Alþýðublaðið - 06.08.1967, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 06.08.1967, Blaðsíða 12
{JU0VUIC&U3S Almenn kurteisi og Einhver mreki- legustu tíðindi vikulokanna, ef elcki vikunnar allrar, er auð- vitað-eldflaugar skot Evrópu- þjóðanha, sem fram fór í Ást- ralíu, sjálfsagt til þess að þurfa ekki að gera upp á milli heimagrunda aðildarríkj- anna, En þetta skot tókst til, eins og við var raunar að bú- ast; það tókst nefnilega alls etrid, heldur mistókst. Og til •|>2ss lágu gildar og skiljanleg ar ástæður. Tit þess að undirstrika . að íiér var um að ræða samvinnu ■faHU margra þjóða að ræða, var eldflaugin sett saman úr pörtum frá mismunandi lönd- um. Fyrsta þrep eldflaugarinn ar var brezkt, annað franskt og s\'o ’koli af kolli. En þetta ieiddi aS sjálfsögðu til þess að tií- fraunin hlaut að mistakast. og Íþað hefðu aðstandendur liennar ratmar átt að vita fyrir. En vís indamenn hafa löngum þótt ífieidur bláeygðir og saklausir, Hiegar stórpólitikin er annars vvegar, og lilýtur það að vera fikýringin á þvi, hve barnalega 4þeir virðast hafa haldið á mál- <unum. En auðvitað var útilok að frá byrjun að franski hluti eldflaugarinnar gæti farið i sömu stefnu og sá brezki. í tiyrjun gekk skotið vel; brezka eldflaugariþrepið tók stefnuna VJPI> á við, eins og vera ber, «n síðan tók það franska við, Og það fór auðvitað í þver- öfuga stefnu við það brezka og hlunkaði sér til jarðar aftur. Er það alveg í fullu samræmi við stefnu de Gaulles á öðrum sviðum. Fleira hefur að sjálfsögðu bor ið upp á en þetta geimskotsó- Ihapp. Enn er ekki vitað hvort Tsjombi verður sendur suður til Kongó, eða hvort hann verð ur fitaður betur áður norður í Alsir. En hann er að sjálfsögðu ætlaður til frálags Iþar suður frá og því betra að láta hann liljóta rétta meðferð áður. Kvikmyndahúseigendur rita í Moggann í gær og eru alveg ógurlega reiðir yfir því sem stundum er skrifað um bíómynd irnar þeirra í blöðin. En þeir bera þar fram kröfu, sem hætt er við að erfitt verði að fram fylgja til hlítar. Þeir segja: „Ritstjórar eiga að vera svo vandir að virðingu sinni og blaða sinna, að þeir geri al- menna kurteisi og skynsemi að lágmarkskröfu þess, að menn fái að skrifa í blöð þeirra að staðaldri". Það er ósköp hætt við áð heldur litið standi í blöð unum suma daga, ef þessari regltt j'rði beitt af strangleika, þótt þetta sé út af fyrir sig ágæt og sjálfsögð regla. Raun ar bætir það nokkuð úr skák, að kvikmyndahúsaeigendur leyfa í þessari grein sinni, að al menna kurteisi og skynsemi megi stöku sinnum vanta, bara það sé ekki að staðaldri. og er það auðvitað sjálfsögð tilhliðr- unarsemi við félagasamtök ýmiss konar, sem sýknt og lieilagt eru að senda frá sér greinargerðir út af öllu mögulegu og ómögu legu. skynsemi Ullarverksmiðja í Mosfellssveit sendi frá sér tilkynningu ný- skeð um nýjungar í lopavinnslu Þeir láta sér nefnilega ekki lengur nægja iþar á bæ að teygja lopann, heldur snúa upp á hann líka. Baksíðan get ur þó ekki séð að þarna sé um neina nýjung að ræða, því að þetta hefur hún gert frá fyrstu tíð og er þetta raunar ekki í fyrsta skiptið sem liugmyndum baksíðunnar er hrundið í fram kvæmd. Hvað e/ Hekla gýs stórgosi? HÓPUR eriendra ferðamanna fór í Þjórsárdal. Með þeim var ís- ienzkur fylgdarmaður, sem var duglegur við að segja frá öllu, sem fyrir bar, og svara spurningum. Hann fór með hópinn um dalinn og sýndi þeim bæjarrústir með skýringum á því, hvernig Hekiu- gos eyddu byggð í dalnum. Síðan sýndi. hann hinar miklu virkjun- arframkvæmdir við Búrfell. í baksýn blasti Hekla við, fögur og tignarleg. Þá sneri ensk kona, sem hlustað hafði af mikilli athygli, sér aS fylgdarmanninum og spurði; Hvað ætlið þið að gera með þetta mikla raforkuver, ef Hekla byrjar aftur að gjósa eins og þegar hún eyddi dalnum? Nú varð fylgdarmannlnum orðfaii, en þá kom dönsk ferðakona honum til hjálpar og sagði; Þá kalla þeir á brunaliðið. ÉG SÉ EKKI BETUR, en það sé auðveldasti hlut- ur í heimi að ná háum aldri. Maður þarf ekkert að gera nema bíða, þá kemur þetta allt með tímanum. — Ertu nokkuð veik fyrir? •— Jú, en það er mér þara til ánægju. TSorderís

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.