Alþýðublaðið - 02.08.1967, Side 10
fcsjUtsfrSóri Qrn Eidsson
Golfsamband íslands
25 ára 14 ágúst n. k.
Reykjavíkurmeistarar KR taka við verðlaunum, talið frá vinstri: Baldvin Baldvinsson, Eyleifur Haf-
steinsson, Gunnar Felixson, Ársæll Kjartansson, Guðmundur Pétursson, Halldór Björnsson, Þórður
Jónsson, Bjarni Felixson, Sigurþór Jakobsson, Jóhinn Reynisson og Ellert Schram.
K R Reykjavíkurmeistari
Akranes vann Keflavík
1:0 og á ennjbd von
Tveir skemmtilegir leikir voru
háðir í knattspyrnu um helgina,
Á sunnudag léku Akurnesingar
og Keflvíkingar í 1. deild í Kefla
,vík. Leiknum lauk með sigri
Skagamanna, sem skoruðu eitt
mark gegn engu. Á má'nudags-
kvöld var svo háður úrslitaleikur
Reykjavíkurmótsins milli KR og
Fram. KR-ingar sigruðu með 1
marki gegn engu í fjörugum leik,
sem segja má, að hafi verið leik-
ur hinna glötuðu tækifæra.
* ÍA — ÍBK 1:0
Fyrir leikinn á sunnudag hef-
ur verið öruggt talið, að Akur-
nesingar myndu falla niður í 2.
deild að þessu sinni. Eftir sigur-
inn yfir Keflvíkingum hefur
kviknað övlítil von hjá liðinu, en
til þess að sú von rætist, verða
.Akurnesingar að .sigra Fram í
eina leiknum, sem þeir eiga eftir
og KR-ingar að tapa fyrir Fram
og Akureyri. Ef svo færi yrði lið
þessara frægu knattspyrnustór-
velda að þreyta aukaleik um sæti
í 1. deild.
Leikurinn á sunnudag var
heldur slakur, tækifærin voru
næg, en það gekk heldur illa að
nýta þau, eins og því miður vill
fulioft henda hjá íslenzkum knatt
spvrnuliðum.
Markið, sem skorað var kom
upp úr aukaspyrnu, sem Þórður
Jónsson tók. Hann sendi knött-
inn fyrir markið til Matthíasar,
sem var í góðu færi og renndi
knettinum í netið. Dómari var
Valur Benediktsson.
★ KR Reykjavíkurineistari
Lið KR og Fram voru jöfn að
stigum í Reykjavíkurmótinu í vor
og þreyttu aukaleik um meistara-
titilinn á Melavellinum á mánu-
dagskvöld. Leikurinn var fjörlega
leikinn af beggja hálfu. Framar-
ar sóttu þó mun meira og átti
nær óteljanöi tækifæri til að
skora, en tókst ekki. Vörn KR
stóð sig með afbrigðum vel, sér-
staklega Guðmundur Pétursson í
markinu, sem lék nú aftur með
KR. Þá vakti ungur bakvörður,
Halldór Björnsson einnig athygli
Frh. á 14. síðu.
PÉTUR BJÖRNSSON VARÐ
REYKJAVÍKURMEISTARI
í GOLFI
Pétur Björnsson varð Reykja-
,-víkurmeistari í golfi, en keppn-
inni lauk á Grafarholtsvellinum
um helgina. Keppni var skemmtí-
leg og um tíma ógnaði Einar
-Guðnaspn mjög sigri Péturs.
Úrslit:
i'Meistaraflokkur:
Pétur Björnsson, 326 högg. • !
Einar Guðnason, 328 högg.
Óttar Ingvason, 329 högg.
1. flokkur:
Svan Friðgeirsson, 351 högg.
Gunnl. Ragnarsson, 358 högg.
Eiríkur Helgason, 360 högg.
j 11. flokkur:
Halldór Sigmundsson, 389 högg.
Sveinn Gíslason, 392 högg. -
Guðmundur markvörður KR
bjargar naumlega.
í tilefni þessara tímamóta hef-
ur verið ákveðið að efna til reglu-
legrar golfviku hér sunnanlands
dagana 13. til 19. ágúst n.k.
Golfvikan hefst með afmælis-
keppni á golfvelli Golfklúbbs
Reykjavíkur við Grafarholt’ sunnu
daginn 13. ágúst n.k. og verða
þá leiknar 18 holur í öllum flokk-
um, þ.e.a.s. í unglingaflokki,
kvennaflokki, 2. flokki, 1. flokki
og meistarafiokki. Er ekki að efa
að þátttakendur verði geysimargir
í móti þessu, þar sem flest-
ir þátttakendur í landsmótinu
sem haldið verður síðast í vik-
unni verðj þátttakendur. Tvenn
eignarverðlaun eru veitt fyrir
beztan árangur í hverjum flokki.
