Alþýðublaðið - 07.07.1967, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 07.07.1967, Qupperneq 10
KAUPGREIÐANDI ABYRGUR Minnmgarorö: Albert Guðmundsson FYRIR SKÖTTUM STARFSFÓLKS NÝLEGA hefur í fógetarétti Reykjavíkur verið kveðinn upp úrskurður í lögtaksmáli, er höfðað vax á hendur kaupgreiðanda, sem vanrækt hafði að tilkynna Gjald- -iheimtunni um starfsmann, er ■hann hafði ráðið til vinnu og lát- ið hjá líða að halda eftir af kaupi hans. Þykir rétt að vekja athygli á úrskurði þessum í því skyni, að þeir aðilgr, sem hlut eiga að máli, geri sér ljósar þær reglur, sem hér um gilda. Atvik málsins eru í aðalatriðum þau, að útgerðarmaður einn hér í borg réði til sín matsvein um tveggja mánaða skeið á vorvertíð 1966. Hvorki var Gjaldheimtunni tilkynnt um ráðningu manns þessa né heldur um það, hvenær hann lét af störfum, en þá nam skuld gjaldandans við Gjaldheimtuna 1964-1966 kr. 42.025,00. Árang- urslaust lögtak var gert hjá gjald anda sjálfum þ, 3. okt. 1966. Upp úr áramótum s. 1., er fram- töl lágu fyrir, var Skattstofa Reykjavíkur beðin um upplýsing- ar um eignir mannsins og tekjur á lárinu 1966 og kom þá fram, að gjaldandinn var eignalaus og að aðallaunagreiðandi hans á árinu Í966 var fyrrgreindur útgerðar- maður, sem hafði greitt fhonum kr. 42.400,00 í vinnulaun • fyrir starf hans. Með bréfi, dags. 24. apríl >s. 1., krafði Gjaldheimtan útgerðar- manninn um kr. 25.000,00, sém hún taldi hann hafa átt að halda eftir af launum þessa starfsmanns á árinu 1966. Útgerðarmaðurinn mótmælti kröfunni, en Gjaldheimtan krafð- ist lögtaks og var málið tekið til úrskurðar í fógetarétti þ. 26. júní s. 1. í úrskurði fógeta segir svo, m.a.: . Gjaldheimtan í Reykjavík tók itil starfa 1. sept. 1962 og féllu þá til hennar allar skyldur, sem innheimtumönnum ríkissjóðs, sveitarsjóða og opinberra stofnana eru lagðar á herðar lögum samkv., svo og allar heimildir, sem þeim eru veittar til þess að framfylgja gjaldheimtunni. Með ofannefndum lögum og reglugerð kemur fram ótvíræður vilji löggjafans um það að sam- ræma reglur þær og ákvæði, er gilda um innheimtu allra þeirra gjalda, er Gjaldheimtan í Reykja vík innheimtir skv. innheimtu- seðli. Þessi gjöld eru nú sextán að tölu, þ.e.a.s. tekjuskattur, eignaskattur, námsbókagjald, kirkjugjald, lífeyrissjóðsgjald, slysatryggingagjald, iðnlánasjóðs- gjald, alm. tryggingasjóðsgjald, tekjuútsvar, eignarútsvar, að stöðugj ald, atvinnuleysistrygginga gjald, kirkjugarðsgjald, launa- skattur, sjúkrasamlagsgjald, ið- naðargjald. Ennfremur leggur lög gjafinn laungreiðendum þær skyldur á herðar, að þeir ábyrg- ist þessi gjöld launþega sinna sem um þeirra eigin gjöld væri að ræða, þó í vissu hlutfalli við launagreiðslur þær, er þeir inna af hendi, að því er eftirstöðvar skattskulda varðar. — Jafnframt veitir löggjafinn launagreiðendum þær heimildir, að þeir megi halda Þftir ákveðnum hluta greiddra launa til þess að standa undir þessum skyldum sínum. Ekki verð ur séð að það hafi nein áhrif á þessar skyldur launagreiðenda, þótt þeir notfæri