Alþýðublaðið - 30.07.1967, Síða 14
Sunnudags AlþýðublaSið — 30. júlí 1967
14
Blóm og elli
Frh. úr opnu.
farið að hafa leirböð í elliheini
ilinu, en að því kemur. Samt er
auðvitað einkar vel um heilsu
l'ólksins hugsað. Þar er stöðugt
Iækniseftirlit, og tannviðgerðir
í Reykjavík eru innifaldar í
dvalargjaldi. Og eitt af því sem
gert er til að stuðla að heilbrigði
og góðri líðan gamla fólksins er
fótsnyrting sem allir geta notiff.
Þessu liefur Gísli Sigurbjörns-
son og hið áliugasama starfsfólk
hans komið upp mikils til án
þess að taka lán, og á þessu er
enginn liallarekstur. Daggjaldið
fyrfir gamla fólkið er aðeins
200 kr.
- S. II.
Snæfellingur
Framhald 11. síðu.
Aðalheiður Eiríksd. Sn. 20,80
4x100 m. boðhlaup:
Sveit ÍM 57,7
A-sveit Snæf. 59,0
Sveit Umf. St. 62,1
B-sveit Snæf. 63,0
íþróttafélag Miklaholtshrepps
hlaut flest stig á mótinu, eða
samtals 94. Næst kom. Umf. Snæ-
fell í Stykkishólmi með 66 st.
Mótsstjóri var Sigurður Helga
son.
Afborganir
Frh. af 1 síðu.
kr. á stofuhúsgögnunum, 1.750 kr.
á borðstofuliúsgögnunum og 1.300
kr. á sjónvarpstækinu, en að auki
yrðu þau að borga fyrrgreindar
hækkanir, sem námu samtals
4-365 kr. Niðurstaðan er semsagt
sú, að heildarverð fyrrgreindra
vara er 10.065 krónum hærra með
afborgunarskilmálum heldur en
gegn staðgreiðslu, sem nálgast að
vera 10%.
Blaðið hafði tal af Sveini Ás-
geirssyni, formanni Neytendasam I
takanna, og spurði hann hvort ;
samtökin hefðu einhver afskipti
af þessum verzlunaraðferðum. j
Kvað hann svo ekki vera, en hins
vegar væri nokkuð langt síðan i
þessi mál hefði borið 'á góma og ;
'með bættum hag samtakanna væri
von til að hægt yrði að taka þau
föstum tökum. Þá upplýsti Sveinn,
að í Danmörku væru gengnar í
gildi strangar reglur varðandi
kaup og sölu með afborgunarskil-
málum. M.a. væri seljendum ger-t
það að skyldu að hafa vöruna
verðmerkta bæði með stað-
greiðsluverði og afborgunarverði,
svo viðskiptavinirnir megi vita rétt
verð vörunnar. Þá benti Sveinn
á það, að í mörgum tilfellum væri
um staðgreiðslu að ræða, þegar
talað væri um kaup með afborg-
unum. Það er staðgreiðsla, þegar
kaupandi geldur vöru með víxl-
um, sem seljandi svo getur sam
dægurs selt í næsta banka. Sveinn
kvað þetta umfangsmikið mál,
sem raunverulega rúmaði flestar
tegundir viðskipta, og því bæri
nauðsyn til að hraða sem mest
undirbúningi reglugerðar þar að
lútandi.
Sextug
Framhald bls. 11.
og kaffi. Þar hefur þessi ágætis-
kona unnið sér hylli.
Við viljum enda þesi orð á að
þakka margra ára vináttu. Við
óskum þér, Ólína, og fjölskyldu
þinni allra heilla á ókomnum ár-
um.
Ásta og Erlendur
Þorsteinsson.
Banaslys
Framíhald af bls. 1.
inn sá tvo drengi á líku reki við
vegarbrúnina. Annar þeirra hljóp
allt í einu fyrir bílinn og lenti
framan á honum miðjum og féll
í götuna. Drengurinn var þegar
fluttur á sjúkrahús en var lát-
inn er þangað kom.
Drengurinn hét Valdemar Ólafs
son frá ísafirði, en var í heim-
sókn á Akureyri ásamt móður
sinni.
Forestal
Framhald af bls. 1.
um. Bandarísk skip á nálæg-
um slóðum, sigldu þegar á
vettvang til hjálpar. Óttazt
er að margir af áhöfn Fores-
tals hafi látið lífið.
Sex klukkustundum eftir
að eldurinn brauzt út, var
lokið við að ráða niðurlög-
um hans ofanþilja, en þá var
það vitað, að 29 flugvélar
hefðu eyðilagzt. Er síðast
fréttist var sjúkraskip á
leið til Forestals að lið-
sinna særðum.
Forestal er þriðja stærsta
flugvélamóðurskip Banda-
ríkjamanna með um 3400
manna áhöfn og getur haft
85 flugvélar innanborðs.
Stækkyeiarglerió
Framhald af bls. 7.
ur reyndar gegnumgangandi í
þjóðsögum, en eins og ég sagði
áður, væri þá hægt að sýna eitt-
hvað annað meðan hann stæði
sem hæst, svona til að breyta
dálítið til.
— Hver er eftirlætis listgrein
þín?
—Nú sem stendur er það kvik
myndagerð. Annars eru viss
tengsl á milli þessara þriggja list
greina. Sem dæmi mætti nefna,
að teiknun þjálfar með manni
góða formskynjun, sem aftur er
þörf við kvikmyndagerð. Ég
nefndi það áðan, að ég legði
mikla áherzlu á persónulýsingar
og raunar lýsingar allra hluta í
smásogum mínum..Þarna kemur
fram auga teiknarans. Ég verð
þess raunar var, að ég nálgast
allar listgreinarnar þrjár úr
sömu áttinni, þ-e. beiti sama
túlkunarmátanum á þær allar.
íSi SKRÝTIN HÚS.
— Verður þú fyrir miklum
áhrifum annarra?
— Já, víst verð ég það. Samt
sem áður eru þessi áhrif ekki
einstaklingsbundin. — Enginn
einn maður hefur í rauninni
verkað á mig öðrum fremur.
Hins vegar hrífst ég oft af ein
stökum málverkum og einstök-
um kvikmyndum, sem og köflum
í bókum. Allt slíkt hefur sín á-
hrif þótt óbein megi teljast. Fé-
lagar mínir eru auk þess flestir
sama sinnis og ég, þannig að
innbyrðis áhrif eru einhver. í of
análag hef ég alltaf hrifizt mjög
af því sem skrýtið er- Það er
sama hvort í hlut á skrýtið fólk,
skrýtið hús eða jafnvel skrýt-
inn lampi, ég hef áhuga á því
öllu. Stundum þegar nóttar og
'kyrrð færist yfir borgina, geng
ég út og leita að skrýtnum hús-
um. Ég geng svo heim, en áhrif
in eru varanleg.
— Hvað viltu segja um ís
' lenzka listamenn?
— Um þá vil ég helzt ekkert
segja. Ég tel ei á lofið bætandi.
Hins vegar þykir mér athyglis-
vert, að svo virðist sem einhver
gloppa sé í listsköpun hjá fólki
milli tvítugs og þrítugs. Engir
listamenn á því aldursskciði
geta í dag talizt framúrskarandi.
Þetta er ef til vill afleiðing heim
styrjaldarinnar síðari. Nú tel
ég raunar vera að spretta upp í
landinu kynslóð ungra manna
og kvenna, sem brátt munu hasla
sér völl á sviði listsköpunar.
— Er þér anht um almennings
álitið?
— Ekki held ég það, en þyk-
ir þó rétt að taka nokkuð tillit
til þess- Raunar finnst mörgum
listamönnum gaman að glettast
dálítið við almenning og almenn
ingi ekki síður við listafólkið. Ég
reyni að fara bil beggja.
— Hyggur þú á frekara list-
nám?
— Líklegt þykir mér það. Ég
hef dútlað við þetta of lengi, til
að geta nú snúið aftur til hvers
dagsleikans.
Þaravinnsla
Framhald af bls. 2.
upp rannsóknarstofnun í áfeng
ismálum. Þá skuli veita vísinda
lega fræðslu um áfengismál í
öllum skólum og eigi skólarn-
ir sjálfir að sjá um þá kennslu.
Enn er lagt til, að áfengis-
varnarnefndir séu sameinaðar
félagsmálanefndum og ráðstöf-
unum áfengismálum komið fyr
ir sem almennum lið í félags-
málastarfi þjóðfélagsins. Enn
er lagt til, að sektir fyrir ölv-
un falli -niður.
Arbeiderbladet átti í tilefni
af hinni nýju Stefnuskrá sam-
tal við formann Verðanda í
Stokkhólmi, Bengt Hallberg.
Hann kvað samtökin vilja ein-
beita sér að orsökunum fyrir
misnotkun áfengis, svo sem fé-
lagslegum erfiðleikum og efna
hagslegu misrétti. Samfélagið
eigi að einbeita sér að orsök-
um ^fdrykkjunnar, en síðan
eigi 'hin -frjálsu samtök að ann
ast baráttuna fyrir algeru bind
indi einstaklinga. Hið gamla
slagorð hefði verið „áfengis-
laust þjóðfélag“, en hið nýja
áfengi“.
væri „þjóðfélag án tjóns af
Verðandi er ekki einn um
hina nýju stefnuskrá. Að henni
standa einnig „Lánkrörelsen“
(samsvarar AA) , og bindindis-
samtök stúdenta. Á aðalfundi
Verðanda var deilt um 18 ára
markið, en stefnuskráin að
öðru leyti samþykkt einróma.
