Alþýðublaðið - 21.07.1967, Qupperneq 11
TVÖ GLÆSILEG
MET I SUNDI
Sjö íslendingar taka þátt
í Norðurlandamóti í sundi
Jón Magnússon móttekur verðlaun fyrir sleggjukast. Methafinn,
Þórður Sigurðsson, fylgist með.
Góður árangur í
kasti - sveinamet
í fyrrakvöld settu tvær ungar
stúlkur íslandsmet í sundi. Sig-
rún Siggeirsdóttir, Ármanni setti
met í 200 m. bringusundi, synti
ó 2:54,1 mín. Gamla metið var
3:01,6 mín. en það átti Matthild-
ur Guðmundsdóttir, Ármanni.
Metið var sett í nýju lauginni í
Laugardal. íslandsmet í 25 m.
laug á Hrafnhildur Kristjánsdótt-
ir, Ármanni en það er 2:48,0 mín.
Þá setti Guðmunda Guðmunds-
dóttir, Selfossi íslandsmet í 400
m. skriðsundi, synti á 5:22,2 mín.
Gamla metið, 5:27,4 mín. átti
Hranfhildur Krisjánsdóttir, Ár-
manni, sett á Sundmeistaramóti
íslands nýlega.
Þetta er mjög góður árangur
l hjá Sigrúnu og Guðmundu, þær
eru báðar 13 ára gamlar og sér-
staklega efnilegar.
Dagana 9. og 10. 'ágúst verður
háð Norðurlandameistaramót í
sundi í Kaupmannahöfn. Af ís-
lands hálfu keppa þar Guðmund-
ur Gíslason, Ármanni, Guðmund-
ur Þ. Harðarson, Ægi, Hrafnhild-
ur Kristjánsdóttir, Ármanni og
Matthildur Guðmundsdóttir, ÁÁr-
manni. Nokkru síðar eða 13.-15.
ágúst fer fram í Linköbing í Sví-
þjóð Evrópumeistaramót unglinga
í sundi 15 ára og yngri. Þar keppa
Sigrún Siggeirsdóttir, Ármanni
og Ólafur Einarsson, Ægi, og e.t.
v. Guðmunda Guðmundsdóttir,
Selfossi. Þau taka þá einnig þátt
í Norðui’landamótinu, sem áður
hefur verið nefnt.
ÍR sigraði í Reykjavíkurriðli Bik
arkeppni FRÍ, sem lauk á Laugar
dalsvellinum í fýrrakvöld. ÍR-ing
A-B-Holbæk
mófið
í FYRRAKVÖLD hófst AB -
Holbæk mólið. Leiknir voru fjórir
leikir. Tveir á Meiavelli, einn á
Háskólavelli og einn á Kefla-
víkurvelli. Á Melavellinum léku
AB og Valur og lauk þeim leik
með sigri AB 4-2. A tímabili var
staðan 2-2. Hinn leikurinn var
leikur Holbælc og Vikings og sigrð
uðu Víkingar með 3 mörkum
gegn 1. Á Háskóiavellinum léku
Þróttur og rram (,,unglingalands-
liðið“), og lauk þeim leik með
sigri Fi-amara 2-0. Má segja að
Þróttararnir íhafi staðið sig vel
jiar sem mikil skakkaföll hafa
gengið yfir iiðiö að undanförnu,
auk þess sem í liöi Framara eru
9 unglingalandsliðsmenn. í Kefla-
vík léku KR og ÍBK og var þessi
leikur einnig leikur í íslandsmót
inu. Þessum ieia lauk með sigri
Keflvíkinga 3-0.
Mótið heldur áfram í kvöld og
verða þá leiknir 4 leikir, 2 á
Melavelli, 1 á Háskólavelli og
einn á Keflavíkurvelli.
ar hlutu 142 stig, en KR sem einn
ig fer í úrslit, 'hlaut 140 stig. Ár-
mann hlaut 85 stig.
Keppnin milli ÍR og KR var
skemmtileg og allgóður árangur
náðist í flestum greinum. Jón H.
Magnússon, ÍR kastaði sleggju
53.38 m., sem er hans bezti ár-
angur og aðeins 85 sm. styttra en
íslandsmet Þórðar B. Sigurðsson
ar, KR frá 1961. Sería Jóns var
mjög jöfn, hann átti fjögur köst
yfir 52 m.
Ungur hlaupari úr Ármanni,
Rúdolf Adolfsson, setti nýtt
sleggju-
i 400m.
sveinamet í 400 m. hlaupi, hljóp
54,0 sek., en gamla metið, sem
Svavar Markússon, KR átti var 52
,4 sek. Rúdolf er sterkur og sér-
lega efnilegur.
Frli. á 14. síðu.
Landsleikurinn
háður í kvöld
Landsleikur B-liðs Islendinga
og Færeyinga, sem fram átti að
að fara á Laugardalsvellinum í
gær var frestað, þar sm færeyska
liðið var væntanlegt til landsins
liðið var ekki væntanlegt til
landsins fyrr en í gærkvöldi.
Leikurinn verður háður í kvöld
og hefst kl. 20.30.
Þrír af leikmönnum Akureyringa,
sem valdir voru hafa tilkynnt for-
föll vegna meiðsla, það eru þeir
Ævar Jónsson, Jón Stefánsson og
Guðni Jónsson. í þeirra stað voru
valdir Magnús Haraldsson, ÍBK,
Baldur Scheving, Fram og Einar
Magnússon, ÍBK. Nýir varamenn
eru Þorsteinn Friðþjófsson og
Sigurður Jensson, Yal.
Færeyingar hafa verið í fram-
för í knattspyrnu undanfarið og
þó telja verði íslenzka liðið sigur
vænlegra, má búast við skemmti-
legum leik.
Forsala aðgöngumiða hefst kl*
4 á Laugardalsvellinum.
ión Finnsson hrl.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Málaflutningsskrifstofa.
Óðinsgötu 4 — Sími 11043.
Handbolti
/
i
í KVÖLD byrjar útimótið í
handknattleik karla, en mót
ið fer fram á skólamölinni í
Hafnarfirði, en svo er kall
að portið fyrir framan Lækj
arskólann í Haínarfirði. í
kvöld leika kl. 20.00 FIl og
ÍR og strax á eftir Valur og
Haukar. Búast má við
spennandi keppni og er fólk
hvatt til að koma og fylgj-
ast með keppninni.
Efnilegar íþróttastúlkur í 100 m. hlaupi.
21. júlí 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ ^