Alþýðublaðið - 18.07.1967, Side 15
Claudia.
Frh. lir opnu
liægt að segja, að hann sé sonur
hans. Hann hefur fylgzt með hon-
um frá fæðingu. Hann hefur að-
stoðað við uppeldið þessi ár.
Ást okkar Cristaldi varð ekki
til við fyrstu sýn né neitt því um
líkt. Hún átti sér langa og eðli-
lega þróunarsögu, — en hver dag
ur tengir okkur traustari bönd-
um. Við urðum meir en góðir
kunningjar árið 1960, — en því
þurfti einnig að halda leyndu, því
að aðstaða Cristaldi var erfið.
Hann var ekki löglega skilinn.
En það er ekki ég, sem eyði-
lagði hjónaband hans. Þau voru
skilin að borði og sæng þegar við
fórum að vera saman. Ég verð
að segja, að konan hans, Carla,
hefur verið einstaklega góð við
mig Hún er góð og skilningsrík
manneskja.
Við giftum okkur í New York
ríki í desember í fyrra. Ég var
nýbúin að Ijúka af kvikmynda-
leik þar vestra, þegar Franco
hringdi og sagði að hann kæmi
strax með góðar fréttir. — Mig
grunaði strax, hverjar þær væru,
en þorði ekki að trúa því að þær
væru sannar eftir alla þá erfið-
leika, sem yið höfum orðið að
ganga í gegnum.
En Franco var orðinn frjáls og
við giftuni okkur hjá bandarísk.
um dómara. Engir voru viðstadd-
ir nema systir mín og mágur. Við
fórum svo í brúðkaunsferð í kring
um hnöttinn með þeim tveim.
ítölsk lög viðurkenna ekki
hjónabönd frásk'lins fólks. Við
erum því ekki gift samkvæmt
ítölskum lögum, en við erum gift
samkvæmt guðs og manna lögum,
og það verður að duga, þar til
lögunum hefur verið breytt.
" Og nú vonast ég til að fá að
lifa í friði. Ég vona, að fólk
sjái litla soninn minn i friði og
haldi honum utan við þetta Hann
er saklaus og á ekki að þurfa
að líða. Vitið þið, að fólk hefur
reynt að þröngva sér inn á skól-
ann þar sem hann er undir alls
kyns yfirskinr til þess að ná mynd
af honum? — Ég hef dregið mig
í hlé frá kvikmyndunum í von
um að storminn muni lægja. Er
þetta eðlilegt líf. Er rétt að mér
líði eins og villtu dýri á flótta?
Un^tempRara.
Frh. af <ðn
Ejnn merkasti þátturinn í
starfi ungtemplara var 50 ára
afmælismót, Norrænna ungtempl
ara, sem hald:ð var hér á landi
s. 1. sumar, en íslenzkir ung-
templarar sáu um undirbúning
og framkvæmd Mót þetta sóttu
um 200 erlendir ungtemplarar.
Þá var getið um undirbúnkig að
þátttöku ungtemnlara í næsta
móti Norrænna ungtemplara,
sem verður í Svíþióð næsta sum
ar, og er eert ráð fvrir mjög
góðri þátttöku frá íslandi.
Þing IUT gerði nokkrar sam-
þ.vkktir m. a. um hina nýju
æskulýðslöggjöf. er frumvarp
kom um á Albingi í vor. Fagn-
aði þingið frumvarpinu, en á.
kveðið var að þetta mál yrði
tekiu t:l meðferðar síðar á veg-
um samtakanna og þá látið í
ljós, hvað betur mætti fara í
frumvarpinu að dómi ungtempl-
ara.
Lýst var ánægju með þá þró-
un, sem orðið hefur á skemmt.
anahaldi um verzlunarmanna-
helgina og fagnað aðgerðum lög
resluvfirvalda til að stemma
stigu við drykkjuskap ungs
fólks um hvítasunnuhelgina. —
Hins vegar harmaði þingið að
þe>m aðilum. sem ábyrgð bera
á bví fólki innan 21 árs aldurs,
hafj áfeugi undír höndum, skuli
ekk.; refsað. Hvatti þingið yfir
stjórn dómsmála til að taka
þessi mál til gagngerðrar yfir-
vegunar og væntir þess að fyr-
ir ábvrgðarleysi það, sem felst
í því að útvega unglingum á-
fengi, verði stranglega refsað.
