Alþýðublaðið - 24.09.1967, Síða 9
24. september 1967 - Sunnudags Alþýðubla'ðið
9
Ný dönsk mynd, gerfl eftir hlnni
umdeildu metsölubók Siv Holms
„Jeg en kvinde".
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnufl börnum tnnan Ið ára.
Gög og Gokke
til sjós
Sýnd kl. 3
BÍLAKAUP
15812 — 23900
Höfum kaupendur afl flest-
nm tegundum og árgerflum
af nýlegum bifrelflum.
Vinsamlegast látlfl skrá blf-
relðina sem fyrst.
BÍLAKAUP
Skúlagötu 55 vifl Rauflará
Simar 15812 - 23900,
Fjórhjóla vöruvagnar
fyrirliggjandl
Kristinn Jónsson
Vagna- & bílasmiflja
Grettisgötu 21 - Sími 13343.
Tökum aff okkur alls konar
ál-suður IJlgf
Kristinn Jónsson
Vagna- & bilasmiflja
Grettisgötu 21 - Sími 13343.
Kassa- og sekkjartrillur
fyrirliggjandi
Kristinn Jónsson
Vagna- & bilasmiffja
Grettisgötu 21 - Sími 13343.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstafell I
i
byggfngavðmverzlun
Béttarholtsvegl t
Bfml S 88 40. •
MARTHA ARGERICH
MARTHA ARGERICH, argentínski pí-
anóleikarinn, sem leikur með Synfón-
íuhljómsveit íslands næstk. fimmtudag.
F.kki fer alltaf saman fríðleiki og andans
fegurð, og þótt hið ytra trafið hafi minna
að segja, hvað tónlistarfólk áhrærir, sakar
ekki að þetta tvennt prýði einu og sömu
manneskjuna. Hugsa margir gott til fyrstu
’áskriftarhljómleika symfóníuhljómsveitar-
innar á fimmtudaginn, þar sem hinn ungi
argentínski píanóleikari, Martha Argerich
leikur með hljómsveitinni píanókonsert í
G-dúr eftir Ravel og konsert nr. 3 eftir
Prokofieff. — Bara að hljómsveitarmenn
irnir gleymi sér ekki við að horfa á hana
og fari út af laginu......
Argerich er í hópi þess unga og efnilega
tónlistarfólks milli tvítugs og þrítugs, sem
hefur haslað sér völl á tónlistarsviðinli síð-
ustu árin, en af þeirri kynslóð mætti nefna
píanóleikarann Daníel Barenholm, sem á
þessu ári hefur leikið inn á hljómplötur Són
ötur eftir Beethoven og píanókonserta eftir
Mozart og er nú farinn að stjórna og ræðst
ekki á garðinn þar em hann er lægstur; á
nýútkominni hljómplötu stjórnar hann
symfóníum Mozarts nr. 32, 35 (Haffner)
og 38 (Prague). Þá eru þau Vladimir As-
kenazi, Jacquelin du Pré, Stephen Bish-
op, John Ogdon, John Browning og hljóm-
sveitarstjórarnir Zubin Metha og Pierino
Gamba.
Argerich var undrabarn í píanóleik, hóf
nám hjá V. Saramuzza í Buenos Aires
þriggja ára að aldri og þótti svo efnileg,
að Juan Peron, sem þá var forseti Argen-
tíu, skipaði föður hennar í stöðu við sendi-
ráðið í Vín, þrátt. fyrir að þeir væru and-
stæðingar í stjórnmálum, aðeins til þess
að Martha gæti notið leiðsagnar hinna
beztu kennara. í Vín nam hún hjá Fried-
rich Gulda. Ennfremur stundaði hún nám
hjá frú Lipatti og N. Magaloff í Geneve.
Sautján ára hafði hún unnið fyrstu verð-
laun í tónlistarsamkeppni í Geneve og
Busioniverðlaunin í Bolzano og þar að auki
ferðast víða um Evrópu og haldið tónleika.
En nítján ára sagði liún skilið við Evrópu
og píanóið og fluttist til Bandaríkjanna,
þar sem hún átti í miklu sálarstríði og
hugraunum. Fyrir þremur árum snéri hún
sér aftur að píanóinu og sigraði þá í Chop-
inkeppninni í Varsjá (1964). í fyrra hélt hún
svo eftirminnilega tónleika í New York,
sem juku mjög á hróður hennar.
