Alþýðublaðið - 30.07.1967, Qupperneq 9
Sunnudags Alþýðublaðið — 30. júlí 1967
9
>ókn í Ás
byrgi
agerði
raman við aðalbyggingarnar. — 2)
ið sólstofugluggann og úti á stéttinni
lilisins. — 5) Húsið sem Kristmann
íbúðir hvert, ætlað hjónum sem vilja.
lotkun enn.
ÉG KOM um daginn, mest af til-
viljun, í elliheimilið í Hvera-
gerði og er ég hafði litið þar í
kringum mig nokkra stund varð
mér ljósara en áður hve sú
stoínun er merkileg og af hve
mikilli framsýni og- skilningi á
þörfuin aldraðra hún er skipu-
iögð og rekin.
Svo vildi til að fyrir nokkrum
dögum hafði verið halúið upp á
15 ára afmæli heimilisins. Þar
voru saman komnir fáir menn,
starfsfóik og forráðamenn —
ekkert tilstand og ekkert auglýs
ingasnið. Einhverjir komust þó
að hvað um var að vefa, því að
m.a. kom heilla- og þakkarskeyti
frá Eggert G. Þorsteinssyni fé-
lagsmálaráðherra.
Og svo heldur heimilið áfram
starfsemi sinni í kyrrð, og allt
af er verið að gera eitthvað
nýtt, bæta einhverju við.
Þetta heimili er í rauninni
tvær stofnanir sem báðar eru
eign Elliheimilisins Grundar
Reykjavík sem er sjálfs'eignar-
stofnun, alls 19 hús þar af 4 í
eigu Árnessýslu. Þessar stofnan
ir eru „Elliheimilið Ás“ og
Hvíldar- og hressingarheimilið
Ásbyrgi“ Ás er uppi á brekkunni
en Ásbyrgi er niðri í aðalbyggð
inni í Hveragerði vestan hvera-
svæðisins, og er aðalbyggingin
þar Iiús það er Kristmann Guð
mundsson skáld eitt sinn átti.
Þar er garðurinn frægi, einn
fegursti garður á þessu landi,
eða var, flestallar blómaplönt-
urnar hafa að vísu verið fluttar
á brott, en samt er þetta fagur
garður ef vel er til tekið, með
háum trjám og íjölbreyttu lands
lagi.
Hvíldar- og hressingarheimil-
ið er nýtt. Það er ætlað til dval
ar fyrir fólk sem er nýlega kom
ið af sjúkrahúsum, en þarfnast
góðra tækifæra til að ná sér
Það er mikill sjúkrahússkortur
á íslandi, en með rekstri slíkra
heimila er unnt að Iosa sjúkra-
rými fyrr, án þess að batamögu-
Ieikum sjúklinganna sé stofnað
í liættu. Dvalarkostnaður er þar
310 kr. á dag eða miklu minna
en á sjúkrahúsum.
Elliheimilið er húsaþyrping
upp á brekkunni í Hveragerði-
Höfuðatriði málsins er kannski
að elliheimilið er eins og sjálf-
síætt hverfi, bæjarhluti, en ekki
samfelld bygging. Þar er mikill
gróður, há og þroskaleg limgerði
hólfa svæðið frá, víðir grænir
balar milli húsa og beð með
blómum. Svæðið er einfalt að
útliti og vekur því strax til-
finningu um kyrrð. Innanhúss
er fagurt um að litast. Þar eru
harðviðarþiljur í nýjustu húsun
um, teppi á öllum gólfum, ein-
föld húsgögn — og Gísli sagði
að sjónvarp mundi verða sett í
hverja íbúð. íbúðirnar eru mis-
stórar, bæði eins manns og fyr-
ir hjón, og af því þetta eru að-
greind hús fær öll dvölin á sig
meiri einkaheimilis brag, enda
eldhús í hverri íbúð eða hverri
byggingu, þar sem dvalargestir
geta fengið sér kaffi eða haft
annað smámall fyrir sig. Þá er
meiningin að flytja aðalmáltíðir
úr aðaleldhúsinu í íbúðirnar til
þess að enn meiri einkablær sé
yfir hversdagslegu lífi hins aldr
aða fólks.
Það einkennir heimilið í lieild
hve þar er mikið um blóm. Gísli
scgir að blóm og fegurö falli
saman við háan aldur og kyrr-
látt ævikvöld. Hið aldraða fólk
þráir snertingu við Iíf, og blóm
eru alls staðar boðberar lífs og
fegurðar.
Samt er félagsskapurinn senni
Iega fyrir mestu, eðlilegt samfé
lag við fólk, hvorkj að hópa
einhverjum massa af fólki sam
an né einangra það- Stofnunin
er í heild eins og heimili, en
samt hefur hver sitt heimili út
af fyrir sig.
Gísli hefur oft haft orð á því
að Hveragerði eigi að verða
staður heilsulinda og hressingar,
og hann fór lofsamlegum orðum
um Heilsuhæli NLFÍ sem stend
ur í austurjaðri þorpsins á bakk
anum við Varmá. Enn er ekki
Framhald á bls. 14.
2 ára ábyrgð
THE TRIBUNE
23' LOWBCY MODEL KO. TCX4CT7
RCAVlCTORÍtú^,,
bjóðum við á R C A sjónvarpstækjum sem
eingöngu eru ætluð fyrir íslenzka sjónvarpið.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá
R C A - umboðinu,
Georg Ámundason & Co., Suðurlandsbraut 10.
Símar 35277 og 81180.
Radíóstofan sf.
Óðinsgötu 2 — sími 14131
Seljum: Útvarpstæki, Sjónvarpstæki,
Segulbandstæki og fleira.
RADÍÓSTOFAN S.F.
Óðinsgötu 2 — sími 14131.
Sjónvarpstæki í miklu úrvali.
RADIOSTOFA Vilbergs & Þorstéins
Laugavegi 72.
Auglýsið í Alþýðublaðinu
i