Þingið gerði samþykkt í tó-
baksmálum þar sem enn er vak-
in athygli alþjóðar á niðurstöð-
um rannsókna fjölmargra vís-
indamanna um skaðsemi tóbaks-
reykinga. Hvatti þingið til þess
að tóbaksauglýsingar yrðu ekki
leyfðar. og-skoraði á ríkisstjórn-
ina að gera raunhæfar ráðstaf-
anir í því efni, þar sem Alþingi
hafði á sínnm tíma vísað sliku
mál;. t.’1 hennar. Látin var í ljós
þökk til út.varps og sjónvams
fvrir að 'cvfa ekld tóbaksauglýs
ingar í bessum öflugu fjölmiðl-
unartækjum
í stiórn íslenzkra ungtempl-
ara voru kosnir: Formaður, Ein-
ar Hannesson; varaformaður,
Grétar Þorsteinsson; ritari,
Gunnar Þorláksson; gjaldkeri,
Hreegviður .Tónsson; fræðslu-
st.ióri. Aðalhétður Jónsdóttir og
meðstiómendur Brynjar Valdi-
marsson og Sævar Halldórsson.
Formaður Alþjóðanefndar ÍUT
HTda Torfadót.tir; formaður fjár
málaráðs. Kristinn Vilhjálmsson;
formaður útbreiðsluráðs, Alfreð
Harðarson og formaður styrktar-
meðlima Árelíus Níelsson.
SiEmijtrRiátíS
Framhald af bls. 7.
íþróttum, hestasýning og kapp-
reiðar.
Dagskbáin er mjög fjölbreytt.
og þess ekki nokkur kostur að
gera henni viðunandi skil í stuttr
i blaðafrétt, en rúsínan í pylsu-
enda hennar er ferðahappdrætti
með þrem glæsilegum vinningum
að verðmæti kr. 45.000,00. Er
mjög til efs, hvort nokkum tíma
hafi verið stofnað til jafnglæsi-
legs skemmtimóts hérlendis, hvað
umfang og skemmtiatriði snertir
Helztu fyrirsvarsmenn hátíðar-
innar em beir Vilhjálmur Eina’-s-
son, formaður Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar, Ásgeir Pét-
ursson sýslumaður, formaður
Æskulýðs- og menningarnefndar
Borgarfiarðar og Höskuldur Goði
Karlsson. sem er framkvæmdastj.
hátíðarinnar, en allir þessir menn
eru vel kunnir, og þá sérstakleffa
í Borgarf'rði, fyrir starfsemi sína
í þágu æskulvðssamtakanna. Þess
verður strengilega gætt, að áfengi
verði ekki haft um hönd á meðan
á 'hátíðinni stendur.
Býil«faría.
Frb af 5. SÍðU.
með hón núna í Noregi og Dan-
mörku. Ennfremur önnumst við
fyrirgreiðslu einstaklinga til 9
landa og höfum samband við er-
lendar ferðaskrifstofur m. a.
mjög gott samstarf við Folke
Ferie, ferðaskrifstofu norska al-
þýðusambandsins, sem skipu-
leggur 14 innanlandsferðir í
Noregi auk ferða suður um öll
lönd. Þá er einnig að geta Jör-
gensens Rejsebureau í Dan-
mörku og De Danske Statsban-
er, sem nú útvega húsnæði í
Kaupmannahöfn svo til fyrir-
varalaust, svo og enskar skrif-
stofur sem m. a. skipuleggja
ferðir til Spánar.
Þá ber að geta þess að Land-
sýn býður upp á svonefndar IT-
ferðir í samvinnu við flugfélagið
Loftleiðir, en þessar ferðir eru
skipulagðar eftir fyrirframgerðri
áætlun, og er þá í verðinu inni-
falinn kostnaður, svo sem flug-
far, sem er mun ódýrara en ella
væri, gisting með eða án morg-
unmats, skemmtiferðir og önn-
ur þjónusta sem tiltekin er fyrir
hverja ferð. Kostnaður ferðar-
innar greiðist' allur fyrir fram í
íslenzkum peningum. Gildistími
ferðaáætlunarinnar er til 31.
október næstkomandi.