sér ekki þessa heimild sína. Þessi skylda launa- greiðenda er ekki véfengd í máli þessu, heldur aðeins hversu langt hún nær og hvort ihún nær til allra þeirra gjalda, sem tilgreind eru á gjaldheimtuseðlinum. Líta verður svo á, að sá vilji löggjaf- ans komi ótvírætt í ljós í ofan- nefndum lögum og reglugerðum, að hún nái jafnt til allra þeirra AMERÍSKI milljónamærings sonurinn Theodre Gunter fórn aði milljónaarfi til þess að geta gifzt æskuást sinni, hinni tvítugu Christinu Frangeskou, dóttur leigubílstjóra frá Kýp- ur, — en faðir hennar var áð- ur einkabílstjóri Guntersfjöl. skyldunnar. Guntershjónin voru svo andvíg ráðahagnum, að þau gerðu soninn arflaus- an. '10 7- J'úlí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ gjalda, er tilgreind eru á gjald- heimtuseðlinum. Og skv. f.-lið 4 gr. regiug. nr. 95, 1962, skal hald- ið eftir % af því kaupi, sem til út borgunar á að koma hverju sinni hjá gjaldanda, sem ekki hefur fyrir heimili að sjá, sé um eftir- stöðvar að ræða. Verður ekki ann að séð, en mál þetta falli fullkom lega undir þennan lið. Þá er enn fremur sú skylda lögð á herðar launagreiðenda, að þeir tilkynni innheimtumönnum um það, er gjaldendur hefja vinnu hjá þeim og einnig er þeir hætta vinnu. Þessa skyldu sína hefur gerðar- þóli í máli þessu algjörlega van- rækt, enda þótt honum ætti að vera kunnugt um hana vegna til- kynninga þeirra og auglýsinga, er Gjaldheimtan í Reykjavík hefur látið frá sér fara til hvers ein- sta'ks gjaldanda og þeirra allra sameiginlega. Skv. launamiða þeim, er gerðarþoli sendi skatt- stofunni í Rvík. um greiðslur sín- ar á vinnulaunum og orlofsfé, greiddi hann starfsmanni sínum samtals kr.42.400.-. Að þessu at- huguðu verður að telja, að krafa Gjaldheimtunnar í Rvík um á- byrgð gerðarþola og skyldu til þess að greiða til hennar upp í ógreidd gjöld starfsmannsins kr. 25.000,00 hafi fulla stoð í lögum. Ennfremur verður að líta svo á, að krafa gerðarbeiðanda um dráttarvexti eigi sér stoð í lögum. Skv. 10. gr. reglug. nr. 95, 1962 má Framhald á bls. 14. Þðkkarávarp ÞÖKK, — þökk, — þökk. Já, ástúðarþakkir færi ég ykkur öll- um vinum mínum, börnum, vandamönnum og samstarfs- mönnum, sem glödduð mig og veittuð mér blessun ykkar á 75 ára aldursmarki mínu. Þó ég nefni engin nöfn, eiga allir óskiptar þakkir mínar, en samstarfsfélögum mínum hjá Rafveitu Hafnarfjarðar, færi ég þó sérstakar þakkir, fyrir hina ihöfðinglegu gjöf þeirra, er þeir skrýddu úlnlið minn með gull- úri með ósk um að ég bæri það með góðri heilsu til hárrar elli. Þakkir mínar til ykkar allra og þjóðar vorrar færi ég í bæn- inni: Drottinn, ó, Drottinn, lát þú ljós þitt lýsa, landið yfir elds og ísa, inn í sérhvern bæ. Þitt kærleiks ljós í hjarta oss hýsa. — Herra, svo megnum við villtum vísa veginn, — yfir land og sæ. Hafnarfirði, júlí 1967. Kristján Dýrfjörð'. Sveinseyri, TáiknafirSi í DAG er til moldar borinn að Stóra-Laugardals- kirkju, Albert Guðmundsson frá Eyrarhúsum í Tálknafirði. Hann var sonur merkishjónanna Guð- mundar Jónssonar, bónda og kaupfélagsstjóra að Sveinseyri í sem lézt 1954 og Guðríðar Guð- munQsdóttur frá Selárdal í Arn arfirði, sem lézt háöldruð í sjúkradeild Hrafnistu 4. þ.m. og fylgjast þau að til 'hinztu hvíld ar. Albert var- eitt af sjö börn um !geirra hjóna fæddur 5. 