Alþýðublaðið - 01.09.1967, Side 9

Alþýðublaðið - 01.09.1967, Side 9
TVÍFAR Framhald af 8. síðu. I>egar hann fór að sækja far angurinn sinn var troðningurinn svo mikill að hann gat ekki hreyft hendurnar. Samt fann hann brúnan skinnkraga snerta axlir sínar. Hann fékk leigubil. Það var léttir að fara aftur í leigubíl í London, Hann sagði ökumann inum heimilisfangið, gaf burðar manninum peninga og stökk inn í bílinn. En burðarmaðurinn hélt dyrunum að bílnum opnum iengur en nauðsyn krafði. — Lokaðu dyrunum, maður, kallaði Tony. — Lokaðu strax. — Jó, herra. sagði burðar- maðurinn og fór frá. Dyrnar skullu aftur. Tony leit út um afturgluggann og sá að burð armaðurinn starði á eftir bíln- um. í>að var dimmt í bílnum og Tony sá ekkert. En hann þreif- aði um allt sætið og fann ekki neitt. Nú þagnaði Hargreaves stund arkorn. Hann hafði talað með erfiðismunum smástund, ekki eins og hann óttaðist að orðum hans yrði ekki trúað heldur eins og hann væri að leita að réttu orðunum. Nú greip félagi lians í fyrsta skipti fram í fyrir honum. Ung frú Judith Gates, sem sat hand an við arineldinn. — Augnblik, sagði hún. — Hvað? spurði Hargreaves. — Þessi vera, sem elti Tony. Hún virtist einnig leita að orð unum. —Þér eruð þó ekki að segja mér, að hann, að hún... hafi verið. — Verið hvað? Látinn, sagði Judith. — Ég veit það ekki, sagði Hargreaves og leit í augu henn ar. — Það virtist vera maður í frakka með stórum skinnkraga. Ég segi aðeins sögu Tonys. Judith tók fyrir augun. — En jafnvel þó, sagði hún skrækt,— jafnvel þó að það hafi verið þessi maður, sem þér haldið að það hafi verið. Þá myndi hann aldrei, aldrei hafa reynt að gera Tony illt. Gamli Jim elsk- aði Tony. Hann arfleiddi Tony af öllum eigum sínum en Step- hen að engu. Hann lofaði Tony að gæta hans alltaf. — Það gerði hann líka, ,sagði Hargreaves. — En.... —Þér skiljið ekki enn hvers- konar U1 áhrif þetta voru né hver var ástæða þeirra. Tony gerði það ekki sjálfur. Hann vissi aðeins að hann var í myrkri í leigubíl og hvort; sem 'það var gott eða illt sem elti hann, gat hann ekki afborið það. — Samt hefði allt farið vel, ef ökumaðurinn hefði vdírið gæt inn. En það var hann ekki. Þetta var fyrsta hríðarveður ársins og ökumaðurinn misreiknaði sig. Þegar þeir voru næstum komn- ir heim reyndi ekillinn að beygja of snöggt og' þéir óku beint á tré. . ' — Ég varð að beygja, sagði INN ökumaðurinn. Ég varð. Það var gamall karl í frakka með loð- kraga, sem gekk beint fyrii-. Tony varð að ganga heim. Hann fann, að einhver elti hann áður en hann var búinn að ganga fáein skref. Tvö hundruð metrar er ekki löng leið. En þessir metrar virtust heil eilífð arleið og hann vildi ekki yfir- gefa ökumanninn. Ökumaðurinn áieit, að það væri vegna þess að Tony treysti ekki á heiðarieika hans og þyrði ekki að skilja eft ir farangur sinn meðan gert væri við bílinn. En það var ekki ástæðan. Fyrst gekk Tony hratt, en sá sem elti hann gekk einnig hratt. Tony sá í skini lampans rakan skinnkraga en ekkert annað, þegar hann leit við. Svo fór hann að hlaupa, en hinn var alltaf á eftir honum. Tony hugs- aði álls ekki urn, hvort þetta væri gott eða illt, sem elti hann. Hann vissi aðeins, að þetta var draugur. Og hann vissi, að hann myndi deyja, ef draugurinn næði honum. Hnnn nálgaðist sífellt og Tony hljóp æ hraðar. Það var dimmt í lnisinu. Hann tók upp lyklana en missti þá á tröppurnar og leitaði að þeim í myrkrinu um leið og draugurinn kom inn um hliðið. Hann heyrði ískra í hliðinu um leið og hann fann lyklana og opn aði dyrnar eins og við krafta- verk. En hann var of seinn. Draug- urinn var að koma upp útitröpp urnar. Tony segir að í skini lampans hafi skinnkraginn ver- ið enn blautari og mölétnari en hann ' mundi. Meira veit hann ekki. Hann fór inn í forstofuna, dyrnar voru opnar. Hann var svo ringlaður að hann mundi ekki hvar slökkvarinn var. Draugurinn gekk