Alþýðublaðið - 30.07.1967, Síða 7

Alþýðublaðið - 30.07.1967, Síða 7
Sunnudags AlþýðublaSið — 30. júlí 1967 7 Ólafur H. Torfason lieitir hann, tvítugur, og stundar menntaskóla nám, Það gera þó fleiri og þykir ekki lengur merkilegt. Ólafur teiknar hins vegar auk reitis, skrifar smásögur og fæst í ofanálag við kvikmyndagerð, þótt í smáum stíl sé. Ég barði að dyrum á húsi núm er fjögur við Melhaga, sem er í Vesturbænum. Hann kom sjálfur til dyra og bauð mér í herbergi sitt- Það er stórt herbergi undir súð. Ekki sér þar handa skil fyr Eigi skel valda ir alls kyns dóti og minna 'hí- býlin í senn á listmunasafn og ruslakistu. Stórir staflar af teikn ingum liggja þar í öllum horn- um, fiskinet hangir niður úr loft inu og alla veggi skreyta teikn- ingar og furðulegar úrklippur. Tveir dívanar eru í herberginu og trúir Ólafur mér fyrir, að hann sofi á þeim dívaninum, sem minna drasl er á hverju sinni. Við setjumst, ég við skrifborð, hann á þánn dívaninn, sem minna drasl er á. — Ég er fæddur í endaðan júlí 1947, segir Ólafur, í gömlu skrýtnu húsi á Laufásvegi, þar sem þá bjuggu amma mín og afi. Þaðan flutti ég tveggja ára gamall og haínaði þremur árum seinna hér í Vesturbænum, þar sem ég hef síðan alið aldur minn. tj/í STÆKKUNARGLER. — Hvenær vaknaði fyrst hjá þér áhugi á listsköpun? — Líklega hef ég alla tíð haft mjög yakandi auga fyrir allri list og ekki síður því, sem er að gerast í kringum mig. En það, sem kann að hafa ráðið úrslit um um beina listsköpun mína, var stækkunargler, er faðir minn sendi mér sem smápatta í sveitina. Ég töfraðist bókstaflega af þessu stækkunargleri og víst opnaði það mér nýja heima. Tím unum saman undi ég við að skoða blóm og steina í gegnum glerið og lærði þannig snemma að beina atihyglinni að hlutum í afmörkuðum fleti. Raunar má segja, að stækkunarglerið hafi kennt mér að leita innsta kjarna allra hluta og þroskað með mé- þá athyglisgáfu, sem hverjum þeim er nausynleg, er fæst við teiknun. Síðan hef ég alltaf miklar mætur á sjónaukum og myndavélum, því á nokkuð hlið- stæðan máta afmarka þau sjón- sviðið og koma manni í snert- ingu við eðli viðfangsefnisins. Ég fór svo snemma að festa myndir á pappírinn. Samt leidd ust mér teiknitímar í skóla þótt undariegt megi virðast, en svo er reyndar um fleira. Mér hefur ávallt leiðzt það sem aðrir segja mér að gera. — Hvað teiknar þú helzt? —Til þessa hefur það ekki ver ið neitt eitt öðru fremur. þó hef ég lengi haft mestan áhuga á mannamyndum og vildi raunar gera meira af slíkum teikning um. í vetur teiknaði ég talsvert af andlitsmyndum í ,,Faunu“ Menntaskólans í Reykjavík og hlaut við þa ðnokkra æfingu í þess háttar myndagerð. $$ LÝGUR ENN- — Hvað um smásagnagerð, Ólafur? — Það hefur alltaf verið mér mikil nautn að segja sögur. Hér áður fyrr stundaði ég það mjög að segja félögum minum lyga- sögur um menn og málefni, sem runnu þá upp úr mér og vöktu oft talsverða eftirtekt. Enn þann ioHÆNírES SUK m SUPER GRff CAM Úr Fánu: Jóhannes Björnsson. dag í dag finn ég oft hjá mér djúpa hvöt til að ljúgá að fólki og geri það þá vitanlega. Ekki var ég heldur mjög gamall, þeg ar ég ritaði fyrstu hugsmíðar mínar- Það mun hafa verið á fyrstu árum mínum í barnaskóla að ég tók að handrita blað, sem ég nefndi, að því er ég bezt man, ,,Kvæði, sögur og fréttir". Þetta var þykkt