Alþýðublaðið - 18.07.1967, Síða 3
6 keppendur á
svifflugmótinu
UM þessar mundir stendur yfir
svifflugmót íslands, að Hellu á
Rangárvöllum. Var mótið sett á
laugardaginn, en fyrsti keppnis-
dagurinn var i gær. Á mótinu eru
6 keppendur og keppa þeir um tit
ilinn ,,íslandsmeistari í svifflugi".
Þetta er í þriðja sinn, sem íslands
mót er haldið í þessari grein.
Fyrsta mótið var haldið árið 1958,
en öll mótin hafa verið haldin að
Hellu.
Flugmáiafélag íslands stendur
að rnótinu, en það er félag, sem
flugáhugamenn hafa stofnað, til
þess að kynna og efla flugmál hér
lendis. Þá hefur félagið beitt sér
fyrir frömun flugíþrótta, svifflugs,
fallhlífastökks, vélflugs og módel-
flugs og hefur staðið fyrir keppn
um í þessum greinum. Flugmálafé
lag íslands er aðili að Alþjóðasam
bandi flugmálafélaga, F.A.Í., og
’hefur tekið virkan þátt í störfum
þess.
Mikill áhugi er fyrir flugíþrótt-
um hérlendis og er svifflugið vin-
sælast. Hafa íslenzkir svifflugs-
menn tvisvar tekið þátt í lieims-
meistarakeppni í svifflugi, árið
1960 í Köln í Þýzkalandi og 1965
í Bretlandi. í vélflugi er ihaldið
mót annað hvert ár og keppt um
veglegan bikar, sem olíufélagið
Skeljungur hefur gefið, og hópur
fallhlífastökksmanna hefur um
nokkurn tíma stundað æfingar í
fallhlífarstökki úti á Keflavíkur-
flugvelli, Um þessar mundir tekur
einn íslendingur þátt í fallhlífar-
stökksmóti á Norðurlöndum.
! Engar keppnir hafa verið haldn
I ar í módelflugi, en samt eru all-
Framhald á bls. 15.
íý/íííí
Tekur fyrir útflutning
íslenzkra osta til USA?
Jöhnson Bandaríkjaforseti gaf
hinn 30. júní síðastliðinn út til-
skipun um, að stórlega skyldi
dregið úr innflutningi ýmissa
mjólkurafurða, svo sem osta,
smjörs o.fl., að því er bandaríska
stórblaðið New York Times herm
StúKka drukknar
SÁ hörmulegi atburður varð á
Neskaupstað s 1. föstudag, að 6
ára gömul stúlka, Kristín Ingólfs-
dóttir, drukknaði í sundlaug stað
arins.
Kristín hafði farið með nokkr-
um vinstúlkum sínum í laugina
Frh. á 14. síðu.
ir. Snertir þetta okkur íslendinga
allmjög, þar sem við höfum flutt
út mikið af osti til Bandaríkj-
anna á betra verði, en við höfum
fengið annarsstaðar. Benda nú
allar líkur til að við verðum að
leit nýrra markaða fyrir ostinn
okkar, en þessi ostútflutningur er
stór liður í landbúnaðarútflutn-
ingi okkar.
Ástæða fyrir ákvörðun Banda-
ríkaforseta er hin megna óánægja,
sem mikið hefur borið á meðal
bandarískra bænda undanfarið
vegna mikils innflutnings á ýms-
um landbúnaðarvörum til Banda-
ríkjanna, sem hafa veitt þeim
harða samkeppni um markaðinn.
Hafa fulltrúar landbúnaðarfylkj-
anna í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings lengi haldið uppi harðri
baráttu fyrir heftingu þessa inn-
flutnings og nú fengið sitt mál
fram.
Ostaútflutningur okkar til
Bandaríkjanna hefur staðið í 3
ár, en 'áður voru V.Þýzkaland og
England helztu ostkaupendur okk
ar. Svo sem fyrr segir er þessi ost
útflutningur allstór hluti af heiíd
arútflutningi okkar af landbúnað
arafurðum og er það meinlegt að
verða fyrir skakkaföllum á þess
um vettvangi því að nóg eru
vandamál landbúnaðarins fyrir,
að ekki fari að bætast við.