Arbeiderbladet átti einnig
viðtöl við nokkra forystumenn
norsku bindindishreyfingarinn
ar, og snerust þeir á móti þess
ari nýju stefnuskrá. Þeir telja
algert bindindi óhjákvæmilegt
fyrir þá, sem standa höllum |
fæti gagnvart áfenginu- Þeir
skýrðu svo frá, að lengi hefðu
verið átök innan sænsku bind-
indishreyfingarinnar, og hefðu
Verðandi menn meðal annars
fylgt því, að selt yrði svonefnt
„milliöl“ á þeim grundvelli,
að aukin neyzla veikra drykkja
mundi valda minna tjóni en
drykkja ihinna sterku veiga.
Verðandi og stúdentasamtökin
hafa aðeins brot af 393.000 fé
lagsbundnum bindindismönn
um Svíþjóðar innan sinna vé-
banda.
Strætisvagn
á dæluhús
Kl. 8,20 í gærmorgun var stór
strætisvagn sem flutt hafði verka-
menn til vinnu í Straumsvík á leið
eftir Suðurgötu í Hafnarfirði upp
að endastöð áætlunarleiðarinnar
Reykjavík—Hafnarfjörður og átti
að hefja áætlunarferð. Þegar
vagninn er nýkominn inn á Suð-
urgötuna segist vagnstjórinn
hafa ætlað að rétta vagninn af,
en þá hafi stýrið festst, hefði hann
þá ætlað að liemla, en liemlarnir
ekki virkað. Vagninn fer þá út af
veginum hægra megin og lendir
á dæluhúsi vatnsveitunnar og
brýtur leiðsluna sem liggur upp á
Hvaleyrarholtið í sundur og var
hverfið þar vatnslaust og raf-
magnslaust fram yfir hádegi.
Blaðið hafði tal af nokkrum
Hafnfirðingum um málið, og bar
þeim saman um, að mikill óhug-
ur væri í bæjarbúum vegna á-
stands strætísvagnanna, stýri og
hemlar í ólagi og hjólbarðar mjög
slitnir í þetta skipti, en það væri
ekki einsdæmi. Óhjákvæmilegt'
hlyti að vera, að skipuð yrði rann
sókn á rekstri vagnanna.
Jarðskjálft-
ar enn
ENN urðu jarðhræringar á
Suðurlandi í fyrrinótt. Snarpur
kippur varð um kl. 2.25 — og
fannst hann greinilsga á svæðinu
frá Reykjávík austur í Álftaver,
ennfremur úti í Surtsey. Níu
minni hræringar fundust á Hellu
og séx í Villingaholti. Líklegt
er að upptökin séu á svipuðum
slóðum og undanfarna daga.
Haförn með
fullfermi
HAFÖRNINN kom í fyrrinótt úr
fimmtu ferð sinni af síldarmið-
unum til Siglufjarðar og er nú
búinn að flytja þangað um 18
þúsund tonn alls. Ferðin á miöin
tekur alls fimm sólarhringa og
hafa flutningarnir gengið mjög
vel, þótt leiðin sé löng. Haförn-
inn hefur fært síldveiðiskipun-
um bæði vistir og olíu og má sem
dæmi um gagnsemi þessara flutn-
ingaskipa, sem sækja síldina, að
í ferðinni á undan seldi Haförn-
in síldveiðiflotanum 143 þúsund
lítra af olíu.
PHILIPS
kæliskápur
Höfum fyrirliggjandi 5 stærð-
ir af hinum heimsþekktu
PHILIPS kæliskápum.
137 L 4,9 cft.
170 L 6,1 cft.
200 L 7,2 cft. ^
275 L 9,8 cft.
305 L 10,9 cft.
Afborgunarskilmálar.
Gjöi’ið svo vel að líta inn.
VHTOðlNSTORG
S í MI 1 0 3 2 2
Lesið Aiþýðublaðið
Alúðarfyllstu þakkir flytjum við öllum þeim, sem auð.
sýndu samúð og vináttu við andlát og jarðarför
INGILEIFAR EYJÓLFSDÓTTUR,
STEINSKOTI EYRARBAKKA.
Eyjólfur Ágústínusson, 'T]j
Daníel Ágústínusson, Anna Erlendsdóttir,
Bjarndís Gúðjónsdóttir, Úlfar Magnússon
og barnabörn.