Alþýðublaðið - 30.07.1967, Side 1
Sunnudagur 30. júlí 1967 — 48. árg. 165. tbl. — VerS kr. 7
Nú á dögum fást flestallir hlut
ir keyptir mc3 svokölluðum af-
borgunarskilmálum. Ef ung- hjón
vanhagar um húsgögn í fyrstu í-
búðina, hvort heldur er í svefn
herbergi, stofu eða eldhús, geta
þau farið inn í næstu húsgagna-
verzlun og fest kaup á nýjum og
Rör til íslands frá Svíþjóð liggjandi á hafnarbak’tamim í Reykjavík.
gar sig
vönduðum húsgögnum fyrir allt
að 100 þúsund krónur, þótt þau
eigi ekki nema um það bil 30
þúsund krónur handbærar. Þetta
virðist vera alveg fyrirtaks kaup-
máti, þar sem ellegar kynni að
dragast nokkuð á langinn, að
imgu hjónin eignist innbú- Þar
með er sagan þó ekki öll, því
verð það sem þau endanlega koma
til með að greiða fyrir húsgögn-
in er töluvert hærra en það sem
sett var upp. Ástæðan fyrir því
er sú, að á eftirstöðvarnar leggj-
ast liáir vextir og innheimtukosn
aður. Tökum dæmi upp á slík
kaup.
Ungu hjónin afráða að kaupa
stofuhúsgögn, sem kosta 53 þús-
und krónur. Útborgun er um þirðj
ungur af kaupverði, en eftirstöðv
arnar greiðist á tólf mánuðum.
Vextir og innheimtukostnaður af
samtals 2.309 krónur. Þá skulum
því, sem eftir stendur, verða þá
við gera ráð fyrir því, að þau
kaupi sér borðstofuhúsgögn, sem
kosta 35 þúsund krónur með sömu
kjörum. Þegar síðasta afborgun-
I in hefur verið greidd hafa bætzt
i 1.216 ki-ónur við kaupverðið. Vilji
| þau nú einnig eignast sjónvarp
og kaupi eitt á 26 þúsund krón-
jur, verða þau að gréiða það með
26-840 krónum. Þannig hafa þau
samtals greitt í viðbót við aug-
lýst verð krónur 4.365, sem er
ekki svo lítil upphæð.
Annars má segja, að kaupandi
greiði aldrei auglýst verð vör-
unnar, því ef hann greiðir hana
að fullu við móttöku fær hann
5% afslátt. Verður reyndar að á-
líta, að hið raunverulega útsölu
verð sé auglýst verð að frádregn-
um 5 prósentum, sem þýðir að
hækkun'n vegna afborgunarskil-
málanna er mun hærri en hér
var tekið dæmi um, eins og nú
skal sýnt fram 'á.
Reiknum með því, að hjónin
hafi haft undir hcndum nægi-
lega upphæð til að greiða hús-
gögnin að fullu við móttcku, þau
gætu t.d. hafa selt einhverjum
banka eða bönkum víxla. Þau fá
5% lækkun á auglýstu verði og
stofuhúsgögnin kosta þá krónur
50.350, borðsíofuhúsgögnin 33.250
og sjónvarpið 24.700 krónur-
Þetta verða samtals kr. 108.300.
Ef þau keyptu húgöngnin með af-
borgunarskilmálum, misstu þau
5% afsláttinn, sem nemur 2.650
Framhald á bls. 14.
Kviknar i
Forestai
SAIGON, 29. júlí.
Sprengjur og flugskeyti
sprungu um borð í banda-
ríska flugvé lamóðnrskipinu
Forestal, er eldur korn upp
á þilfari skipsins í morgun.
Skipið var statt á Tonkin-
flóa um 240 km. NA af hlut-
lausa svæðinu.
Eldurinn brauzt út er leki
kom að benzíngeymi einnar
flugvélarinnar á flugtaksþil-
fari skipsins. Flugvélarnar
voru að búa sig undir árás
á Norður-Vietnam. Eldurinn
breiddist þegar út til neðra
þilfarsins, þar sem flugvéla-
geymslur eru, og enníremur
komst hann í sprengjur og
flugskeyti, sem sprungu og
ollu gífurlegu tjóni. Áhöfn-
in tók þegar til við að reyna
að kæfa eldinn og fleygja
fyrir borð sprengjum, flug-
skeytum og flugvélahlut-
Framhald á bls. 14.
V
Það vakíi nokkra athygli við
Reykjavíkurhöfn fyrir fáeinum
dögum, að skipað var upp miklu
magni af steinste>i>tum rörum,
sem merkt voru ÍSAL, Straums
vík. Hvert þessara rijra vegur
tæplega hálft tonn, og hlýtur
flutningskostnaður því að vera;
mjög hár.
Banaslys á
Akureyri
Kl. 19.15 varð fjögurra ára
drengur fyrir bifreið á móts við
húsið Helgamagrastræti 34 á Ak-
ureyri' og beið bana. Fólksbifreið
var ekið suður götuna er bílstjór-
Framhald á 14. síðu.
Blaðið náði tali af einum fram
kvæm.dastjóra ÍSAL og spurði,
hvort leitað hefði verið upplýs-
inga um verð og gæði íslenzkra
röra, áður en kaup þessi voru
gerð. Kvað hann svo vera, en í
ljós hefði komið, að sænsku rörin
væru ódýrari og því liefðu þau
verið keypt.
Hjá Pípugerð Reykjavíkurborg
ar fengum við hins vegar þær
upplýsingar, að ÍSAL hefði ekki
spurzt fyrir um rör frá þeim, en
aftur á móti hefðu borizt fyrir-
spurnir frá einstökum verktökum
vi-5 álbræðsluna í Straumsvík. Rétt
er líka að geta þess, að skömmu
eftir að blaðið hafði talað við fram
kvæmdastjórann hjá ÍSAL, var
hringt frá skrifstofum þeirra og
óskað upplýsinga um rör í Pípu
gerðinni.
í lögbundnum samningi um ál-
bræðsluna er kveðið svó á, að
innflutningur af hálfu ÍSAL eða
verktaka þess á öllum efnum,
vélum, búnaði o.fl. skuli undan-
þeginn aðflutnings- og útflutn-
ingsgjöldum. Þar af leiðandi má
ætla, að sænsku rörin séu toll
frjáls, en tollur á innfluttum stein
steyptum rörum er 35%. Þannig
verður aðstaða sænskra og
íslenzkra pípugerða jöfn gagnvart
kaupendum í Straumsvík að flutn
ingskostnaði undanskildum- Má
mikið vera ef sænsku rörin eru
ódýrari þrátt fýrir þann kostnað.
Hins vegar verður ljóst af fengn
um upplýsingum, að ÍSAL hefur
ekki talið íslenzku rörin athugun
arverð, fyrr en þau sænsku voru
komin á hafnarbakkann í Reykja
vík.
íslenzk rör steypt hjá Pípugerð borgarinnar við Elliðavog.