Alþýðublaðið - 18.07.1967, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 18.07.1967, Qupperneq 14
Ljósmæðrafélag Reykjavíkur 25 ára PENINGUM STOL- IÐ ÚR BIFREIÐ í gær á timabilinu frá kl. 16.30 — 19.30 var stolið 18 þús. kr. úr bíl, sem stóð á bílastæði hjá Land- smiðjunni við gatnamót Sölvhóls- eötu og Klapparstíg:s. Þegar bíl- stjórinn yfirgaf bifreiðina, sem er rússnesk jeppabifreið R-2053, ftleymdi hann peningaveskinu í vasa á fiík, sem í bifreiðinni var og þegar hann svo kom- aftiu-, lá veskið á gólfinu í bílnum, en pen ingarnir voru horfnir. Raunsóknar lögreglan biður þá að gefa sig fram, sem hugsanlega gætu gefið einhverjar upplýsingar um stuld- inn og hafa ef til vill séð einhvern á ferli við bifreiðina á ofan- greindu tímabili. íbúðahverfi. Framhald af 3. síðu. verið flutt inn í nokkrar íbúð- ir við Barðaströnd og áætlað er að á þessu ári verði flutt' inn í meirihluta hinna nýju íbúða. Malbikun gatna er í fullum gangi, og verður stefnt að þvi, að götur verði malbikaðar sem mest þá er flutt verður í hús- in, en auk þess verði sem fyrst lokið malbikun eldri gatna á Nesinu. Stúlka drukknar. Framhald af 3. síðu. síðari hluta dags. Var þá nokkuð fólk í lauginni. Virðist svo sem vinstúlkur Kristínar hafi farið upp úr Iauginni, en aðrir laugar- gestir ekkert tekið eftir henni fyrr en ungur aðkomupiltur, sem var að synda í lauginni, rakst á Jiana marandi í hálfu kafi. Voru þegr hafnar lífgunartil- raunir og læknir kallaður í skyndi, en án alls árangurs. Kristín var einkabarn hjón- anna Ingólfs Ingólfssonar, raf- virkjameistara og Svanbjargar Gísladóttur. Geimfar. Framhald af bls. 2. átti að lenda. rofnaði sambandið við það og enginn veit hvernig lendingin hefur gengið, né hvort aftur næst samband við geim- farið. Vísindamennirnir telja það ekki útilokað, — en eru vondauf- ir. Enginn veit, hvaða bilun hef- ur komið til sögunnar þarna rétt fyrir lendingu. íþróttir. Framhald 11. síðu. betur en Valsliðið, sem í fyrstu virtist bókstaflega ekki átta sig á hinum stormandi hraða mótherj- anna, sem einnig sýndu all góðan samleik, en nýting tækifæranna og skotin voru þó ekki að sama skapi. Vals vörnin átti þó oft í vök að verjast, en hélt þó vöku sinni. En án tilþrifa og þróttmikillar markvörzlu Sigurðar Dagssonar hefðu úrslitin orðið önnur. Má í þessum leik telja Sigurð þann Valsmanninn öðrum fremur sem þakka má jafnteflið, og að annað stigið féll Val í skaut, í þessum hraða leik. Af framherjunum var Hermann beztur, og Ingvar vann af miklum dugnaði, en framlínan í heild átti þó ekki nærri eins góð an leik og oft áður. Guðjón Finnbogason frá Akra- nesi dæmdi leikinn og gerði því hlutverki sínu góð skil. EVIörg slys. Framhald af 1. síðu. Bifreiðin, sem ekið var aftur á bak er sjálfskipt, og segir bíl- stjórinn að fótur sinn hafi runn ið af hemlastiginu á benzíngjöf ina og Guðmundur klemmst á milli pallanna. Guðmundur mun hafa marist innvortis og liggur enn á sjúkrahúsi. Á sunnudag 'kl. 18.50 varð það slys um borð í Gull-Þóri við bryggju í Stykkishólmi, er verið var að flytja ís um borð, að skip stjórinn, Eyjólfur Ólafsson varð