Alþýðublaðið - 24.09.1967, Side 7
24.. september 1967 - Sunnudags Alþýðublaðið
?
ILLYWOOD
Ja, það ,eru ekki allt mín
eigin börn. Ég á sex. Svo eru
tvö sem ég á bara í sumarleyf-
unum. Eftir á skilum við þeim
aftur heim til foreldra sinna.
Við erum alltof mörg á heimil-
inu, enda erum við öll jafnhrif
in af að hafa gesti. Stundum
verðum við að telja hvað onarg
ir sitja við borðið — fjórtán,
ífimmtán, tuttugu, (þrjátiL'j.
Okkur líkar prýðilega að vera
í fjölmenni, en við þurfum líka
stórt húsnæði. Hugsið yður
bara: við eigum heimili á þrem
ur stöðum, New York, Los Ang
eles og Connectieut, og það eru
víst upp undir fimmtiu rúm
samanlagt í þessum þremur
húsum.
Hvar fellur yður bezt að búa
—í New York, Los Ængeles eða
Connecticut?
Konan imín og ég vildum
gjarnan búa í New York. En
starf okkar í kvikmyndunum
krefst þess, að við eyðum mikl-
um hluta ársins í Los Angeles,
og Iþess vegna er Kalífornía
aðalheimili okkar. í fyrra vor-
um við t. d. átta .mánuði þar.
Krakkarnir ganga í skóla í Los
Angeles, og sem betur fer elska
þau öll Kalíforníu, enda er nátt
úrufegurðin mikil þar og lofts-
lagið unaðslegt.
Viljið þér segja okkur eitt-
hvað urn fjölskyldu yðar?
Þá er fyrst að telja upp list-
ann. Scott er elztur af krökk-
unum mínum sex; hann verður
seytján ára í september. Hann
er prýðisgóður íþróttamaður og
vitlaus í íþróttir eins og ég var
á hans aldri. Susan er næstelzt;
hún hefur mikinn áhuga lá, leik-
list. Raunar er hún eltki nema
fjórtán ára, svo að það er full-
snemmt að spá nokkru um fram-
tíð hennar, en ég held að hún
hafi hæfileika í þá átt. Svo er
Stephanie eða Steffie eins og við
köllum hana. Það kemur kann-
ski ekki vel út, að ég segi það,
en hún spilar hreint og beint
undursamlega á píanó. Hún er
dugleg stúlka eins og eldri syst-
ir hennar.
Yngstar eru Nelle, Melissa og
Clea. Of ungar til að hægt sé
að segja, að þær hafi sýnt hæfi-
leika eða hneigðir í sérstaka
átt. Melissa sem er fjögurra ára
virðist vera músíkölsk. En mað-
ur sér með tímanum hvað fyrir
þekn liggur.
Þrjú eldri börnin hafið þér
átt með fyrri konu yðar, hr.
Newman, en seinni kona yðar,
Joanne Woodward, hefur aftur
á móti gefið yður þau yngri
þrjú. Hvernig er nú samkomu-
lag'ið milli barnanna? Eru þau
ólík hvert öðru þau sem þér
áttuð með fyrri konu yðar, Jack-
ie Whitte, og hin sem þér hafið
átt með Joanne Woodward.
Nei, guði sé lof, það er ekki
neinn rnunur þar á. Ég hélt líka,
að það væri sitt hvað að vera
móðir eða stjúpmóðir, en það
hefur ekki reynzt þannig í þessu
tilviki. Joanne finnst hún eiga
öll börnin mín jafnt, og þeim
finnst þau vera systkin í orðs-
ins fyllstu merkingu. Ég er viss
um, að elztu krakkarnir, Scott og
Susan, myndu fórna lífi sínu fyr
ir yngstu börnin þrjú ef út í það
færi.
Já, ég get sagt yður, að Scott
og Susan vinna einmitt fyrri vasa
peningunum sínum á þann hátt,
að Scott fylgir yngri systkinum
sínum í skólann á hverjum degi
og Susan passar þau ef við Jo-
anne þurfum að fara út á kvöld-
in.