Skyndibrúðkaup
Frh. af 2. síðu
og systirin. því að hann hefur
þekkt brúði sína í fjögur ár.
Moshe Dayan og kona hans
hafa nóg að gera á laugardag
inn, því að efnt verður til stór
veizlu heima hjá þeim. Móð-
irin, Ruth Dayan, er nýkomin
heim til ísrael frá New York.
Hún sagði við fréttamenn, að
brúðkaup Yaels hefði komið al-
veg flatt upp á hana. — „Það
verður skyndibrúðkaup eftir
rkyndistríð“, sagði hún.
s. þT _
F-h. af 2. sf«t>
^wotar myndu halda áfram and
'vrnu sinni gegn árás ísraels-
'tinna.
^ffvpzka stjórnin sendi frá sér
"i’’ivsingu í dag þess efnis, að
1-'”i liti á það sem brot á vopna-
'■lóssamningum, ef ísraelsk skip
r hvaða gerð sem væru. — færi
m Súezskurð, ísraelsk yfirvöld
’ -tda því fram. að vopnahléslín-
” sé um miðjan Súezskurð og
megi ísraelsk skip sigla aust-
’ megin á skurðinum.
Ult var með kyrrum kjörum
skurðinn í dag
^ormælandi SÞ í Jerúsalem, Al-
Grand, sagði í dQg. að það
~”'i ógjörningur fvrir varðlið
T’ ”ð vaka yf:r því að vonnahléð
'ri haldið og að gefa skýrslu
"'ðalstöðva samtakanna. Fleiri
""’-iitsmenn á vegum SÞ eru
’*”mn:r til Jerúsalem, en þeir
'"ða strax sendir til varðstöðv-
"a, sem komið hefur verið upp
Ismailia á vinstri bakkanum
* ! Qantara á evstri bakkanum,
"ði formælandinn.
"^oskvumeinn.
Frh. af 2 sfðn
’ "”el, — en Sovétstjórnin lief-
• ''mgað til látið sér nægja að
"'ia orðanna styrjöM ”ið ísrael.
'alið er, að emn fet’vígismann-
{ Moskvudeild kommúnista-
"'’kVs.'ns, Nikolaj .Tefforvqjev. hafi
ff-’TT-'fS í ónáð af því að hann hvatti
■’ðgerðn í stað orða.
Boumedienne var síðast í
Moskvu dagana 12. og 13. júní.
Þótt ekki hafi neitt verið til-
kynnt um það opinberlega, hvað
sé rætt í Moskvu, hefur utanrík-
isráðherra Alsír sagt í Kuwait, að
Sovétstjórnin hafi lofað Arabalönd
unum að bæta hergagnatjón, sem
Arabalöndin urðu fyrir í bardög-
unum í júní.
Hann sagði, að Sovétstjórnin
hefði lofað Boumedienne því statt
og stöðugt að hjálpa til við lausn
vandamála Austurlanda nær og
veita þeim efnahagslega aðstoð að
minnsta kosti til þess að fá sigra
ísraels gerða að engu.
Fundur æðstu manna Arabaland
anna endaði með því að á sunnud.
kvöldið, að ákveðið var að fjar-
lægja öll merki þess, sem kallað
var árás Síonista. Ennfremur var
ákveðið að endurskoða afstöðu Ar.
abalandanna til annarra landa i
ljósi þess, hvernig stjórnir þeirra
landa litu á árás Gyðinganna og
eftirköst hennar, — eins og seg-
ir í lokayfirlýsingu, sem undirrit-
”ð er af Gamel Abdel Nasser,
forseta.
Svifflugmét.
p'"nmhald af bls. 3.
margir, sem ^tunda módelsmíði í
tómstundum og flugmálafélagið
hefur unnið talsvert að því að
efla áhuga manna fyrir henni.
Svifflugið stendur í mest-
um blóma af flugíþróttunum, eins
og fyrr segir. Er á hverju ári
haldið ársmót í þessari grein, auk
íslandsmeistaramótanna. Núver-
andi ársmeistari er Leifur Magn-
ússon og íslandsmeistari Sverrir
Þóroddsson, en hann dvelur nú á
Ítalíu við kappakstur.
