðu hið allra fyrst. Þessar
fréttir eru hafðar eftir góðum
heimildum í að'albækistöðvum
Sameinuðu þjóðanna í New York
í dag.
í gærkvöldi bárust fréttir um
að Mobutu forseti hafi látið loka
landamærum Kongó og lýst yfir
neyðarástandi i landinu. Hann
ihefur og leitað aðstoðar anna.ra
Afríkuríkja vegna „erlendrar árás
ar“ á austur héruð landsins, en
Mobutu fullyrðir að tvær óþekkt-
ar erlendar flugvélar hafi flutt
erlenda málaliða til Kisangani, og
erlendir landnemar hafa ráðizt á
setulið stjórnarinnar í Bukavu.
Mobutu lýsti þessu yfir í útvarps
ræðu í gær og talaði einungis í
þrjár mínútur.
Utanríkisráðuneytið í Washing-
ton skýrði frá því í gær að upp-
reisnarmenn úr Kongóher hefðu
tekið bæinn Bukavu herskildi und
ir forystu erlendra málaliða, en
ekki er þessi atburður talinn
standa í sambandi við landgöngu
málaliða í Kisangani.
Talið er að þessir síðustu at-
burðir geri enn ólíklegra en ella
að Moise Tsjombe, fyrrum for-
sætisráðberra Kongó, verði fram
seldur til Kongó, en hann situr
nú í fangelsi einliversstaðar í Al-
sír. En ekkert er vitað um hvað
Alsírmenn ætlist fyrir með Tsjom
be.
ísland studdi
S-Am. tillöguné
2NGIN þeirra ályktunartil-
lagna, sem lágu fyrir Allsherj- |
arþingi Sameinuðu þjóðanna ■
og greidd voru atkvæði um í |
fyrrakvöld, hlaut þann 2/3
hluta atkvæða, sem nauðsynleg
ur er til þess að tillaga teljist
samþykkt þar.
ísland greiddi atkvæði með
tillögu Suður-Ameríkuríkj-
anna, en gegn tillögu lilut-
lausu rikjanna, sem Júgóslavía
átti upptökin að. ísland sat
hjá, þegar greidd voru atkvæði
um þá tillögu Pakistana, að
Jerúsalem yrði sett undir al-
þjóðlega yfirstjórn, — en sú
tillaga var samþykkt á þing-
inu. Loks var samþykkt, með
öllum greiddum atkvæðum, til-
laga um aðstoð við flóttamenn
á þessu svæði.
Kísilgúrverksmiðjan tekur til starfa í nóvemben
BYGGINGARKOSTNAÐ-
UR UNDIR ÁÆTLUN
Efri myndin sýnir framkvæmd
ir Kísilgúriðjunnar h.f. við
Mývatn. Á myndinni eru frá
vinstri: Brennarahús, vatns-
hreinsiturn, hráefnisgeymir, •
aðalframleiðsluturn, vöru-
skemma og hús undir skrifstef
ur, mötuneyti og efnafræði-
FRÉTTAMAÐUR Alþýðublaðs-
ins var staddur í Mývatnssveit
fyrir nokkrum dögum og skoðaði
við það tækifæri Kísilgúrverk-
smiðjuna, en framkvæmdir við
hana ganga mjög vel, og niun liún
taka til starfa l. nóvember næst-
komandi.
Pétur Pétursson, framkvæmda-
stjóri Iíísiliðjunnar h.f. og Josepli
Polfer verkfræðingur voru að
sýna forsætisráðherra, Bjarna
Benediktssyni, verksmiðjuna þeg-
ar við komum, en að því loknu
báðum við Pétur að segja okkur
frá gangi framkvæmda hjá Kísil-
iðjunni h.f.
Byggingaframkvæmdir hófust
; árið 1965, þegar ákveðið var að
setja upp dælukerfi, en það var
nauðsynlegt til að fram gætu far
ið frekari rannsóknir á hráefninu.
í fyrrasumar var unnið að öllum
undirstöðum og lokið við bygg-
ingu undir skrifstofur, mötuneyti
og efnafræðistofur. Þá voru einn-
'g byggð í fyrra stór turn og vöru
skemma.
1 apríl s. 1. hófust framkvæmdir
að nýju af fullum krafti, og í sum
ar verður einkum unnið hér á
verksmiðjusvæðinu. Er aðallega
um að ræða ýmiss konar fagvinnu
svo sem járnsmíði, rafsuðu og
geysimikla rafmagnsvinnu.
Samtals starfa nú hér nálægt
100 manns, sem skiptast á mis-
munandi verk. Hér eru t.d. 20
menn frá Iðju á Akureyri við
byggingu húsa fyrir starfsfólk, 20
verkamenn vinna við vatnslagn-
r, en auk þess starfa hér fjöldi
I iðnaðarmanna.
Folfer verkfræðingur, sem er
ábyrgur fyrir uppsetningu allra
tækja skýrði því næst vinnslu
verksmiðjunnar. Hráefninu er
dælt úr vatninu í stóra þró, það
an sem það er tekið, þegar vinnsl
an hefst. Fyrst er leðjan hituð
upp og blönduð brennisteinssýru,
síöan er öllu vatninu náð úr henni
og hún tekin inn í gufuþurrkara,
sem fullþurkar kísilgúrinn. Úr
þurrkaranum fer hann upp í efn-
isgeymslu, þaðan sem honum er
blásið upp í 34 metra háan turn,
en á leiðinni niður úr honum eru
öll óhreinindi hreinsuð burt og
efnið aðskdst. Það sem ekki verð
ur nýtt rennur burt en hitt fer jj
inn í 30 metra langan ofn, sem j
hitar efnið upp í 1400 gráður. A.0 j!
lokum er efnið aðgreint í fjórar 5
tegundir eftir komastærð.
Pétur sagði, að framkvæmdir
gengju mjög vel og væru l.kur fyr
ir því að afköstin yrðu meiri og
Framhald á bls. 14
stofur.
Á myndinni hér ft-rir neðan
eru frá vinstri: Bjarni Bene-
diktsson, forsætisráðherra, Karl
Rolvaag, sendiherra Bandaríkj-
anna á íslandi og Pé . ir Péturs
son, framkvæmdast.óri Kisil-i
iðjunnar h.f. Þeir Bjarní og;
Rolvaag skoðuðu Kí i lgúrverk.
smiðjuna sl. þriðjud- T.
.ftgS'ov