Alþýðublaðið - 06.07.1967, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 06.07.1967, Blaðsíða 10
Varúð á vegum Gangandi vegfarendur l/O Þúa,. Jai fa-r- Sífellt fjölgar ökutækjum íhér á landi. Fyrir um það bil 40 árum voru engar bifreiðar hér. í dag eru þær um 40 þús. og þeim fjölgar jafnt og þétt. — Vissulega er gleðilegt að sem flestir geti eignazt ökutæki, en það verða alltaf einhverjir gangandi og þeim mega öku- mennirnir ekki gleyma. /?Í>K Þessi mikla aukning ökutækja krefst aukinnar aðgæzlu gang- andi vegfarenda. Þeir hafa göt- una ekki lengur einir. Á næsta ári vcrður skipt úr vinstri um- ferð yfir í hægri umferð og fyrir þann tíma verða gang- andi vegfarendur að gera sér glögga grein fyrir þeim umferð arreglum, sem þeim ber að fara eftir. Til að geta mætt þeim breytingum, sem verða við skiptin, e'r fyrst og fremst nauðsynlegt að þekkja hinar almennu umferðarreglur. Við verðum að gera okkur ljóst, að akbrautin er fyrir ak- andi umferð, en gangstéttir eða gangvegir meðfram ak- brautum, fyrir hina gangandi. Börn eiga erfiðara en fullorðn- ir með að átta sig á umferð- inni. Þess vegna verðum við, hinir fullorðnu að leiðbeina þeim og vernda þau fyrir hætt- um, sem að steðja. Einnig þeir, sem aldraðir eru, eiga erfitt með að átta sig í umferðinni. Ofurlítil hjálp frá hinum yngri vegfarendum mundi gera allt svo miklu auð veldara. Guli borðinn með svörtu depl- unum, er merki hinna sjón- döpru í umferðinni. Aðstoðið þetta fólk yfir akbrautina. Sjá- ið um að það fari aldrei út á akbrautina ,ef rautt ljós er, eða orðið „BÍÐIГ stendur á umferðarljósinu. Endurskinið er okkur vörn í myrkrinu. Ökumennimir koma miklu fyrr auga á okkur. Marg ar gerðir eru til af endurskins- merkjum, svo sem endurskins- ibörði, sem saumaður er fastur á flíkurnar, endurskinsarm- borðar og endurskinsplötur. — Munið að setja endurskinið eins neðarlega á föt yðar og hægt er. Það er afar vandasamt að hjóla eða aka vélhjóli í um- ferðinni. Oftast eru það ungl- ingar, sem lenda í slysum á þesssum farartækjum. Sérstak lega er varasamt að aka þess- um tækjum í myrkri. Áður en lagt er af stað, verður viðkom- andi að fullvissa sig um, að bæði fram- og afturljós séu í góðu lagi, að ljósaglerin og endurskinið sé hreint. Góð var- úðarráðstöfun er að setja end ursinsband um báða úlnliði, það auðveldar öðrum ökumönn um að sjá þau merki, sem hjól reiðamaðurinn kann að gefa. Á því tímabili sem eftir er, þar til breytt verður yfir í hægri umferð, skulum við reyna að læra vel umferðarregl urnar og fara eftir þeim. Þeim mun betur sem við erum að okkur í reglum vinstri umferð ar, því auðveldara verður fyrir okkur að skipta. Geimfari Pramhald af bls. S. inn að kynnast Thorne, því hann er mikill stangveiðimað- ur, og ég fékk þannig tækifæri til að fara með honum á veið- ar. Við fórum í fjölda veiði- ferða á’samt Pétri Guðmunds- syni, flugvallarstjóra, m. a. í Norðurá, að Kirkjubæjar- klaustri og alls staðar í ná- grenni Reykjavíkur. Síðan eru stangveiðar mitt eftirlætis tómstundagaman. — Að lokinni dvöl minni hér á íslandi, fór ég til Kali- forníu og hóf þar nám í kjarn- orkuverkfræði jafnframt flug mannsstarfinu. Síðan fór ég til New Mexico og vann í kjarn- orkuveri, einkum að rannsókn- um á vörnum gegn geimgeisl- tiltekið árið 1963, var ég val- inn til geimferðaþjálfunar. — Jafnframt þeirri þjálfun vann ég áfram að vörnum gegn geim geislun. — í september í fyrra var ég svo, á'samt Neil Armstrong, valinn í varaáhöfn fyrir Ge- mini 11, en það er regla að hafa tiltæka aukaáhöfn, ef skipta þarf um menn á síðust'u stundu. — Við gerum ráð fyrir því, að næsta geimferð eigi sér stað á' fyrsta ársfjórðungi árs- ins 1968, en um framhaldið er ekkert