Alþýðublaðið - 06.07.1967, Side 2
Sýning á rússnesk-
um eftirprentunum
í DAG verður opnuð sovézk
málvérkasýning1 í Unuhúsi við
Veghúsastíg. Á sýningunni eru 60
eftirprentanir eftir ýmsa kunna
fiovézka málara, ásamt sýnishorni
af rússneskum listaverkum. Allt
er þetta til sölu við hóflegu veröi.
Ragnar Jónsson í Smára stend-
ur að: sýningunni, en hann keypti
allar myndirnar, þegar hann fór
til Rússlands í vetur. Ragnar fékk
tvö eintök af liverri mynd og er
annað á sýningunni, en hitt gaf
Ragnár í Kjarvalssjóð og verða
þau seld á uppboði innan skamms.
Þegar tíðindamenn komu að
skoða sýninguna, var þar staddur
N. Vazhnov, Ambassador Sovét-
rilkjanna á íslandi og svaraði hann
spurningum þeirra. Kvað hann
ríkja almennan listáhuga í Sovét
ríkjunum. Eftirprentanir á mál-
verkum væru tiltölulega skammt
á veg komnar, en nú væri hafið
stórátak í þeim efnum, til þess
að gera öllum almenningi kleyft
að njóta málaralistarinnar.
Kvaðst hann Ragnari mjög þakk
látur fyrir frumkvæði hans til að
koma sýningunni hér upp.
Reka ekki herinn
burt með hervaldi
Hinn 1. júlí sl. voru starfsmenn Loftleiða á íslandi — aðflugliði meðtölflu — 828. Nokkur aukning verð-
ur jafnan á starfsliði Loftleiða yfir sumarmánuðina og er fjöldi starfsmanna mestur á þeim árstíma,
Frá því á sl. áramótum hafa um 160 nýir starfsmen i komið til Loftleiða. Þar er hundraðstala nemenda
úr framhaldsskólum mjög há, eða um 46%. Munu >umir þeirra halda áfram störfum í haust en aðrir
iiverfa til náms. Meðal nýliðanna að þessu sinni er hópur 10 nýstúdenta, sem starfar nú í hinum ýmsu
de ldum félagsins, og er myndin af þcim.
Moskva, 5/7 (NTB-Reuter) —
Stjórnmálaleiðtogar í Moskvu gáfu
hað i skyn í dag, að þeir reikn-
uðu ekki með því að beita her.
raldi á næstunni í því skyni að
fá ísraelsmenn tii þess að fara
ineð heri sína burt af herteknu
livæðunum.
Aðalritari kommúnistaflokksins,
Lenonid Bresjnev, sagði í ræðu
við hátíðlega atliöfn í Kreml, að
Sovétríkin og Arabaþjóðirnar ættu
f stjórnmálastríði með það mark-
mið fyrir augum, að fá ísraels-
liienn til þess að fara heim með
Jieri sína. Bresjnev hélt ræðuna,
aðeins nokkrum klukkustundum
oftir, að tillögu Sovétmanna liafði
verið hafnað á Allsherjarþinginu,
— en í þeirri tillögu voru ísra-
elsmenn lýstir árásaraðilar. Hann
eagði í ræðunni, að Sovétríkin
fityddu frelsi og samstöðu Araba-
ríkjanna. Við veitum víðtæka að.
fitoð, — bætti hann við
Bresjnev hélt þessa ræðu yfir
nýútskrifuðum sjóliðsforingjum úr
herskólanum í Moskvu. Hann tal-
aði um heimsókn Nikolajs Pod-
gornijs, forseta, til Egyptalands,
Sýrlands og írak, og sagði, að
sú ferð mundi styrkja vináttu-
böndin á milli Sovét og þessara
þjóða og styrkja samstöðu þeirra
í hinu stjórnmálalega stríði í Aust
urlöndum nær.
Hann minntist ekki beint á
vopnasendingar til Egyptalands, —
sem oft hefur verið rætt um, —
en sagði, að Arabar hefðu látið
það í ljósi, hve mjög þeir mætu
aðstoð Sovétríkjanna.
Aðalorsök árásar ísraels á Araba
er að finna hjá bandarískum og
brezkum heimsvaldasinnum, sem
vilja kveða niður allar frelsis-
hreyfingar i Austurlöndum nær.
Aðalatriðið í þessari deilu eru á-
tök heimsveldissinna og þeirra,
sem vilja þjóðfrelsi, lýðræði og
þjóðfélagslegar framfarir, sagði
Bresjnev.