Teljið þér yður vera strangan
föður?
Nei, ég held ekki, að ég geri
of miklar kröfur til barnanna
minna.
Margir af starfsbræðrum yð-
ar láta börnum sínum- í té svo
ríkulega vasapeninga, að þeir
myndu nægja venjulegum fjöl-
skylduföður fyrir öllura hans út-
gjöldum. Hvað gerið þér?
Ja, litlu krökkunum gef ég ó-
sköp lítið, einhvern hégóma bara
til gamans. Og elztu krakkarnir
vinna fyrir sínum vasapeningum
eins og ég hef þegar sagt. Ég álít,
að það sé hollt fyrir unglinga á
þeirra aldri — seytján og fjórt-
án — að læra að fara með pen-
inga, safna fyrir því sem þá lang
ar að veita sér, o.s.frv. þau þurfa
að læra að meta gildi pening-
anna, og ég held, að það sé bezt,
að þau hafi hvorki svo rúman
fjárhag, að þau geti keypt sér
hvað sem þau vilja, né svo naum-
an, að þau geti ekki safnað sér
fyrir neinu sem varið er í.
í fyrra langaði Scott og Sus-
an að skreppa í ferðalag. Þau
lögðu fyrir einn og einn dollara
þangað til upphæðin var kcm-
in; þá spurðu þau mig hvort þau
mættu fara. Það varð úr, að við
fórum öll saman, allur Newman-
ættbálkurinn. Og Scott og Susan
borguðu alveg fyrir sig: farseðla,
hótelherbergi, máltíðir og ann-
að tilheyrandi.
Þannig talar fjölskyldufaðir-
inn Paul Newman. Hinn ómót-
stæðilegi hálfguð kvennanna er
sem sé hugulsamur og ábyrgur
heimilisfaðir í raunveruleikan-
um. En hann er ekki einn. Hann
á því láni að fagna að vera
kvæntur óvenjulega skynsamri
og góðri konu.
Joanne Woodward er ekki að-
eins í hópi beztu leikkvenna sem
starfað hafa í Hollywood, heldur
er hún ein af þeim örfáu stjörn-
um sem tekizt hefur að sameina
listina og fjölskyldulífið. Síðan
þau giftu sig í Las Vegas árið
1958 hefur frægð þeirra. beggja
breiðzt um allan heiminn, en
Joanne lét hvorki frægðina né
Oscarinn villa séi’ sýn. Ef hún
þurfti stundum að velja á milli
valcii hún mann sinn og börn.
Það þótti óskiijanlegt þegar hún
vildi heldur eigriast börn og
Pramhald á 3. síðu.
ingjusamur fjölskyldufaðir
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur
Vetrarstarf félagsins hefst 2. okt.
Flokkar fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Byrjendur og framhald.
Barna- og unglingaflokkar:
Kennslustaður Fríkirkjuvegur 11.
Kennt verður á þriðjud. og fimmtud.
Námskeið fyrir fullorðna í gömlu dönsunum
og sígildum þjóðdönsum:
Kennslustaður Alþýðuhúsið v/Hverfisgötu.
Kennt verður á mánud. og miðvikud.
Innritun og upplýsingar daglega frá kl. 5-8.
að Fríkirkjuvegi 11 — sími 15937.
ÞJÓÐDANSAFÉLAGIÐ.
rl' 1 A
1 ^
/a
D
THE TRiBUNE
23' LOWBCY MODEL NO. ’fCX.&nT
RCAVíCTORÍ^
HIN VINSÆLU RCA SJÓNVARPSTÆKI
fyrirliggjandi í mörgum stærðum. — 2ja ára
ábyrgð. — Allar nánari upplýsingar veitir
RCA umboðið
Georg Ásmundason & Co
Suðurlandsbraut 10. Símar 81180 og 35277.