Alþýðublaðið - 18.07.1967, Side 5

Alþýðublaðið - 18.07.1967, Side 5
VALASH Lisíi yfir ferðabækur 18. júlí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ g BORGARBÓKASAFN Reykja- víkur hefur sent frá sér bóka- lista nr. 2 1967 um nýjar bæk- ur sem skráðar hafa verið í safn- inu síðan listi nr. 1 kom út í apríl síðastliðnum. Á þessum lista eru 644 bókatitlar, og eru skáldrit á ensku stærsti í'lokk- urinn, 121 bókartitill. Næst koma skáldrit á dönsku, 72 titl- ar, sagnfræði 49, skáldrit á sænsku, 48. Ævisögur 44, landa- fræði og ferðir, 39. Náttúrufræði 32 og íþróttir og leikir 30 titlar. Bókalistar Borgarbókasafnsins liggja frammi í útlánsstöðum safnsins í borginni frjálsir öll- um sem hafa vilja. Þá hefurBorgarbókasafnið og gefið út lista yfir nýlegri ferða- og landafræðibækur um Evrópu- lönd, sem til eru í safninu. Er þetta einkum gert til hægðar- auka þeim, sem ferðast ætla til þessara landa og óska að auka þekkingu sína á þeim og þjóðum þeirra, áður en þeir leggja upp í ferðalagið. Bæklingurinn liggur frammi í bókasafninu sem og ferðaskrif- stofum borgarinnar. áycífsiÐ í AlþýðublaðiiHi MAivoIN að ofan er ekki af nýrri flugstöð úti í heimi, heldur er þetta Umíerðamiðstöðin í Reykjavík. Sú bygging hefur verið lengi í smíðum og stóð þó lengst á þessum mikla glugga, sem er raunar^öll suðurhlið hússins. etta er glæsilegt að utan og sjálfsagt verg- ur afgreiðslusalurinn skemmtilegur, þótt heitt kunni stundum að vérða þar í sólinni. Umferðamiðstöðin hefur orðið farþegum lang- leiðabíla til mikilla þæginda og á Iþó eftir að njóta sín enn betur þegar frá líður og allt verður í hana komið, sem þar á að verða ungir velja Ungtemplarar fagna æskulýðslöggjöf NÍunda ársþing íslenzkra ung- templara var haldið á Sjglufirði dagana 30. júní til 2. júlí s. 1. Þingið sóttu um 30 fulltrúar frá ungtemplarafélögum víðs vegar af landinu, auk stjórnar og nefndarformanna samtakanna. Forseti þingsins var kjörinn Gunnar Lórenzson Akureyrt og ritarar Valur Óskarsson Hafnar- firðj og Brynjar Valdimarsson Kópavogi. Við þingsetningu fluttu ávörp og kveðjur séra Ragnar Fjalar Lárusson og Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri á Akureyri, en erindi á þinginu flutti Ólafur Ragnars- son, fulltrúi. Þá ávarpaði þing- fulltrúa í hófi, sem deildin á Siglufirði efndi til, bæjarstjóri Siglufjarðar, Stefán Friðbjarn- arson. ★ 1200 félagsmenn. í skýrslu stjórnar íslenzkra ungtemplara, sem formaður sam takanna, Einar Hannesson, flutti, kom fram að mikil gróska hef- ur yerið í starfseminni á liðnu starfsári. Stofnaðar hafa verið fjórar nýjar deildir á Akureyri, í Kópavogi, Keflavík og á Akra- nesi. — Mcð tilkomu þessara deilda, verða aðildarfélög ÍUT 14 talsins með samtals um 1200 félagsmenn. Framhald á bls. 15. merkisstaða m. a. í Rósadalinn en Búlgaría er víðfræg fyrir rósa rækt og framieiðslu ilmvatna og rósaolíu. Heimsótt verða göm- ul klaustur og aðrar fornar byggingar, ennfremur litazt um í teppavefnaðarbænum Kotel, á vínekrubúum og samyrkjubú- um. Þar að auki eru skipulagðar á hverjum degi sjö daga hring- ferð um Búlgaríu, eins dags ferð til Mamaia í Rúmeníu, tveggja daga ferð til Búkarest, eins dags ferð til Búkarest, eins dags ferð til Odessa, eins og hálfs dags ferð til Istanbul og flugferð. til Aþenu og Egyptalands. Þessar Búlgaríuferðir eru hópferðir með íslenzkum fararstjórum. Svo ráðgerum við ferð til Rússlands á 50 ára byltingaraf- mælið, sagði Kjartan, flogið^ verður héðan til Helsinki 28. okt. og komið heim 18. nóv. og á þeim tíma verður farið suður í sólskinið í Kákasus. Svo eru Eystrasaltsfcrðir, ein sténdur yfir, hópurinn kemur aftur 26. júlí og Hallgrímur Jónasson er F’-h á bls 15 Ferðaskrifstofan' Landsýn hef ur að undanförnu auglýst ferðir til Búlgaríu og fleiri landa. Því sneri blaðamaður Alþýðublaðs- ins sér til Kjartans Helgasonar, forstjóra Landsýnar og spurðist fyrir um það, hvernig Búlgaríu ferðunum væri háttað og hvað helzt væri að sjá í því vísa landi. Kjartan sagði að fyrsta ferðin í sumar yrði farin 31. júlí hinar síðari 21. ágúst og 4. og 11. sept ember. Flogið er frá Keflavík til Kaupmannahafnar og stanzað þar tæpan sólarhring, og því næst flogið til Sofíu og farið þaðan til sólbaðstrandarinnar Slanjev Brjag og dvalizt þar á tveimur hótelum í grenndinni. Þetta er aðallega baðstrandar- ferð og gert ráð fyrir að dval- izt verði um hálfan mánuð á ströndinni. Þar er hægt að una við ýmiss konar leiki og skemmt anir, margvíslegir skemmtikraft- ar koma fram, dansleikir verða og sýnd verður þjóðleg list og skrautsýningar. Auk þess er efnt til eins og tveggja daga skoðun- arferða til nálægru borga og

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.