Alþýðublaðið - 18.07.1967, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 18.07.1967, Qupperneq 8
VAR GIFI OG A ÞAÐ vakti mikla athygli, þegar það fréttist, að ítalska kvikmynda leikkonan Claudia Cardinale ætti son og væri leynilega gift. Clau- dia hefur oft verið að því spurð í viðtölum blaða, hvort hún væri ekki ástfangin, leynilega trúlof- uð o. s. frv., — en aldrei hef- ur hún gefið jákvætt svar. Blöð- in voru farin að skrifa um hana sem dularfulla stjörnu, sem skeytti ekki um neitt nema starf- ið, — hirti ekki um ástarævintýri og hjónabönd. — En svo kom sem sagt upp úr kafinu. að hún átti 8 ára son, sem heitir Patric. Hann fæddist í London 19. októ- ber 1958, — en hefur alizt upp á Ítalíu hjá foreldrum Claudiu. Og ofan á allt þetta fréttist líka, að Claudia hefur verið gift kvik. myndaframleiðandanum Franco Cristaldi í nokkra mánuði, án þess að segja heimsblöðunum frá því. Norkst Ukeblad birti nýlega við tal við Claudiu, þar segir hún upp alla söguna, — að því er blaðið segir. Claudia segir: Það hljómar kannski lágkúru- lega, — en ég get ekki lýst síð- ustu átta árum með öðru betra orði en víti. — Það er sjálfsagt ekki auðvelt fyrir aðra að skilja, hvernig ég hef haft það. Ég hef lifað tvöföldu lífi. Annars vegar hef ég verið kvikmyndastjarna með öllu, sem fylgir því starfi, — ferðalög, frægð, auglýsing, glitrandi dýrð. Hins vegar einka líf mitt, sem enginn þekkti, — fullt af angist og áhyggjum og örvæntingarfullum tilraunum til þess að halda syni mínum frá forvitni umheimsins. Það var hræðilegt að geta ekki- umgengizt hann eins og hver önnur móðir umgengst bamið sitt. Á hverjum einasta degi komu ný vandamál til sögunnar, sem ég varð að yfirvinna Ég var stöð ugt milli vonar og ótta: — Ætli ég fengi nokkum tíma að öðl- ast þau einföldu mannlegu rétt. indi að njóta venjulegs fjöl- skyldulifs? Á hverjum' degi lifði ég tvöföldu lífi. Annars vegar var framhliðin, sem allir sáu, —• brosið, sem ég setti upp fyrir ljósm.vndarana, sem tóku myndir af mér, — bakhliðina sá enginn, en þar var sorg, áhyggjur' og mörg tár. Það eru margar ástæður til þess, hvers vegna ég þagði um þetta allt. Ég gerði það ekki með vitað vegna þess að ég væri hrædd um, að það drægi úr frama mínum, ef vitað væri, að ég ætti son, og að ég væri ástfangin af Franco Cristaldi. Ég hef alltaf litið á framann e!ns og eitthvað óviðkomandi einkalífi mínu. Áð minnsta kosti mundi ég hiklaust hafa fórnað framanum fyrir son minn, ef því hefði verið að skipta. Ég hef þagað yfir þessu öllu, drengsins vegr.a, til þess að særa hann ekki, sem er svo lítill og viðkvæmur, með því að skýra frá öllu í sambandi við fæðingu hans. Þegar rétt stund væri kom- in átti hann að fá að vita allt. og ég held, að hann hefði skilið það. Nú hef ég ncyðzt til að gera það, áður en réttr tíminn var kominn, — og ég vona að guð hjálpi mér. Prestur nokkur er að reyna að útskýra þetta allt fyrir Patrick núna Sannleikur- inn er ekki flókinn, — en kann- ski reynist drengnum erfitt að skilja hann núna. Að hann á ekki lengur að kalla foreldra mína mömmu og pabba eins og hann hefur gert og talið sjálfsagt. — Hann sá, að öll börn áttu pabba og mömmu, eg það hlaut hann líka að eiga. Presturinn verður að segja honum, að það er ég, sem er mamma hans, þótt hann hafi kannski undir niðri haft grun um það, — hann hefur nefnilega

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.