Dýrbítur gerir usla
i Biskupstungum i
Heilu hverfin þjóta upp
Nú er sá tími, þegar unnið er
af hvað mestu kappi að íbúða-
byggingum um land allt. Á með-
fylgjandi myndum getur að líta
tvö ný íbúðahverfi, Fossvogs-
hverfið sunnan Bústaðavegar og
Strandahverfið í Mýrarhúsa-
landi á Seltjarnarnesi.
Eins og myndin sýnir ganga
byggingaframkvæmdir í Foss-
vogi greiðlega, og þegar litið
er af Nýbýlavegi í Kópavogi yf-
ir dalinn, fæst góð heildarmynd
af þessari nýlendu Reykvíkinga.
í dag er að vísu ekki annað að
sjá en gráa steinkumbalda og
moldarflög, en áður en langt
um liður verða þarna grasi vax
nar flatir og litskrúðug hús,—
Þetta nýja hverfi mun síðan
vaxa í austurátt, því að svo er
ráð fyrir gert, að á næsta ári
verði úthlutað lóðum undir 253
íbúðir í austari hluta Fossvogs.
Á þeim lóðum er reiknað með
48 einbýlishúsum, 151 raðhúsi
og lóðum undir fjölbýlishús
með samtals 54 íbúðum.
Það verður ekki með sanni
sagt, að grannar okkar á Sel-
tjarnarnesi hugsi smátt þessa
dagana. Þar er mikið byggt og
stórt. Mestu byggingarfram-
kvæmdirnar á Nesinu um þess-
ar mundir eiga sér stað í landi
Mýrarhúsa og þar er að rísa
glæilegts hverfi einbýlis- og rað
húsa, svokallaðar strandir. —
Þarna verður útsýni fagurt' til
sjávar með Esjuna í bakgrunn.
Byggingarframkvæmdir hófust
í fyrra og er nú unnið við tvær
götur, Látraströnd og Barða-
strönd. Við Látraströnd verða
10 einbýlishús og 25 raðhús, en
við Barðaströnd 10 einbýlishús
og 18 raðhús. Nú þegar hefur
Frh. á 14. síðu.
SLÁTTUPk. er mi hafinn í Bisk-
upstungum. Ekki er það þó þar
fyrir, að hændur telji tún sín
fullsprottin, því að spretta hefur
verið með afbrigðum léleg, heldur
EKIÐ Á
BARNAVAGN
KL. 13,30 ók ieigubíll aftur á
bak á bartiavagn, sem stóð fyrir
utan Garðs-Apótek; barnavagninn
skemmdist mikið, en barn, sem í
lionum var, sakaði ekki. Farið
var með það á Slysavarðstofuna
til rannsóknar í öryggisskyni.
vilja menn nota brakandi þerr-
inn, sem verið hefur undanfarið.
Jafnaðarlega hefja bændur í
Biskupstungum slátt þremur vik-
um fyrr en nú er gert, en sumarið
hefur komið óvenju seint og tún-
in verið lengi að jafna sig eftir
kalskemmdir vetrarins. .
Nú um helgina lauk rúningu
víðast hvar og er það einnig 3
vikum seinna en vant er. Þegar
smalað var til rúnings urðu
bændur varir við dýrbít og fund-
ust 3 kindur bitnar til dauðs.
Þóttust menn þar kenna á vegs-
ummerkjum gamlan ref, sem í
fyrra sumar gerði bændum illa
grikki án þess að til hans næðist.
Ekkert gren hefur unnist í vor,
enda á Skolli gott til varnar í
hraununum þar eystra, þar sem
nóg er góðra felustaða, en yfir-
ferð erfið mönnum.
18. júlí 1967 - ALÞYÐUBLAÐHD 3