Alþýðublaðið - 24.09.1967, Side 3
24. september 1967 - Sunnudags Alþýöublaöið
3
Skipin hafi samvinnu
um söltun á miðunum
Framhald af bls. 1.
en þar er sama aðferðin og Norð
anenn nota í sumar til reynslu um
þorð í Uksnöy.
— Síldinni var landað eftir 59
tíma siglingu 'hjá söltunarstöðinni
Björg á Raufarhöfn, og þar var
liún athuguð og tekin til meðferð
ar og ákvarðað um áframhaldandi
verkun. Endanlegar niðurstöður
um gæði síldarinnar og árangur
'tilrauiiarihnar geta þó ekki leg-
Jð fyrir fyrr en eftir 3ja til 5
vikna geymslutíma.
— Allar þær geymsluaðferðir
sem við reyndum, að sjókæling-
unni undanskilinni, krefjast mik
illar vinnu, og það hamlar því auð
vitað að þær geti orðið til að
leysa flutningavandamálið í' stór-
um stíl. Persónulega álít ég, að
það sé algjörlega vonlaus aðferð
alla vega séð að setja síldina heil
a í pækil eða salta úti á miðunum.
ísun á síld getur verið ágæt, séu
kunnáttumenn um ísun um borð,
en þess verður að gæta mjög vel
að merja ekki síldina við ísun, en
henni hættir mjög við að merjast
undir roði og spillir það gæðum
hennar. Varðandi sjókældu síld-
ina mundi ég vilja segja, að ef
menn vissu ekki á hvern hátt síld
in væri komið til landsins, teldu
menn síldina mjög góða og náh-
ast sem nýveidda. Sá galli fylgir
þó sjókælingu, að hreistrið fer að
mestu af síldinni, en það er gömul
venja að meta gæði síldar eftir
hreistursmagni. Sem beitúsíld er
þetta fyrsta flokks vara.
— Ég sannfærðist um það í
þessari ferð, að söltun veröur að
færast frá landi út að veiðisvæð-
unuro, cn það getur orðið með
tvennu móti. í fyrsta lagi gæti
verið um að ræða söltun í sér-
skip, sem keypti síld úti á mið-
unum, og það yrði að sjálfsögðu
að hafa vplar um borð til aðstoð-
ar við söltun. í öðru lagi - og það
er ný hugmynd - væri hægt að
salta um borö í veiðiskipunum, og
þá þannig að fjögur eða fimm
skip störfuðu saman og mynd-
uðu veiðiflota, og aðstoðuðu hvert
annað við veiðarnar. Ég hugsa
þetta þannig, að skipin sigldu
sam-an á miðin og þar köst
uðu fyrst t.d. tvö þeirra. Veiðinni
yrði skipt milli allra skipanna og
söltun gæt hafizt á glænýrri síld
um borð í þelm öllum. Síðan tæki
skip nr. 3 að sér að kasta og veiða
handa flotanum, og síðan koll af
kolli, þar til nægilegt aflamagn
væri komið í öll skipin.
— Svona veiðihópur gæti salt •
að um 6-8 þúsund tunnur á 10-
12 dögum, og söltun gæti hafizt
um miðjan júlí, ef aðstæður
leyfðu. Ég geri mér í hugalund,
að floti sem þcssi, yrði allt að
14 dögum í veiðiferð. Við það spar
aöist geysileg olía, nótaslit verða
miklu minna og álag á allan vél
búnað í lágmarki. Þetta þýddi að
hægt væri að lækka reksturskost-
nað skipanna mjög mikið, en það
er höfuðverkefni. allrar útgerðar
í dag, að lækka stórlega allan til-
kostnað við útgerðina. Með þess-
ari tilhögun væri gert tvennt í
einu - úthaldskostnaðurinn lækk-
aður stórlega og samtímis væri
verðmætasköpunin aukin marg-
falt. Til þess að þetta sé unnt, verð
ur að úthluta bátaflotanum í tæka
tíð fyrir næstu vertíð söltunar-
leyfi fyrir allt að 150- 200 þúsund
tunnum, sem yrðu saltaðar á mið
unum.