11. 1909 á Sveinseyri. Með honum er fallinn frá stórvirkur og fram- sýnif^athafnamaður. Árið 1938 giftist. hann eftirlifandi konu sinni^ Steinunni Finnbogadótt- ur, Finnboga Guðmúndssonar frá Sírossadal og Helgu Guð- muridsdóttur konu hans. Þau eigá fósturdóttur, Ólöfu Ester Kai3|dóttur, sem er gift Braga Friðíinnssyni, rafvirkja í Rejdcjavík, og Vilhjálm Auðunn, senr er í foreldrahúsum. Árið 19 29 ifór Albert í Samvinnuskól- ann. Eftir að námi lauk, starf- aði-lann við Kaupfélag Tálkna fjarðár hjá föður sínum, ásamt öðrúm störfum, og árið 1938 tók hann við stjórn þess og var kaup félagsstjóri til æviloka. Er heimsstyrjöldin geysaði og lífs- FRANSKA kvikmyndaleik- konan Paseale Petit meiddi sig illilega, þegar hún var að leika sér í leyfi í ítölsku ölpunum hér á dögunum. Og nú geng ur hún við hækjur, — en hvað fer ekki svona fallegum stúlk um vel? skilyrði fóru að breytast hér á landi með breyttum atvinnuhátt um varð Albert það fljótt ljóst, að atvinnuskilyrði í Tálknafirði yrðu að breyiast, ef fólkið ætti ekki að þurfa að flytjast burtu þaðan. Gekkst hann þá fyrir því ásamt fleirum, að efnt var til stofnunar hlutafélags, sem nefnt var Hraðfrystihús Tálkna- fjarðar. í Tálknafirði var ekki annað fyrir vinnufúsar hend- Albert Guðmundsson. ur, allt varð að reisa frá grunni. Var fyrst 'hafizt handa á bygg-. ingu hraðfrystihúss ásamt bryggju og keyptur var einn bát ur, 28 brútLu.es.ir. Þegar komin voru skilyrði til afsetningar á fiskinum keyptu nokkrir fram- takssamir menn, annan bát a£ svipaðri stærð. Var þetta látið duga fyrst í stað, en þegar byrj að var á uppbyggingu bátaflot- ans, stóð ekki á Albert að fylgj ast með. Árið 1956 kom nýr 66 brúttólesta bútur. 1957 75.1esta bátur, 1960 100 lesta bátur og 19 62 150 lesta bátur. Árið 1957 varð það óhapp, að Hraðfrysti- húsið brann. Var þá annað byggt miklu stærra og fullkomn ara. Á þessum árum var bryggj an stækkuð svo, að öll flutninga skip geta nú lagzt að henni. Alls konar byggingaframkvæmd ir voru g. em við koma svona rekstri, ásamt íbúðarhúsa byggingum, svo að nú er lagður grundvöllur ~að þarna rísi upp myndarlegt þorp. Allar þessar framkvæmdir hvíldu að segja má eingöngu á hans herðum, og nærri má geta, að til hafi þurft þrautseigju og festu ásamt fram sýni, þar sem í hlut átti í það minnsta fyrst í stað fltækt sveit arfélag, en Albert tókst með sín um traustvekjandi eiginleikum að afla sér góðra stuðnings- manna. Árið 1960 veiktist hann af mjög slæmum sjúkdómi, svo að síðan gekk hann aldrei heill til skógar og hafa nú dregið að því sem orðið er. Öll hans starfs orka, allt fram á síðustu stund hefur farið í að vinna að fram gangi Tálknafjarðai*. Nú síðasta var staðið í ekki hvað minnstu Framhald á bls. 14.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.