Frá Happdrætti Alþýðublaðsins
DREGIÐ var hjá Borgarfógeta í Reykjavík 23.
júní s. 1. í Happdrætti Alþýðublaðsins.
Vinningar komu á þessi númer:
12144 Flugferð fyrir tvo með þotu Reykjavík
— Kaupmannahöfn — Reykjavík.
28896 Ferð fyrir tvo með skipi til meginlands
Évrópu.
Vinninganna ber að vitja á skrifstofu happ-
drættisins á Hverfisgötu 4. Opið alla virka daga
frá kl. 9—5 nema laugardaga kl. 9—12.
Happdrætti Alþýðublaðsins
VINNA AD MALAMIÐLUN
Helsingfors, 5/7 (NTB-Reuter) —
Sendinefnd’r Finnlands og Sví-
þjóðar á Allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna eru sammála um
það, að bezt sé að útbúa mála.
miðlunartiilögu, sem gæti öðlast
samþykki á Allsherjarþinginu,
sem nú reynir að finna einhverja
Hussein í
Rómaborg
Róm, 5/7 (NTB-Reuter) —
Hussein, konungur Jórdaníu kom
í dag til Rómar frá París til við-
ræðna við Saragat, forseta Ítalíu,
og Pál páfa um málefni Austur-
Ianda nær.
Hussein konungur, sem er á
heimleið frá fundum Allsherjar-
þingsins í New York, mun fá á-
heyrn hjá páfanum á morgun.
BIDAULI
FÆR HÆLI
iausn á deilum Araba og ísra.
elsmanna. Frá þessu var skýrt í
orðsendingu, sem finnska utan-
ríkisráðuneytið, sendi frá sér í
dag.
Sendinefndir þessara tveggja
landa munu vinna að því þar til
í fyrramálið að setja saman mála-
miðlunartillögu, sem von væri til
að fengizt samþykkt á Allsherjar-
þinginu, — svo að allar umræð-
urnar um þessa deilu í Austur-
löndum nær yrðu ekki árangurs-
lausar.
Þegar atkvæði voru greidd um
ályktunartillögurnar, sem lágu
fyrir Allsherjarþinginu í gær-
kvöldi, greiddi Finnland at-
kvæði með því, að stöðu Jerú-
salems mætti ekki breyta með
valdi í tillögunni var einnig gert
ráð fyrir að þjóðir heims lofuðu
að veita þeim, sem fengu að
kenna á styrjöldinni, — ýmis kon
ar mannúðarhjálp. Finnar greiddu
atkvæði gegn þeirri tillögu, að
ísraelsmenn væru fordæmdir sem
árásaraðili og greiddu einnig at.
kvæði gegn tillögu Suður-Ámer-
íkuríkjanna, sem Vesturveldin, —
og einnig Danmörk og Noregur,
greiddu atkvæði með. Svíar
greiddu þessari tillögu ekki at-
kvæði. Finnland og Svíþjóð sátu
hjá, þegar atkvæði voru greidd
um tillögu hlutlausu ríkjanna, —
en Danmörk og Noregur greiddu
atkvæði á móti tillögunni.
SÆMDIR
FRÖNSKUM
ORÐUM
Björn Björnsson sýslu-
maður í Rangárvallasýslu
hefur verið sæmdur franska
heiðursmerkin Chevalier de
TOrdre National du Mérite.
Lúðvík Hjálmtýsson, fram
kvæmdastjóri hefur verið
sæmdur franska heiðurs-
merkinu Officier du Mér.
ite Agrieole.
Belgíska stjórnin hefur raun-
verulega fallizt á að veita George
Bidault, fyrrum forsætisráðherra
Frakkiands, hæli í Beigíu, sem
póiitískum flóttamanni.
Heimildir segja, að franska
stjórnin hafi ekki mótmælt á
nokkurn hátt, að Bidault, sem nú
er 68 ára, fengi hæli í Belgíu. For
mælandi belgísku stjórnarinnar,
sem sagði frá ákvörðuninni, sagði,
að hæli væri veitt með venjuleg-
um skilmálum, — sem sé þeim,
að viðkomandi flóttamaður tæki
ekki þátt í neins konar stjórnmála
starfsemi svo lengi sem hann
dveldist í Belgíu.
Tjöldum öllum
tegundunum í verzluninni
2 6- júlí 1967 —
ALÞÝÐUBLAÐIÐ