— Og að endingu væri ekki úr
vegi að minna á orðtakið: ,,svelt
ur sitjandi kráka...”
Söltunarsildin
myndinni.
rennur niður rennuna. Dælubarkinn sést aftast á
Vopn til Vietnam
Moskva, 23/9 (ntb-reuter).
Stjórn Sovétríkjanna tilkynnti
á laugardag, að hún hyggðist
senda ýmiskonar vopnabúnað til
Norður-Vietnam I þeim tilgangi
að styrkja varnir landsins gegn
Bandarískum árásum. Meðal vopn
anna, sem stjórnin mun senda,
verða eldflaugar og langdrægar
fallbyssur.
Sameining
Framhald af bls. 1.
Árið 1950 virðast á lífi 3094
menn fæddir á ísafirði, þar af
búa á ísafirði 1407 eða ca. 45,5%,
í öðrum umdæmum Vestfjarða,
238 eða ca. 7,7%, alls á Vestfjörð-
um 1045 eða 53,2%.
Utan Vestfjarða búa því 1950
1449 ísfirðingar, þar af í Rvík
og Reykjaneskjördæmi 1172 eða
ea. 37,9%, þar af 981 eða ca.
32% í Reykjavík.
Alls virðast á lífi árið 1950
5629 menn fæddir í sveitahrepp-
um ísafjarðarsýslna og 2124 í
kauptúnum eða samtals 7753.
Þar af búa í ísafjarðarsýslum
3066 eða ca. 38,3%, hlutfall fyrir
fólk fætt í sveitum er 2112 af
5629 eða ca. 37%, en 954 af 2124
fyrir fólk fætt í kauptúnum eða
ca. 44,8%.
Alls á Vestfjörðum 4152 af
7753 eða 53,3%.
Utan Vestfjarða 3601 alls, þar
af á Reykjavíkursvæði og á Suð-
urnesjum 2911 eða ca. 37,6%.
íbúar ísafjarðar 1950 2808
þar af fæddir á ísafirði 1407
þar af fæddir i ísafj. sýslum 888
þar af fæddir í öðrum um
dæmum Vestfjarða 153
Alls á Vestfjörðum 2448 eða
ca. 87,2%.
íbúar Isafjarðarsýslna voru
árið 1950 3840
þar af fæddir í ísafjarð-
arsýslum 3066
þar af fæddir á ísafirði 203
þar af fæddir i öðrum um-
dæmum Vestfjarða 221
Alls á Vestfjörðum 3490
eða ca. 90,1% af íb.
-Samtals á lífi 1950 10847
manns fæddir á ísafirði og í ísa-
fjarðarsýslum, þar af búsettir í
sömu umdæmum 5554 eða 51,2%.
Newman
Frh. úr opnu.
helga sg uppeldi þeirra en leika
í kvikmyndum, og hún fer held-
ur með manni sínum til fjar-
lægra staða þar sem hann þarf
að leika en að vera kyrr í Holly-
vvood og sinna eigin starfi. Hún
leikur í fáum myndum og lætur
ekkert eyðileggja samheldni
fjölskyldunnar sem henni er dýr
mætari en frægðarljóminn.
„Eg segi það með sanni, að
ég á bæði hamingju mína sem
manns og velgengni mína sem
leikara að þakka þessari dásam-
legu konu sem ég er kvæntur”,
segir Paul Newman. ,,Hún hefur
í kringum sig sex börn — nei,
sjö, meina ég — og er öllum
þeirra jafnómissandi".
Það þarf ekki að taka fram
hvert sjöunda barnið er — hin
dáða súper-stjarna í eigin per-
sónu.
Hér er dæmi um samvinnu á síldarmiðunum, sem lengri hefur tíðkazt. Skip fá iðulega síld hvert frá
öðru, og er það auðvelt verk í framkvæmd, eins og sjá má af myndinni. Hér er Héðinn að láta Guð-
rúnu Guðleifsdóttur hafa síld, og að þessar gjöf lokinni var Héðinn búinn að láta öðrum skipum i té
nær því 500 tonn á þessu sumri.