inn. Tony mundi eftir því að í vas anum var hann enn með byss- una sem hann hafði gengið með á sér um allan heim. Hann fálm aði í buxnavasa sinn undir frakk anum en það var til einskis, því að hann missti byssuna. Nú var draugurinn alveg að kom ast( til ihans 4= jhþnn Ihikaði ekki lengur. Hann stökk upp stigann. Þegar hann var kominn upp, leit hann niður. í birtunni sem skein inn um útidyrnar frá götu ljósinu sá Tony að draugurinn var að taka byssuna upp. Hann heldur að það hafi ver ið þá, sem hann kveikti ljósin. Og hann kallaði eitthvað. Hann stóð við dyrnar að svefnherbergi sínu. Hann opnaði dyrnar og kveikti fleiri ljós. Svo leit hann á rúmið. BÆJARINS BEZTA VEIZLUBORÐ Heilar sneiðar — Kaffisnittur — Coctailsnittur. RAUÐA - MYLLAN Laugavegi 22 — Sími 13628. En maðurinn í rúminu settist ekki upp, þegar hann heyrði há vaðann eða sá ljósin. Hann lá þarna undir 'laki, sem huldi hann allan og Tony Marwell drýgði mestu hetjudáð ævi sinn- ar. I-Iann tók lakið af andliti mannsins í rúminu og leit í and lit sitt, látið liggjandi á rúminu. Áfall? Já. Meiri ógn? Nei. Því þess dauði maður var af holdi og blóði eins og Tony var af holdi og blóði. Hann var ná- kvæm eftirmynd Tony. En nú var ekki um raunverulegan- eða óraunverulegan heim að ræða. Þessi máður var af holdi og blóði og hér var um að ræða svindl. — Svo þú ert lifandi. var sagt í gættinni og Tony leit við og sá Stephen bróður sinn standa þar. Steplrcn var í rauðum slopp og hár hans var úfið. Andlit hans var tryllingslegt. — Ég ætlaði ekki að gera það öskraði Stephen. Jafnvel þó að Tony skildi hann ekki, vissi hann að þetta var játning. Ó- skiljanleg orð, sem vöktu með- aukun með manninum, sem sagði þau. —Ég ætlaði ekki að láta drepa þig um borð á skipinu, sagði Stephen. — Þú veizt að ég vildi ekki meiða þig, veiztu það ekki? Heyrðu. Eins og ég sagði áður stóð Stephen í gættinni og hélt sloppnum að sér. Tony vissi ekki, hvað olli því að hann leit við, kannske heyrði hann þrusk að baki sér. Kannske sá hann eitthvað út undan sér. Stephen leit við og veinaði. Tony sá ekki meira, því að ljósin slokknuðu. Hann var hræddur og hann gat ekki hreyft sig. Hann sá hönd. Þessi hönd skauzt út úr myrkrinu, tók um húninn og lokaði svefnherbergis hurðinni. Hann heyrði lykli snú- ið í skránni fyrir utan. Tony var inni í herberginu og Step- her. var fyrir utan — og hánn veinaði enn. Það var gott fyrir Tony, að hann var læstur inni. Það los aði hann við spurningar lögregl unnar síðar. Frú Reach, ráðkona hefur sagt okkur afganginn. Hún svaf við hliðina á svefnherbergi Step- hens. Hún vaknaði við veinin, ryskingar og þungan andadrátt. Þessi hljóð voru fyrir framan dyrnar hennar og virtust á leið að herbergi Stephens. Um leið og hún kom út úr herberginu heyrði hún dyrunum lokað að herbergi Stephens. Um leið og hún kom fram á gang- inn heyrði hún í annað skipti á tveimur sólarhringum skamm- byssufekot. Frú Reach ber þess vitni að ekkert og enginn hafi komið út úr herbergi Stephens eftir að skotið hljóp af. Hún starði á dyrnar og það liðu fáeinar mín- útur áður en hún þorði að opna dyrnar. Þegar hún gerði það heyrðist ekkert hljóð. Hann var skotinn gegnum vinstra gagn- auga sennilega sjálfsmorð, þar sem skammbyssan fannst við 'hlið hans. Það var enginn í her berginu og allir gluggar lokaðir . að innan. Eina annað sem frú Reach tók eftir var óþægilega st.erk lykt af votu skinni og möl kúlum. Aftur hikaði Hargreaves. Það leit út fyrir að sagan væri á enda. Óviðkomandi mönnum hefði vízt fundist að hann hefði lagt of mikla áherzlu á hrylling inn, því stúlkan hélt höndinni fyrir augun. En Hargreaves kunni sitt starf. Framhald í næsta Helgarblaði. ERUÐ ÞÉR SÆLKERI? Það erum viö. Þér vitið hvers vegna, þegar þér bragdíð á réttum okkar SÆLKERINN HAFNARSTRÆTI. '______ ■__________ GOURMET LE 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.