blað, sem ég lauk að vísu aldrei, og engir voru lesendurnir aðrir en höf- undurinn sjálfur. Síðan hefur skriffinnskan loðað við mig. — Hver munu vera höfuðein- kenni á skáldskapartilraunum þínum? — Ég leik mjög gjarnan með orð og legg mikið upp úr lýsing um. Oft verður þetta nokkuð á kostnað efnisins, þykist ég vita, enda legg ég liöfuðáherzlu á sjálft málið. Nú í vetur ,,eksperi- mentaði“ ég töluvert með skáld- skaparform, sem flestir munu telja ,,absurd““, gerði það lík- lega einkum sökum leiða á vana festunni, en hef nú lagt niður þá laupana að mestu. HÆLL í STAÐ RÁNS. Ég skal finna þig.Góg, höfðingi yfir Rós, Mesek og Túbal, og ég skal setja króka í kjálka þína. — Hvernig mátti það verða að þú tókst að fitla við kvik myndagerð? — Ég hef lengi haft gaman að myndavélum, eins og ég nefndi áður, og þá ekki síður kvikmyndavélum- Fyrstu kvik- myndatökuvélina eignaðist ég sextán ára gamall. Aldrei hefur þó kvikmyndaáhugi minn snúizt í fjölskylduáttina, heldur að gerð sj'álfstæðra verka. Ég kann að þykja nokkuð ,,absurd“ í myndagerð, því líklega fylgi ég ekki algengustu leiðum, Ætti til dæmis að gera mynd um bankarán yrði venjulegi mátinn sá að skapa gífurlega spennu, er lykj með ráninu sjálfu. Ég mundi reyna að draga sem mest úr þessari spennu, þannig að hún yrði aukaatriði. Hins vegar kynni ég að gera mynd- ina frá þeim sjónarhóli, að skó- hæll bankaræningjans væri hálfónýtur og sýna út í gegnum Rætt vi$ usigan menntaskélanema sem skrifar og teiknar og tekur kvikmyndir — og sefnr á þeim dívaninum í herbergi sínu sem minna drasl er á það skiptið. Stækkunarglerið opnaði huiiin heim myndina þau vandræði, sem af hælnum hlytust. Með þessu er ég ekki að fíflast, heldur vak ir fyrir mér að sýna fólki hinar mörgu hliðar á hverjum hlut. A9 vísu er þetta enn aðeins til gam ans gert, og fjár- og tímaskortur veldur því, að myndirnar verður að skera niður eins og unnt er, jafnvel niður í örfáar mínútur. Þetta veldur því máske í og með að stundum verður framleiðslan helzt til „absurd“. Allar þessar myndir eru þöglar, því gerð slíkra mynda er einhver bezta þjálfun, sem á boðstólum er. DRAUGAR EÐA EITT- HVAÐ ANNAÐ. — Sækir þú kvikmyndahús? — Nokkuð geri ég það, enda lærdómsbrunnur. Eftir að ég fór sjálfur að dútla við kvik- myndagerð hafa augun smám saman opnazt fyrir mdri og minni háttar myndatÖKugöllum, sem oft óprýða kvikmyndir, eink um fjöldaframleiðslu Hollywood borgar. Þá þykist maður stund- um mundu hafa getað gert bet- ur sjálfur. Þess háttar gallar eru hins vegar fátíðir í vandaðri myndum. Þar sem ég horfi þann ig á kvikmyndir með augum myndagerðarmannsins, vill sögu þráðurinn oft fara fyrir bí —. Stundum verða mér jafnvel eftirminnilegar kvikmyndir, sem. eru að flestu leyti ómerkilegar, en hafa til að bera eina stutta ,,senu“, sem hrífur mig á ein- hvern hátt. — Hvað um möguleika til kvik myndagerðar hérlendis? — Frá mínum bæjardyrum séð eru þeir fyrir hendi í stórum stíl. Segja má að vísu, að mín myndagerð sé ekki háð staðhátt um. Ég hef meira að segja gert kvikmynd af manni vera að raka sig, að vísu eftir handriti annars- En í fullri alvöru, þá er það skoð un mín, að t.d. þjóðsögurnar séu ótæmandi brunnur til gerðar kvikmynda. Nú er draugagang- Framhald á bls. 14. Ólafur H. Torfason.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.