í gær flugu keppendurnir í
þríhyrning, lögðu upp frá Hellu
og fóru til Búrfells í Gríms-
nesi, Skálholts og síðan aftur til
Hellu. Sverrir Þorláksson varð
hlutskarpastur á þessari leið. —
Mótið fer þannig fram, að mót-
stjórn tekur hvern morgun á-
kvörðun um hvernig fluginu skuli
háttað, hvert skuli farið og hvort
um hraðakeppni eða vegalengdar
keppni sé að ræða.
Til þess að mótið sé löglegt
verða að minnsta kosti að vera
4 flugdagar, og er áætlað að það
standi fram á næsta sunnudag.
Skilyrði eru talin nokkuð góð
á íslandi fyrir svifflug, og er
Hella einna bezti staðurinn til
þess. Er það bæði vegna víðáttu
láglendisins í kring og góðra eig-
inleika jarðvegsins, til þess að
skapa nauðsynlegt uppstreymi
fyrir svifflugurnar.
Ljósmæ^iir.
Frh. 14. síðu.
Einnig hefur ver:ð ákveðið að
gefa kr. 3.000,00 í Freyjusöfnun-
ina.
Ljósmæðrafélagið hefur reynt
að stuðla að því, að ljósmæður
fvlgdust með framfiirum og ný-
ungum í fæðingnhiáln og með-
ferð ungbarná. Mareir læknar og
Ijósmæður hafa flutt erindi á
fundum félagsins og sýnt félag-
inu mik:nn áhuga og góðvild.
Stefnumál Ljósmæðrafélagsins
eru ekki leyst í e’tt skipti fyrjr
öll, því að ný viðhorf skapast,
starfið heldur áfram og óleyst
verkefni bíða. Ljósmæðrafélagið
Reykjavíkur þakkar öllum, sem
lagt hafa hönd á plóginn í þessi
tuttugu og fimm ár.
í stjórn Ljósmæðrafél. Reykja-
víkur eru: Helga M. Níelsdóttir,
formaður; Sigríður Claessen, vara
formaður; Guðrún Halldórsdóttir,
ritari og Anna Eit-íksdóttir, gjald-
keri.
Fornleifafundur.
Framhald af 1. síðu.
og Jóhannes Nordal, seðla-
bankastj., hafi verið boðaðir á
svipuðum tíma, en þeir munu
báðir vera utanbæjar í sumar.
leyfum.
FundarboÓ.
Framhald af 1 síðu.
Af þessu má marka, að fund
ur þessi og boðun hans eru
með nokkuð sérstæðum hætti,
sem bendir öllu frekar til á-
róðurs en einlægs vilja til að
leysa vandamál Austfirðinga.
Voðaskot.
Framín ðu
ar skipsfélagi piltsins í hóp-
inn, og var nú haldið til herbergis
þess, í húsi Hraðfrystihúss Tálkna
fjarðar, er Sigurður og konan
bjuggu í. En Sigurður vann í
frystihúsinu. Konan og sonur
liennar lögðust fljótlega til svefns,
en Sigurður og sjómaðurinn héldu
láfram di-ykkju. Sigurður. hafði
undir höndum gamlan riffil, sem
hann hafði fengið að láni, en Sig-
urður hafði byssuleyíi. Pilturinn,
sonur konunnar, var ekki sofnað-
urL er hann heyrir, að Sigurður er
kominn með byssuna í hendurnar,
og ræðir við hinn um vopnið og
vill að hann taki við því. í þeim
svifum ríður skot af og er piltur-
inn snýr sér við, sér hann Sigurð
liggjandi í gólfinu og hinn
drukkna skipsfélaga sinn sitja á
stóli og virtist hann ekki gera sér
fulla grein fyrir, hvað gerzt hafði.
Pilturinn sá ekki, þegar skotið
hljóp úr byssunni, en heyrði
greinilega hvað fram fór og er því
þýðingarmikið vitni, sagði Ingólf
ur. Ekki er ljóst, hvort drukkni
aðkomumaðurinn hélt sjálfur á
rifflinum, segir að sig minni að
hann hafi verið að taka við hon-
um, en Sigurður heitinn haldið
um hlaupið og beint því að sjálí
um sér. Ólíklegt er, að úr þvi
verði nokkurn tíma skorið í smáat
riðum, en fullvíst þykir, að hér
hafi vei'ið um að ræða slysaskot i
ölæði.
t
18. júlí 1967
ALÞÝÐU8LAÐIÐ |,5