Mánudaginn 14. ágúst á afmæl
isdegi sambandsins verður golf-
þing, sem er aðalfunöur sam-
bandsins, haldið.
Þriðjudaginn 15. ágúst fer
fram öldungakeppni með og án
forgjafar og jafnframt sveita-
keppni. í hverri keppni er um
að ræða 18 holu höggleik.
Hér er um að ræða fyrsta þátt
meistaramótsins. Rétt til þátt-
töku í öldungakeppninni eiga þeir
einir sem komnir eru yfir 50 ára
aldur en eins og kunnugt er hafa
ýmsir af fremstu golfleikurum
landsins þegar náð þeim aldri. í
sveitakeppninni, sem háð verð-
ur þennan dag er hins vegar öll-
um þátttakendum í landsmóti
heimil þátttaka, sveitirnar eru
ekki valdar fyrirfram frá hverj-
um klúbbi en sex beztu menn
hvers klúbbs mynda síðan sveit
hans eftir úrslitum. Fær klúbbur
sá er sigur ber af hólmi heiður-
inn af því að eiga beztu golfsveit
íslands árið 1967. Þetta er í raun
og veru Jokaæfing fyrir sjálfa
meistarakeppnina, en hún hefst
hinn 16. ágúst n.k. Sú keppni fer
fram í þremur flokkum karla, 2.
flokki, I. ílokki og meistaraflokki.
Hér er um að ræða 72 holu högg-
leik, sem leikinn verður á tveim-
ur völlum, á Hólmsvelli í Leiru
þar sem allir þessir flokkar leika
36 holur og á Grafarholtsvelli í
Reykjavík, þar sem hinar 36 hol-
urnar verða leiknar. Verður leik-
ið á báðum völlum samtímis 18
hoiur á dag í fjóra daga. Mun
meistaraflokkur hefja leik á
Hólmsvelli í Leiru og leika þar
16. og 17 ágúst' en síðan í Graf-
arholtj 18. og 19. ágúst. Ekki er
endanlega afráðið enn hvort 1.
eða 2. flokkur hefur leik í Graf-
arhoiti en það fer nokkuð eftir
fjölda þátttakenda í hvorum
flokki, þar sem hugmyndin er
að sem jafnastur fjöldi leiki á
hvorum velli.
Keppni í ungiingaflokki verð-
ur háð á Grafarholtsvelli við
Reykjavík. Hún verður að þessu
sinni 72 holur, en brautir eru þá
nokkru styttri en í meistara-
keppni. Sú keppni er einnig 72
holu höggleikur eins og áður seg-
ir og fer fram sömu daga og
meistarakeppnin eða 16. til 19.
ágúst.
í unglingaflokki eru ýmsir mjög
góðir golfleikarar og margir
þeirra gefa ekkert eftir golfleik-
urum í 1. flokki með hliðsjón af
getu og einstaka er hæfileikum
búinn til að skipa meistaraílokk
nú þegar. Er ekki að efa að keppni
þessi verður m'jög spennandi.
Meistarkeppni kvenna: í sam-
bandi við þessa golfviku í tilefni
Frh. á 14. síðu.
Tvö met
Á móti Sundsambandsins í
Sundlauginni í, Laugardal voru
| sett tvö ísl. met. Guðmunda Guð-
1 mundsdóttir, Selfossi setti met í
400 m. skriðsundi, synti á 5:17,3
mín. Gamla metið, 5:22,2 mín. Þá
setti Sigrún Siggeirsdóttir, Ár-
manni met í 200 m. baksundi,
synti á 2:47,3 mín. Gamla metið,
sem hún átti sjálf var 2:54,6 mín.
Nánar um mótið á morgun.
AKUREYRI-
VALUR
í KVÖLD
í kvöld lcl. 20 leika Valur
og íþróttabandalag Akur-
eyrar á Akureyrarvelli. Leik
ur þessi er mjög þýðingar-
mikill fyrir bæöi liðin. Sigri
Akureyringar eru sigur-
möguleikar Vals og Akur-
eyringa jafnir og reyndar
Fram einnig, en þess ber
þó að geta, að loknum leikn
um í kvöld eiga Valur og
Akureyri einum leik ólokið,
en Fram tveimur. Sigri Val-
ur í kvöld eru sigurmögu-
unni og meistaratillinn fell
leikar Akureyringa úr sog-
ur annað hvort Val eða FrUm
í skaut. Heyrzt hefur, að
Áriii Njálsson geti ekki leik
ið með vegna meiösla óg
veikir það Valsvörnina að
sjálfsögðu mikið.
Valsmenn hafa tekið DC
6 vél á leigu norður og er
hún fullsetin.
jyo 2- ágúst 1967-—. AbþýÐUBLAÐIÐ