Alþýðublaðið - 06.08.1967, Síða 1
Sunnudagur 6. gúst 1967 — 48. árg. 176. tbl. — Verff kr. 7
<$UH/Ute6ufS
*—■— ........■■■■■■■..
Þyrla notuð
til löggæzlu
um helgina
Um heígina verður þyrla Landhelgisgæzlunnar not
uð til eftirlits með þjóðvegum landsins, liðsflutninga
lögreglunnar og slysaflutninga, ef þörf krefur.
! METDAGUR í
FLUGINU
f Flugfélagr íslands hefur
f aldrei í sögu sinni flutt jafn-
V marga farþega á einum degi
f og í fyrradag. Þá flugu með
flugvélum félagsins alls lið- stanzlaust allan daginn — . <
lega 2000 manns, rúmlega 350 Myndin liér að ofan var tekin .1 't
í utanlandsflugi og 1645 innan á Reykjavíkurflugvelli í gær- ' |
lands, þar af fóru um 1000 morgun, er hópur þjóðhátíðar 11,
mjlli Iands og Eyja. Alls fóru gesta var að halda upp í far-’ Ó
flugvélar f élagsins 25 ferðir kost sinn. • Við óskum þeim * J
til Vestmamiaeyja í fyrradag. góðrar skemmtunar, eins og , i!
í gær voru ráðgerðar 5 ferðir, öðrum sem gera sér einhvem 11
6 ferðir í dag en á miánu- dægramun um helgina.
daginn verður flogið þangað
Pétur Sveinbjarnarson umferð-
arfulltrúi skýrði Alþýðublaðinu
frá því í gær, að lögreglan befði
fengið til afnota þýrlu landhelgis-
gæzlunnar um helgina, og verður
hún einkum notuð í þrennum til-
gangi: Til umferðkrgæzlu á veg-
um úti, til sjúkraflutninga, ef
iþörf er á, og til liísflutninga
milli staða, ef ástæða þykir. Flug
maður þýrlunnar verður Björn
Jónsson og með honum í hverri
ferð verða löggæzlumenn, sem
verða tilbúnir að taka að sér
umferðarstjórn, ef þqrf krefur,
eða skakka leikinn, þar sem svo
kann að vilja til,
Fyrsta eftirlitsför þyrlunnar
var farin kl. 14.30 í gær og var
lögreglustjórinn í Reykjavik með
í þcirri för, en eitt af því sem
íþyrlan verður notuð til, verður
að flytja yfirmenn lögreglunnar í
eftirlitsferðir til hinna ýmissu
Frh. á 10. síðu.
NÆR ÞVl RMMTIHVER HREPPUR
MED FÆRRIIBÚA EN HUNDRAÐ
Hagstofan hefur nú birt endan
legan tölur um mannfjöldann á Is-
landi 1. desember s.l., og hafa
landsmenn þá reynst vera alls
196.933 að tölu, 99.546 karlar og
97.387 konur.
Reykjavík er að sjálfsögðu lang
fjölmennasti staðurinn. Þar búa i
alls 79.202, 38.651 karl, og 40.551 i
kona. í öðrum kaupstöðum búa
samtals 54.995, 27.753 karlar og
27.242 konur. í sýslufélögum búa
alls 62.736, 33.142 karlar og 29.594
konur.
Fjölmennasti kaupstaðurinn ut-
an Reykjavíkur er Kópavogur
með 10.014 íbúa, þá Akureyri
með 9.943 íbúa og í þriðja sæti
er Hafnarfjörður með 8.555 íbúa.
Síðan koma aðrir kaupstaðir í
þessari röð: Keflavíki 5.422, Vest-
mannaeyjar 5.002, Akranes 4.162,
ísafjörður 2.719,
2.402, Húsavík 1.871,
ur 1.521, Sauðárkrókur 1.416, Ól-
afsfjörður 1.063 og Seyðisfjörður
905
Af sýslufélögum eru tvö lang-
samlegast fjöimennust,....Ámes-
sýsla með 7.840 íbúa' og 'Gtlll-
bringusýsla með 7.010 -:ibúar Kang-
fámennasta sýslufélagið er.-'AvSt-
ur-Barðastrandarsýsla með 493
íbúa. íbúatala annarra ■ sýslna
er sem hér segir: Suður-Múlasýsla
4.847, Snæfellsnessýsla i .4114)2,
Eyjafjarðarsýsla 3.899, Kjósar-
sýsla 3.240, Ra Hgárvallásýsia
3083, S-Þingeyjarsýsla 2.826,
Skagafjarðarsýsla 2.583, Norður-
Múlasýsla 2.391, Austur- Húna-
vatnssýsla 2.335, Mýrasýsla 2.069,
Vestur-Barðastrandarsýsla 2.020,
Norður-ísafjarðarsýsla 1.951,
N-Þingeyjarsýsla 1.1895, V-Skafta
fellssýsla 1.783, Borgarfjarðarsýsla
1.464, A-Skaftafellssýsla 1.449,
Strandasýsla 1.414, Vestur- Húna-
vatnssýsla 1.401, Vestur- Skafta-
fellssýsla 1.397, og Dalasýsla 1.154
I þéttbýlisstöðum utan kaup-
staða búa alls 33.153 íbúar. Sjö
slíkir þéttbýlishreppar hafa yfir
þúsund íbúa hver og eru þeir
þessir, raðað eftir fólksfjölda:
Selfosshreppur 2.155, Garðahrepp
ur 2.059, Seltjarnarneshreppur
1.878, Njarðvíkunhreppur 1.538,
Borgarneshreppur 1.037, Stykkis-
hólmshreppur 1.020 og Patreks-
hreppur 1.014. Tólf héttbýlis-
hreppar ihafa færri íbúa en 100,
og er Djúpavík þeirra fámennast
ur með 28 íbúa. ,
Hreppsfélög á landinu eru alls
213, og af þeim hafa 40 hreppar
færri íbúa en 100, þar af 8 færri
íbúa en 50. Fámennastur þessara
hreppa er Loðmundarfjarðarhrepp
ur í Norður-Múlasýslu með 11
íbúa, en aðrir hreppar með færri
íbúa en 50 eru Fjallalireppur,
N-Þingeyjarsýslu 29. Selvogshrepp
ur, Árnessýslu 33, Kétildalahrepp
ur, Vestur-Barðastrandasýslu 38,
Múlahreppur, Austur-Barða-
strandasýslu 39, Klofningshrepp-
ur, Dalasýslu 42, Snæfjallahrepp-
ur, Norður ísafjarðarsýslu 45 og
Seyðisfjarðarhreppur, Norður-
Múlasýslu 47 íbúa.
Norrænt móí um
fjölmiðlunartæki
Norræna félagið í Danmörku
efnir til ráðstefnu dagana 20. til
26. ágúst. Fundarstaður verður á
óðali félagsins, Hindsgavl, og við
íangsefni ráðstefnunnar verður
„Maðurinn og fjölmiðlunartæk-
in“. Stjórnendur eru dr. phil. Há-
kon Stangerup og Rrarb» Vendt.
Framhald 10. síðu.