fyrir ísrennu og lilaut áverka innvortis. ísinn var fluttur á bíl niður á bryggju og hvolft af palli ofaní rennu eða trekt niður í lest. Eyjólfur stóð á þilfarinu ásam tveim mönnum til að stjórna rennunni. Rennan offyll ist, og slitnaði aftan úr hílnum og lendir á Eyjólfi. Hann var fluttur á sjúkrahús illa marinn og kvartaði um þrautir innvort- is. Einar Halldórsson bifvélavirki skaðbrenndist, er hann var að vinna að rafsuðu undir bifreið á bílaverkstæði sínu að Holti við Vegamót í Miklaholtshreppi. Benzínrör toefur annað hvort lek ið eða sprungið og neisti hlaup- ið í, því að bifreiðin varð alelda á svipstundu. Einar brenndist mikið á hálsi og bringu og liggur nú á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi þar sem nú er farið að þrengjast um sjúkrarúm. LJÓSMÆÐRAFÉLAG Reyk.iavík- ur hélt hátíðlegt 25 ára afmæli sitt í Domus Medica s. 1. laugar- dag. Meðal gesta var Guðmund- ur Thoroddsen, prófessor og flutti hann kvæði úr „Læknaljóðum“ eftir sjálfan sig. Ljósmæðrafélag Reykjavíkur var stofnað 19. júní 1942. Stofn- endur voru sex starfandi Ijósmæð ur í Reykjavík. Fyrsti formaður þess var Rakel P. Þorleifsson. — Tilgangur félagsins var eins og segir í 2. grein félagslaga: að auka samvinnu starfandi ljós- mæðra í höfuðstaðnum. glæða á- huga þeirra fyrir öllu því, er að starfi þeirra lýtur, svo að þær á hverjum tíma séu hæfar til að gegna þeirri köllun, sem Iþeim er ætluð. Þessi- tuttugu og fimm ár, sem liðin eru frá stofnun félagsins, hefur það reynt að bæta aðstöðu mæðra og barna með ýmsum hætti, nægir að nefna stofnun Heimilishjálpar í Reykjavík, sem Reykjavíkurborg rekur. Stofnað var mæðraheimili í Reykjavík fyr ir einstæðar mæður og starfaði í nokkur ár, en var síðan, illu heilli, lagt niður végna húsnæð- isleysis. Líknar- og menningarsjóður Ijós mæðra var stofnaður árið 1949 til st.vrktar fátækum ljósmæðrum og til að kosta þær til náms erlend- is. Sá sjóður hefur vaxið hægt, en á þessu ári standa vonir til, að bæði ljósmæðx-afélögin sam- eini sjóði sína. Ættu þeir þá að koma að meira gagni. Ljósmæðrafélagið hefur haldið basar og merkjasölu ár hvert til þess að efla hag félagsins. Fyrir dugnað og fórnfýsi ljósmæðranna stendur hagur þess með miklum blóma. Fest voru kaup á húsi í Hveragerði árið 1958 og hefur þar' verið síðan hvíldai'- og sum- arheimili- Ijósmæðra. Ljósmæðrafélagið bauðst til að sjá um viðgerð og viðliald á hiisi Þorbjargar Sveinsdóttur, ljósmóður, ef borgaryfirvöldiir Iétu flytja það að Árbæ. Var ætlunin að konia þar upp safní og vildu margir gefa því muni eða veita því annan stuðning. Því miður varð ekkert af þeirri fyrirætlan. Húsið var molað og ekkert eftir af því nema ljósmyndir. Félagið hefur gefið fé til líkn- arstofnana kr. 10.000,00 til Hall- veigarstaða kr. 10.000,00 til Barnaspítalasjóðs Hringsins. —• Þessu fé átti að vex'ja til að' styrkja börn, sem þurfa að leita lækninga ex'lendis. Nú, í tilefni afmælisins gefa ljósmæðurnar kr. 5.000,00 í Ut- anfax-asjóð hjartveikra barna. — Framhald á bls. 15. ALÞÝÐUBLAÐIÐ VANTAR ÚTBREIÐSLUSTJÓRA ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.