hægt að segja að svo stöddu. Hvað sjálfum mér við- víkur, þá vonast ég til að kom- ast hið allra fyrsta í geimferð, en hvenær það verður get ég engu um spáð. — Nei, konan mín hafði ekk ert, á móti því að ég tók þessu starfi. Hún gerir sér grein fyr- r því, að ég er ánægður með starf mitt og það er henni nægilegt. Þetta er eins og hvað annað, sem maður tekur sér fyrir hendur, því betur sem þú kynnist því, þeim mun minni áhyggjum veldur það þér. — Ætli erfiðasta raunin á þjálfunartíma mínum hafi ekki verið að fara ríðandi á múlasna upp Colorado-gljúfr- ið! Mér er sennilega ekki gef- inn hæfileiki til að fara í lang ferðir á baki múlasna. En ef satt skal segja, þá var þjálf- unin vegna geimferðar Gemini 11 langerfiðust. Þjálfun undir geimferð er 24 stunda vinna á sólarhring — og engar laxveið- ar! — Það kæmi mér á óvart, ef Rússar yrðu á undan okkur til tunglsins. Við keppum að því að verða þangað fyrstir, en við munum samt beita kappi með forsjá svo ekki hljótist tjón af í framtíðinni. — Dvölin á Islandi hefur verið mér mjög ánægjuleg. Ég hefði bara viljað geta tekið konuna mína með mér hingað, en vonandi gefst tækifæri til þess síðar. — Ferðin hefur verið ákaf- lega vel heppnuð fram að þessu og ég hlakka til að sjá Surtsey og komast í veiði sunn anlands. Reyndar þurfti ég ekki að koma hingað að þessu sinni, þar sem ég kom með fyrsta geimfarahópnum til ís- lands árið 1965 og kunni þess vegna öll svörin við þeim gát- um, sem leysa átti í Öskju. Ég skrapp því í fjallgöngu á með- an félagar mínir brutu heil- ann um jarðfræði Öskjusvæðis ins.. Þegar hér var komið rabbi okkar Anders, birtust nokkrir félagar hans og spurðu hann, hvorf hann ætlaði ekki að skreppa með þeim í bæinn. Ég stóð því upp og þakkaði hon- um fyrir auðsýnda þolinmæði og .óskaði honum góðrar veiði í Veiðivötnum. Hann spurði þá hvort við blaðamenn færum ekki með þeim um Suðurland. Varð mér þá að orði hvort þeir hefðu ekki horn í síðu blaða- sná’pa, sem eltu þá á röndum hvert sem þeir færu. — Okkur hefur samið ágæt lega við ykkur og • höfum því ekki yfir neinu að kvarta. — Sums staðar eru þeir að vísu eins og mývargur, en mývarg- urinn er það eina, sem hefur valdið mér óþægindum á ís- landi. Farfugiinn Frh. af 5. síðu. báðir þessir fundir voru haldnir 10. apríl síðastliðinn. Þá er einn- ig sagt frá alþjóðamóti Farfugla 1967, sem fer fram i Kaupmanna- höfn dagana 4.-6. ágúst. Þá birtist í Farfuglinum ferða- áætlun Farfugla 1967, þar eru á skrá 22 helgarferðir og tvær lengri sumarleyfisferðir. Fyrri sumarleyfisferðin verður farin í júlí, í Arnarfell hið mikla og Vonarskarð, en sú seinni í ágúst, austur í Öræfasveit'. Af öðru efní Farfuglsins má nefna blómaþátt sem Ólafur Björn Guðmundsson skrifar, leiðarlýs- ingu á Heklutind eftir Ragnar Guðmundsson, grein um þing- eyska skíðasleðann eftir Sigurjón Rist og annál um eldgos á' ís- landi 1901-1967 eftir Gest' Guð- finnsson. Khartoum NTB-Reuter) F.JÓRTÁN manns hafa látið líf- ið í kynflokkabardögum í tveim héruðum í suðvestur Súdan, að því er Súdanstjórn sagði í dag. — o — Moskva (NTB-Tass) AÐALRITARI miðstjórnar tékk- neáka kommúnistaflokksihs og forseti landsins, Antonin Novot- ny, komu í dag í frí til Sovétríkj- anna. Bresnjev, aðalhiljiri sovi ézka kommúnistaflokksins, tók á móti Novotny á flugvellinum. — o — Londan (NTB-Reuter) MÁLVERK eftir ítalska málar- ann, Canaletto, var selt í dag fyr ir 100.000 pund á uppboði í Lon- don. Það er helmingi hærra verð en nokkru sinni hefur verið greitt fyrir málverk þessa málara. un. — Á meðan ég var að störf- Ef þér eigið bíl þurfið þér einnig að eiga gott tjald, nefnilega pólskt tjald 10 6- júlí 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.