Martha Argerich lék á Edinborgarhátíð-
inni í þessum mánuði og hreif áheyrendur
þar með yndisþokka sínum og fágætri
snilli, er hún lék konsert fyrir píanó og
blásturhljóðfæri eftir Stravinsky, sónötu
nr. 2 eftir Schumann og verk eftir Bach
og Chopin. Þó stóð henni samkeppni af
stjörnum eins og Joan Rutherland, sem söng
í endurvakinni óperu Haydns, Arfeo og
Evridíka, George Balanchine með Ballet
New York borgar og Herbert von Karajan
ásamt Fílharmoníuliljómsveit Berlínar, og
mörgu öðru þekktu listafólki.
í blaðaummælum er sagt, að áheyrendur
hafi setið agndofa, er þeir sáu hana koma
svífandi með slegið hár inn á sviðið, ber-
arma í hvítum kjól og lét hvítan vasaklút-
inn falla á svart píanóið, um leið og hún
settist. Er hljómsveitin hóf að leika verk
Stravinskys, lygndi hún aftur dökkbrúnum
augunum og fylgdi hljómfallinu með líkam-
anum. Síðan byrjaði hún — hreyfði fyrst
hendurnar varfærnislega yfir nótnaborðið
og skipti svo yfir í stakkatohraða. Hún sat
keik og.kvik við hljóðfærið og þræddi með
aðdáunarverðum hraða slungnar og kunn-
áttusamlegar synkópur þessa erfiða tónverks
og átti alls kostar við Stravinsky. í þögn-
unum strauk hún hárið frá augunum.
Argerich fær orð fyrir að vera örgeðja
og tilfinninganæm og skemmtilega hjátrú-
arfull, hefur ávallt fót af brotnu vínglasi
sér til heilla í pússi sínu. „Ég kemst auð-
veldlega í uppnám,” segir hún, „og mér
hættir við að ofgera. Fyrir tónleika fæ ég
ósvikinn sviðsskjálfta; mér finnst pianóið
vera á við stórt fjall, sem ég þurfi að sigr-
ast á. Fyrst þegar ég er farin að spila, finn
ég að ég hef vald yfir því. Píanóið er eins
og sá sem maður elskar, maður þolir ekki
nálægð þess alla tíð, en getur ekki lifað án
þess.
í vetur me^tim við eiga von á tveimur
híjómplötum með Mörthu Argerich frá
Deutsche Grammophon. — G. P.
ÍBÚÐ
2ja herb. íbúð óskast til leigu í austurbæ frá
1. okt. n.k. eða síðar. Fyrirframgreiðsla.
Uppl. í síma 38336 og 14906.
ÍSLANDSMÓTIÐ
1. DEILD
Úrsiit í íslandsmótinu
í knattspyrnu fer fram í dag, sunnudag kl. 2
með leik milli
Fram og Vals
Dómari Magnús Pétursson.
Línuverðir Karl Jóhannsson og Hreiðar
Ársælsson.
Aðgangseyrir: Stúka kr. 100.00 ,stæði kr. 60.00,
böm kr. 25.00.
MÓTANEFND.
Heilsuvernd
Námskeið mín í tauga- og vöðvaslökun, öndunaræfingum
og léttum þjálfunaræfingum fyrir konur og karla, hefjast
i byrjun októher. Einnig hópkennsla í þessum greinum
fyrir samtök einstaklinga, félagá og starfshópa. Talið viff
mig sem fyrst. Sími 12240.
VIGNIR ANDRÉSSON, íþróttakennari.
Seljið blað og merki Sjálfsbjargar í dag. — Komið í barna-
skólana í Reykjavík, Árbæjarhverfi, Kópavogi, Garðahreppi
og Hafnarfirði.
Opið frá kl. 10 f. b.
SJÁLFSBJÖRG,
T eiknari
Landsvjrkjun óskjar eftiiý að ráða teiknara
sem fyrst.
Umsækjendur hafi samband við skrifstofu-
stjóra Landsvirkjunar,
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík.
I