Alþýðublaðið - 20.08.1967, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 20.08.1967, Qupperneq 1
Sunnudagur 20. apríl 1967 — 48. árg. 85. tbl. — VERÐ 7 KR. Veröur Lauga- vegurinn svona? i HVAÐ GERIST VIÐ LAUGAVEGINN? EINS og kunnugt mun af frétt- um hefur H-dagur verið ákveð- inn 26. maí á næsta vori. Jafn- framt því, sem umferð öll fær- ist þá yfir á hægri vegarkant, verður einnig nokkur röskun á einstökum götum, einkum hér í Iteykjavík, og snýst umferð sums staðar við. Svo er t. d. um Lauga veg og Hverfisgötu. Ökutæki ínunu eftir breytinguna, þvert á móti því scm verið hefur, aka niður Hverfisgötu og upp Lauga veg. Þessi breyting virðist víða hafa valdið kviða og mátti m. a. nýlega lesa um það frétt í einu dagblaðanna, að kaupmenn við Laugaveg væru mjög uggandi um sinn hag. Við Mingdum 'á’ skrifstofu borgarverkfræðings og höfðum tal af Guttormi Þormar, yfir- verkfræðingi. Hann tjáði okkur, að rétt væri að umferð yrði snú- i? við á þessum götum. Að vísu a»tti enn eftir að samþykkja þessa brejfingu á æðri vígstöðv- iyn, en það væri svo gott sem gert. — Guttormur sagði okkur hins vegar, aö hér væri engan veginn um framtíðarskipan að ræða. í heildarskipulagi Reykja víkurborgar væri gert ráð fyrir, að Laugavegi yrði með tíman- um lokað fyrir allri umferð öku- tsekja, og mætti þá gera ráð fyr- if að hún efldist sem verzlunar- gata. Hverfisgata jrrði aftur á móti breikkuð og ætti hún að verða tvístefnuakstursgata í framtíðinni. Gatan yrði breikk- uð til norðurs. Einnig yrðu fjar- Jökulsárbrú- i vígð 2. sept Brúin yfir Jökulsá á Breiða a merkursandi er nú senn é fullgerð, og verður hún vígð \ af samgöngumálaráðherra og á opnuð til umferðar laugar- f daginn 2. september næst t komandi, aö því er Sigurð- i ur Jóhannsson vegamála- J stjóri tjáðj bíaðinu í gær. r lægð þau hús sunnan megin göt- unnar, sem nú standa út í hana miðja. Guttormur sagðist ekk- ert geta sagt um hvenær af þess um breytingum gæti orðið. Bær- inn væri smátt og smátt að kaupa upp þau hús við Hverfis- götuna, sem nauðsjmlegt er að fjarlægja áður en unnt er að breikka götuna. — Guttormur nefndi, að búið væri að semja við danska sendiráðið um að það léti af hendi hluta af garð- inum fyrir framan húsið og fengju Danir í staðinn lóð að húsabaki. Að lokum ítrekaði Guttormur,' að ómögulegt væri að segja um að svo komnu máli, hvenær Laugavegi yrði lokað og « Hverfisgata opnuð til tvístefnu- aksturs, þó yrði það ekki á næstu árum. Sökum fregna af- óánægju kaupmanna- vegna breytingarinn ar höfðum við tal af formanni Kaupmannasamtaka íslands, Sig urði Magnússyni. Hann sagði okkur, að kaupmannasamtökin hefðu átt viðræður . við fram- kvæmdastjóra umferðarnefndar Reykjavíkurborgar og tjáð hon- um áhyggjur sínar vegna fyrir- hugaðrar breytingar. Sigurður sagði, að kaupmönnum við Lauga veginn væri það ljóst, að samkv. skipulagi borgarinnar yrði Laugavegur girtur af einhvern tíma í framtíðinni og úr því býggður upp sem verzlunargata. Hins vegar sæju þeir fram á langa bið og væru áhyggjur þeirra þaðan sprottnar. Kaup- menn tækju ekki afstöðu til hægri eða vinstri umferðar, en þeir óttuðust að með umturnun umferðar á Laugavegi og Hverf- isgötu yrði stöðu Laugavegs sem verzlunargötu stórlega raskað. Umferðarkönnun hefði gefið til kynna þann mikla fjölda fólks, sem tekur strætisvagn niður í bæ og stígur af þeim einhvers staðar á Laugavegi. Verzlanir þar ættu afkomu sína að miklu leyti undir þessu fólki. — Eftir breytinguna væri ljóst, að stræt- isvagnar flyttu þetta fólk niður Hverfisgötu. Hins vegar yrði Laugavegur leið út úr bænum. — Fólkstraumurinn mundi því dreifast út frá Hverfisgötu og aðeins lítill hluti hans liggja upp á Laugaveg. Væri sýnt, að þetta hlyti að draga til muna úr viðskiptum þar. Ekki lagði Sig- urður neinn dóm á um hvert fólkið mundi leita. Benti hann á, að um 200 verzlanir væru stað- settar við Laugaveg og væri þar um að ræða gífurlega fjárfest- ingu. Væri mikið í húfi, ef sú röskun yrði, sem óttast er. Vilja kaupmenn við Laugaveg, að sem minnst röskun verði framkvæmt á þessum götum unz framtíðar- skipaninni, þ. e. algjörri lokun Erh. á 10. síðu. UTANRÍKIS HERRAFUNDUR Emil Jónsson, utanríkisráðherra, hcldur utan á mánudag á fund utanríkisráðlierra Norðurlanda í Helsingfors. Fundurinn stendur yf ir á þriðjudag og miðvikudag. Eft ir utanríkisráðherrafundinn verð ur lialdin sérstakur fundur nm Loftlciðamálið og mæta þar utan- ríkisráðherrarnir allir nema Finn lands og samgöngumálaráðherrar Danmerkur, Noregur, Svíþjóðar og íslands og situr Ingólfnr Jóns son, samgögnumálaráðherra þenn an fund. Á utanríkisráðherrafundinum í Helsingfors verða einkum ræddir tveir málaflokkar, ástandið í þjóðamálum og störf Norðurland anna á næsta Allsherjarþingi Sam einuðu þjóðanna, sem hefst í sept., sagði Emil Jónsson ut- anríkismálaráðherra í samtali við Alþýðublaðið. Meðal þirra mála sem rædd verða innan fyrrnefnda málaflokksins er ástandið í Viet- nam, Grikklandi, Afriku og fyrir botni Miðjarðarhafs og svo af- vopnunarmál, sagði utanríkisráð- herra. Þá sagði ráðherrann að byggt yrði á fyrri tillögum íslendinga í umræðunum um Loftleiðamálið. Þær ganga í stuttu máli út á það að Loftleiðir fái að nota Rolls Royce-vélar sínar á flugleið'um til og frá Norðurlöndunum en tak marki fargjaldalækkun sína við 12% af meðalfjargjaldi á suniriu og 10% á vetrum. Auk Emils Jónssonar utanríkis ráðherra sækja fundinn í Helsing fors Ahti Karajalinen, Finnlandi, John Lyng, Noregi, Torsten Nil son, Svíþjóð og Jens Otto Krag, forsætisráðherra Danmerkur. Ivar Eskeland for- stjóri Norræna hússins Stjórn Norræna hússins ákvað í gær að ráða Ivar Eske- land sem forstjóra Norræna hússins í Reykjavík og inun hana taka við því starfi um næstu áramót. Eskeland hefur síðan 1963 verið formaður útvarpsráðs Nor egs og unnið mikið að útgáfu- og ritstörfum. Hann var ráðinn úr hópi 22 umsækjanda um stöðuna.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.